NT - 03.11.1985, Qupperneq 9
NT Sunnudagur 3. nóvember 9
Vísnaþáttur
Heilir og sælir lesendur góðir.
Ég þakka bréf og símhringingar og
skora ég á ykkur að vera ekki feimin
við að senda vísur í þáttinn.
Pétur Stefánsson Skeljagranda 1,
Reykjavík sendi mér nokkrar vísur
eftir langafa sinn Björn Pétursson
Sléttu Skagafirði.
Björn var eitt sinn spurður hvort
hann hefði í sig og á.
Hann svaraði.
Ég hef nóg af björg og brauði
breytist vart sá hagurinn.
Þangað til að doktor dauði
dregur úr slíðrum brandinn sinn.
Eitt sinn réði Björn sig í þriggja
daga vinnu á bæ, meðan bóndi
skrapp erinda sinna til Reykjavíkur
um kaupið höfðu þeir samið og átti
það að vera borgað í brennivíni en er
bóndi var ekki kominn heim eftir þrjá
daga, fór Björn til húsfreyjunnar og
krafðist launanna. En konan sem var
fanatísk á vín neitaði um borgun.
Þá kvað Björn.
Brúkaðu ekkert bölvað þras
bágt er þig að aga.
Ég vil landa á lítið glas
í laun fyrir þessa daga.
Björn hafði mjög fallega rithönd.
Einhverntíma þegar hann var orðinn
gamall, var verið að hrósa honum
fyrir rithöndina.
Þá kvað Björn.
Ellin skæð með afglöp sín
örmum vill mig spenna.
Hálfáttræða höndin mín
heldur illa á penna.
Pétur Stefánsson endar bréf sitt
með þessari vísu.
Mæli ég af munni fram
miðlungs góða stöku.
Eftir mikið andans þramm
og eina næturvöku.
Kona í Hafnarfirði hringdi í mig og
bað mig að spyrja um höfund að
eftirfarandi vísu.
Láttu ekki leiðast þér
lífið ofstutt til þess er.
Leitaðu eftir Ijósi og yl
svo lífið verði geislaspil.
Eyjólfur Jónasson í Sólheimum
Dalasýslu kvað um kunningja sinn.
Hann er eins og sumarsól
síhækkandi stjarna.
Jafnvígur á háð og hól
helvítið „a“ tarna.
Þorsteinn Guðmundsson bóndi á
Skálpastöðum Borgarfirði kvað við
reiðhest sinn.
Veit ég að mér væri það
veigamestur auður.
Ef þú gætir gert mig að
góðum manni Rauður.
Sigmundur Benediktsson á Akra-
nesi orti eftirfarandi vísu.
Geta ennþá tóninn teigt
traustir menn við sukkið.
Allt sem brennur upp er reykt
allt sem rennur drukkið.
Þorsteinn Ásgrímsson frá Ás-
brekku Vatnsdal kom of seint í af-
mælisveislu og heilsaði húsbónda
með þessari vísu.
Þótt komi ég seint í vingarðinn
vinur minn
verða mun Ijóst efsöguna
dálítið könnum.
Lausnarinn mælti við lýðinn
eitthvert sinn
laun verða sömu
elleftustundarmönnum.
Sigurður Jónsson frá Brún fór með
eftirfarandi vísu, ekki veit ég hvort
hún sé eftir hann.
Víða snörótt viðskiptin
vefur pörótt sálin.
Því er örótt ásýndin
eftir görótt málin.
Halla á Laugabóli hlýddi á konu
vera að baknaga mann. Halla kvað
Alveg genguryfir mig
hvað aðgangsharður svanni.
Rembist við að rífa í sig
rass afeinum manni.
Og bróðir Höllu, Heiðar E. Geirdal
kvað um hjónaerjur.
Ég gat ekki stillt mig að hlægja
að þeim hjónum
til himins í vandræðum góndann.
Er húsfreyjan öslaði á
skítugum skónum
með skammirnar ofan-í bóndann
Sigríður Beinteinsdóttir á Hávarðs-
stöðum orti um reiðhryssu bónda
síns.
Mjúk í gangi merin sling
makkan hringar Jóns í fang.
Grasið angar grænt í kring
grjótið springur fróns um vang.
Maður einn Valgeir að nafni orti í
orðastað manns er ekki var talinn rétt
feðraður.
Pabbi minn hjá mömmu bjó
mettur sæll og ríkur.
