NT - 02.11.1985, Blaðsíða 20

NT - 02.11.1985, Blaðsíða 20
ð Lóðaúthlutun Fyrirhuguð er úthlutun lóða í nýju hverfi í Suðurhlíð Digranesháls í Kópavogi. í hverf- inu er áætlað að byggja megi rúmlega 600 íbúðir við göturnar Álfhólsveg, Álfaheiði, Fagrahjalla, Heiðarhjalla, Hlíðarhjalla, Lækj- arhjalla, Skógarhjalla og Trönuhjalla. í fyrsta áfanga verður úthlutað sem hér segir: Lóðum fyrir 15 hús með 1-2 íbúðum við Álfhólsveg og Álfaheiði; Lóðum fyrir 25 einbýlishús við Álfaheiði; 5 lóðum fyrir hús í þyrpingum við Álfaheiði með 5-8 íbúðum í þyrpingu, sérbýli og sambýli, samanlagt 29-34 íbúðir. Úthlutað er alls lóðum fyrir 69-89 íbúðir. Skipulagsuppdrættir eru til sýnis á skrifstofu bæjarverkfræðings Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð, virka daga milli kl. 9:30 og 15. 00. Umsóknareyðublöð ásamt skilmálum og skýringum fást á sama stað. Umsóknarfrest- ur er til mánudagsins 25. nóv. nk. Kynningarfundir verða haldnir um skipulag í Suðurhlíð. a) Miðvikudag 6. nóvember kl. 20.30 í Þingholtsskóla b) Laugardag 9. nóvember kl. 14.00 í Digranesi, íþróttahúsinu við Skálaheiði. Samkeppni um útilistaverk Byggingamefnd flugstöðvar á Keflavíkur- flugvelli efnir til samkeppni um gerð útilista- verks sem staðsett verður við nýju flugstöðv- arbygginguna. Heildarverðlaunaupphæð er kr. 400.000.- og verða 1. verðlaun kr. 200.000,-. Auk þess er dómnefnd heimilt að verja allt að kr. 150.000.- til innkaupa. Útboðsgögn eru afhent hjá trúnaðarmanni dómnefndar Ólafi Jenssyni, Byggingaþjón- ustunni, Hallveigarstíg 1, Reykjavík, gegn kr. 500.- skilatryggingu. Tillögum skal skila til trúnaðarmanns eigi síðar en 12. febrúar 1986. Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Útboð Vegagerð ríkisins og flugmálastjórn óska eftir tilboðum í snjómokstur á nokkrum vegum og flugvöllum í Vestur- Skaftafellssýslu, Árnessýslu, Gullbringusýslu, Snæfellsnes- sýslu, Dalasýslu, Vestur-ísafjarðarsýslu, Húnavatnssýslum, Skagafjarðarsýslu, Eyjafjarðarsýslu, Norður-Þingeyjarsýslu og Suður-Múlasýslu. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík (aðalgjaldkera), í Borgarnesi, á Isafirði, Sauðárkróki, Akur- eyri, Reyðarfirði og Selfossi frá og með 4. nóvember n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 11. nóvember 1985. Vegamálastjóri Flugmálastjóri. Spennum beltin ALLTAF - ekki stundum / V _ yujJEBOAB Laugardagur 2. nóvember 1985 24 Ingólfur Davíðsson: Helgi magri, sögur segja, sigldi út að nema lönd. Fyrsta hæ við fjörðinn-Eyja forðum reisti á Árskógs- strönd. Það var fyrir þúsund árum! En nú var gangnadagur á því herrans ári 1985. Næturfrost, snjór í fjöllum hið efra, heiður himinn og sólskin aldrei þessu vant í sumar, sögðu heima- menn. Féð streymir í Stærra Árskógsrétt og Hálsrétt. Land- Nokkur atriði úr skýrslu Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) um áfengisvandamál. (Lögð fram á 62. fundi stjórnar WHO 1979) 1. Óhætt er að fullyrða að þörf er á baráttu gegn áfengisvand- anum. 2. Þó að drykkjusýki sé alvarlegt vandamál, sem gefa ber gaum, er hún aðeins lítið brot af þcim vanda sem áfengisneysla vcldur. 3. Tengsl áfengis og afbrota, einkum ofbeldisglæpa, eru aug- Ijós. 4. Fjárhagslegt tjón af völdum áfengisneyslu rnun vera gífur- legt í mörgurn löndum. (í Bandaríkjunum t.d 25 milljarð- ar dala á ári). 5. Áfengisvandamál fara vax-' andi víða um heim, ekki síst í þróunarlöndum. 