NT - 28.12.1985, Blaðsíða 1
Laugardagur 28. desember 1985 - 309. tbi. 69. árg.
Öllum starfsmönnum NT sagt upp:
Tíminn tekur við
■ Öllum starfsmönnum
NT, rúmlega áttatíu manns,
var í gær sagt upp störfum frá
og meö 1. janúar 1986 með
samningsbundnum uppsagn-
arfresti. I samhljóða upp-
sagnarbréfi til starfsmann-
anna eru ástæður uppsagnar
sagðar breytingar á rekstri
fyrirtækisins Nútímans hf.
Ákveðið var á fundi í gær
að Nútíminn hf. gengi til
samstarfs við Framsóknar-
flokkinn og Framsóknar-
félögin í Reykjavík um út-
gáfu á dagblaði eftir áramót-
in og unt leið hætti NT að
koma út, en dagblaðið Tím-
inn taki við.
Bannað að reykja
á fundum
-nema allir samþykki
■ Á ríkisstjórnarfundi í
gær var tekin ákvörðun um
framkvæmd reglugerðar
samkvæmt tóbaksvarna-
lögunum sem samþykkt voru
í fyrra. Að sögn Ragnhildar
Helgadóttur heilbrigðisráð-
herra tekur þessi reglugerð
til framkvæmdar tóbaks-
varnalaganna, en fjölmörg
atriði hennar eru víða þegar
komin til framkvæmdar.
Reglugerðin fjallar meðal
annars um reykingar á opin-
berum vinnustöðum, að þau
rými séu merkt þar sem
óheimilt er að reykja og
fleira. Eitt þeirra atriða sem í
reglugerðinni felst er að nú
verður bannað að reykja á
almennum fundum, nema
fyrir liggi samþykki allra
fundarmanna.
Reglugerð þessi öðlast
gildi þegar hún birtist í
stjórnartíðindum nú á næstu
dögum.
Allt lék á
reiðiskjálfi
- og rúmlega það. ísland og Dan-
mörk áttust við í handboltalands-
leik í gærkvöldi
Sjá íþróttir
bls. 10-11
NEWS SUMMARYIN ENGUSH SEEP. 6 LÍJ
Útvarp, sjónvarp og Póstur og sími:
Tæknimenn boða verkfall
Ólöglegt, segir fjármálaráðuneytið
■ Tæknimenn Pósts- og
síma og tæknimenn hjá út-
varpi og sjónvarpi, sem til-
heyra Sveinafélagi rafeinda-
virkja, hafa boðað vinnu-
stöðvun frá og með 2. janú-
ar. Hérerumaðræða91 raf-
eindavirkja hjá Pósti og
síma, en alls vinna um 140
rafeindavirkjar þar, og 31
tæknimann hjá útvarpi og
sjónvarpi.
Fjármálaráðuneytið telur
þessa vinnustöðvun ólöglega
og hefur skorað á Sveinafé-
lagið að draga verkfallsboð-
unina til baka.
Magnús Geirsson, for-
maður Rafiðnaðarsam-
bandsins sagði við NT í gær,
að lögmenn sambandsins
væru að skoða þetta mál
núna og það myndi dragast
fram yfir helgi að taka
ákvörðun um hvort af boð-
aðri vinnustöðvun yrði eða
ekki.
Ástæðan fyrir boðaðri
vinnustöðvun er að þessir
menn hafa í eitt og hálft ár
reynt að fá fjármálaráðu-
neytið til að samþykkja að
þeir séu fullgildir félagsmenn
í Sveinafélagi rafeinda-
virkja, og að þeirfái laun eft-
ir samningum þeirra. Ríkið
telur þá enn opinbera starfs-
rnenn og að þeir eigi að taka
kaup og kjör eftir ákvörðun-
um fjármálaráðuneytisins.
Magnús sagði að brýnt
væri að finna lausn á þessu
máli og því hefði verið gripið
til verkfallsboðunarinnar nú.
