NT - 02.11.1985, Page 22

NT - 02.11.1985, Page 22
■ Safet Susic er einn af lykilleikmönnum París St-Germain sem gengur vel um þessar mundir. íþróttir helgarinnar: Margt að ske Lugi-Valur ■ Á sunnudaginn leika í Svíþjóð Valsmenn og Lugf í Evrópukeppni karla í handknattleik og er þetta fyrri viðureign liðanna. Eins og alþjóð er kunn- ugt sigruðu Valsmenn norska liðið Kolbotn í fyrstu umferð Evrópu- keppninnar en báðir leikirnir fóru fram í Noregi. Nú hyggjast kapparnir úr Val aftur á móti leika síðari leik sinn hér heima, enda við erfið- ari andstæðinga að etja. Leikurinn á morgun fer fram í íþróttahöllinni í Lundi en þaðan kemur sænska liðið. Sunnudag- inn 10. nóvember n.k. munu liðin hins vegar mætast í Laugardalshöli- inni og verður greint nán- ar frá þeirri viðureign síðar. - Jón Páll tekur á trukk ■ Það verður mikið að gerast á íþróttasviðinu um helgina. Fyrst er að nefna viðureign Víkings og Teka í Evrópu- keppninni í handknattleik en sá leikur hefst í Höllinni kl. 20.30 á sunnudagskvöldið. Stórmót er einnig hjá júdó- mönnum, sjálft Norðurlanda- meistaramót karla og kvenna undir 21 árs. í>að er haldið í íþróttahúsi Kenaraháskólans og hefst í dag kl. 10.00. Handknattleikur: Enginn leikur er í l.deild karla. Viðureign K.A. og F.H. sem fram átti að fara í dag hefur verið frestað fram á þriðjudag. Fram og Valur mætast hins vegar í 1. deild kvenna í Laugar- - Víkingar mæta Teka dalshöll kl. 14.00 í dag og á eftir leika Víkingur og Stjarnan. Er 1. deild kvenna þar með hafin. Á morgun leika síðan Haukar og F.H. í kvennaboltanum og hefst sá leikur kl. 21.15 í Hafn- arfirði. í 2. deild karla eru tvær stórviðureignir í dag H.K. og U.B.K. leika í Digranesi kl. 14.00 og Árman og LR. mætast í Seljaskóla, einnig kl. 14.00. Körfuknattleikur: Keflavík og Í.R. eigast við í Úrvalsdeildinni og hefst leikur- inn kl. 14.00 í dag. Leikið er í íþróttahúsinu í Keflavík. Á morgun leika síðan Reykjavík- urliðin Valur og K.R. í Selja- skóla og hefst viðureignin kl. 20.00. Blak: Námskeið í íþróttum fatlaðra: Fjölbreytnin er - í fyrirrúmi - Möguleikar fatlaðra kynntir ■ Dagana 21.-24. nóvember n.k. mun íþróttasamband Fatl- aðra efna til leiðbeinenda- námskeiðs í íþróttum fyrir fatl- aða. Námskeið þetta verður haldið í húsakynnum ÍSÍ í Laug- ardal og í íþróttasal Álftamýrar- skóla. Mun það standa yfir frá kl. 9.00 til ca. 18.00 21.-23. nóvember og kl 9.00-16.00 24. nóvember. Á námskeiðinu verður lögð. áhersla á að kynna hinar ýmsu tegundir fötlunar og hvaða möguleikar eru í boði fyrir fatl- aða til íþróttaiðkunnar. Námskeiðið verður öllum opið og er fólk hvatt til að mæta. Rétt er að benda á að á undanförnum leiðbeinenda- námskeiðum hafa íþróttakennar- ar fengið námskeiðin metin til stiga og verður svo einnig vænt- anlega nú. Tilkynna þarf þáttöku á nám- skeiðið fyrir 14. nóvember til íþróttasambands Fatlaðra, íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík. Einnig er hægt að fá upplýs- ingar f síma 91-686301, mánud. þriðjud., fimmtud. og föstud. kl. 17.00-19.00. Námskeiða- gjald er kr. 1000. Hagaskóli verður vettvangur blaks á morgun. Keppni byrjar kl 19.00 með leik Víkings og ÍS í 1. deild kvenna og á eftir leika sömu lið í karlaflokki. Fram og H.K. mætast svo kl. 21.30. Að lokum skal getið keppn- innar „Sterkasti maður íslands“ en á morgun verður tekist á við trukka fyrir framan gervi- grasvöllinn íLaugardal. Keppni