NT - 20.10.1985, Síða 22
22 Sunnudagur 20. október NT
Hjörtur Hjartar þáverandi forstjóri skipadeildar SÍS.
Stýrimaður prófar dælukerfi Hamrafells.
um helmingur alls innflutnings til
landsins. Nú hefir eitt af heimsins
stórveldum tekiö aö sér aö sjá um
innflutning á þessum vörum. Á
mælikvaröa hinnar stóru veraldar
er hinn helmingur innflutningsins
ogþó við væribættöllum útflutningi
okkar, hreinir smámunir. Ekki væri
fráleitt að hugsa sér, að eitthvert
nágrannaríki okkar eöa jafnvel
einn eöa tveir „skipakóngar“ byöu
íslensku ríkisstjórninni, aö taka
alla þessa flutninga aö sér, meö
þvi er viö fyrstu sýn- viröist, sæmi-
legum kjörum. Efíslenskrikisstjórn
fengi slíkt tilboð færibeturá því, að
hún samþykkti ekki það í fljótræði.
Slíkt samþykki mætti kannski rök-
styöja með þvi aö í bili spöruöust
nokkrar krónur. Hins vegar gæti
þaö lika fylgt, að íslenski kaup-
skipaflotinn biöi þess vart bætur.
Sagan hefur kennt okkur, að
snarþáttur sjálfstæðisbaráttu þjóö-
arinnar felst í því, áö viö getum
sjálfir annast siglingarmál okkar.
Þetta þurfum viö áfram aö muna og
gæta þess, aö láta ekki stundarfyr-
irbrigöi og annarlega verslunar-
háttu, raska ró okkar og meqin-
stefnu. “
„SÍS með afarkosti"
Strax daginn eftir birtust viöbrögð
við greininni í blöðunum. Tíminn stóð
að sjálfsögðu með samvinnuhreyf-
ingunni, Þjóðviljinn taldi Hamrafells-
málið sýna Ijóslega nauðsyn samein-
ingar skipafélaganna undir forsjá
ríkisins svo samkeppnisaðilar gengu
ekki að hvor öðrum dauðum og
Morgunblaðinu þóttu það váleg tíð-
indi ef kommúnistaríkið Rússland var
komið með fingurna í íslenska at-
vinnuþróun. 20. nóvember birtist síð-
an leiðari í Vísi sem var kröftugt
andsvar gegn röksemdum Hjartar.
Þar sagði meðal annars:
,,Grein forstjóra Skipadeildar
SIS, sem birtist í Tímanum i fyrra-
dag, hefur vakið mikla furöu vegna
einsýns málflutnings. Var í grein-
inni kvartað um þaö aö í nýgeröum
olíusamningum viö Sovétrikin skuli
þeim faldirolíuflutningarnir, enskip
SÍS, Hamrafell, ekki látiö sitja fyrir
þeim. Segirhann aö flutningstilboö
fíússa sé „dumping“ (óraunhæf
undirboö) og þannig ekki í sam-
ræmi viö raunverulegan kostnaö
flutninganna. Vegna þessara rang-
færslna hefur viðskiftamálaráðu-
neytið séö sig tilneytt til aö gefa út
yfirlýsingu um málið i gær. Kemur
þar fram aö SÍS kraföist miklu
hærra farmgjalds fyrir olíuflutning-
ana meö Hamrafellinu en fíússar
buöu og íslensku oliufélögin töldu
sig geta samþykkt. Er þess vegna
erfitt aö sjá hvers vegna skylda
heföi átt olíufélögin tilþess aö flytja
oliu og bensín til landsins fyrir
miklu hærra verð en fáanlegt var-
verö sem liggur verulega yfir
m heimsmarkaösveröi olíufarm-
gjalda. SÍS stóö til boöa aö láta
Hamrafelliö annast flutningana nú
eins og á árunum 1958-1963 fyrir
samkeppnishæft verö, og reyndar
voru olíufélögin fús til þess að
greiöa nokkru hærra verö veana
þess öryggis sem i því felst afiata
íslensk skip annast flutningana.
