NT - 27.11.1985, Blaðsíða 8
Málsvari frjálslyndis,
samvinnu og félagshyggju
Útgefandi: Nútiminn h.f.
Ritstj.: Helgi Pélursson
Ritstjómarfulltr.: Niels Árni Lund
Framkvstj.: Guðmundur Karlsson
Auglýsingastj.: Steingrímur Gislason
Innblaösstj.: Oddur Ólalsson
Skrifstofur: Siðumúli 15, Reykjavik.
Simi: 686300. Auglýsingasimi: 18300
Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn
686392 og 686495, tæknideild 686538.
Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prontun: Bla&aprent h.t.
Kvöldsimar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 35 kr.og 40 kr. um helgar. Áskrift 400 kr.
Sjálfstæðiskonur
vonsviknar
■ Prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík er lokið.
Það sem vekur mesta athygli, er hve hlutur kvenna
er lélegur. Aðeins ein kona komst í öruggt sæti á
listanum. F*að hlýtur að vera sjálfstæðiskonum von-
brigði og umhugsunarefni hvaða árangri prófkjörið
skilaði þeim. Að vísu hafa konur innan Sjálfstæðis-
flokksins látið fremur lítið í sér heyra en þær eru þó
vel meðvitaðar um þann árangur sem konur innan
annarra stjórnmálaflokka hafa náð.
Hörðustu sjálfstæðiskonur láta úrslitin eflaust ekki á
sig fá og kjósa lista Davíðs borgarstjóra áfram en þær
konur sem vilja auka hlut kvenna í borgarstjórn velta
fyrir sér öðrum kostum, því hvað svo sem um stjórnun
Davíðs má segja, verður því vart haldið fram að hann
hafi sýnt málefnum kvenna og barna neinn sérstakan
skilning á valdaferli sínum.
Annars einkenndi þetta prófkjör mikið og öflugt
áróðursstríð kandidatanna. Fullyrt er að nokkrir þeirra
hafi eytt hundruðum þúsunda í auglýsingar. Pá var
notað hvert tækifæri sem gafst til að vekja athygli á sér
m.a. greindu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokicsins frá
miklu starfi sínu í borgarstjórn og hvað væri ætlun
þeirra að gera þar í framtíðinni. Svo langt gekk þessi
sjónvarpsumræða þeirra að almenningi fannst nóg um
og hafði samband við dagblöð til að lýsa skoðun sinni
á málinu.
En enda þótt prófkjörinu sé lokið er ekki þar með
sagt að framboðsmálum sjálfstæðismanna sé lokið. Nú
taka við umræður í Valhöll um hvernig megi sætta þá
sem undir urðu og hugsanlegar tilfærslur á iistanum.
Þá geta sjálfstæðismenn ekki horft fram hjá þeirri
staðreynd að Albert Guðmundsson tók ekki þátt í
leiknum að þessu sinni. Hvað það boðar er ekki gott
að segja því Albert er maður með skjóta hugsun og er
vís að sjá sér leik á borði þegar minnst varir og breyta
allri stöðunni.
Þetta vekur óneitanlega mikinn ugg í brjóstum
sjálfstæðismanna og er þeim fyrir bestu að styggja
Albert ekki meira en þegar hefur verið gert vilji þeir
hafa hann góðan þegar til kosninga kemur.
Verslunin
í vandræðum
■ Enn stendur yfir rannsókn á okurlánamálinu
margnefnda.
Lögreglan verst allra frétta en vitað er að fjöldi
manna tengist málinu.
í Morgunblaðinu í gær var skýrt frá því að við húsleit
hjá Hermanni Björgvinssyni hafi fundist nöfn 89
manna sem fjármögnuðu orkurlánaviðskipti hans.
Þá ganga þær sögur að velmetnar verslanir séu í
vandræðum að leysa út jólavörur sínar vegna þess að
aðrir okurlánarar sem þeir treystu á hjálp hjá, haldi nú
að sér höndum og vilji ekki hætta á neitt meðan
okurlánaviðskipti eru í umræðu og rannsókn.
