NT - 20.10.1985, Qupperneq 16
1 6 Sunnudagur 20. október NT
Danvægt 205 handstýrð (lóðavog) ....... ca. kr. 18.550.-
Danvægt 205 E tölvustýrð............... ca. kr. 37.700.-
Danvægt fjárvogin er stöðug og hljóðlát. Ærnar eru því rolegar og
aflesturinn er nákvæmari og gengur fljótar fyrir sig.
Bændur, sauöfjárræktarfélög, kynnið ykkur nánar
eiginleika Danvægt fjárvoganna.
G/obus?
LÁGMÚLI 5, SIMI 81555
DANVÆGT
FJÁRVOGIR
BÆNDUR
Graskögglarnir eru góður kostur,
ódýrt og kjarnmikið íslenskt fóður
#
Vekjum sérstaka athygli að graskögglum
blönduðum innlendum fóðurefnum,
svo sem meltu, fiskimjöli og byggi.
#
Leitið nánari upplýsinga
í verslunum og hjá söluaðilum
Heilir og sælir lesendur góðir. Enn
vil ég minna ykkur á að senda mér
efni í þáttinn.
Þura í Garði var landskunnur hag-
yrðingur, eitt sinn var hún á gangi í
lystigarðinum á Akureyri og fann þá
buxnatölu á jörðunni. Þá kvað Þura.
Morgungolan svalar svalar
syndugum hugsunum.
Sínu máli talar talar
talan úr buxunum.
Og einnig orti Þura þessa vísu.
Gaman er að gifta slg
gefi saman prestur.
Þó er fyrir fleiri en mig
frestur á illu bestur.
Jóhannes Stefánsson á Kleifum í
Dalasýslu kvað um bónda einn er
tímdi ekki að hafa hest tengdaföður
síns á húsi en ráðgerði oft að byggja
yfir hann lítinn kofa.
Litinn bónda langar mest
lítinn kofa að byggja.
Yfir litinn lipran hest
sem lítið þarfað tyggja.
Jón S. Bergmann var landsþekktur
hagyrðingur á sínum tíma, hann
hefur væntanlega kunnað þá list að
gera sig ánægðan með lítið ef dæma
má af eftirfarandi vísu.
Þó að bregðist hyllin há
hæfir ekki að kvarta.
Meðan ég hefylinn frá
einu kattarhjarta.
Og um þéringar kvað Jón.
Auður dramb og falleg föt
fyrst af öllu þjérist.
Og menn sem hafa mör og kjöt
meir en almennt gerist.
Umsjónarmaður þáttarins sendi
vini sínum er þá rak svínabúskap
suður á landi eftirfarandi vísur í
jólakortum.
Drottinn sem að uppi er
engu gleymir svíni.
Hann um jólin hygli þér
helst með brennivíni.
Þessi jólin þér svo hæfi
þrjóti ei vín á kútunum.
Vona ég þín verði ævi
í vetur sem hjá hrútunum.
Löngum hefur Bakkus karlinn og
fiaskan orðið mönnum að yrkisefni.
Ekki veit ég um höfund að næstu vísu
sem er um brennivínsflöskuna.
Ég fer með þig eins og ég ætti
og uni mér best hjá þér
fer ekki fyr en ég hætti
og færi ekki þó að ég mætti
og hætti ekki fyr en ég fer.
Baldur Eyjólfsson Skagapóstur (Á
Skaga hinum nyrðri) orti:
Bakkus mætur herðir hug
hreint upprætir trega
Vínið bætir drengjum dug
drukkið gætilega.
Mig vantar höfund að næstu vísu.
Lífs úr bætir brasinu
bjartar næturstundir
að eiga glætu á glasinu
og góða fætur undir.
En menn geta orðið býsna háðir
Bakkusi gamla samanber næstu
vísu:
Efst í hausnum augun sjást
illskufull og lostaþrútin.
Festþau hafa ofurást
við Ákavítis flöskustútinn.