Verkfallið er boðað með lög-
legum fyrirvara, sem er ein
vika, auk þess sem samning-
ar BSRB eru lausir upp úr
áramótum.
Þó til þessarar vinnustöðv-
unar komi mun starfsemi
útvarps, sjónvarps og Pósts
og síma ekki lamast algjör-
lega, þar sem aðeins hluti af
tæknimönnunum á í þessari
deilu, en starfsemin mun
takmarkast verulega.
■ Flotgirðingar settar um borð í flugvél landhelgisgæslunnar en með þeim átti að reyna að koma í veg fyrir frekari út-
breiðslu olíubrákarinnar. NT-mynd: Árni Bjarna
Þykk svartolíuleðja
hylur Seyðisfjörðinn
Siglingamálastofnun gerði athugasemd við tankinn fyrir 9 árum
■ Þykk svartolíuleðja hyl-
ur nú fjörur í innsta hluta
Seyðisfjarðar eftir að snjó-
flóð féll á olíugeymi í eigu
Hafsíldar með þeim af-
leiðingum áð hann rifnaði í
sundur og olía rann í sjóinn.
Enn er ekki vitað nákvæm-
lega hve mikið af olíu er hér
um að ræða en það mun vera
á bilinu 400 til 600 tonn.
Björgunarmenn á staðn-
um ásamt mönnum frá Sigl-
ingamálastofnun vinna nú að
því að hreinsa fjörðinn en
hríðarveður og myrkur tor-
velda starfið.
Ekki er vitað hvenær
óhappið varð en sterkan
olíufnyk lagði yfir kaupstað-
inn á tíunda tímanum á
fimmtudagsmorgun og þegar
að var gáð kom í ljós að
snjóskriða hafði fallið á
tankinn sem í hafði verið
dælt 500 tonnum af svartolíu
á Þorláksmessu.
Þorvaldur Jóhannsson
bæjarstjóri segir að ekki hat'i
þótt ráðlegt að ryðja veginn
að verksmiðjunni vegna
snjóflóðahættu og er því
ekki hægt að komast að
henni nema frá sjó.
„Þetta er rnikill skaði sem
kann að hafa alvarlegar af-
leiðingar í för með sér,“
sagði Þorvaldur. „Vegna
kuldans er olían þykkari en
ella og því erfitt að dæla
henni upp og hún hefur hrak-
ist undan vindi yfir fjörðinn
og inn að byggðinni.“
Loónumjölsverksmiðja Haf-
síldar stendur undir fjalli
sem nefnist Bjólfur og snjó-
flóð hafa áður fallið á þess-
um stað. Meðal annars ruddi
sríjóflóð hluta verksmiðj-
unnar út í sjó fyrir nokkrum
árunt en engir mannskaðar
urðu þá frekar en nú.
Siglingamálastofnun gerði
athugasemdir við staðsetn-
ingu og frágang tanksins í
skýrslu sem gerð var árið
1976 þegar olíubirgða-
geymslur á Austfjörðum
voru athugaðar. Þá var lögð á
það áhersla að tankurinn
yrði fluttur á öruggari stað
auk þess sem utan um hann
yrði reist þró sem rúmaði
allt magn hans.
Umræddur olíutankur er í
eigu Olíuverslunar íslands
hf. Friðgeir Indriðason hiá
framkvæmdadeild OLÍS
sagði í samtali við NT að það
væri snjóflóðahætta um allt
land og því erfitt að taka
svona eitt dæmi út úr. Að-
spurður um það af hverju
ekki hefði verið farið eftir til-
skipun Siglingamálastofnun-
ar varðandi staðsetningu og
frágang þessa tanks sagði
Friðgeir að það væri auðvelt
að vera vitur eftir á. „Við
erum að vinna að því að
koma upp öryggisþróm í
kringum olíutanka víðs veg-
ar um landið eins og hin olíu-
félögin en þetta tekur tíma.“