NT - 02.11.1985, Side 4
Laugardagur 2. nóvember 1985
Val á pottum og pönnum
■ Þcir sem cru að byrja bú-
skyp um þessar mundir og
hyggjast kaupa potta til elda-
mcnnskunnar ættu að gefa sér
góðan tíma til að skoða úrvaliö
og ekki er talið ráðlegt að
kaupa marga potta sömu tcg-
undar fyrr en búið er að prófa
lúsrá
Ostakrem
■ Ef þú átt til smáafgang af
smurosti þá er tilvalið að þeyta
dálítið af rjóma saman við.
Bættu síðan kryddi eftir smekk
og nú er komið ostakrem sem
nota má sem ídýfu. Þá er
cinnig gott að setja saxaðar
hnetur út í kremið.
Kjötsalat
Ef til er kjötafgangur er
ágætt að finsaxa epli og lauk
saman við. Út í þetta er svo
kartöflum bætt, skornum í tcn-
inga, og svo söxuöum tómat.
Hrærið svo majonesi eða sýrð-
um rjóma þar til salatið er
mátulega þykkt.
Steikarpokar
Þcir sem nota mikið steik-
arpoka kannast víst við það
vandamál að ná soðinu úr
pokanum án þess að brenna
sig. En við þcssu er til einfalt
ráð. Kaupiö nógu stóra poka
og setjið það sem á að steikja
í ofnfast mót og mótið síðan
inn í pokann. Nú er hægt að
klippa pokann utan af þegar
búið cr að stcikja og það cr
auðvclt að hella soðinu af mót-
inu.
Smjörbollur í frystinn
Það getur verið þægilegt að
ciga tilbúnar smjörbollur í
frystinum. Hrærið saman 250
gr. af smjörlíki og 250 gr. af
hvcitiog mótið síðan aflanga
rúllu. Hálffrystið síðan rúll-
una. Skeriö hana svo í mátu-
lcga þykkar sneiðar og frystið
síðan.
Rauðrófur
Þegar verið cr að sjóða niður
rauðrófur er mjög gott að nota
sykur og flórsykur til helminga
í löginn. Þá verður liturinn
jafnari og jögurinn fær fallegan
glans.
Svo koma hér nokkur hús-
ráð fyrir þau sem gaman hafa
af handavinnu.
Endurskinsbönd á
vettlingana
Þegar fer að dimma á haust-
in er gott að sauma endurskins-
bönd á vettlinga barnanna.
Látið röndina ná frá efri kanti
út á þumalinn. Þá sést vel
þegar börnin eru á hjóli og
rétta höndina út í bcygjum.
Festið smekkinn
Saumið tvö bönd í neðri
kant á barnasmekkinn og bind-
ið síðan aftur fyrir bak á barn-
inu. Þá helst smekkurinn á
sínumstaðognotagildiðeykst.
Of lítið sængurver
Þcgar verið er að skipta um
sængur hjá börnum situr mað-
ur oft uppi með allt of lítil
sængurver. Þá er hægt að
spretta upp tveimur sængur-
verum og saurna þau síðan
saman sem eitt. Þá færðu eitt
hclmingi stærra sængurver og
þá er hægt að nota sömu
koddaverin áfram.
Önnur aðferð við lengingu
sængurversins er að lengja með
efni sem fellur við lit og munst-
ur vcrsins.
Saumið þá eins koddaver
cins og viðbótin er til að fá sem
besta heild.
Slitkantur á vösum
Ef einhver í fjölskyldunni er
slæmur með að slíta mjög vasa-
köntum þá er til mjöggott ráð.
Mjög þægilegt er að sauma
skáband innan á kantinn á
vasanum og vasinn þolir mikið
enn.
Lengið lífdaga skyrtunnar
Ef uppáhaldsskyrtan er farin
að trosna á ermunum er gott
að kanta hana mcð skábandi
sem passar vel viö litinn. Setjið
einnig samskonar skáband í
kragann svo viðgerðin líti bet-
ur út og meiri hcild verði á
skyrtunni.
Sterkari sokkar
Þegar verið er að prjóna
sokka á börn er gott að kaupa
eina dokku af fínu heklugarni
sem passar viö litinn á garninu
sem vcrið er að prjóna úr.
Prjónið síðan heklugarnið inn
í hælinn og jafnvel tána líka.
Þetta styrkir talsvert.
hvernig viðkomandi tegund
reynist.
Það cr gott að skrifa hjá sér
nokkra minnispunkta áður en
farið er í verslunarleiðangur
t.d. þvermál hellnanna á elda-
vélinni og áætlaðar stæöir og
gerðir eldunarílátanna sem
nota á.
Alúmíníum pottar og pönn-
ur hafa marga kosti. Þcir eru
léttir og leiða vel hita. Alúmíní-
um er til með þrenns konar
húð, fráhrindandi yfirborði,
emaleringu að innan og einnig
að utan, og svo með silfur-
steini. Yfirleitt er auðvclt að
hreinsa þá, en passa verður að
fara ekki með málmáhöld á
þá, því þau rífa upp húðina.