Bogi Sigurðsson var kaupmaður í
Skarðstöð á Skarðsströnd kringum
aldamótin síðustu. Það bar eitt sinn
til að bóndi nokkur sem staddur var í
búð hans bað hann að gefa sér
snærisspotta til að binda fyrir poka.
Kaupmaður svarar af bragði „notaðu
úr þér helvítis rassgörnina". Bónda
varð svarafátt en Jón Jónatansson á
Máskeldu sem þarna var nærstaddur
vék sér að bónda og sagði „hefði ég
verið í þínum sporum núna hefði ég
svarað svona“:
Bíddu hægur Bogi minn
bónina vek ég hina
að úr þér reki andskotinn
alla rassgörnina.
Sagan segir að kaupmaður hafi
rétt rjólbita að Jóni til að hann segði
ekki meira.
ísleifur Gíslason á Sauðárkróki
kvað um kaupmann einn:
Yfir bárur ágirndar
elligrár og slitinn
réri árum rógburðar
rann af hári svitinn.
Hannes Blöndal kvað þessi vafa-
sömu eftirmæli:
Nú er N.N. fallinn frá
fáirgráta kauðan.
Auður stór en æra smá
eftir fannst hann dauðan.
Þurftamanns hann þoldi kvein
þykkt var náðareyra.
Hann gaf aldrei hundi bein
hvað þá nokkuð meira.
Hyggjan var af ráðum rík
refja til og pretta.
Sálin eins og saurug fiik
saga hans erþetta.
Guðmundur E. Geirdal orti eftirfar-
andi vísu um konu eina:
Daðureygð og opinmynnt
álkuteygð og snúin.
Axlareygð og illa kynnt
út sig leigði frúin.
Og þessa orti Guðmundur líka:
/ niðamyrkri næturinnar
næ ég oftast Ijóssins til.
En í sorta sálar þinnar
sé ég ekki handaskil.
Rósberg G. Snædal kvað:
Settu upp hattinn hnepptu
frakkann
hafðu á þér fararsnið.
Mér finnst betra að horfa í
hnakkann
heldur en sjá í andlitið.
Þessa fallegu hringhendu kvað
Sigurður Breiðfjörð:
Norður loga Ijósin há
lofts um boga dregin
himins vogum iða á
af vindflogum slegin.
Ekki veit ég hver orti næstu vísu.
Inn um bæinn eins og skass
æðir þessi kona.
Fleiri hafa fætur og rass
en flíka því ekki svona.
Eggert Stefánsson frá Kleifum orti
í orðastað manns nokkurs er varð
það á að eignast barn í lausaleik:
Sumum hefnist furðu fljótt
fyrir að iðja og vaka.
0 að þessi eina nótt
yrði færð til baka.
Hér koma nokkrar gamlar vísur,
gaman væri ef einhver þekkti til
höfunda þeirra og tilefni að þeim:
Raun er að þvi Ránka mín
rækall má það heita.
Að enginn skuli enn til þín
yngispiltur leita.
Ingibjörg er aftandigur
og örmjó framan.
Skyldi ekki mega skera hana
sundur
og skeyta hana saman.
Finnast ekki fljóðin mörg
fróns um grundir breiðar.
Eins og þessi Ingibjörg
til áburðar og reiðar.
Hreinn Guðvarðarson úr Fljótum
kvað:
Ragnars örlög eru þúng
eftir því sem ég hef frétt.
Ánginn hefur engan púng
á honum er klofið slétt.
Þessi er ófeðruð:
lllt er að brúka í ástum' kák
ekki er gott að vaða reyk
efað svanninn segir skák
svo er mát í næsta leik.
Og um mann að nafni Agnar var
þetta kveðið á skákmóti:
Opnar frúarvæng uppá gátt
Agnar með leiftursóknum
og vinnur svo oftast á einhvern
hátt
endataflið með hróknum.
Látum þettá duga að sinni.
Stefán Jóhannesson
Kleifum
371 Dalasýslu
sími 93-4772