NT - 02.11.1985, Blaðsíða 23

NT - 02.11.1985, Blaðsíða 23
 - ■ Webster og félagar hrósuðu sigri í gærkvöldi. Webster sjálf ur átti stórleik. Nottingham Forest með nýja stjörnu: Carr er efnilegur - og hefur leikið frábærlega í síðustu leikjum - Allt Clough að þakka ■ Franz Carr hefur aðeins leikið fjóra leiki með Notting- ham Forest en nú þegar eru menn byrjaðir að tala um hann sem landsliðsútherja framtíðar- innar. Tækni þessa 19 ára stráks er mjög góð og hún fær sjálfsagt að blómstra undir stjórn hins snjalla Brians Clough, sem þekktur er fyrir að koma sífellt með óþekkta en góða leikmenn fram á sjónarsviðið. Carr hefur einnig styrkt liðs- heildina hjá Forest verulega og liðið er nú talið leika sína bestu knattspyrnu síðan félagið var Evrópumeistari 1979 og 1980. Leikni þessa útherja kom vel í ljós er liðið sigraði Arsenal um síðustu helgi. Þá gætti Carrs enginn annar en landsliðsbak- vörðurinn Kenny Sansom sem, þrátt fyrir reynslu sína, gat ekki . komið í veg fyrir að ungi útherj- inn legði upp öll marka Forest í 3-2 sigri. Brian Clough keypti Carr frá Blackburn og hljóðaði samning- urinn upp á sem samsvarar 1,6 milljón íslenskra króna. Clough segist nú hafa besta framherjapar í landinu en auk Carrs leiðir sonur Cloughs Nigel að nafni sóknir liðsins. Gary Birtles sem áður lék í framlínunni hefur nú verið færður í stöðu miðvarðar - ann- að snjallræði af hálfu Cloughs- og stendur sig þar vel. Carr skoraði sitt fyrsta ntark fyrir Forest nú í vikunni og var það sigurmark liðsins á móti nágrönnunum Derby County í 3. umferð deildarbikarins. For- estleikur gegn W.B.A. ídagog ætti að fara með sigur af hólmi. M ? T c f « y v »■*" Træmnm gfT-yrr raigTtamvt'.r.x- ■}• :y.mrnr -r.m-m-Ærr g g-: y y v t • * * M M * O * ♦ . ‘t M f ý f t^Tf * t.■' ? xt t 1 }irrt *fT-t í fjré * t f ♦ * i.í’íTr •f-l/' t * • ' * *f T * i h > » i f"i } > M H ( f * f M M » * • > Laugardagur 2. nóvember 1985 27 Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Lokakaflinn var ■ æsispennandi - Haukar sigruðu Njarðvíkinga með 82 stigum gegn 80 Frá Ólafi t>ór Jóhannssyni frétlarilara NT ■ Haukar sigruðu Njarðvík- inga 82-80 í íþróttahúsinu í Njarðvík í gærkvöldi í æsispenn- andi leik. Staðan í leikhléi var 36-42 fyrir Hauka. Lokamínútur leiksins voru magnþrungnar og áhorfendur risu úr sætum. Þegar 48 sekúndur voru eftir var staðan 78-82 fyrir Flauka og Njarðvíkingar reyndu hvað þeir gátu til að jafna en allt korn fyrirekki þeim tókst aðeins að minnka muninn í 80-82. Haukar byrjuðu leikinn betur en Njarðvíkingar komast í 20-17 eftir tíu mínúta leik. Vörn Haukann,a var hins vegar geysi- sterk í lok fyrri hálfleiksins og skoruðu Njarðvíkingar aðeins úr vítum á þeim kafla og voru, eins og áður sagði, undir í leikhléi. Njarðvíkingar jafna svo leik- inn í byrjun síðari hálfleiks og eftir það var liann mjög jafn, oftast skildi aðeins eitt stig. ■ ...Werder Bremen tapaði stórt fyrir Bayer Leverkusen í þýsku búndeslígunni en leikið var í gærkvöidi. Leverk- usen sigraði 5-1 og skor- aði Suður-Kóreuhúinn Bum-Kun Cha þrennu í leiknum. Þá sigraði „Gladbach" lið Borussia Dortmund með þremur mörkum gegn tveimur og eru því komnir á topp deildarinnar við hlið Werder Bremen. Loks sigraði Baycrn Múnchen lið Kaiserslautcrn á úti- velli 0-2... ...Frönsk stúlka hefur tapað