NT - 27.11.1985, Síða 18
Miðvikudagur 27. nóvember 1985 1 8
RAFMAGNSVEmjR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboöum í eftirfarandi:
RARIK-85014: Aflstrengir og ber koparvír.
Opnunardagur: Þriöjudagur 14. janúar 1986, kl. 14.00.
Tilboöum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartima og veröa
þau opnuð á sama staö aö viðstöddum þeim bjóöendum er
þess óska.
Útboösgögn veröa seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og meö miðvikudegi 27.
nóvember 1985 og kosta kr. 200,- hvert eintak.
Reykjavík 25. nóvember 1985. Rafmagnsveitur rikisins.
Frá Grunnskóla-
Njarðvíkur
Hannyrðakennara vantar við skólann frá næstu
áramótum. Einnig vantar íþróttakennara frá sama
tíma.
Upplýsingar veitir Gylfi Guðmundsson skólastjóri
í síma 92-4399 og 92-4380.
Skólastjóri.
Styrkir til háskólanáms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóöa fram styrk handa íslendingi til
háskólanáms í Svíþjóö námsárið 1986-87. Styrkfjárhæð er
3.510 s.kr. á mánuöi í 8 mánuði. - Jafnframt bjóöa sænsk
stjórnvöld fram þrjá styrki handa íslendingum til vísindalegs
sérnáms i Svíþjóð á háskólaárinu 1986-87. Styrkirnir eru til 8
mánaöa dvalar, en skipting í styrki til skemmri tíma kemur
einnig til greina.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komiö til mennta-
málaráöuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík fyrir 15.
janúar n.k. og fylgi staöfest afrit prófskírteina ásamt meömæl-
um. - Sérstök umsóknareyðublöö fást I ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið, 22. nóvember 1985.
Bændur í Stranda-
sýslu og á Vesturlandi
Jón Helgason, landbúnaöarráðherra , boðar
til almennra funda um landbúnaðarmál, í
Broddaskóla fimmtudaginn 28. nóvember kl.
21, í Dalabúð föstudaginn 29. nóvember kl.
14 og að Lyngbrekku sama dag kl. 21.
Landbúnaðarráðuneytið.
Framkvæmdastjóri
Starf framkvæmdastjóra BSRB er laust til
umsóknar. Umsóknir berist skrifstofu BSRB,
Grettisgötu 89, fyrir 15. desember n.k.
Upplýsingar gefur formaður bandalagsins.
Stjórn BSRB.
Aðalfundur Samtaka
grásleppuhrognaframleiðenda
Verður haldinn að Hamraborg 5, Kópavogi
laugardaginn 7. desember kl. 13.00. Fundar-
efni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Til sölu
Eru 9 þilofnar. Upplýsingar í síma 99-8388
á kvöldin.
Magnús Þór - Crossroads
Metnaðar-
full plata
■ Garðar Hólm hefur gengið
aftur í mörgum íslenskum popp-
urum. Það eru margir sem stað-
ið hafa tímum saman á þrösk-
uldi frægðarinnar, en því miður
án þess að upp hafi verið lokið.
Auðvitað býr frægðardraum-
urinn í öllum og sem betur fer
hafa allar vangaveltur um
heimsfrægð orðið raunsærri en
áður var. Menn hafa áttað sig á
því að frægðin kemur ekki á
silfurfati. Néi, það þarf að vinna
markvisst að settu marki. Ef
vinnan er góð og heppnin er
með má vera að dyr frægðarinn-
ar opnist. En það er ekki þar
með sagt að björninn sé unninn,
því auðveldara er að gleymast
en viðhalda fræðginni.
Þetta er kannski undarlegur
inngangur að umsögn um
hljómplötu, en þó ekki. Platan
sem hér er til umfjöllunar heitir
Crossroads og er með Magnúsi
Þór. Þessi plata er öllum á óvart
gefin út af stórfyrirtækinu RCA,
fyrir milligöngu Skífunnar, svo
það virðist vera hugsað um
meira en bara íslandsmarkað.
Platan Crossroads er góð,
strax við fyrstu hlustun, og verð-
ugur fulltrúi íslenskrar tónlistar
á erlendum mörkuðum. Reynd-
ar hefur ekkert verið endanlega
ákveðið um dreifingu plötunnar
erlendis en óskandi er að svo
verði í ríkulegum mæli.
Fagmennska er það fyrsta
sem kemur upp f hugann þegar
hlustað er á plötu Magnúsar.
Lagasmíðar hans eru stórgóðar,
lögin búa yfir laglínu sem er
grípandi án þess að vera einföld
eða ódýr. Hljóðfæraleikurinn
er góður og skemmtilegur, stúd-
íóvinnan er hnökralaus og út-
koman er metnaðarfull plata.
Trommuleikur Ásgeirs Ósk-
arssonar og bassi Skúla Sverris-
sonar (sem orðinn er einn af
okkar bestu bassaleikurum)
mynda góðan og þéttan
bakgrunn. VilhjálmurGuðjóns-
son gefur plötunni skemmtileg-
an blæ með blæstri sínum sem
oft á tíðum minnir á plötur
gæðahljómsveitarinnar Steely
Dan.
Crossroads er jafngóð plata,
ekki er hægt að gera upp á milli
laganna. Titillagið hefur heyrst
dálítið í útvarpi að undanförnu,
og þar má spila þau fleiri. Ég
liefni Marylin Monroe, Blind
Man, Rush Hour og hin 5 lög
plötunnar.
