NT - 20.10.1985, Side 6

NT - 20.10.1985, Side 6
6 Sunnudagur 20. október NT Viðtal við Vilhjálm Vilhjálmsson, 12 ára nemanda í Álftamýrarskóla og áhugamann um íþróttir Vilhjálmur Vilhjálmsson varð dálítið hissa þegar ég hringdi í hann og bað um viðtal. Honum hefur sjálfsagt fundist hann ekki hafa afrekað nóg um ævina til þess að einhver blaðamaður gæti fengið áhuga á honum. En þegar ég sagðist kæra mig kollóttan um það gaf Vilhjálmur sig og við mæltum okkur mót niður á Hressing- arskála. Þar sagði Vilhjálmur frá því hvernig dagurinn líður hjá honum yfir glasi af kóki. Þar sem ég vildi fara rétt að öllu og byrja á byrjuninni spurði ég Vilhjálm fyrst að því hvenær hann vaknaði á morgnana. Hálf átta og svo fer ég í skólann. Byrjar skólinn klukkan átta? Nei, korfer yfir. Og hvað ertu lengi í skólanum? Ég er alltaf allavega til tuttugu mínútur í eitt, tólf fjörutíu, þá er ég búinn nema tvo daga í viku, þá er ég eftir hádegi í eðlisfræði, íþróttum og aukatímum. Hvað erþað sem þú lærir í skólan- um? Reikna, skrifa, lesa, móðurmál, stafsetningu, kvæði, líffræði, ensku, dönsku, íþróttir, tónmennt og landa- fræði. Ekki hefurðu lært allt þetta frá því þú byrjaðir í skólanum? Þetta er þriðji veturinn min í ensku og fyrsti í dönsku. Það er öfugt við þegar ég var í skóla. Það er líka svoleiðis í flestum skólum. Er erfitt að læra tungumál? Nei, nei. Og kanntu mikið? Já, já. Hvað er skemmtilegast í skólan- um? Landafræði, íslenska og enska. Síðan reikningur. Afhverju er þetta skemmtilegast? Bara. Mér finnst skemmtilegast að læra það. En hvað er leiðinlegast? Ekkert sérstakt. Er bara gaman i skólanum? Já, mér finnst það. Hvað lærir þú í landafræði sem er svona skemmtilegt? Við erum að læra um Evrópu. Og hvað lærirþú um Evrópu? Bara um Evrópulöndin, Frakkland og þau lönd. Við lærum um landið og um landshætti og atvinnuvegi. Veistu þá meira núna en áður? Jáhá. Hvað gerirþú í móðurmálstímum ? Við erum fimm daga í viku í móðurmáli. Það er verið að kenna okkur greini og lýsingarorð og sagn- orð og svoleiðis. Líka efsta stig, miðstig og neðsta stig og fyrstu persónu, aðra persónu og þriðju persónu. Síðan skrifum við upp eftir kennar- anum. Og við eigum að breyta þátíð í nútíð og svoleiðis. Síðan gerum við stafsetningaræfingar einu sinni í viku. Svo eru töfluæfingar. Þá er keppni milli raða. Það eru svo margir í dyraröð, þeir eru jafn margir og bæði miðröð og gluggaröð til samans, þannig að dyraröð keppir alltaf við hinar raðirnar saman. Kennarinn býr svo til orð eða setningu og þá fer einn og einn uppá töflu og skrifar þar, en hinir sem sitja í sætunum skrifa í bækurnar. Ef það er einhver villa þá fær röðin ekkert stig en ef það er engin villa þá fáum við eitt stig. Það var svona keppni líka í fyrra og þá vann dyraröðin. Ert þú í dyraröð? Já. Við erum bestir. En hvernig eru enskutímarnir? Þar erum við með lestrarbók og vinnubók. Og líka glósubók sem við skrifum í orðin og hvað þau þýða. Það er líka svoleiðis í dönsku. Lærirþú ekki líka að tala ensku og dönsku? Jú, við lesum upphátt. Svo hlustum við líka á spólur í dönsku og lesum fyrst öll saman og síðan einn og einn smákafla. Gerir þú ekki stundum eitthvað annað í skólanum en sitja í tímum? Jú, við gerðum videómynd. Við erum búin að gera sittáhvað eitthvað. Við áttum að gera eitthvað grín í hittifyrra og í fyrra áttum við að lesa kvæði. Hvernig grín gerðuð þið? Það var umræðuþáttur. Um hvað? Hann var bara um allt. Einn átti að stjórna umræðunum, einn átti að vera með hundahaldi og hinn á móti hundum í Reykjavík. Síðan kom bara einhvernveginn útúr þessu. Voruð þið þá að apa eftir sjónvarp- inu. Já. En kvæðið í fyrra? Við áttum að lesa Ijóð og síðan voru spurningar. Eftir hvern er kvæð- ið og