hefst kl. 14.00. Svifdrekaflug ■ Mót í svifdrekaflugi verður haldið í dag og verður svifið frá Úlfars- felli í Mosfellssveitinni. Keppnin hefst kl. 2.00 og er boðið upp á kaffi og veitingatjald á staðnum. Einnig er margt annað að ske samfara mótinu og er fólk hvatt til að mæta. Laugardagur 2. nóvember 1985 26 _____________íþróttlr_________________ Knattspyrna í Frakklandi: Parísarliðið leikur skemmtilegan bolta - og óstöðvandi um þessar mundir - Hvað gerir liðið gegn Mónakó? ■ Þeir miklu peningar sem aðaleigandi franska iiðsins París St. Germain, Francis Borelli, eyddi í kaup á nýjuni leikmönn- um fyrir þetta keppnistímabil virðast ætla að skila sér í frábær- um árangri. París St-Germain leikur snilldarlega um þessar mundir og er langefst í 1. deild- inni frönsku. Því gæti það farið svo að meistaratitillinn lenti hjá liöi frá höfuðborginni í fyrsta sinn í fimmtíu ár. París St-Germain leikur við Mónakó um helgina og ef tap verður ekki upp á teningnum hefur liðið slegið met það er St-Etienne, 1969-70 og Strasbo- urg, 1978-79 eiga, en þessi lið léku 18 leiki í röð án taps. Höfuðborgarliðið tapaði að- eins tveimur stigum í sínum fyrstu 15 leikjum sem er einnig met. Áður höfðu nágrannarnir Racing Club París átt besta byrj- unarárangurinn, en það félag var einmitt síðasta Parísarliðið sem vann meistaratitilinn. Velgengni St-Germain kemur best fram þegar litið er á lands- lið Frakka. Þar eru fimm St- Germainleikrnpnn í byrjunar- liði þ.á m. Dominique Rochet- eau sem skoraði þrenu gegn Lúxemborg á dögunum. Rocheteau er einn af fáum leikmönnum St-Germain sem ekki er nýkeyptur til félagsins. Hann er nú markahæstur í 1. deildinni frönsku ásamt Uwe Reinders, þýska landsliðs- manninum sem leikur með meistujfunum Bordeaux. Tveir aðrir leikmenn eru þannig gamalreyndir með lið- inu. Þeir eru Luis Fernandez, sem leikið hefur með París St- Germain síðan á táningsaldri og var nýlega gerður að fyrirliða liðsins, og boltasnillir.gurinn júgóslavneski Safet Susic. Þjálfari liðsins er Gerhard Houllier sem, áður en hann gerðist knattspyrnuþjálfari, dundaði sér við að kenna ensku. Houllier kom upp góðu liði hjá Lens og þar tóku forráðamenn St-Germain eftir honum. Eftir MarteinnmeðFylki ■ Marteinn Geirsson, fyrrverandi landsliðsfyrir- liöi og þjáifari Víðis frá Garði, mun þjálfa 3. deild- arlið Fylkis næsta ár. að hafa reynt að ráða Hidalgo, áðurverandi landsliðseinvald, komu stjórnarmenn St- Germain sér saman um að ráð- legast væri að fá Houllier starfið. Þetta er annars frekar vafasamt starf því tíu þjálfarar hafa þegar fengið reisupassann á þeim tólf árum sem þetta unga félag hefur starfað. Leikmenn sem Houllier hefur fengið til liðs við sigeru t.d. Jocl Bats, besti markvörður Frakka, hollenski landsliðsmaðurinn Pi- erre Vermeulen og miðjumað- urinn snjalli Fabrice Poullain sem áður lék með Nantes. háskólans ■ Norðurlandameistaramót kvenna og karla yngri en 21. árs í júdó hefst í dag kl. 10.00 með keppni í léttari þyngdarflokkum karla. Keppt er í íþróttahúsi Kennaraháskólans við Stakkhl- íð og þar verður mótið formlega sett kl. 14.30. Keppni verður svo framhaldið kl. 15.00 síðdeg- is. Á sunnudaginn hefst keppni kl. 13.00 og er um sveitakeppni karla að ræða. íslenska landsliðið er skipað eftirtöldum júdómönnum Eygló Sigurðardóttur, Hrund Þór- arinsdóttur, Margréti Þráins- dóttur, Davíð Gunnarssyni, Eiríki Inga