Sé það rétt að verslanir hafi í miklum mæli tekið
okurlán til að leysa vörur út úr tolli hljóta menn að
velta því fyrir sér hver ábyrgð þeirra sé. Auðvitað hafa
þær síðan lagt þann kostnað sem okurlánunum hefur
fylgt ofan á vöruverðið og því í raun neytandinn sem
borgað hefur brúsann.
En síðast og ekki síst flettist nú hægt og sígandi ofan
af því gerviástandi sem hér hefur ríkt í efnahagsmálum
um langa hríð. Sú spurning hlýtur að vakna, hvað allar
hagdeildirnar í böriunum, sérfræðingarnir og efna-
hagsstofnanirnar hafa verið að spá um, með stóran
hluta af hagkerfinu neðanjarðar og fyrir utan lög og
rétt. .. .......... ..........
Miðvikudagur 27. nóvember 1985 8
Vettvangur
Hallur Magnússon
formaður Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík
Framsókn
á villigötum
Af hverju
sérframboð?
■ Aö undanförnu hafa verið
uppi raddir um sérframboð
framsóknarfólks í Reykjavík
og Reykjanesi fyrir næstu Al-
þingiskosningar. Þessar hug-
myndir hafa komið flatt upp á
ýmsa, en ef málið er skoðað
ofan í kjölinn ættu þær engum
að koma á óvart.
1 síðustu Alþingiskosningum
fékk Framsóknarflokkurinn
8225 atkvæði í Reykjavík og
Reykjanesi og einn mann
kjörinn. Alþýðuflokkur,
Bandalag' jafnaðarmanna og
Kvennalistinn fengu samtals
23253 atkvæði og 10 menn
kjörna. Að meðaltali voru því
2325 atkvæði á bak við hvern
þingmann þeirra eða 5900 at-
kvæðum minna en bakvið
þingmann Framsóknarflokks-
ins. Hver var að tala um mis-
vægi atkvæða Framsóknar-
flokknum í hag?
Ef framsóknarfólk í Reykja-
vík og Reykjanesi byðu fram
sérlista fengjust 4 þingmenn á
sama atkvæðahlutfall í næstu
Alþingiskosningum. Þáerhætt
við að Kvennalistakonur og
kratar á þessu svæði tækju að
ókyrrast.
Eigum við í
sérframboð?
{ Ijósi þessa staðreynda
myndu margir telja sérfram-
boð sjálfsagt og eðlilegt. En er
það svo? Við í FUF í Reykja-
vík svörum þeirri spurningu
afdráttarlaust neitandi. Fyrir
því höfum við gildar ástæður.
í fyrsta lagi er sérframboð
alltaf sérframboð hvaða nafni
sem það kallast. Framsóknar-
flokkurinn á að koma fram
sem einn heilsteyptur flokkur
með eina heilsteypta stefnu.
Fó rökin fyrir þessu sérfram-
boði séu góð og gild, þá er hætt
við að flokkurinn ynni orrustu
með fjölgun þingmanna en
tapaði stríðinu vegna inn-
byrðis sundurþykkju.
í öðru lagi jafnast þetta
misvægi nokkuð ef litið er á
landið í heild. Á bak við hvern
landsbyggðarþingmann Fram-
sóknarflokksins er nokkuð
minna atkvæðamagn cn er á
bak við þéttbýlisþingmenn
hinna flokkanna. Við viljum
ekki vega upp eitt misrétti með
,öðru misrétti.
í þriðja lagi teljum við ekki
skipta máli hvaðan framsókn-
arþingmenn koma. Framsókn-
arþingmaður á að fylgja grund-
vallarstefnu og hugsjónum
Framsóknarflokksins sem
koma öllum landsmönnum til
góða, hvar sem þeir kunna að
búa.
Þetta verða landsbyggðar-
þingmenn Framsóknarflokks-
ins að gera sér fullkomlega
ljóst. Þeir eiga skyldum að
gegna við þá 8225 kjósendur
sem kusu Framsóknarflokkinn
í Reykjavík og Reykjanesi,
jafnt sem kjósendur sína í
þeirra heimahéraði. Fram-
sóknarþingmenn eiga að hlusta
á rödd húsmóðurinnar í Breið-
holti jafnt sem rödd bóndans í
Bakkakoti. Hann á að þjóna
þjóðinni í heild. Það gerði
hann best með því að halda
fast við grundvallarhugsjón og
stefnu Framsóknarflokksins.