svoleiðis. Með hvaða kvæði fórstþú? Ég man það ekki. Ég man bara að ég var með fjórðu spurninguna. En ég man ekki eftir kvæðinu né hvaða höfund ég var með. En er ekki stundum bekkjarkvöld í skólanum? Nei. En skákklúbbur eða... Það er alltaf eftir jólin. Annars varð ég skákmeistari Alftamýrarskóla í yngri flokknum í fyrra. Teflirðu mikið? Já, já. Ég á skáktölvu og æfi mig oft á henni. Ekki á hverjum degi, kannsi þrjár skákir á viku. En eftir jólin þegar skólaskákin byrjar þá eru örugglega allir á hverjum degi að tefla. í fyrra þá fórum við þrír úr bekknum heim til einhvers og héldum bara mót, alli'r tefla við alla. Gerðir þú einhver verkefni í um- ferðarvikunni? Já, við vorum að athuga hvort bílstjórar tækju tillit til gangbrauta og hvort fólk færi rétt yfir götu. Svo skrifuðum við það niður á blað. Hvað kom útúrþví? Flest var nei. Tóku þá bílstjórarnir ekkert tillit til gangbrauta? Nei. Og síðan voru flestir ekki með bílbelti. Eg held að það hafi verið jafn margir sem tóku tillit til gangbrauta og þeir sem ekki tóku tillit. Er það slæmt? Já, en það gengu líka ofboðslega margir skakkt yfir götu þegar gang- braut var mjög nálægt. Bæði fullorðnir og börn? Bæði. Börnin voru þó ennþá skárri Er fullorðið fólk óþekkt? Já. Ekki alveg elsta fólkið, heldur svona tuttugu ára til fimmtíu ára. Eru gagnfræðadeildir í Aiftamýrar- skóla? Já. / sama húsinu. Já, en það er annar inngangur. Svo er líka blindradeild í skólanum. Er hún aðskilin frá öðrum bekkjum i skólanum? Já. En það er stelpa í mínum bekk sem sér mjög illa og hún er alltaf í blindradeildinni á daginn þegar skól- inn er búinn. Býrðu einn með mömmu þinni? Nei, eldri bróðir minn sem er tutt- ugu og eins árs býr líka heima. Vinnur mamma þín allan daginn? Hún er á barnaheimilinu og stund- um er hún búin háif fjögur til fjögur. Hvað gerir þú þá þegar þú kemur heim úr skólanum og enginn er heima? Ég fer oftast út eða fer að læra það sem ég þarf að gera heima. Eldarþú hádegismat? Ég elda méraldrei neitt í hádeginu, fæ mér bara yogurt og svoleiðis. Þarftu að læra mikið heima? Á mánudögum þá eigum við að læra kvæði og þá gerum við líka móðurmálsæfingar, reiknum og ger- um heimaverkefni fyrir ensku. Á þriðjudögum eru alltaf einhverjar móðurmálsæfingar og enska, danska, liffræði og allt það bætist síðan við eftir því hvaða dagur er. Oghvað ertu lengi að læra heima ? Þegar ég þarf að læra kvæði er ég stundum klukkutíma, annars er ég svona fjörutíu mínútur. Hvað gerir þú þegar þú ert ekki í skólanum eða að læra heima? Ég æfi handbolta og fótbolta með Fram. Hvað er það oft í viku? Það eru komnar innanhússæfingar í fótboltanum og við æfum á sunnu- dögum frá níu fjörutíu til ellefu tutt- ugu. Síðan eru handboltaæfingar á sunnudögum klukkan ellefu tuttugu til svolítið yfir tólf og líka á þriðjudög- um. Ferðu fyrst í fótbolta á sunnudags- morgnum og svo strax á eftir á handboltaæfingu? Já. Ertu ekki þreyttur eftirþetta? Svolítið, stundum. Keppið þið við önnur lið? í handbolta erum við búnir að keppa einn leik og eigum svo aö keppa annan leik um þessa helgi. Hvar spilarðu á vellinum? Ég er fyrir utan á miðjunni. Ertu í A-liðinu? Já. Ég byrjaði inná síðast en ég veit ekki hvernig það verður núna. Er mikil samkeppni um að komast í lið? Já, hjá þeim sem eru á eldri árinu. Þeir sem eru á yngra árinu komast allavega ekki í fjórtán manna hópinn. Það eru bara þrír á yngra árinu sem eru í A-liðinu. Svo eru bara þrír sem byrja alltaf inná. Þeir eru svo stórir og góðir. Það er einn á yngra árinu sem er ofboðslega stór, hann byrjar alltaf inná. Erþá raðað i liðið eftir stærð? Nei, þeir eru svo skotfastir. Hvað gerir þú þegar þú ert hvorki í skólanum né í íþróttum?

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.