6. Raunverð áfengis hefur farið lækkandi í flestum löndum á sama tíma og tekjur manna hafa aukist. 7. Á árunum 1960-1972 jókst vínframleiðsla í heiminum um 20%, brennivínsframleiðsla um 60% og ölgerð um 80%. Áfeng- isneysla jókst um 30%-500%. Alþjóðleg fyrirtæki, sem beita háþróaðri tækni við framleiðslu hafa staðið fyrir þessari aukn- ingu. 8. Áfengisneysla er víða tákn um frama og velgengni - og áfengi er auðfengið deyfandi efni. 9. Afleiðingar áfengisdrykkju bitna þunglega á heilbrigðis- þjónustunni. Fórnarlömb ölv- unar í umferð, áfloga og drukk- inna manna hrannast inn á slysa- deildir og skurðstofur, lifrar- sjúklingar liggja í sjúkrarúmun- um og vaka þarf yfir sjúklingum með áfengisæði. Þctta veldur námsbærinn Hámundarstaðir og Háls í Svarfaðardal eiga upprekstur á Hálsdal sameigin- lega. Það er fjölmenni í réttun- um, féð litlu fleira en ungling- arnir, sögðu gárungarnir, því að búið var að hleypa fjölda fjár inn í girðingu áður til fitunar, og þarvarekkismalað. VísaJónas- ar „Eins mig fýsir alltaf þó, aftur að fara í göngur" o.s.frv., er sígild. Nú er reisulega byggt á Ár- auknu álagi á stofnanir sem hafa alltaf of mikið á sinni könnu. 10. Til lítils væri ef ekkert væri hægt að gera nema lýsa því sem nú er vitað um áfengisvandann. Benda þarf á nauðsyn varna og hjálparstarfs. 11. Ljós tengsl eru milli heild- arneyslu áfengis og tjóns af völdum neyslunnar. Þessi stað- reynd gengur þvert á þá venju- bundnu skoðun að drykkjusýki sé eiginleiki ákveðinna einstakl- inga en ekki vandamál sem tengt sé því hversu mikið sé drukkið. Þessi tengsl benda á að með því að draga úr áfengisneyslu megi minnka tjónið, sem hún veldur, verulega. 12. Meðal tiltækra ráða til að draga úr áfengisneyslu eða a.m.k. koma í veg fyrir aukn- ingu hennar má nefna: a) Hækkun áfengisverðs svo að það fylgi a.m.k. verðbólgu og auknum tekjum. b) Kvótakerfi á framleiðslu. c) Innflutningseftirlit. d) Fækkun sölu- og veitinga- staða. í löndum, þar sem ekki er auðvelt að komast yfir áfengi og lífsviðhorf eru andstæð drykkju- skap, getur algert áfengisbann verið hagkvæmt. 13. Fræðslu er þörf til að skýra fyrir fólki nauðsyn áfengismála- stefnu sem beinist að því að draga úr áfengisböli með for- varnaraðgerðum. 14. Fráleitt er að telja mögu- leikana á að minnka áfengistjón skýjaborgir einar. Það sem skortir er ópólitískur vilji til að fara þær leiðir sem stuðla að minni drykkju. Áfengisvarnaráð skógsströnd, það varð hvar- vetna að byggja eftir Dalvíkur- jarðskjálftana 1935. Túnin ná saman á mörgum jörðum, ólíkt því sem var, og kúahóparnir stórir á flestum bæjum. Áður þótt vel búið með þrjár kýr og 60-100 ær á bæ. Þá var blandað- ur búskapur á öllum jörðum, en nú er farið að sérhæfa þetta í vaxandi mæli. Hross jafnan fá því þarna er snjóþungt mjög. Á flestum bæjum var einhver sendur til sjóróðra, a.m.k. vor og haust. Nú er þetta gerbreytt, sérhæfingin ræður,sumirstunda búskap en aðrir draga björg úr sjó. Útvegsstaðir voru margir áður en nú aðeins tveir Hauga- nes og Litli-Árskógssandur. Þar hafa myndast smáþorp og frá „Sandinum" siglir ferja til Hrís- eyjar, margar ferðir á dag. Bæjaraðir eru tvær og á neðri bæjunum bjuggu áður rnargir þurrabúðarmenn sem aðallega stunduðu sjó, en áttu þó sumir eina kú og nokkrar kindur. Þeir ræktuðu túnblett og fengu lánað engi hjá bændunum. Það bú- skaparlag