Framsókn á
villigötum
En því miður hefur farið allt
of lítið fyrir grundvallarstefnu
Framsóknarflokksins að
undanförnu. Þingmenn flokks-
ins hafa brugðist í því að halda
málum framsóknarstefnunnar
á lofti. í það minnsta hefur
framsóknarandinn ekki svifið
yfir vötnunum í núverandi
ríkisstjórn. Þar ræður ríkjum
helköld niðurrifshönd Sjálf-
stæðisflokksins sem stjórnast
af óheftri peningahyggju stór-
fjármagnseigenda. Helhönd
þessi skeytir í engu um mann-
leg verðmæti og manngildi ein-
staklingsins.
Til að byrja með tókst niður-
talningaleið Framsóknar-
flokksins með ágætum. Með
fórnfúsum stuðningi launþega
í landinu náðist verulegur
árangur í baráttunni við verð-
bólguna og það losnaði um
fjármagn til nýsköpunar at-
vinnulífs. En þá greip fyrr-
nefnd helhönd Sjálfstæðis-
flokksins inn í og nýsköpunar-
fjármagni fyrirtækjanna var
varið til kaupa á nýjum BMW
fyrir forstjórann og laun þeirra
hæstlaunuðu voru hækkuð enn
meira. Nýsköpunin týndist.
En það var ekki nóg. í
þjónkun sinni við stórfjár-
magnseigendur þvingaði hel-
hönd Sjálfstæðisflokksins
framsóknarmenn til að gefa
eftir frjálsa vexti. Síðan þá
spennir hún greipar um almenn-
ing og kemur honum á kaldan
klaka með hjálp löglegs vaxta-
okurs.
Þessi aðgerð er mesta smán
Framsóknarflokksins frá upp-
hafi. Hvar er gamla Framsókn-
arboðorið „Manngildi ofar
auðgildi*’? Nei, Framsóknar-
flokkurinn hefur brugðist í því
að halda helhönd Sjálfstæðis-
flokksins frá almenningi í land-
inu.
Ljós í myrkri
„Ekkert er svo með öllu illt
að ekki boði nokkuð gott“ er
setning sem finna má í Dýrun-
um í Hálsaskógi. Sem betur
fer er það svo í raunveru-
leikanum. 1 gegnum frostþok-
una má grilla ljós í myrkri. Það
eru einstaka framsóknarmál-
efni.
En hvað má sú týra gegn
jökulköldum norðangarra
íhaldsins? Ég hef grun um að
kjósendur minnist frekar sárs-
aukans í frostbitnum kinnum
en veimiltítulegrar Ijóstýru
framsóknar. Ef framsóknar-
menn bæta ekki í týruna svo
logi það vel að helhöndin taki
að þiðna, þá er hætt við að
fylgi taki snarlega að hrynja af
flokknum. Þá þurfa menn ekki
að ræða um sérframboð eða
sérframboð ekki í Reykjavík
og Reykjanesi. í það minnsta
get ég ekki stutt þessa ríkis-
stjórn þó ég styðji heilshugar
flest mál framsóknar þar.
Formaður Fram-
sóknarflokksins
Þó ég styðji ekki núverandi
ríkisstjórn, þá styð ég Stein-
grím Hermannsson sem for-
mann flokksins -ennþá. Ég tel
Steingrím þann mann hæfastan
til að taka á þeim vandamálum
er við blasa. En því miður eru
ýmis teikn á lofti sem gætu
orðið til þess að ég yrði að
endurskoða þá afstöðu mína.
1 fyrsta lagi er hann í forsæti
núverandi ríkisstjórnar sem
ekki er eiginleg framsóknar-
stjórn. Þar á ofan lýsir hann
því yfir að Framsóknarflokkn-
um sé fórnandi fyrir þá sömu
stjórn. Ef hann fer ekki all
snarlega að koma eiginlegum
framsóknarmálum þar í gegn
án þess að þau beri merki
helhandarinnar, þá er þeirrar
fórnar stutt að bjða.
