NT - 28.12.1985, Síða 3
Laugardagur 28. desember 1985 3
Samkomulag ísl. aðila við Miss World Ltd:
Huldumaðurinn er
Júlíus Haf stein
■ Slökkviliðið að störfum við Lang holtsveg á aðfangadag
NT-mynd: Sverrir.
Eldsupptök í
jólaskreytingu
■ „Það var formaður ferðamála-
nefndar Reykjavíkurborgar Júlíus
Hafstein sem tók þátt í að gera drög-
in að samningnum fyrir hönd borgar-
innar en það er ekki búið að undir-
rita eitt eða neitt,“ sagði Baldvin
Jónsson umboðsmaður Miss World
Ltd. á íslandi um samningsdrögin
sem íslenskir aðilar hafa gert við
fyrirtækið. Samningsdrög þessi
komu til umræðu á borgarstjórnar-
fundi í liðinni viku þegar Guðrún
Jónsdóttir Kvennaframboðinu
spurði Davíð út í frétt sem birtist í
Mbl. þessa efnis en kom að tómum
kofanum hjá Davíð borgarstjóra, og
Sigurjóni Péturssyni fulltrúa í ferða-
málanefnd, sem ekki hefur komið
saman á fundi í lengri tíma.
Baldvin sagði að þetta væri ein-
stakt tækifæri til að auglýsa ísland því
það væri ekki á hverju ári sem ís-
lensk stúlka væri kosinUngfrú heim-
ur. „Nei, það er langur vegur frá því
að hér sé einhver konulíkami að
selja íslenskar vörur, svoleiðis hugs-
unarháttur á ekkert skylt við nútím-
ann, hvar sem Hólmfríður kemur er
hún verulega gott blaðaefni. Hún
notar sinn karakter sem Miss World
til að safna peningum fyrir barna-
spítala út um allan heim og jafnframt
að kynna íslenskar vörur. Enginn
gæti sinnt þessu hlutverki betur."
Samningurinn yrði væntanlega
undirritaður á næstunni en fulltrúar
Félags íslenskra iðnrekenda, Flug-
leiðir, Ferðamálaráð íslands, ferða-
málanefndin, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Samband íslenskra
fiskframleiðanda standa að sam-
komulagsdrögunum, og samkomu-
lagið á m.a. eftir að fara fyrir Borg-
arráð, áður en Hólmfríður getur far-
ið að undirbúa heimskynninguna á
fslandi.
■ Eldur kviknaði út frá kerti, í
íbúðarhúsi við Langholtsveg 48 á að-
fangadag jóla. íbúðareigandi brá sér
frá í nokkrar mínútur, og var allt í
lagi þegar hann fór. Pegar hann hins-
vegar kom til baka var talsverður
eldur í stofunni, og mikill reykur um
alla íbúðina. Reykkafarar slökkvi-
liðsins fóru inn í íbúðina og slökktu
eldinn og reykræstu íbúðina. Miklar
skemmdir hlutust af völdum elds
og reyks. Varðstjóri sem NT ræddi
við í gær hjá slökkviliðinu sagði að
talsvert væri um það að eldur kvikn-
aði út frá jólaskreytingum þar sem
kerti væru höfð í skreytingum. Pann-
ig kom upp eldur í einu herbergi á
Hrafnistu á Þorláksmessu. Þann eld
var hægt að rekja til jólaskreytingar
þar sem kerti var logandi.
Sunnudagur:
Iskross á Leirtjörn
■ Bifreiðaíþróttaklúbbur Ræst verður klukkan 1.30, hálf
Reykjavíkur mun á sunnudaginn tvö, og má þá búast við miklu róti
halda ískrosskeppni á Leirtjörn og látum. Bílarnir eru sérbúnir á
undir Úlfarsfelli. Von erámörgum dekkjumsemfyllt eruafskrúfum
keppnisbílum í þessa fyrstu keppni til að bíta niður í ísinn. Baráttan er
vetrarins, nokkrum öflugum eins oftastóvæginogverulegaskemmti-
og VW íslandsmeistarans í rallí- leg fyrir áhorfendur.
krossi, Jóns Hólm. AA
mNDAÐAR BÚVÉLAR
Á VETRARVERÐI
SLATTU-
ÞYRLUR
Vinnslubreidd:
1,35-1,65 ogl,85m
Auðveld tenging á knosara
vinnslubreidd 1,85.
Eigum til á lager hinar vel þekktu
m :lml ? ►
Heyþyrlur og
Stj örnumúga vélar
Bændur athugið með kaup ^
á PZ og KUHN heyvinnuvélum, BUNADARDEILD
nú á vetrarverði S? SAMBANDSINS
Mjög hagstæð kjör
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900