En almúmíníum getur verið
viðkvæmt, það getur beyglast
auðveldlega og passa verður
að botninn sé nógu þykkur.
yfirleitt er liægt aö nota alúm-
míum potta og pönnur á hvaða
eldavél sem er.
Kopar pottar og pönnur eru
yfirleitt mikið augnayndi og
þcir leiða hita rnjög vel. Þcir
eru mjög hentugir til að bera í
beint á borðið og þykja sérlega
góðir til flamberingar. En þá
þarf að þrífa mikið og reglu-
lega eigi þeir að halda gildi
sínu, svo slíkir pottar eru tæpast
til daglegrar notkunar, frekar
til hátíðabrigða.
Stálpottar þykja almennt
mjög góðir. Þeir eru sterkir og
þá er mjög auðvelt að hreinsa
og þá má nota fyrir allar teg-
undir potta, en þeir eru oftar
dýrari í innkaupum en aðrar
tegundir, en það kemur ekki að
sök þar eð þeir duga lengur.
Steypujárnspottar eða pott-
ar og pönnur úr potti svo-
kölluðum eru mjög þungir en
þeir Ieiða hita bestir allra og
með notkun þeirra er hægt að
spara umtalsverða orku. Best
er að hafa botninn á þeim
rcnndan og þeir eru til með
emaleringu eða án hennar.
Það sem lengi á standa, skal
vel til vanda og pottar og
pönnur eiga að duga í drjúgan
tíma. Berið því saman verð og
gæði og hikið ekki við að fá
upplýsingar hjá afgreiðslufólk-
inu, það er upplýsingaskylt og
gangið einnig úr skugga um
hvort verslunin tekur ábyrgð á
vörunnieðaekki. Efþiðveröið
svo óheppin að fá gallaða vöru
skilið henni þá sem fyrst svo
hægt verði að bæta hana.
I
■ Nokkurt úrval þeirra potta og panna sem er á boðstólum í
versluninni BÚBÓT Nýbýlavegi 24, Kópavogi. Búbót er sérverslun
með eldhús- og borðbúnað og hefur gefið út leiðbeiningabækling
um vai á pottum og öðrum eldunaráhöldum. NT-mvnd Róbert
'V '
- eftir Svanfríði Hagwaag
Fisk og ostbaka
Gulrótarsalat
Ávaxtakaka
Fisk og ostbaka
l laukur í sneiðum
25 gr.smjörlíki
150 gr.soðinn fiskur
tómatsósa, krydd
11() gr.rifinn ostur
225 gr. kartöflustappa
Steikið laukinn í smjörlíki í
3-4 mínútur. Stappið fiskinn
og blandið saman við laukinn.
Hrærið tómatsósu og kryddi
eftir smekk út í. Smyrjið ofn-
fast mót og látið blönduna út
í. Hrærið um það bil helmingn-
um af rifna ostinum út í
kartöflustöppuna og breiðið
hana yfir fiskinn og laukinn.
Stráið afganginum af ostinum
yfir og bakið við 230° C í 8-15
mínútur eða þangað til kakan
er brúnuð. Berið fram með
einföldu gulrótasalati sem
samanstendur af rifnum gul-
rótum, rúsínum og örlitlum
sítrónusafa.
Ávaxtakaka
110 gr. mjúkt smörlíki
110gr.sykur
225 gr. hveiti
1 tsk.lyftiduft
2egg
3/4 dl mjólk
Hrærið saman smjörlíkið og
sykurinn. Sigtið saman hveiti
og lyftiduft. Hrærið eggjunum
saman við og þeytið vel, síðan
er hveitinu hrært saman við og
rétt mátulega mikilli mjólk til
að gera mjúka hræru. Látið í
smurt hringform og bakið við
200°C í 10-15 mínútur eða
þangað til kakan er bökuð.
Takið varlega úr forminu og
látið á disk.
Ávaxtafylling: Leggið ávext-
ina sem á að nota ofan á
kökuna, hér eru notaðar soðn-
ar apríkósur. Ef til er
aprikósumarmelaði er alveg
eins gott að nota það og þá er
rað hitað aðeins og því hellt
yfir kökuna. Ef niðursoðnir
ávextir eru notaðir er 1 msk.af
maizena soðin með 1 dl af
safanum þangað til safinn
)ykknar. Safanum er síðan
hellt yfir ávextina á kökunni.
Kostnaður
Fisk og ostbaka 75 kr.
Gulrótarsalat 30 kr.
Ávaxtakaka 75 kr.
Samtals 180 kr. eða 45 kr. á
mann.
Svo koma hér nokkrir góm
sætir eftirréttir frá Svanfríði
Hagwaag.
Brúna Bettý
250 gr.epli, afhýdd í sneiðum
safi úr hálfri sítrónu
3 msk.púðursykur
50 gr. brauðrasp
25 gr.smjörlíki
Sjóið eplin í mjög litlu vatni.
