NT - 03.11.1985, Page 14

NT - 03.11.1985, Page 14
14 Sunnudagur 3. nóvember NT• GUÐ BIRTIST Viðtal við Leo Smith trompetleikara og tónskáld Leó Smith er kominn aftur! Það eru svo góðir víbrar á fslandi, segir hann. Auk þess sem vatnið er svo gott, eins og sagt er: drekktu vatnið klárt en þú ræður meö hverju þú blandar það. Annars, ég drekk að minnsta kosti tíu glös á dag, það hreinsar kroppinn. Heima í Connect- icut uppgötvuðu þeir að vatnið væri fullt af sýklum og flýttu sér að demba í það sýkladrepandi ólyfjan og lofuðu að það yrði orðið gott að hálfum mánuði liðnum. Auðvitað lifðu sýkl- arnir það af og þá sturtuðu þeir bara heilu tonnunum af kemískum efnum, allt til að hreinsa vatnið. Lofuðu í það sinn að það tæki ekki nema hálft ár að drepa sýklana. Nú er vatnið heima ódrekkandi en sýklarnir lifa sínu góða lífi þrátt fyrir þaö. Leo Smith, trompetsnillingurinn er kominn til íslands í þriðja sinn og ætlar að spila í menntaskólanum í Hamrahlíð þann þriðja nóvember. „Er það ekki húsið þar sem ég lokaðist inni í.. ?“ Það man ég ekki. „Kannski varstu jafn hátt uppi og ég eða var það einhvers staðar annars staðar?" Leo Smith, þessi geöþekki, svarti maður fæddist árið 1941 í Leland, Mississippi og drakk í sig blúsinn með móðurmjólkinni. Faðir hans var frægur blúsg ítarleikari og heimilið umferðarmiðstöð fyrir tónlistarmenn af öllu tagi, þó aðallega blúsara og jazzara. Leo Smith er ennþá í barna- minni að B.B.King pikkaði á gitar- strengi og þjóraði með viskí fram yfir miönætti. Trompetinu kynntist Leo Smith fyrst þrettán ára, þá fékk hann eitt lánað frá skólanum sínum. Hann fór að blása í það og innan sex mánaða frá fyrsta puffinu var Leo Smith farinn að semja eigin tónlist. Þá lá leiðin að sjálfsögðu í skólahljómsveitina og hún spilaði á böllum. Þannig áskotnaðist Leo Smith peningurtil að kaupa sitt eigið trompet sem hann fékk ódýrt í veðlánarabúllu. Á herþjónustuárunum sem Leo Smith eyddi í hinu goðsvolaða Viet- nam, var trompetinn honum hand- gengari en vélbyssan og þegar hann var skyldusamlega búinn að blása reveille og hergöngumarsa gat hann æft sig að spila sína eigin músík. Síðan í Vietnam hefur leiðin legið fram á við, hærra og hærra. Leo Smith bjó í Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu auk þess sem hann nam tónlist í eitt og hálft ár við Wesley háskóla. Hann hungraði og þyrsti í tónlist og varla til sú hefð eða stefna innan tónlistarinnar sem honum var óvið- komandi, hvort sem tónlistin var evrópsk, átti sér rætur í Mississippi eða komin frá austurlöndum nær og fjær, Leo studeraði allt. Leo Smith hefur allt frá byrjun verið fremstur meðal jafningja og trompet- leikur og tónlist hans varðað veginn ásamt tónlist frægra kappa eins og Richard Abrams og Anthony Brax- tons í Art Ensemble of Chicago og ekki má gleyma orkestranu Sun Ra. Leo Smith hefur kunnáttuna og hefðina í hendi sér og hann er þekkláturgömlu meisturunum, Elling- ton er sjálfur meistarinn í munni Leo, þekking Leo Smith átónlistarsögunni ásamt því upþeldi sem hann hlaut í Mississippi, gerir manninn að einum öruggasta og sjálfsmeðvitaðasta hljóðfæraleikara sem hugsast má. Er þá tónlistin ekki oröin meir í átt við skynsemi en tilfinningar? „Hún er hvor tveggja í ætt við skynsemina og tilfinningarnar. Hver einasta nóta sem ég blæs er blásin vegna skynseminnar sem að baki býr og af þeirri tilfinningu sem andartakið krefst.