NT - 27.11.1985, Qupperneq 17
Miðvikudagur 27. nóvember 1985 1 7
■ Sterkasti maður íslands og heimsins, Jón Páll Sigmarsson faguar sigri,
■ Það er ekkert gefið eftir í slíkum átökum. Rétt um leið og þessi mynd var
tekin handleggsbrotnaði Guðni Sigurjónsson (sá með skeggið) undan átökum
„Úrsusar“.
■ Nýlega fór fram í
Laugardalshöllinni við-
burðaríkt íþróttamót, sem
vakti mikla athygli. Við
hér á Spegilsíðunni höfum
ekki mikið verið í íþróttun-
um, en nokkrar myndir frá
„kraftakarla-keppninni“
svokölluðu lentu hér á
borðinu, svo við ætlum að
birta þær og gefa þannig
þeim sem stöðugt fletta
yfir íþróttasíðurnar eins og
þær væru auðar, tækifæri
til að sjá þessa kroppa í
keþpninni um hver sé
sterkasti maður á íslandi.
Myndunum fylgdu reyndar
myndatextar frá íþrótta-
fréttamönnum, sökum fá-
fræði Spegil-skrifara um
íþróttir.
■ Svo rákumst við á þessa mynd í
bresku blaði af kraftakarlinum Geoff
Capes, sem margir kannast við úr
sjónvarpskeppninni í Mora í Svíþjóð,
þegar Jón Páil sigraði og fékk titilinn
„Sterkasti maður heims“. Geoff Cap-
es hafði áður haft titilinn sterkasti
maður Evrópu, og á þessari mynd,
þar sem hann hampar píunum, er
hann kallaður „sá sterkasti í Evrópu
á si. ári“ - og það á hann að þakka
því að hann notar Parnavite Slim,
segir svo, því myndin er úr auglvs-
ingu.
■ Magnús (S)Ver Magnússon er
þarna cinbeittur, við að halda geymi
í útréttum örmum. Magnús stóð
svona nokkra stund en varð svo að
láta í minni pokann.
■ Karatemenn sýndu frábær atriði
á milli átakanna. Hér brýtur Karl
Gauti Hjaltason nokkrar millivcggja-
liellur með höfðinu.
■ „Úrsus“ skrönglast með Húsafellshelluna um gólfið og varð að beita
tungulipurð við burðinn.