NT - 14.12.1985, Page 11
Fróðleiksnáma
um þjóðmenn-
ingu okkar
■ Þjóðfræði og þjóðleg menn-
ing á í vök að verjast í síharðn-
andi menningarbaráttu samtím-
ans. í bókinni Þjóðtrú og þjóð-
fræði sem Iðunn hefur sent frá
sér, gerir einn af forystumönnum
íslenskra þjóðfræðinga, dr. Jón
Hnefill Aðalsteinsson, tilraun til
að snúa vörn í sókn og færa út
markað hins þjóðlega fróðleiks-
efnis og gera það eftirsótt og að-
gengilegt hverju mannsbarni.
Þjóðtrú og þjóðfræði er náma
flóðleiks um þjóðmenningu okk-
ar en einnig krydduð bráðfyndn-
um sögum og smellnum vísum.
Þjóðsögum og sögnum er fylgt úr
upprunalegu umhverfi til samfé-
lags samtímans, hættir og siðir
eru metnir og skýrðir í því um-
hverfi sem fóstraði þá og lausa-
vísum er fylgt milli fjórðunga og
hugað að höfundum. Hér segir frá
manninum sem fékk gistingu með
hjálp kisu og í annarri sögu segir
frá konunni sem afsakaði sig í
sænginni uns bónda hennar var
nóg boðið og hann leitaði nýrra
bragða. Þá eru raktar frásagnir um
hörð kjör fólks fyrri tíðar og sagt
frá viðurlögum við siðferðisbrot-
um. Þjóðtrúin kemur víða við í
sögum bókarinnar: „Gaman er
þér, strípalingur," sagði kerlingin
við dauða manninn sem hún hafði
rænt tóbakinu frá. Biskup hrek-
ur álf úr steini sínum, en reyk-
vískur hænsnabóndi leyfir öðrum
að dvelja. Dauðs manns hendur
losa um harðan hnút og sjómaður
glímir við framliðna konu í lík-
húsi. Haglega gerðarstökurvildu
allir hafa kveðið hafa. Tveimur
hagyrðingum er eignuð vísan um
Guðnýju og Blesa, þremur vísan
um Hiídi, en um vísuna Nú er
hlátur nývakinn er togast á milli
héraða og landsfjórðunga. Þetta
er ómissandi bók öllum þeim sem
áhuga hafa á þjóðlegum fróðleik.
Dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson
er gagnmenntaður og á að baki
fjölbreytilegan starfsvettvang
sem blaðamaður, sóknarprestur
og kennari. Hann er fræðimaðurá
alþjóðavísu og hafa ýnmis virt
vísindatímarit í Evrópu og Am-
eríku tekið ritgerðir og greinar
eftir hann til birtingar. Jón Hnef-
ill er jafnframt fróðleiksmaður af
gamla skólanum og nýtur sín vel í
hópi annarra slíkra þar sem sagð-
ar eru sögur og farið með stökur.
Á síðustu árum hefur hann spjall-
að um þjóðfræði í kvöldvökum
íslenska ríkisútvarpsins við mjög
góðar undirtektir útvarpshlust-
enda.
Auglýsingastofan Octavo
hannaði kápu. Oddi hf. prentaði.
Laugardagur 14. desember 1985 Blað II 15
Bækur og rit
■ Iðunn hefur sent á markað
bókina Æviminningar læknis eftir
Sigurð Magnússon fyrrum hérðs-
lækni. Höfundur var starfandi
læknir á Ólafsfirði þegar ný-
skipaður landlæknir, Vilmundur
Jónsson, sótti hann heim sumarið
1932, en áður hafði Sigurður
gegnt héraðslæknisembætti á
Þingeyri og Patreksfirði í þrjá
áratugi. Þeim stéttarbræðrum
varð skrafdrjúgt, enda var Sig-
urður viðræðugóður í besta lagi
og sagði hinu'm nýja oddvita
læknastéttarinnar margt frá námi
sínu í Læknaskólanum á árunum
1887-1891, læknisreynslu og
starfskjörum lækna fyrir og eftir
aldamótin síðustu. Lét Vilmund-
ur þess þá þegar getið „að fróð-
Læknir segir frá
leikur sá ætti skilið að skrásetj-
ast“. Síðar tók hann þann þráð
upp aftur og með þeim árangri að
haustið 1939 hafði Sigurður lokið
minningum sínum. Ritaði Vil-
mundur þá þegar fyrir þeim for-
mála þar sem segir m.a. á þessa
leið:
„Er hér ritaður þáttur í menn-
ingarsögu vora, sem mér er ekki
kunnugt um, að áður hafi verið
færður í letur, og af þeim manni
að ég ætla ekki annan núlifandi
manna til þess kjörnari. Nefni ég
þar einkum til frásöguna um
læknisnámið og undirbúning
lækna undir lífsstarfið, áður en
hófst hin nýja öld læknismennt-
unarinnar hér á landi, svo og
starfsskilyrði lækna á þeim
tímum, að ógleymdum erfiðleik-
um þeim að vera uppfræddur af
einni þekkingaröld til að starfa á
annarri. Ætla ég höfundinn valinn
fulltrúa þeirra tímaskiptamanna.