“ Sem þýðir að þú spilar jazz? „Ekki endilega jazz. Og þetta er heldur ekki framúrstefnutónlist, avant garde er nefnilega eitthvaö sem á sér engar rætur, án hefðar. Ég hef kynnt mér hinar ýmsu hefðir í tónlistinni og þótt ég kjósi að spila þvert á allar hefðir ef mér svo líkar, þá geri ég það algerlega meðvitað. Semsagt, þá á tónlistin sér rætur í hefðinni sem ég er að brjóta." Alveg eins og sá sem ekki kann að yrkja hefðbundið Ijóð, bundið í Ijóð- stafi og rímað, er varla maður til að yrkja prósaljóö?" „Ha?“ Ég meina, maður verður að kunna skil á hefðinni til að geta leyft sér að brjóta hana? „Sko, frumleiki sem slíkur þarf ekkert að hafa með æfingu eða kunnáttu að gera. En ungir menn eru fljótir að tileinka sér nýjungar og þeir festa þær í sessi og fyrr en varir verður nýjungin að hefð.“ Leo Smith er galopinn fyrir áhrifum, ef það eru góð áhrif. Tónlist hans er í sífelldri endurmótun og það getur fleira haft áhrif á spilamennsku hans en tónlistin ein. Leo Smith sem einu sinni óskaði sér að verða predikari er nú snúinn til fylgis við Rastafari-trúna. Allir kannast við Rastafari, ef menn kannast við Bob heitinn Marley hafa menn heyrt á þessi trúarbrögö minnst. Rastafari, það er Jamaica, gras, Haile Selassie, reggae og hver veit hvað. Að minnsta kosti erfitt fyrir fermdan mann að átta sig á þessum trúarbrögðum. En eitt er víst að Rastafari trúin rekur rætur sínar til Salomons konungs og það var ein- mitt hann ásamt drottningunni af Saba sem grundvallaði eþóópíska keisaradæmið sem telur sögu sina þrjú þúsund ár aftur í tímann, og allan tímann sjálfstætt fyrir utan þaö stutta tímabil á seinustu öld sem ítalir þóttust ráða yfir því, plús heims- veldisórar Mussolinis þegar Rómverj- ar hinir nýju lögðu landið undir sig en það hernám stóð ekki lengi, sjá mannkynssögu. En hvað sem líður Rastafari-trúnni þá eru fylgjendur þessara trúar- bragða auðþekkjanlegir á götu með sitt „dreadlocks" hár sem kýlt er undir skrautlega prjónahúfu. Leo Smith er með mikið og dökkt hár sem fellur í stöfum niður á axlir, svo er hann skeggjaður, búskur á efri vör og hýjungur á kinnum sem fer ágætlega við kaffibrúnan hörundslit mannsins. „Rastafari hófst með sköpuninni, Rastafari hefur alltaf verið og ég hef alltaf verið Rastafari þótt ég hafi ekki alltaf vitað það. En þegar ég uppgötv- aði það setti ég vínið mitt í nýja belginn og frá þeirri stundu var Rast- afari-laus fortíð mín aldrei til. Tónlist- ina mína, ég kallaði hann alltaf heimstónlist, kalla ég núna JAH til heiðurs skaparanum, hinum eina sem lifir. Allt annað er bara blekking. Öll önnur trúarbrögð segja að guð sé andi en Rastafari veit að guð lifði í mynd Haile Selassie, keisara Eþíóp- íu í fimmtíu og átta ár. Það er nú talsvert að ríkja í fimmtíu og átta ár í Afríkuríki. Haile Selassie lét margt gott af sér leiða, hann setti