NT - 02.11.1985, Page 1
Laugardagur2. nóvember 1985-265. tb). 69.árg,
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 7
Fósturlát tíð
hjá lögreglukonum
- þrjár af hverjum fjórum misst fóstur
■ Átta kveníögreglur og
fangaverðir hafa misst fóstur á
síðastliðnum fjórum árum. Alls
hafa tólf konur innan lögregl-
unnar tilkynnt þungun á þeim
tíma, en einungis fjórum þeirra
hefur auðnast að fæða. Ein
stúlkan hefur tvívegis misst
fóstur. Fyrirhugað er að fá lækni
til þess að tala við stúlkurnar, til
þess að reyna að finna eitthvað
sem gæti verið sameiginlegur
þáttur, hjá þeim öllum.
„Þetta er svo mikið að það
getur ekki verið tilviljun. Ég
veit ekki til þess að stúlkur hafi
lent í átökum og megi rekja
ástæður þangað,“ sagði Einar
Bjarnason formaður lögreglufé-
lagsins í samtali við NT í gær.
Einar sagði að hann sem
leikmaður teldi að þetta væri
slæmur vinnutími og alltaf ein-
hver óvissa sem fylgir hverri
vakt. „Þó finnst manni merki-
legt ef ástæðan er ckki önnur,"
sagði Einar.
Skýrsla um þetta mál hefur
verið send dómsmála- og fjár-
málaráðuneyti, og þá hefur mál-
ið verið rætt við fulltrúa BSRB
og verður reynt að finna skýr-
ingu á þessu.
„Það horfir til vandræða hvað
okkur helst illa á kvenfólki.
Þeim falla vaktirnar enn verr en
okkur. Þegar konur eru orðnar
reyndar í starfinu er mjög
algengt að þær hætti. Þetta er
geigvænlegt mál," sagði Einar.
Hann spurðist fyrir um þetta
mál á fundi sem hann sat í
Svíþjóð nýverið og þar var þetta
vandamál ekki þekkt. Ekki varð
Ijóst hversu alvarlegt mál er á
ferðinni fyrr en upplýsingar
fengust um allt landið.
Bruggarar í Ðreiðhotti staðnir að verki:
900 lítrar í
tveimur íbúðum
■ Bruggun og leynivínsala
varð uppvís í tveimur t'búðum í
Yrsufelli í Breiðholti í fyrra-
kvöld. Lögreglan fékk húsleit-
arheimild í tveimur íbúðum á
sömu hæð í fjölbýlishúsi. Við
leitina fundust tæki til bruggun-
ar og margar stórar ámur sem
notaðar voru til gerjunar. Mað-
ur og kona, hvort úr sinni íbúð-
inni voru handtekin. Þau höfðu
nýlega lagt í 900 lítra, og var
þegar byrjað að sjóða áfengi úr
þeirri lögun. Vitað er að skötu-
hjúin liafa stundað leynivínsölu
og bruggun í nokkra mánuði,
og hefur lögregla fylgst með
þeim.
Einhverjir fjármunir fundust
í fórum bruggaranna, en ekki
var um umtalsverða upphæð að
ræða. Málið er enn í rannsókn,
en vitað er að þau tvö sem þegar
hafa verið handtekin voru aðal-
bruggarar. Fleiri verða þó yfir-
heyrðir í tengslum við málið.
Lögregla hefur áður staðið
manninn að bruggun og sölu á
víni í heimahúsi. Eins og áður
segir var vínið selt, og fór
þriggja pela flaskan á fjögur
hundruð krónur. Megnið af því
áfengi sem tilbúið var til sölu
var á eins og hálfs lítra
flöskum.
Flutningur útvarpsleikritsins Galeiðan:
Útvarpsráð
biður þjóðina
afsökunar
■ Markús Örn Antonsson út-
varpsstjóri og útvarpsráð hafa
harmað þau mistök sem urðu
við flutning á leikriti í útvarpi
síðast á dagskránni á þriðju-
dagskvöld - leikritinu Galeiðan
eftir Ólaf Hauk St'monarson
sem var nemendaverkefni
Leiklistarskóla Islands, að því
er segir í bréfi frá útvarpsstjóra
sem NT barst ígær.
í yfirlýsingu útvarpsráðs segir
að það beri að harma að Ríkis-
útvarpið skuli hafa verið notað
til að vanvirða minningu látins
manns og fjallað um nafn-
Ostar:
sýning
■ Kúmen/Maribo ostur
(45%) frá Mjókursamlagi K.S.
á Sauðárkróki hlaut aðalverð-
laun í samkeppni ostaframleið-
enda. Ostameistari Kaupfélags
Skagfirðinga er Haukur Páls-
son og afhenti Jón Helgason,
honum viðurkenningarskjöld f
gær.
I dag og á morgun, sunnu-
dag, stendur yfir mikil sýning
á ostum í húsi Osta- og smjör-
sölunnar að Bitruhálsi 2 í
Reykjavík.
greinda persónu með jafn
ósæmilegum hætti og þarna var
gert. Útvarpsráð telur því nauð-
synlegt að stofnunin biðjist op-
inberlega afsökunar á þeim mis-
tökum sem þarna hafi átt sér
stað.