Kristinssyni, Gísla Þór Magnússyni, Guðmundi Sævarssyni, Helga Júlíussyni, Jóni Trausta Gylfasyni, Karel Halldórssyni, Magnúsi Kristins- syni, Pétri M. Jónssyni, Pétri Þórarinssyni og Rögnvaldi Guðmundssyni. Flest er þetta fólk ungt að árum og á því framtíðina fyrir sér í íþróttinni. Margrét Þráins- dóttir, sem sigraði á Opna skandinavíska meistaramótinu fyrir þremur árum, er reyndust okkar þátttakenda ásamt Rögn- valdi Guðmundssyni sem áður hefur keppt á Norðurlanda- móti. Þó meistaratitillinn sé síður en svo í höfn hjá París St- Germain spilar liðið góða og árangursríka knattspyrnu um þessar mundir og ekkert annað lið í frönsku deildinni kemst nálægt þeim hvað varðar leik- form. Houllier var þó hinn var- kárnasti um síðustu helgi eftir 17. Icik St-Germain í röð án taps. „Það er enn fræðilegur möguleiki á falli en okkur hefur gengið vel og því er óhætt að vonast eftir góðum árangri," sagði þessi fyrrverandi kennari í viðtali við frönsk blöð. Dagskrá mótsins er sem hér segir: Laugardagur 2. nóvember: kl. 10.00: Keppni í riðlum í íþróttahúsi Kennara- háskólans. Á velli A: -60 og -71 kg flokkar karla yngri en 21. Á velli B: —65 og -78 kg flokkar karla yngri en 21. Kl. 11.45: A velli A: Úrslit í -72 og +72 kg fl. kvenna. Kl. 11.55: A velli A: Úrslit í -95 og +95 kg fl. karla yngri en 21. Kl. 14.15: Safnast saman í íþr. húsi. KHÍ fyrir mótssetningu. Kl, 14.30: Mótssetning, Davíð Oddsson, borgar- stjóri Reykjavikur ávarpar keppendur og gesti. Verðlaunaafhending fyrir -72 og +72 kg fl. kvenna og -95 og +95 kg fl. karla yngri en 21. Kl. 15.00: Keppni í riðlum í íþróttahúsi Kennarahá- skólans: Á velli A: -86 kg fl. karla yngri en 21 og -52 og -61 kg flokkar kvenna. Á velli B: -48, -56 og -66 kg flokkar kvenna. Kl. 16.35: Verðlaunaafhending fyrir -86 kg fl. karla og -48, -52, -56, -61 og-66 kg flokka kvenna. Kl. 17.00: Á velli A. Undanúrslit og úrslit í -60, -65, -71 og -78 kg flokkum karla yngri en 21. Verðlaunaafhending að loknum hverjum flokki. Sunnudagur 3. nóvember: Kl. 13.00: Sveitakeppni karla yngri en 21, íþr.húsi Kennaraháskólans. Norðurlandamótið í júdó: Yngra fólkið - spreytir sig um helgina í íþróttahúsi Kennara* Þeir ungu í handbolta ■ Um síðustu helgi var mikið að gera hjá yngri flokkunum í handknattleik því þá fóru fram mót víðsvegar um landið. Keppi var víðast hin skemmtilegasta og í flestum tilfellum reyttu liðin stig hvert af öðru. Þó voru nokkur félög sem komu út úr mótunum með fullt hús stiga. í 3. flokki karla A- riðli sigruðu Haukar frá Hafnar- firði alla sína leiki sannfærandi og eru því með 10 stig eftir leiki síðustu helgar. Aðrir eru Breiðabliksmenn með 6 stig. í B-riðlinum eru Selfyssingar og Gróttumenn með 7 stig hvort félag en Selfyssingar hafa betri markatölu og tróna því á toppnum. Valsmenn virðast vera sterkir í 4. flokk karla. Þeir sigruðu alla sína leiki í A-riðlinum og eru efstir með 10 stig og góða markatölu, 97-46. Njarðvíking- ar eru í öðru sæti og Selfyssingar í því þriðja. í B-riðlinum eru Vestmannaeyjaliðin Þór og Tyr í tveimur efstu sætunum. Það var einnig leikið í 3. því menn beðnir vinsamlegast flokki kvenna og 5. flokki karla að senda úrslitin inn eins fljótt en úrslit frá sumum síöðum og mögulegt er. Það gerir öllum hafa enn ekki borist HSI. Eru | iauðveldara fyrir. ■ Þessir kappar höfðu nóg að gera um síöustu helgi.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.