Smyrjið eldfast mót og leggið
eplin þar í. Blandið saman
sítrónusafanum og púðursykr-
inum. Stráið raspinu yfir og
setjið smjörlíkið í smábitum
ofan á hingað og þangað. Bak-
ið í 180° C heitum ofni í 30
mínútur eða þangað til raspið
er orðið brúnt.
Kostnaður við þennan eftir-
rétt er um 40 krónur.
Leche Frita
1/2 pk.vanillubúðingur
4 dl mjólk
1 þeytt egg
1 msk.mjólk
50 gr.rasp
50 gr.smjör
1 msk.matarolía
1 msk,sykur
1 tsk.kanell
Búið til búðing eftir upp-
skriftinni á pakkanum, en not-
ið aðeins helminginn af pakk-
anum ef hann er fyrir 1 lítra af
mjólk. Minnkið mjólkur-
skammtinn niður í 4 dl þannig
að búðingurinn verði mjög
stífur. Hellið í grunnt mót og
látið stífna í ísskáp í nokkra
klukkutíma. Skerið síðan búð-
inginn niður í 3 cm teninga
með hníf sem dýft er í heitt
vatn.
Þeytið saman eggin og 2 msk.
af mjólk. Nú er teningnum
dýft í eggjablönduna og síðan
í raspið. Leggið á eldhúspappír
þar til allt er tilbúið.
Bræðið smjörið og olíuna
saman á stórri pönnu. Notið
meðalhita. Þegar feitin er orð-
in heit eru tengingarnir látnir
út í og brúnið á hinni hliðinni
í um það bil 2 mínútur í
viðbót. Leggið teningana á
hitaðan disk og stráið sykri og
kanel yfir. Berið fram strax.
■ Sjónvarpsáhorfandi hafði
samband viö síðuna og spurð-
ist fyrir um hvað hann gæti geít
til að laga þverrákirnir sem
koma á sjónvarpsskerminn.
Hann sagðist hafa reynt alla
skapaða hluti en ekkert hefði
dugað.
Svar um hæl
Þau svör fengust í Radíó-
virkjanum á Týsgötu að hugs-
anleg skýring á þessu vanda-
máli væri sú að kapallinn sem
liggur frá sjónvarpinu í loftnet-
ið væri orðinn eitthvað lélcgur.
Skýringin getur verið sú að
tengingarnar séu eitthvaö laus-
ar eða að greiðan sé of lítil eða
snúi ekki rétt. Það gæti líka
hugsast að tengibox grciðunn-
ar væri orðið ryðgað eða að
sé vatn komið inn á liana.
Starfsmaður Radíóvirkjans
bcnti á að nota má útilokunar-
aðferðina til að finna út hvað
vcldur og ef ekkcrt gengur þá
þarf tækið og búnaðurinn ein-
hverrar viðgerðar við.
■ Mikill videounnandi
hringdi og spurðist fyrir hvort
einhver listi lægi frammi um
þær myndir sem á boðstólum
eru.
Svar um hæl
í myndbandaleigu JB -áður
myndbandaleigu kvikmynda-
húsanna fengust þau svör að
engir síkir listar væru til en
þeir hefðu verið til í eina tíð.
Að sögn starfsmanns í mynd-
bandaleigu JB er það í bígerð
að gera slíka lista en starfsmað-
urinn vissi ekki nákvæmlega
hvenær það yrði.
Sömu svör fengust í Video-
val, en þar er ekkert í bígerð
að gera slíka lista.
í myndabandaleigunni
Bcrgvík fengust þau svör að
starfsemin væri orðin of viða-
mikil til að hægt sé að vinna
slíka lista. Starfsmaður þar
benti á að slíkir listar gætu
fyrst litið dagsins Ijós þegar
búið er að tölvuvæða video-
leigurnar og þá gætu komið
nýir listar í hvert sinn sem nýtt
efni berst. Tölvuvæðing er
eitthvað að byrja í video-
leigunum svo vænta má að
slíkir listar verði til áður en um
langt líður.
Síðan var hringt í nokkrar
tleiri leigur og allsstaðar feng-
ust þessi sömu svör.
■ Lesandi liafði samband við
neytendasíðuna og kvartaði
yfir því að mjög erfitt væri að
ná símasambandi við Veðdeild
Landsbanka íslands og vildi
vita hverju þetta sætti. Hann
kvað þetta mjög bagalegt þar
eð hann þyrfti að leita til
stofnunarinnar vegna lánafyr-
irgreiðslu ýmisskonar.
Svar um hæl
Jens Sörensen starfsmaður
Veðdeildarinnar sagði að þar
væri þjónustusími með þremur
símtólum og sex símalínum.
Þrjár símastúlkur vinna við að
svara í símann og veita upp-
lýsingar, en það getur tekið
mislangan tíma að ná í þá sem
veita eiga viðkomandi upplýs-
ingar. Alagið er mjög misjafnt
frá einum tíma til annars og
Jens tók fram að Veðdeildin
þjónaði öllu landinu. Hann
sagði jafnframt að símalínurn-
ar væru hafðar fleiri en símtól-
in til að nýta hringingarnar
betur, en oft þyrfti að hafa
þolinmæði þegar talað væri við
opinberar stofnanir.