En tilboö SÍS var svo langtum
hærra en markaösverö, aö fráleitt
hefði veriö aö taka því. Þpss veana
ergrein skipaforstjóra SIS torskilin
í Ijósiþessara staöreynda. Að öðru
jöfnu er rétt og sjálfsagt aö íslensk
skip annist flutninga tillandsins. En
þjóöin getur ekki gengiö að neinum
afarkostum í þvi efni. Þaö væru
sannarlega annarlegir viöskifta-
hættir. “
í grein sem „samvinnumaður"
skrifar í Tímann tveim dögum síðar
kom upp á yfirborðið undiralda sem
kraumaði alltaf undir öllum málflutn-
ingi þeirra sem.tóku þátt í deilunum.
Hann segir:
„Samvinnusamtökin áttu
olíuskipiö, þess vegna á aö stööva
þaö. Ef samkeppnismenn hefðu
átt annaö olíuskip, keypt á sama
tíma, þá heföiallt veriö íbesta lági.
Þá heföi báöum skipunum veriö
skömmtuð þau farmgjöld, sem
þurfti til þess aö standa undir
rekstri þeirra og viö heföum sjálfir
annast nær alla okkar oliuflutn-
inga. “
Ríkisstjórnirt sek
Hjortur Hjartar skrifaði aðra grein í
Tímann þann 24. nóvember og dró
niðurstöður sínar saman í fimm liði:
„ 1. Ríkisstjórnin er samningsaöili
um kaup og flutning olíunnar
frá Rússlandi til islands.
2. Olíufélögin hafa með höndum
framkvæmd samnings þessa
í umboði viökomandi ráðu-
neytis.
3. Rússar buðust nú til aö flytja
alla olíuna til íslands. Það
voru þeirhins vegarófáanlegir
til aö gera á seinasta ári en
flutningsgjald þeirra er langt
fyrir neöan markaösfragt.
4. Þegar þaö lá fyrir, aö Rússar
voru ófáanlegir til aö flytja
nema 60% clean olíunnar til
islands á yfirstandandi ári,
voru flutningarnir tryggöir á
þann hátt, aö gerður varsamn-
ingur viö Hamrafell um að
flytja mismuninn fyrir sömu
fragt og heimsmarkáöur sýndi.
5. Eigendur Hamrafells buöu nú,
aö hafa skipið í þessum flutn-
ingum á árinu 1965 á sama
grundvelli og á yfirstandandi
ári eöa fyrir sömu meöalfragt
og greidd er nú - þaö er,
almenna heimsmarkaösfragt
eins og hún hefir veriö 1964. -
Þeir treystu sér hins vegar
ekki til aö flytja olíuna fyrir
sömu fragt og gilti í„dumping“
tilboði Rússa. - Þaö var ríkis-
stjórnin sem taldi, aö réttara
væri aö semja viö Rússa en
hinn íslenska samningsaöila. “
Daginn eftir birtu blöðin tilkynningu
viðskiftaráðuneytisins frá 18. nó-
vember aftur til áréttingar. Þar kam
fram eins og áður sagði að olíufélögin
sjálf voru umboðsaðilar viðskifta-
ráðuneytisins við samningana og þau
því sjálf hafnað tilboði eigenda
Hamrafells. Einnig kom þar fram að
sú fragt sem Hamrafellið fékk árið
1964 var í fyrsta skifti í sögu flutning-
anna á hærra verði en það verð sem
Rússar tóku.
Vísir birti grein á forsíðu til árétting-
ar því að forsvaranlegt hefði verið að
taka tilboði Rússa þar sem tilboð
þeirra hafi verið stórum hagstæðara.