á þing- ræði, það var hans hugmynd að stofna Einingarsamtök Afríku og þau samtök eiga sér höfuðstöðvar í Addis Ababa. Já, Bob Marley var eitt sinn spurður, eitt sinn sem oftar, hvort hann tryði því virkilega að Haile Selasie væri guð. Auðvitað, svaraði Bob, eða eigið þið erfitt með að kyngja því að guð skuli birtast svartur í þetta skiptið? Allir Rastafarar eru endurholdgaður andinn frá Babylon og sjálfur guð birtist mannkyninu í Haile Selassie, það hafði guð ekki gert síðan hann gekk á jörðunni og kallaði sig Jesúm. Já, svo má ekki gleyma að Haile Selassie skrifaði sjálfsævisögu, hún kom út laust eftir sextíu. Hann var fyrstur Afríkuþjóð- höfðingja til að skrifa ævisögu sína. Þessi bók var alltaf ófáanleg en svo rakst ég á hana hérna á íslandi og keypti hana. Svo það hefur ekki verið meiningarlaus ráðstöfun JAH að láta mig berast til íslands. Hérna er gott að vera, ég kem aftur. Þetta er ekki eins og í New York, veistu hvað er krotað á vagnana í neðanjarðarlest- inni þar? Nei? High Crimes 8-5, segir þar. Enda þorir maður varla að ferð- ast í New York, meira að segja leigubílstjórarnir ræna mann. Agaleg borg, ómanneskjuleg, eins og margt annað í Bandaríkjunum. Kjör fá- tækra, þá sértaklega svartra fátæk- linga eru eins slæm og þau hafa alltaf verið. Að vísu eru blökkumenn núorð- ið ekki hengdir upp í næsta Ijósastaur fyrir að blístra á eftir hvítri konu en fjest annað er óbreytt eða verra. Ástandið í heilbrigðismálum er geig- vænlegt og milljónir manna þjást af næringarskorti. Fólkið hefur ekki efni á að borga og þá má það deyja drottni sínum. Það eru þúsundir heimilislausra manna í New York, aðallega gamlar konur, margar svart- ar og þeim fer fjölgandi. Það er talið að eftir um það bil tíu ár verði þessir umkomuleysingjar orðnir fimmtíu þúsund. Sofa á götunum, stjórnin gerir ekkert, frelsi einstaklingsins í hávegum haft.“ Úr því að minnst er á Haile Selassie, hvernig líkar ykkur Rastaförum við eftirmann hans, Mengistu? „Mengistu? Ó, þú meina þennan sem gerði byltinguna? Haile Selassie valdi hann úr hópi gáfuðustu mann- anna til að gera byltinguna. Fyrsta byltingartilraunin fór út um þúfur en svo heppnaðist byltingin. En Meng- istu og félagar gerðu ekkert nema í samráði við keisarann og hann reyndi ekkert að stööva þá í ásetningi þeirra. Ef fólkið vill revólúsjón þá vil ég aö það fái hana var viðkvæöi Haile Selassie. Ef það verður til að bæta líf fólksins þá er ég fylgjandi byltingu. Þannig fórst honum." En JAH-tónlist þín, heimstónlistin, hvað með hana? „Já, veraldartónlistin, my World Music. Hún byggir á því að tónlist- armaðurinn sé bæði höfundur og flytjandi þeirrar tónlistar sem hann ber á borð fyrir áheyrendur. Heims- tónlistarmaðurinn leikur á hljóðfæri, hann kann að syngja og hann getur dansað. Heimstónlistarmaðurinn reynir ekki að spila þjóðlega tónlist ákveðinna ianda en hann kynnir sér þjóðlega tónlist og lærir hvernig hún er uppbyggð og hvaða lögmál búa í henni. Hver sá tónlistarmaður sem nýtir sér þrjár eða fleiri hefðir innan tónlistarinnar má teljast heimstón- listamaður, hann spilar „total“ tónlist - alheimstónlist. Þannig færir hann út og víkkar svið tónlistarinnar, ég til dæmis, notfæri mér kannski jazz- strúktúra í tónlist minni án þess þó að tónlistin mín sem slík teljist verajazz. En auðvitað lítur hver tónlistina frá sínum bæjardyrum. Þótt ég notist við Afríkuhefðir og afrísk hljóðfæri lít ég samt ekki tónlistina þá sömu augum og Afríkumaður myndi gera.