Auk þessa og annars menning-
arsögulegs fróðleiks, sem í bók-
ina má sækja, hefur nún að
geyma skemmitlega mynd af höf-
undinum, hégómalausum, undir
niðri smákímnum, ekki síst á eig-
in kostnað, óklökkum gagnvart
annarra dómum, manna ólíkleg-
ustum til að leggjast lágt til að elta
vinsældir almennings, sem lækn-
ar hafa öðrum fremur ærin tæki-
færi til - en allt eru þetta eigin-
leikar, sem læknar á öllum öldum
þurfa á að halda, ef vel eiga að
revnast, en suma okkar kann að
vanta, þó að kallaðri þykjumst til
læknisstarfa en Sigurður Magnús-
son lætur í veðri vaka, að hann
hafi verið.“
Sigurður Magnússon andaðist
ári síðar en hann lauk ritun
minninganna án þess að ráðin
hefði verið útgáfa verksins. Að-
standendum hans þótti þegar til
kom orka tvímælis að þær væru
gefnar út að svo stöddu, enda
þótt Vilmundur Jónsson hvetti
mjög til útgáfunnar allmörg
næstu árin. Sigurður er mjög
hispurslaus og hreinskilinn í öll-
um frásögnum sínum og var jafn-
vel íhugað allmörgum árum síðar
að prenta minningarnar með
ýmsum úrfellingum. Af því varþó
ekki sem betur fór. Þær birtast nú
algerlega óstyttar og eins og höf-
undurinn gekk frá þeim fyrir 46
árum.
Útgáfuna annaðist Hannes
Pétursson skáld með góðum
stuðningi Benedikts Tómassonar
læknis. Bókin er að öllu leyti unn-
in í prentsmiðjunni Odda hf.
Auglýsingastofan Octavo hann-
aði kápu.
Árni Óla
Reykjavík
f yrri tíma II
Tvœr aí Reykjavflairbókum Áma Óla,
Skuggsjá Reykjavíkui og Horít á
Reykjavík endurútgefnar í einu bindi.
Saga og sögusiadir veröa ríkir af lííi og
írá síðum bókanna geíur sýn til íortíðar
og íramtíðar - nútímamaðurinn öðlast
nýjan skilning á höfuðborg landsins og
íorvemnum er hana byggðu. Eíni bók-
anna er íróðlegt, fjölbreytt og skemmti-
legt. Fjöldi mynda írá Reykjavík fyrri
fíma og aí persónum, sem mótuðu og
settu svip á bœinn prýða þessa vönd-
uðu útgáíu.
Pétur Zophoníasson
Víkingslœkjaiœtt II
Þetta er annað bindið í endurútgáíu á
hinu mikla œttfrœðiriti Péturs, niðjatali
hjónanna Guðríðar Eyjólísdóttur og
Bjama Halldórssonar hreppstjóra á
Vflángslœk. í þessu bindi em niðjar
Höskulds, Brands, Eiríks, Loíts og Jóns
eldra Bjamasona. Fyrsta bindið kom út
1983, en œtlunin er að bindin verði alls
íimm. i þessu bindl eins og því íyrsta,
em fjölmargar myndir aí þeim sem í
bókinni em neíndir.
k
PETUR
ZOPHONÍASSON
VDCINGS
IÆKJARÆITH
NIÐJATAL GUÐRiOAR EYJÓLFSDÖTTUR
OG BJARNA HALLDORSSON AR
HREPPSTJORA A VlKlNGSLÆK.
SKUGGSJÁ
Birtan aö handan
Saga Gudrúnar
Siguröardóttur
f rá Toríuíelli
Sverrir Pálsson skrádi
Guðrún Sigurðardótfir var landsþekkt-
ur miðill og hér er saga hennar sögð
og lýst skoðunum hennar og lifsvið-
horíum. Hún helgaði sig þjónustu við
aðra til hjálpar og huggunar og not-
aði til þess þá hœfileika, sem henni
vom geínir í svo ríkum mœli, skyggni-
gáfuna og miðilshœíileikana. Þetta er
bók, sem á erindi til allra.
Asgeir Jakobsson
Einars saga
Guðfinnssonar
Þetta er endurútgáía á œvisögu
Einars Guðfinnssonar, sem verið hefur
óíáanleg i nokkur ár, en hlaut óspart
loí er hún kom fyrst út 1978. Þetta er
baráttusaga Einars Guðíinnssonar frá
Bolungarvík og lýsir einstökum
dugnaðarmanm, sem barðist við
ýmsa eríiðleika og þuríti að yíirstíga
margar hindranir, en gaíst aldrei upp;
var gœddur ódrepandi þrautseigju,
kjarki og árœði. Einnig er í bókinni
mikill íróðleikur um Bolungarvík og
íslenzka sjávarútvegssögu.
SKUGGSJÁ - BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF.
®§Slisl