„Spurning um
siglingaröryggi“
Þessu svarar Hjörtur Hjartar stuttu
síðar í Tímanum og segir meðal
annars:
„Þaö er útaf fyrir sig rétt, aö
samningsgerö við Hamrafell heföi
leitt til smávegis hækkunar eöa
litiö eitt yfir þrjá shillinga á tonn
miöaö viö heildarmagh clean
oliunnar, sem samiö var um. DeiÞ
an stendur hinsvegar ekki ein-
göngu um þetta, heldur eigi aö
síöur hitt, hvort rétt sé, aö grafa
undan öryggi því, sem íslenski
kaupskipaflotinn skapar og hvort
þeim aöilum, sem ábyrgir eiga að
teljast beri ekki skylda til aö skoöa
mál frá fleiru en einu sjónarmiði,
þegar þýöingarmiklar ákvarðanir
eru teknar.
Síðan tekur Hjörtur dæmi af
Bandaríkjamönnum og segir:
Rekstur kaupskipa undir banda-
riskum fána er mjög dýr. Laun og
almennur kostnaður er miklu hærri
en gerist í Evrópu og almennt gildir
hjá stærstu siglingarþjóðunum.
Bandarísk flutningaskip eru ekki
samkeppnisfær á frjálsum mark-
aði. Til verndar og viöhalds skipa-
rekstri hafa stjórnvöldin aöallega
gripiö til tvennskonar ráðstafana.
Annarsvegar er bandariskum skip-
um gefinn forgangsréttur aö vissu
marki til flutnings á vörum þeim,
sem út eru fluttar og hins vegar eru
skipafélögunum greiddir beinir
styrkir. Dæmiþessu til staöfesting-
ar má taka frá viöskiftum íslands
og Bandaríkjanna frá 1961. Þá
voru keyftir tveir farmar af olíu frá
Ameríku og andviröiö greitt af
svokölluðum ICA gjaldeyrisreikn-
ingi. Leitaö var eftir kaupskipi á
frjálsum markaði til að taka annan
þessara farma og varþaö fáanlegt
fyrir fragt, sem nam $3.16 pr. tonn.
Á sama tima bauöst einnig ame-
rískt skip, en þaö kraföist $6.32 i
fragt... eöa tvöfalda fragt á við hið
fyrrgreinda. Amerísk yfirvöld kröfö-
^ust þess áö þeirra skip yröi notaö,
tyrstpaö hafðiekkiannað verkefni.
Það var liöur i þeirra pólitík til aö
viöhalda siglingaröryggi sínu. Og
þeir tóku á sig aö greiða mismun
flutningagjaldsins, sem á þessum
eina farmi var £48.538,05 eöa
rúmlega 2 milljónir króna. “
Eftir þessa grein Hjartar hljóðnuðu
deilurnar um Hamrafellsmálið í bili.
Annað slagið birtust í blöðunum fréttir
þess efnis að erfiðlega gengi að
útvega skipinu verkefni. Það rættist
þó úr stuttu fyrir áramótin 1964-65 og
fyrirsjáanlegt var að skipið hefði næg
verkefni að minnsta kosti hálft hið
nýbyrjaða ár.
Horlið var frá því að selja skipið og
það var í siglingum fyrir ýmsa aðila
allt árið 1965, meðal annars tók það
að sér að flytja hingað til lands olíu
frá Rúmeníu og Ameríku.
Eftir samningaviðræður við Rússa
um olíuviðskiftin fyrir árið 1966 var
Ijóst að engin stefnubreyting yrði í
sambandi við olíuflutningana. Enn
sem fyrr sáu Rússar um alla olíuflutn-
inga.
Olíuþurrð
I febrúar 1966 dregur aftur til
tíðinda á forsíðu Tímans. Þar er birt
4. þess mánaðar flennistór fyrirsögn:
Rússar standa ekki viö geröa
samninga um olíuafgreiðslur.
Hamrafell fengið tilaö ná í olíufarm
til Aruba.