er horfið. Mjólk er keypt í samlaginu og heimsend. Sömuleiðis smjör og skyr og einnig brauð að mestu, lítið bakað heima núorðið, og heimaslátrun hætt. Breytingin er mikil. Berjaspretta var allgóð þó löngum væri sólarlítið í sumar, og aðalbláberjaskyr oft á borðum, með rjóma, hvað sem sumir læknar segja! „Blástur" og votheysgerð björguðu heys- kapnum, sem varð allmikill að vöxtum. Bátar fara stækkandi, svo hægt er að sækja lengra á mið en áður. Hrefnur og rækjur lagðar á land á Litla-Árskógs- sandi. Kaupfélagsverslun á Hauga- nesi og þykir góð. Fljótlegt einnig að skreppa til Dalvíkur og Akureyrar nú á öld bílanna. Búið að hækka veginn mikið, svo nú mun oftast bílfært að vetrinum. Öflugt ungmennafélag hefur lengi starfað á Árskógsströnd og unnið að ýmsum góðum málurn. Við Þorvaldsdalsá í landareign Litla-Árskógar var mér sýndur tjáreitur, sem félag- ið kom á fót um 1950, en er nú í umsjá skógræktarfélags sveit- arinnar. Umsjónarmaðurinn Kristján Vigfússon fræddi um reitinn sem er allstór með vöxtu- legu sitkagreni, lerki og birki. Árssprotar víða 30-40 cm. jafn- vel 50 cm á einstökum hríslum. Þetta er góður vöxtur og njóta trén auðsjáanlega hins góða sumars í fyrra. Þrif rauðgrenis og skógarfuru eru aftur á móti léleg þarna. Vænn trjáreitur er einnig á Stóru-Hámundarstöðum og er svipað að segja um vöxt trjánna þar. Einnig mjög fallegur og fjölbreyttur blómagarður, verk Önnu Baldvinsdóttur, sem þar var lengi húsfreyja, uns yngri kynslóð tók við. Fagur skrúð- garður er og hjá Soffíu frá Brattavöllum, rétt ofan við Sandinn, og þar í grennd er lítil en mjög fjölbreytt gróðrastöð, kennd við eigandann Ágústu. Hún ræktar einkum fjölmargar tegundir sumarblóma, ýmsar þeirra sjaldgæfar, og hefur blómasölu. Það er bæði snæsamt og vindasamt á Árskógsströnd, en konurnar hafa sýnt að furðu margt er samt hægt að rækta með natni og dugnaði. í Litla- Árskógi er listfengur garður, rneð tjörn, gróðri og fögru heimagerðu gosbrunnslíkneski, enda eru tveir Litla-Árskógar- bræðra Kristján og Hannes kunnir listamenn. Eru mörg verk þeirra í Minjasafninu á Akureyri, og skírnarfontar í nokkrum kirkjum eru verk þeirra. Systirin Guðrún Vigfús- dóttir er mikil listakona á sviði vefnaðar. Konurnar fyrrnefndu Anna og Soffía eru liðtækar við fleira en ræktun. Þær fara um fjöll og dali að safna steinum, snuðra mikið í fjörum og árfarvegum og víðar þar sem steinasælt er. Báðar eiga þær steinasöfn - og þær vinna skrautflögur úr þeim, með hjálp steinsagar, sem þær eiga í félagi. Það eru undursam- legir litir sem koma fram í þessum steinaflögum, sem þær setja saman úr jaspis, kvarsi, glerhöllum, ópal, líparíti o.fl. steinum. Slík plata er t.d. sett í stofuhorn og ljós á bak við. Það gefur sannkallaðan ævintýra- ljóma, líkt og í álfabyggðum þjóðsagnanna. Það hefur jafnan búið vinnu- samt fólk á Árskógsströnd, enda harðbýl sveit. það varð að duga eða drepast! „Löngum sóttu langt á mið, leitaði fanga skipalið. Norður í höf aðhafísrönd, hörkukarlar á Árskógs- strönd. “ Menn þurfa að vinna meðan þeir geta, annars koðna þeir niður, sagði Baldvin bóndi. Mamma sýslar við garðinn og steinana, pabbi vinnur í trjáreit- unum, bæði heimaog í Árskógi, svona á það að vera. Á vetrum er félagsstarfsemi, og heimafyr- ir prjónað og lesið. Afengisverð lækkar en tekjur aukast

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.