Undarlega er ég þó
öðrum manni líkur.
Ingibjörg Björnsdóttir kennari í
Reykjavík benti mér á að vísan sem
ég birti í síðasta þætti
Lítið drottinn lét í té
líkamsfegurð minni.
Von er því að sálin sé
svipuð umgjörðinni.
er ekki eftir Þuru í Garði heldur eftir
Dýrólínu Jónsdóttur í Fagranesi
Skagafirði og er hún hér eins og hún
birtist í II hefti Stuðlamála en ég hafði
hana dálítið vitlausa í síðasta blaði.
Ég bið hlutaðeigendur velvirðingar
á þessum mistökum.
En hér kemur önnur vísa eftir
Dýrólínu en hún orti hana um önug-
an og ertinn karl.
Gvendi tærist tryggðin smá
treginn grær í sinni.
Engin mær vill ástir Ijá
úfnu gæruskinni.
Hreiðar Eyjólfsson Geirdal kvað
svo um líkfylgd.
Röltir fólk með ríkra ná
raunirþjaka sinni.
Þegar snauður fellur frá
fylgdin verður minni.
Og um reiðhest föður síns
kvað Hreiðar.
Hestar sprettinn hika við
hryggir stara á veginn.
Þegar fram á sjónarsvið
svona klár er dreginn.
Og bróðir Hreiðars, Stefán Eyjólfs-
son bóndi á Kleifum í Dalasýslu kvað.
Þó að tapist tafl og spil
tímana hina og þessa.
Þá er alltaf eitthvað til
að ylja manni og hressa.
Guðrún Ólafsdóttir frá Þórustöður í
Bitru orti um mann að nafni Elías og
var sá að gifta sig konu eina er
Ragnheiður hét, en Guðrún var ógift.
Eg er glaðvær eins og fyr
þó annarar hlypi á snæri.
Það eru eftir þúsundir
þó hann Elli ifæri.
Hugsi hver um sjálfan sig
og sína egin pjönku.
En hví gastu ekki elskað mig
eins og hana Rönku.
Látum þetta duga að sinni.
Stefán Jóhannesson
Kleifum, Gilsfirði
371 Dalasýslu
sími 93-4772
Líður þér illa
í svartasta skammdeginu?
Lausnin er Bláalónið
Bláalónið,
sími 92-8650.
Já, þeir eru margir íslendingarnir sem eru búnir að fá nóg af stressi
og orðnir steinuppgefnir á öllu. Bláalónið er 1. flokks hvíldarhótel
og stendur við hið frábæra Bláalón. Dvöl þar hressir, bætir og kætir
alla.
1. flokks herbergi með baði og nuddsturtu, sjónvarpi og vídeói á
öllum herbergjum. Allar veitingar á lágu verði. Gott útivistarsvæði
í nágrenninu tilvalið til göngutúra og þess háttar. Sundsprettur í
Bláalóninu gerir öllum gott. Þú færð bót í Bláalóninu.
Magnús Blöndal Jóhannsson leikurá píanóföstudag, laugardag og
sunnudag. Munið hlaðborðið á sunnudögum. Viðar Gunnarsson
syngur við undirleik Selmu Guðmundsdóttur sunnudaginn 3. nóv.
kl. 16.00.
Tilboð: Sólarhringspakki m/öllum máltíðum kr. 1750.- pr. mann.
Gullfalleg frönsk /eikföng
30 óra reynsla hefur kennt okkur afl velja afleins
þafl besta. Vifl einir bjóflum í heildsölu merki
eins og: Superjouet — Kiddikraft — Knoop —
Ceji — Eko — Demusa — Lone Star — auk rit-
fanga frá Asahai — og úrval gjafavara —
postulins og kerta. Hvergi meira úrval.
BUI
o dORA CASTOB o
berchet
Þú færist aldrei of mikið í fang,
sértu með leikfang frá Ingvari
Helgasyni hf.
Erum að fá frábœra sendingu af frönskum gœðaleikföngum
og nú dugar ekki að drolla því jafnvel heitar lummur renna
ekki eins vel út.
Innkaupastjórar
Hafið samband í síma 91-37710 eða komið og skoðið úrvalið.
INGVAR HELGASON HF.
VONARLANDI V/SOGAVEG, SÍMI 37710.
Heildverslun með eitt fjölbreyttasta úrval leikfanga á einum stað.