“ En hvernig tónlist setur þú á fóninn þegar þú ert aleinn heima hjá þér? „Alls konar, ég er sértaklega hrifinn af Mussorsky. Svo er Debussy einnig í miklu uppáhaldi hjá mér. En ég er alæta, get þess vegna hlustað á óperu í hálftíma og skipt svo yfir í griska þjóðlagamúsík eða skellt Billy Holiday á fóninn, svo á ég gott safn af Afríkutónlist. Ég lifi í veraldartón- listinni, núorðið sit ég bara heima og ferðast á vængjum tónlistarinnar, það er ekki bara Mississippi í mínum æðum. Ég sinni ekki lengur beiðnum frá öllum heimshornum, ég bara sit heima, ég er að ganga í gegnum mikið breytingaskeið, raunverulega veit enginn hvað ég hef fyrir stafni." Leo Smith er að minnsta kosti farinn að syngja. Á nýjustu plötunni hans, Human Rights - mannréttindi, syngur hann um þjáningar negranna í Suður-Afríku. Þetta er kraftmikil plata, að hluta tekin upp á hljómleik- um í Japan og Leo Smith notast við hárafmagnaða gítara og vælir á syn- þesæser. Þú lætur þér annt um fólkið í Suður-Afríku? „Það ríki er við það að falla, ég spái að það verði fallið innan hálfs árs. Þeir verða að fá að stjórna sér sjálfir. Allir eiga að hafa réttinn til að ráða sér sjálfir og gera það sem þeim líkar, jafnvel þótt allt fari í hund og kött hjá þeim, menn verða að hafa frelsi." Er þetta ekki bara hræsni hér á Vesturlöndum að láta svona út í Suður-Afríku, viðskiptabann og allt það? Er Suður-Afríka nokkuð frá- brugðin öðrum kúgunarríkjum að öðru leyti en því að þarna eru þeir kúguðu svartir og þess vegna svo auðvelt að sjá þá, hvað með kúskað- ann verkalýðinn í A-Evrópu? Þjáist hann ekki eins og þeir svörtu í Afríku? „Vissulega eru þeir kúskaðir, verkalýður er alls staðar kúskaður og vissulega er erfiðara að sjá kúgarana þegar þeir eru eins á litinn og þeir kúguðu. En það verður að muna að það er kerfið í Suður-Afríku sem er svona voðalegt. Hvað gerir ekki pólskur verkamaður sem flyst til Suð- urAfríku? Hann gengur inn í kerfi þar sem hann verður strax stuðnings- maður kúgaranna, þarna suðurfrá býður kerfið upp á baráttu milli svarta og hvítra. Svona er þetta. Heimurinn er spilltur, byggist annars ekki velferð verkamannsins á norðurhveli jarðar á arðráni þriðja heimsins? Bandaríkin og Evrópa eru byggð af tuttugu prósentum mannkyns en fellur ekki þessum tuttugu prósentum áttatíu prósent af framleiðslu heimsins í skaut?" Einmitt það. Svo við breytum um umræðuefni. Ætlarðu að spila sóló í Hamrahlíðinni þann þriðja nóvem- ber? „Nei, það verður veraldartónlistin. Með mér verða Sigtryggur úr Kuklinu, Abdou, Þorsteinn Stania á gítar og auk þess Skúli Sverris á bassanum. Þetta verður alheimskvintett. við erum þegar byrjaðir að æfa. Endir Hafliði Vilhelmsson. NT-mvnd: Sverrir

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.