Crossroads er góð plata, ekki
beint vinsældalistaverk, heldur
plata sem lifir lengur en útgáfu-
mánuðinn. Til hamingju
Magnús (9 af 10)
ÞGG
Simple Minds - Once Upon a Time
Sunnudagssteik-
inni fórnað
■ Þetta er búið að vera meira
árið hjá skosku hljómsveitinni
Simple Minds. Það byrjaði með
því að Bryan Ferry afþakkaði
boð um að flytja lagið Don’t
You (Forget About Me) í kvik-
myndinni The Breakfast Club
Simple Minds þáðu hins vegar
þetta sama boð og ættu ekki að
sjá eftir því.
Lagið varð gríðarlega vinsælt
(enda flutningur Simple Minds
góður) og komst í efsta sæti
bandaríska vinsældalistans. Það
var í fyrsta skipti sem hijóm-
sveitin náði toppsætinu vestra
og vissulega hefði það verið
betra ef þeir hefðu verið með
eigið lag, en vinsældirnar voru
engu að síður hinar sömu.
Simple Minds nutu ekki ein-
göngu vinsælda í Bandaríkjun-
um. í Bretlandi naut hljómsveit-
in meiri vinsælda en nokkru
sinni áður. Það var því með
mikilli eftirvæntingu sem menn
biðu nýrrar plötu hljómsveitar-
innar, plötu sem nú er komin út
og ber nafnið Once Upon a
Time.
Platan virðist ætla að auka
hróður hljómsveitarinnar, enda
var ekkert til sparað við gerð
hennar. Platan er mjög áheyri-
leg, laglínurnar eru seiðandi og
sitja fastar milli eyrnanna, hafi
þær einu sinni náð þangað.
Lögin eru líka stórgóð og í
sjálfu sér furðulegt, að hægt
hafi verið að velja eitt lag af
plötunni sem væntanlegt „hitt“
lag. Það var engu að síður gert,
Alive And Kicking varð fyrir
valinu á 12 tommuna og er það
þegar farið að klífa vinsælda-
listana. Þess verður ugglaust
ekki langt að bíða að önnur lög
plötunnar verði gefin út á 12
tommum.
Hljóðfæraleikurinn og þó sér-
staklega „sándið“ og útsetning-
arnar eru kapítuli út af fyrir sig.
Allt er gott, það vantar ekkert
og engu er ofaukið. Svona á góð
plata að vera.
Annars eru bestu meðmæli
plötunnar þau orð sem vinur
minn hafði um plötuna. „Ég
hafði heyrt eitt lag af plötunni
þegar ég fór með heimilispen-
ingana í Hagkaup og þar sá ég
plötuna. Ég keypti hana á
staðnum, enda endist hún mun
betur en sunnudagssteikin.“
(9 aff 10)
ÞGG
Skilaboð
að handan
■ Hörpuútgáfan á Akranesi
hefur sent frá sér bókina Að
handan eftir Grace Rosher.
„Bók þessi er helguð þeim,
sem harma látinn vin. Sjón-
deildarhringur mannsins á jörð
takmarkast af dauðanum. En
handan hans er eilíft líf. Og
ástin er sterkari en hel.“
Það eru 17 ár síðan séra
Sveinn Víkingur þýddi þessa
bók á íslensku. Hún kom út árið
• 1968 og vakti mikla athygli og
umræðu. Margir hafa sagt að
þessi bók hafi veitt þeim meiri
huggun en orð fái lýst og borið
fram óskir um endurútgáfu
hennar. Er hér með orðið við
þeim óskum.
í eftirmála bókarinnar segir
þýðandi m.a.: „Því verður ekki
neitað að sá heildarboðskapur,
sem bókin flytur um það líf,
sem í vændum er handan við
dauðann, er harla fagur og
bjartur. Og ég er á því, að
Grace Rosher
handan
Bók um h'firt eftir dauðann
hverjum manni sé það hollt og
hugbætandi að vermast við
sólskin hans.“
Þetta er forvitnileg bók fyrir
alla sem velta fyrir sér spurning-
um um lífið eftir dauðann.
Spurningum sem maðurinn hef-
ur glímt við frá upphafi vega.
Að handa er 152 bls. Offset-
prentuð og bundin í Prentverki
Akraness hf.
Ástin berst
■ Hörpuútgáfan á Akranesi
hefur sent frá sér nýja bók eftir
danska rithöfundinn Erling
Poulsen. Bókin heitir Barátta
ástarinnar og er 10. bókin í
bókaflokknum „Rauðu ástar-
sögurnar".
Bettína, eiginkona Árna
Brams læknis, var þekkt og í
miklu áliti vegna starfa sinna að
líknarmálum. Flesta daga árið
um kring var hún önnum kafin
við góðgerðasafnanir og nefnda-
störf. Hinsvegar vanrækti hún
eiginmann sinn og litla dóttur
þeirra.
Þrátt fyrir öryggi í hjóna-
bandinu gat hún ekki slitið
sambandi við fyrrverandi unn-
usta sinn, Lennart Sommerfjöl-
listamann, með vafasama tor-
tíð og fangelsisvist. Hann var
fyrsta ástin hennar.
Það vakti að vonum undrun
og vonbrigði þegar hún neitaði
að hjálpa varnarlausri 10 ára
telpu, sem Árni kom með heim
eina nóttina. Hún sýndi barninu
fullkomið hatur.
ERLINO POULSEN
BARÁTTA
ÁSTARINNAR
Hvers vegna barðist hún gegn
þessu barni? Hvers vegna vildi
barnaverndarnefndin ná barn-
inu? Af hverju spann hún
lygavef um fortíð sína? Hvað
var það sem hún reyndi í ör-
væntingu að dylja? Ást, afbrýði
og óvenju spennandi frásögn
skapa rithöfundinum Erling
Poulsen vinsældir metsöluhöf-
undarins.
Skúli Jensson þýddi.