máli gegn íshokkífé- lagi í Strasborg. Stúlk- unni var ekki leyft að æfa íþróttina og fór því í inál en var hins vegar sektuð af dómstólum vegna ónauðsynlegrar máls- höfðunar. Þessi dómur styður reglur franska ís- hokkísambandsins sem, einhverra hluta vegna, neitar konum þcim rétti að iðka íþróttina. Jafn- réttinu viröist því vera. takmörk sett hjá Frans- mönnum... Staðan var 76-76 þegar lítið var eftir en vítaskot Websters og karfa Ólafs Rafnssonar þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir á skotklukkunni gáfu Haukum forskortið sem dugði þeim til sigurs. Bæði lið reyndu að stöðva skæðustu menn andstæðing- anna, þá Val og Pálmar. Hauk- Frá Ingólfi Kjartanssyni, frétta- ritara NT á Laugarvatni: Einn leikur í 1. deildinni í blaki fór fram hér á fimmtudags- kvöidið. Víkingur kom í heirn- sókn og sigraði H.S.K. í „Ljónagryfjunni" 15-10,15-9 og 15-9. Sigurinn var nokkuð öruggur eins og tölurnar bera með sér. Lið H.S.K. kom þó á óvart með góðri baráttu en meiri samæfing ■ Byrjendanámskeið í glímu er nú að hefjast hjá glímudeild KR og verða æfingar sem hér segir: Þriðjudagar: Kl. 19.00-19.50 12 ára og yngri. Kl. 19.50-20.40 13-16 ára Kl. 20.40-21.30 17 ára og eldri Föstudagar: KI. 19.00-19.50 12 ára og yngri Kl. 19.50-20.40 13-16 ára Kl. 20.40-21.30 17 ára og eldri ■ Nokkuð var um leiki í Evr- ópukeppni í körfuknattleik í þessari viku og var fátt um óvænt úrslit. Hins vegar skeði það í einum leiknum að körfu- hringurinn datt dauður niður. Franska liðið Olympiqe Ant- ibes var þá að leika gegn SSV Hagen frá V-Þýskalandi. í franska liðinu er Bandaríkja- um tókst að stöðva Val og kannski réði það úslitum. Helgi Rafnsson, 17 stig, Jóhannes Kristbjörnsson, 16 og Kristinn Einarsson, 15 skoruðu mest fyr- ir heimamenn. Webster skoraði 20 stig fyrir Hauka. Pálmar var með 19 og Ólafur með 17. Webster hirti sand af fráköst- er nauðsynleg. Liðið er að venju mestu skipað strákum úr íþróttakennaraskólanum og Menntaskólanum. Má nefna Ástvald Arthúrsson, sem að vísu á við meiðsl að stríða um þessar mundir, og Erling Krist- jánsson. Víkingur er með gott lið en erfitt er að nefna einn mann öðrum fremur. Hávörnin var góð í leiknum ogskellirnirsann- færandi. Ólafsson og æfingarnar fara fram í fimleikasal Melaskólans. Öllum cr heimil þátttaka og vonast er til að sem flestir láti nú sjá sig. Þá eru gamlir glímu- félagar hvattir til að liafa sam- band við Rögnvald Gunnlaugs- son (s: 16528) eða Elías Árna- son (s:71062). Stofnfundur styrktarfélags ku vera á dagskrá. maður að nafni Mike Harper og telur hann eina tvo metra og átta sentimetra. Á 9. mínútu leiksins ætlaði kappinn að troða kenttinum í körfu andstæðing- anna með tilþrifum. Vildi þá ekíci betur til en að kröfuhringur- inn fylgdi með. Varahringur var á staðnum en hann var ekki löglegur svo ákveðið var að hætta leiknum. 1. deild karla I blaki: Víkingur vann Glíman að lifna við: Námskeið hefst Pjalfari verður Rögnvaldur Evrópukeppnin í körfu: Tók hringinn Utsölumarkaður ULPUR, KR. 300, ULPUR, KR. 495, ULPUR, KR. 1490, SKYRTUR, KR. 395, SKÚLAGÖTU 26 - SÍM111728 o GALLABUXUR, KR. 795, SOKKAR KR.69, BLÚSSUR, KR. 595, BARNABUXUR, KR 395, NÆRFÖT, KR. 65, SAMFESTINGAR, KR 795, PEYSUR, KR. 395, PEYSUR, KR. 595, VINNUFATABÚÐIN

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.