Ingibjörg Hafstað fulltrúi
Kvennalistans í útvarpsráði sat
hjá þegar þessi yfirlýsing var
samþykkt. Hún sagði í samtali
við NT að mál þetta væri allt hið
fyndnasta. Þetta leikrit fjalli um
verkakonur og í einu atriðinu
séu þær að spjalla saman og tal
þeirra berist að Ólafi Thors
fyrrverandi forsætisráðherra og
hvað hann hafi verið alþýðleg-
ur. I framhaldi af því fari þær að
segja hneykslissögur af Ólafi,
hann hafi klipið konur og migið
með verkaköllum. Ingibjörg
sagðist ekki skilja hvað væri
svona mikið hneyksli við þessi
ummæli í leikritinu því alkunna
sé að Ólafur hafi sjálfur sagt
slíkar sögur af sjálfum sér og
reynt með því að skapa sér
vinsældir meðal almennings,
með ímynd um hve alþýðlegur
hann væri.
Ingibjörg sagðist hins vegar
óttast að þetta mál kynni að
hafa alvarlegar afleiðingar fyrir
nemendur í Leiklistarskóla ís-
lands og að tekið yrði alfarið
fyrir fleiri nemendaleikrit í
Ríkisútvarpinu.
■ Gísli Björnsson lögreglumaður virðir fyrir sér bruggið og áfengið sem gert var upptækt í
Yrsufellinu. Framleiðslan var mikil eins og myndin ber með sér. I minni brúsanum og gosflöskunum
er eimað áfengi, en í tunnunum er vökvi í gerjun. Á litlu mvndinni sjást bruggtækin scm notuð
voru við framleiðsluna. NT-myndir Sverrir
Reykjavík:
Ungir
koma
aldnir
fara
■ Mun fleiri aldraðir hafa flutt
brott frá Reykjavík á síðustu
árum heldur en flutt hafa til
borgarinnar, samkvæmt upplýs-
ingum Árbókar Reykjavíkur-
borgar. Á árunum 1982-84
fluttu 176 manns 70 ára og eldri
brott frá Reykjavík, en 146, eða
30 færri, til borgarinnar. í öllum
öðrum aldurshópum hefur verið
miklu meira um aðflutninga til
borgarinnar en frá henni, á þess-
um sömu árum.
Til Reykjavíkur hafa á þess-
um þrem árum flutt 1.911 fleiri
en frá borginni. Mest var það
„misvægi" á síðasta ári, um 700
manns og þar af tæplega 600
undir 30 ára aldri.
AIls voru það 3.823 sem fluttu
frá Reykjavík á síðasta ári, en
4.522 komu til borgarinnar í
staðinn. Þar af komu 2.055 utan
af landsbyggðinni, sem fékk
aðeins 1.237 frá Reykjavík í
staðinn. Hins vegar fluttu fleiri
frá Reykjavík til allra nágranna-
sveitarfélaganna nema Kópa-
vogs, en borgin fékk frá þeim í
staðinn.
Enpinn vill sýna
spilin sín fyrstur
Þróunarsjóður í stað Þróunarfélags takist ekki að safna hlutafé, segir forsætisráðherra
■ „Takist ekki að safna neinu
fé hjá einkageiranum í Þróunar-
félagið, er lang eðlilegast að
ríkið stofni Þróunarsjóð, sem er
alfarið á þess vegum,“ sagði
Steingrímur Hermannsson við
NT í gær.
Á miðvikudaginn ákvað ríkis-
stjórnin að framlengja frestinn
til að koma með hlutafjártilboð
í Þróunarfélagið, um viku og
rennur því fresturinn út að
kvöldi fimmtudagsins 7. nóv-
ember,
Sagði Steingrímur að eftir að
fresturinn var framlengdur hafi
allir aðilar róast niður og bjóst
hann við því að þeir héldu ró
sinni fram á fimmtudag. Sagði
hann að ef ekki tækist að safna
þessum 100 milljónum hjá
einkageiranum þá verði ríkið
að skoða það hvort það leggi
meir til en þær 100 milljónir sem
þegar hefur verið ákveðið að
leggja t' Þróunarfélagið. Sagði
hann að stefnt hefði verið áð því
að ríkið ætti um 50% í félaginu
en ekkert væri þó fastbundið í
lögunum um það, og getur það
því bæði átt meira eða minna
allt eftir hvernig hlutafjár-
söfnunin gengur.
Spenningurinn meðal fjár-
magnseigenda í landinu eykst
stöðugt og minnir þetta einna
helst á pókerspil af hæstu gráðu
eins og einn viðmælenda NT
komst að orði í gær.Allir eru að
spá í hvaða spil hinir hafi á
hendi og enginn vill verða fyrst-
ur til að leggja sín spil á borðið.
Eiginlega má segja að Lífeyris-
sjóður verslunarmanna sé eini
aðilinn sem hefur opinberað
hvað hann hyggst gera, að
kaupa hlutabréf fyrir 20 milljón-
ir.
Eftir því sem NT kemst næst
þá mun lítill áhugi vera hjá
atvinnuvegunum að taka þátt í
þessu, það er einna helst að
ýmsir sjóðir og bankar muni
kaupa hlutabréf.
Fari svo að ekki takist að
safna þessum 100 milljónum
mun rfkið verða í meirihlutaað-
stöðu í félaginu og þá óttast
margur að Þróunarfélagið verði
enn ein fyrirgreiðslustofnun fyr-
ir stjórnmálamennina. Nema að
hugarfarið hafi breyst hjá þeim,
sem viðmælendum NT fannst
ólíklegt.