í fréttinni kemur fram að dregist
hafi úr hömlu að afgreiða hingað
umsamda olíufarma frá Sovétríkjun-
um og hafi Rússar í fyrstu afsakað
sig með því að þeir hefðu ekki næg
skip til að flytja olíuna en síðan hefði
komið í Ijós að um olíuskort hafi verið
að ræða. Hafi þá öll olíufélögin reynt
að fá keyfta farma annarsstaðar og
Olíufélaginu einu tekist og hafi það
fengið Hamrafellið til flutninganna.
Hjörtur Hjartar segir í viðtali við
blaðið að þarna sannist enn einu
sinni hversu mikilvægt það sé þjóð-
inni að eiga sitt eigið olíuskip og geta
með því verið óháð öðrum um oiíu-
flutningana.
Hjörtur lætur þess einnig getið að
nú sé Hamrafellið á söluskrá því eftir
samninga ríkisstjórnarinnar við
Rússa um olíuflutningana hafi
endanlega verið kippt fótunum undan
rekstri skipsins.
Reynt að koma höggi
á ríkisstjórnina
Stuttu síðar birti Alþýðublaðið við-
tal við Gylfa Þ. Gíslason, viðskiftaráð-
herra, um Hamrafellsmálið. Þar segir
hann meðal annars:
„Allir kunnugir munu hafa rekið
upp stór augu, þegar þeir sáu það ■
á föstudaginn, aö Tíminn taldi
ástæöu til aö segja frá því meö
fimm dálka fyrirsögn á forsíðu, aö
Hamrafelliö skuli eiga aö sækja
olíufarm til útlanda. Ennþá meiri
furðu mun þaö þó hafa vakiö hjá
öllum kunnugum, að í langri grein
um málið er ekki sagt frá því, fyrir
hvaöa flutningsgjald þaö ætlar aö
flytja olíuna frá Aruba. Flutnings-
gjaldið sem skipadeild SÍS hefur
leigt Hamrafellið fyrir er $3,57 pr.
tonn, en þaö svarar til 25 '/2 shill-
inga. Nú getur Hamrafellið m.ö.o.
flutt olíu frá Aruba fyrir svo aö
segja sama verö og Rússar flytja
sína olíu hingað og þaö um hávet-
ur, þegar flutning'sgjöldin eru yfir-
leitt hæst. En þegarskipadeild SÍS
bauöst til þess aö flytja olíu frá
Rússlandi fyrir rúmu ári, taldi hún
skipiö þurfa 33 shillinga. Raunar
ekkert undarlegt, þótt Hamrafelliö
hafi boöist til þess aö annast þessa
flutninga fyrir $3,57, þar eö tilboö
lá fyrir frá norsku olíuflutningaskipi
um flutninginn fyrirþaö verð svo aö
allt og sumt, sem skipadeild SÍS
gerði, var aö ganga inn í þaö
tilboð. “
Síðan sþyr blaðamaður Gylfa
hver ástæðan kunni að vera fyrir
hamaganginum í Timanum. Gylfi
svarar:
Ætli skýringin sé ekki einfaldlega
sú, aö Timanum er nokkurnveginn
sama um staöreyndir, ef hann
heldur sig geta komiö höggi á
ríkisstjórnina. Auðvitaö ber að
harma þaö, ef Hamrafell verður
selt úr landi. Og þá er um að gera
aö reyna aö koma ábyrgöinni af
því yfir á ríkisstjórnina. En þaö er
ekki ríkisstjórnin, sem selur
Hamrafelliö, ef af því verður. Og
ríkisstjórnin erreiöubúin tilþess aö
greiöa fyrir því, að Hamrafellið fái
aðstöðu til þess að flytja olíu til
íslands, ef flutningsgjöld þess eru
nokkurn veginn sambærileg þeim
flutningsgjöldum, sem vitað er aö
hægt er aö fá um lengri- tima.
Rikisstjórnin erjafnvel reiöubúin til