NT - 27.11.1985, Blaðsíða 1

NT - 27.11.1985, Blaðsíða 1
Starfsfólk Landsvirkjunar: Getur átt von á uppsögnum - samdráttur vegna verkef naskorts ■ Fjöldi manns í byggingar- deild og verkfræðideild Lands- virkjunar getur átt von á upp- sögnum á næstunni. Ástæðan fyrir þessu er sú að engar nýjar framkvæmdir eru á döfinni hjá fyrirtækinu á næstunni. Jóhann Már Maríusson, að- stoðarforstjóri Landsvirkjunar vildi ekki tjá sig um hvaða áætlanir væru uppi í þessum málum þegar NT hafði samband við hann í gær. Sagði hann að á aðalfundi Landsvirkjunar, sem haldinn verður á morgun, verði rekstraráætlun fyrirtækisins lögð fyrir og í henni sé að finna tillögur til hagræðingar. Jóhann sagði að engar nýjar framkvæmdir væru í sigtinu en slíkt gæti þó breyst ef einhver glæta kæmist í stóriðjumálin. Hann vildi ekki tjá sig um hvort fækkun mannafla væri ein af hagræðingartillögunum en NT hefur áreiðanlegar heimildir fyrir að svo sé. Mikið um vinnuslys meðal unglinga: Er herskylda lausnin? ■ Vinnuslys á íslandi eru al- gengust í aldurshópnum 16-20 ára. Á árunum 1970 til 1977 urðu þau 27 talsins, eða 25 prósent af heildarfjölda vinnu- slysa. Þessi háa tíðni í sama aldursflokknum, 16-20 ára. þekkist ekki á öðrum Norður- löndum. í skýrslu sem Landlæknis- embættið hefur nýlega sent frá sér, um barna-og unglingaslys, er sagt að líklegasta skýringin sé sú að í nágrannalöndunum er nám lengra, og einnig er her- skylda hjá þessum aldurshóp. I skýrslunni er þó tekið fram að málið hafi ekki verið kannað til hlítar. Hitáveituæð sprakk í íbúðarhúsi: Brennheit gufa fyllti íbúðina ■ Hitaveituæð sprakk við íbúðarhúsið Nýlendugötu 4 í gærdag. Slökkvilið var kallað á vettvang, og lék grunur á að manneskja væri inni í íbúðinni, sem var full af brennheitri gufu. Reykkafarar frá slökkviliðinu réðust til inngöngu í húsið, og fuiívissuðu sig um að enginn var staddur þar. Starfsmaður Hita- veitu Reykjavíkur brenndist talsvert á fótum, þégar hann var að kanna aðstæður. í kjallara hússins, enda var vatnið sjóð- heitt. Talsverðar skemmdir urðu á húsnæðinu sökum vatns og gufu, en um fimmtíu sentimetra vatnslag var á gólfi kjaltarans, þegar tókst að stöðva lekann. Það tók slökkviliðið um tvo klukkutíma að ræsta kjallarann, og dæla út vatni því sem var í honum. Húsið við Nýlendugötu er timburhús með steinkjallara og nokkuð komið til ára sinna. NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 6 Þarf að grisja bankakerfið? Bankarnir of smáir og allt of margir! - er mat Þórðar Ólafssonar forstöðumanns bankaeftirl itsi ns ■ „Að mínu mati er íslenska bankakerfið alltof dreift á marg- ar og litlar einingar til að geta sinnt stórum viðskiptavinum án þess að rekstraröryggi bankans sé stefnt í hættu,“ sagði Þórður Ólafsson, hjá bankaeftirlitinu við NT í gær. Sagði Þórður að það væri langt því frá að öryggi banka væri nægilega tryggt með nýju bankalöggjöfinni og vantaði þar ákvæði um að banki gæti ekki lánað einum viðskiptavini nema ákveðið hlutfall af eiginfjár- stöðu bankans. Sagði Þórður að í greinargerð með löggjöfinni væri tekið fram að bankaráð setti slíkar reglur og sendi bankaeftirliti, en það væri mjög almennt orðað og ákvæðin í lögunum of væg og til dæmis vantaði tilfinnanlega ákvæði um hvert hlutverk bankaeftirlitsins væri. Þegar nýja bankalöggjöfin kom fyrir Alþingi, flutti Jóhanna Sigurðardóttir breyt- ingatillögu, þar sem gert var ráð fyrir ákvæðum um að einum viðskiptavini bankans yrði ekki veitt lánafyrirgreiðsla nema að ákveðnu hlutfalli eiginfjár bankans. Þessi breytingatillaga var felld. í tveim bönkum tíðkast þó innanhússreglur, sem gera ráð fyrir að enginn viðskiptavinur geti farið yfir ákveðið mark. Það er í Iðnaðarbankanum og Verslunarbankanum. NT ræddi við Val Valsson, bankastjóra Iðnaðarbankans í gær. Sagði Valur að bankastjór- ar Iðnaðarbankans hefðu heim- ild til að veita einum viðskipta- vini lán sem samsvaraði 2% af heildarútlánum bankans, væru lánin á bilinu 2-4% tæki banka- ráðsformaður ákvörðun þar um. Fari lánveiting yfir 4% sem aldrei hefur komið til þau tíu ár sem þessar reglur hafa verið í gildi hjá bankanum, tekur bankaráð ákvörðun þar um. Tilgangur þessara vinnureglna er sá að gæta þess að bankinn taki ekki of mikla áhættu af viðskiptum við einn aðila, sagði Valur. Höskuldur Ólafsson, banka- stjóri Verslunarbankans, sagði að svipaðar reglur væru hjá sínum banka en hann sagðist ekki geta tilgreint nánar hvernig þær væru. Sagði hann að þessar vinnureglur hefðu gilt frá stofn- un bankans og reynst vel, enda væri Verslunarbankinn lítill banki og þyrfti því að fara að öllum málum með aðgát. ■ Slökkviliðsmenn búast til inngöngu í kjallarann en þar var þá komið hnédjúpt sjóðandi vatn. NT-mynd Svenir

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.