NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 27.11.1985, Qupperneq 5

NT - 27.11.1985, Qupperneq 5
Miðvikudagur 27. nóvember 1985 5 Borgarstjórn: Samþykkti að kanna röðun kvenna í launaflokkana - fyrir næstu sérkjarasamninga borgarinnar og SFR ■ Miklar og harðar umræður urðu um launamál kvenna á borgarstjórnarfundi í liðinni viku. Guðrún Jónsdóttir, Kvennaframboðinu, sem 19. sept. sl. hafði flutt tillögu um endurmat á launum allra kvenna sem starfa hjá borginni fordæmdi neikvæða umsögn þriggja embættismanna borgar- innar á tillögunni og kvað um- sögnina marklausa. Eftir miklar umræður var samþykkt tillaga Alþýðubandalagsins um að borgarstjórn leitaði eftir því við Starfsmannafélag Reykjavíkur að samningsaðilar könnuðu sér- staklega fyrir gerð næstu sér- kjarasamninga röðun svokall- aðra kvennastarfa í launaflokka borið saman við röðun annarra starfa. Niðurstöður könnunar- innar yrðu síðan grundvöllur viðræðna aðila í næstu sérkjara- samningum. Guðrún Jónsdóttir hóf um- ræðuna og fordæmdi umsögnina sem gerð var að beiðni borgar- ráðs. Umsögnin var ómerk því hún fjallaði ekki efnislega um tillöguna. Umsögnin snérist t.d. um starfsmat þegar tillagan hefði fjallað um endurmat á launum kvenna. Að auki sýndi umsögnin berlega viðhorf höf- unda og þá um leið hverju konur gætu átt von á ef þær gerðust svo djarfar að berjast fyrir réttindum sínum. í um- sögninni segði að konum í ábyrgðarstörfum hjá Reykja- víkurborg hefði fjölgað, en ef svo væri hefði það ekki skilað sér í hærri launum. Árið 1972 hefði 1 kona verið á móti 8 körlum í 11 efstu launaflokkum hjá Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar en árið 1984 hefði 1 kona verið á móti 13 körlum í sömu launaflokkum. Samt hefði hlutfall karla í Starfsmannafé- laginu lækkað úr 57,7% árið 1972 í 39,5% árið 1984. Um- sögnin styddist því ekki við rök heldur gildismatið eitt og því lagði Guðrún fram tillögu um að ný og málefnaleg umsögn yrði gerð. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði að fátt málefnalegt hefði verið í málflutningi Guðrúnar, Guðrún væri uppfull af karlafor- dómum og kynferðisfordómum og gerði mönnum upp skoðanir. Umsögnin væri þvert á móti mjög málefnaleg, það kæmi fram í henni að ekki væri tími til að vinna svona starfsmat. Málin ætti ekki að ræða á svo lágu plani og Guðrún hefði gert og það væri út í bláinn að biðja um nýja umsögn. Guðrún Ágústsdóttir, Al- þýðubandalagi, sagði að flokkur stöðu settir sinn hefði á sínum tíma stutt tillögu Kvennaframboðsins en borgarstjórnarmeirihlutinn hefði nú slátrað tillögunni. Abl. vildi halda þessu mikilvæga mál- efni lifandi og því flytti það nýja tillögu um þessi mál, tillögu sem líklegt væri að fengist samþykkt. Sigurður E. Guðmundsson Alþýðuflokki, sagði að tillaga Kvennaframboðsins væri góð því hún boðaði stórbreytingar á i þeirra sem væru verst . Ymislegt væri athugavert við umsögnina, m.a. fullyrðing- in um að reynsla af starfsmati sem gert var 1969-70 væri ekki góð. Væntanlega hefðu höfund- ar umsagnarinnar þá ennþá ver- ið í lagadeildinni því reynslan af starfsmatinu væri þvert á móti mjög góð. Sigurður sagðist hins vegar ekki styðja tillöguna um nýja umsögn, hyggilegra væri að styðja tillögu Alþýðubanda- lagsins. Guðrún Jónsdóttir mót- mælti svívirðingum borgar- stjóra í sinn garð og sagðist ekki telja það kynferðisfordóma að«, ræða um misrétti kynjanna. Borgarstjóri teldi umsögnina málefnalega en gæti ekki rök- stutt þá fullyrðingu. Davíð Oddsson sagði að um- sögnin væri ekki byggð á gildis- mati þeirra sem hefðu samið hana, þetta með gildismatið væri rugl sem Guðrún Jónsdótt- ir virtist ekki hafa áttað sig á. Guðrún Jónsdóttir óskaði eft- ir nafnakalli þegar greitt var atkvæði um tillöguna um nýja umsögn en því var hafnað. til- lagan fékk einungis tvö atkvæði Kvennaframboðsins en tillaga Alþýðubandalagsins var síðan samþykkt. Þorsteinn Tómasson ráðinn: Forstjóri RALA ■ Þorsteinn Tómasson hef- ur verið skipaður forstjóri Rannsóknarstofnunar land- búnaðarins, en dr. Björn Sigurbjörnsson forstjóri hef- ur sagt stöðunni lausri. Á meðan var Þorsteinn settur forstjóri. Alls sóttu sex manns um stöðuna, en Þorsteinn telst ráðinn frá 1. desember n.k. Umsóknarfrestur rann út 31. október síðastliðinn. ■ Fjöldi manna var viöstaddur þegar nýja sambýliö var formlega tekiö í notkun og tóku margir til máls, þ.á m. Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra sem óskaöi félaginu til hamingju með áfangann. NT-mynd: Árni Bjarna. ■ Eins og sjá má svipar Liberty Mounten mjög til rokkkóngsins, en Liberty mun skemmta í Broadway 6. og 7. desember nk. Áhugamenn í húsnæðismálum: Fagna hugmyndum um vaxtalækkun Styrktarfélag vangefinna: Nýtt sambýli vangefinna tekið í notkun í Víðihlíð Enn er þó fjöldi manns á neyðarlista Broadway: Elvis í LasVegas - f ræg sýning á íslandi ■ í tilefni þess að konungur rokksins, Elvis Presley, hefði orðið fimmtugur á þessu ári hefur verið ákveðið að minnast þess á sérstakan hátt, og ákveð- ið hefur verið að fá eina bestu Elvis sýningu sem völ er á í heiminum til að heimsækja skemmtistaðinn Broadway og skemmta gestum 6. og 7. des- ember nk. Sýning þessi ber yfirskriftina „Elvis í Las Vegas“, og í aðal- hlutverki er Liberty Mounten og átta manna hljómsveit hans, De-Soto. Liberty Mounten er talinn einn sá besti Elvis leikari sem komið hefur fram á seinni árum. Hann hefur farið víða um heim með sýningu sína og hvarvetna fengið stórkostlegar viðtökur hjá Elvis aðdáendum. Liberty er mjög líkur Elvis á sviði hvað varðar líkamsburði og söng og hefur það leitt af sér að hann hefur leikið í mörgum auglýs- ingum, var m.a. tekinn sterk- lega til greina um að leika Elvis í kvikmyndinni „This is Elvis“. Hann hefur komið fram með stjörnum eins og Oliviu Newton John, Neil Sedaka og Paul Anka. Sýning Liberty Mounten spannar aðallega tímabil Elvis er hann kom fram í Las Vegas og eru flest af þekktari lögum hans flutt. ■ Áhugamenn um úrbætur í húsnæðismálum hafa sent frá sér fréttatilkynningu, þar sem þeir lýsa fullum stuðningi við framkomnar hugmyndir á þing- um Verkamannasambands ís- lands og Landssambands versl- unarmanna, um að lækka vexti af lánum til húsnæðiskaupa. Það að raunvextir af lánum til húsnæðiskaupa verði lækkaðir niður í 2%, telja þeir skref í rétta átt ogberavott um meira raunsæi og meiri ábyrgðartil- finningu gagnvart fólkinu en verið hefur um nokkurt skeið af hálfu ráðamanna. ■ Styrktarfélag vangefinna tók í notkun sl. föstudag, 22. nóvember, nýtt sambýli vangef- inna að Víðihlíð 7 í Reykjavík. Nýja sambýlið er þriðja heim- ilið sem tekið er í notkun í Víðihlíð, af þeim fjórum sem ákveðið var að reisa á 25 ára afmæli félagsins árið 1983, í Víðihlíð 5-11. Stefnt er að því að Ijúka fjórða húsinu á næsta ári, en það er nú tilbúið undir múrverk. Þegar húsin verða öll komin í gagnið verður þar rými fyrir 20-25 einstaklinga á sam- ■ Hátíðarvika stendur nú yfir á vegum Æskulýðs- og tómstundaráðs Hafnarfjarðar og mun hún standa fram á laugardag 30. nóvember, en hún hófst um síðustu helgi. Æskulýðs- og tómstunda- ráðið hefur undanfarnar vikur staðið fyrir viðamikilli sam- keppni meðal barna og ung- linga í Hafnarfirði, undir kjör- orðunum þekking, þjálfun, býlum og í skammtímavistun. í nýja sambýlinu er rými fyrir fimm manns. „Þótt við séum afskaplega ánægðir með þennan nýja áfanga, er enn langt í land með að hýsa þann fjölda vangefinna sem bíður eftir plássi á sam- býli,“ sagði Tómas Sturlaugsson framkvæmdastjóri Styrktarfé- lags vangefinna, í samtali við NT. „Enn eru yfir 70 manns á biðlista, bara hér í Reykjavík, þar af 30-40 í algerri neyð.“ Heildarkostnaður við þessar þroski. Á 9. hundrað barna og unglinga tóku þátt í þessari samkeppni með myndverkum, ritgerðum, Ijóðum og ljós- myndum, og voru verðlaun veitt við opnun sýningar á verkum barna og unglinga sem opnuð var í menningarmið- stöðinni Hafnarborg, á laugar- daginn var, um leið og hátíðar- vikan hófst. Ýmislegt annað hefur verið framkvæmdir nemur nú um 18,4 milljónum, þar af er framlag Framkvæmdasjóðs fatlaðra rúmlega 7,7 milljónir, en félagið hefur lagt fram um 8,7 milljónir króna til framkvæmdanna. Styrktarfélag vangefinna ann- ast nú rekstur 10 stofnana hér í borginni, þriggja dag- og þjálf- unarstofnana, fimni sambýla, skammtímaheimilis og vemdaðs vinnustaðar. Formaður félagsins er Magn- ús Kristinsson. ' á dagskrá vikunnar, m.a. Free- style danskeppni barna og unglinga, þar sem íslands- meistarinn í Free-style bæði sýnir og situr í dómnefnd. Allir þátttakendur í sam- keppninni fá viðurkenningu og í lok hátíðarvikunnar verða haldnar skemmtanir fyrir allan hópinn með ýmsum uppákom- um. Hafnarfjörður: Hátíðarvika barna og unglinga stendur yfir

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.