NT - 15.10.1985, Page 24

NT - 15.10.1985, Page 24
■ ——■■■■■ ........... ' .....................................................III. _ IMA 68- Vid tökum við abendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja abendingu sem leið ir til fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir abendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495 ►ATiIR KUNNA GOTTAD META Ánægjuleg niðurstaða fyrir íslenska ostameistara og neytendur. Á mjólkurvörusýningu sem nýlega var haldin í Herning í Danmörku voru íslenskir ostar metnir ásamt dönskum ostum. Er skemmst frá því að segja að íslensku ostarnir gáfu þeim dönsku ekkert eftir, enda fengu þeir sambærilega meðaleinkunn í gæðamati dönsku sérfræðinganna, eða rúmlega 11 af 15 mögulegum. Danir eru annálaðir fagmenn í ostagerð og því er útkoma íslensku ostanna mjög uppörvandi fyrir íslenska ostameistara. Hún er um leið skýring á því hvers vegna íslendingar hafa skipað sér á bekk með mestu ostaneysluþjóðum heims. íslensku ostarnir sem fengu hæstu einkunn voru: Mysingur sem fékk 12,8 í einkunn. Framleiðandi er Mjólkursamlag KEA á Akureyri og ostameistari er Oddgeir Sigurjónsson. 45% Maribóostur sem fékk 12.5 í einkunn. Framleiðandi er Mjólkursamlag K.S. á Sauðár- króki og ostameistari er Haukur Pálsson. Smurostar frá Osta- og smjörsölunni sem fengu 12,5 í einkunn. Ostameistari erGuðmundurGeir Gunnarsson.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.