í öðru lagi hefur hann ekki
tekið á innanhússvandamálum
flokksins af þeirri ábyrgð og
Gatslitið dómskerfi
refsingar ekki lengur fyrirbyggjandi
■ Hvaða munur er á trillu-
karli, sem staðinn er að ólögleg-
um veiðum í landhelgi, og
síbrotamanni, sem virðir ekki
helgustu mannréttindi, svo
sem friðhelgi heimilisins og
eignaréttinn? Báðir eru brot-
legir gagnvart lögunum, og
verða því dregnir fyrir dóm-
stóla og gert að sæta refsingu,
í formi sektar eða fangelsisvist-
ar. En það er annað og meira
sem trillukarlinn og síbrota-
maðurinn eiga ekki sameigin-
legt, og það er málsmeðferð.
Sjóréttur er búinn að dæma
sjómanninn áður en fiskurinn
fer í annan flokk sökum
geymslu. Síbrotamaðurinn
hinsvegar gengur laus jafnvel
daginn eftir að hann hefur
játað brot sitt, og með áfrýjun-
um til Hæstaréttar getur hann
frestað refsingu sinni um lang-
an tíma. Þarna finnst ekki
sanngirni, og í raun er dóms-
kerfi það sem við búum við
ófullnægjandi.
Sjóréttur á staðnum
Landhelgisbrot og mál sem
sjóréttur fjallar um, eru af-
greidd með hraði og oft svo að
segja samdægurs, þegar skip
hefur náð landi. Næsta víst er
að þessi háttur er hafður á,
vegna sérstöðu sem siglingar
hafa. Hugsunin á bak við það,
að dæma í máli skipstjóra og
áhafnar, er sú að skipið komist
sem fyrst aftur á sjó, þar sem
miklir peningar eru í húfi bæði
fyrir þjóðina og þá sérstaklega
áhöfnina og ættingja hennar.
Sjóslys, eða dauðsföll á sjó,
koma til meðferðar á meðan
skip er í höfn, til þess að
landlega verði ekki lengd.
Þetta er mjög eðlileg meðferð
dómsmála, og til eftirbreytni
annarsstaðar.
Já og bless
Það er ekki sami afgreiðslu-
hraði í kerfinu, þegar um er að
ræða fíkniefnasmyglara eða
nauðgara, svo dæmi séu nefnd.
Maður sem grunaður er um
nauðgun, getur gengið laus
svo mánuðum skiptir, ef hann
viðurkennir brot sitt. „Já ég
nauðgaði stúlkunni. „Þakka þér
fyrir þú mátt fara.“ Eitthvað á
þessa leið er líklegt að samtöl
gangi á milli lögreglumanna og
afbrotamanns. Það að maður-
inn sem játaði brot sitt geti
gengið út í þjóðfélagið, án
nokkurs eftirlits er hættulegt
fyrir almenning. Einhver
myndi segja að maðurinn væri
ekki hættulegur almenningi.
Það má vel vera að afbrotið
hafi verið framið í vímu. Þetta
er ekki afsökun. Maðurinn
sem hefur einu sinni framið
afbrot sem samfélagið fordæm-
ir og krefst refsingar fyrir, er
hættulegur áfram. Þó svo af-
brotið hafi verið framið undir
áhrifum áfengis, afsakar það
ekki verkaðinn. Verður al-
menningur þá að vona að við-
komandi hætti að drekka?
Vissulega geta menn bætt
ráð sitt, og þessi orð eru ekki
til þess rituð að sverta þá menn
sem það hafa þegar gert. En
vissir einstaklingar, svo kallað-
ir síbrotamenn hafa hreinlega
hvatir til innbrota eða annarra
afbrota. Spurningin sem
vaknar er af hverju eru þessir
menn látnir safna kvóta, áður
en mál þeirra kemst á það stig
að þeir eru dæmdir og látnir
taka út sína refsingu?
Sjá engan árangur
Undirritaður veit að það