NT - 28.12.1985, Síða 13
Laugardagur 28. desember 1985 13
A
■ Málefni alþjóðaöryggis eru
þau mál er lúta að útrýmingu
hættunnar á kjarnorkustyrjöld
varöa jafnt allar þjóðir. Þessi ntál
voru einnig mikið rædd á íslandi á
árinu 1985; nægir þar að minna á
þingsályktunartillögur á Alþingi,
undirskriftasöfnun mcðal vísinda-
manna kennara og nemenda við
Háskóla íslands, þar sem undir-
skriftirnar voru sendar til M. Gor-
bachovs og R. Reagans í Genf.
Málefni styrjaldar og friðar eru
rædd í Sovétríkjunum. Og þessi
mál eru ckki aðeins til umræðu,
heldur leggja Sovétrikin fram
vissar tillögur og reyna á allan
máta að draga úr alþjóðaspennu. í
þessu santbandi er grein sem birt-
ist í dagblaðinu „Prövdu" þann
19. desentber undir fyrirsögninni
„Banna skal kjarn-
orkusprengingar" talandi dæmi.
Par er minnt á að sl. sumar
(skrifað var unt það í tslensk blöð)
hafi Sovétríkin haft frumkvæðið:
Frá og með 6. ágúst liættu Sovét-
ríkin hvers kyns kjarnorkuspreng-
inguni og hvöttu ríkisstjórn
Bandaríkjanna til að fara eins að.
Lýst var yfir að frysting sú sem
Sovétrikin lögðu til yrði í gildi til
1. janúar 1986, en gæti orðið til
lengri tíma, ef Bandaríkin mundu
fyrir sitt leyti taka þátt í þessari
aðgerð. Pessi ákvörðun Sovét-
ríkjanna hlaut víðtækan stuðning
um heim allan. En afstaðan var
önnur í Washington. „Pravda"
segir að þar hafi verið reynt að
forðast jákvæð viðbrögð við frum-
kvæði Sovétríkjanna. Haldið er
áfram víðtækri áætlun um kjarn-
orkusprengingar neðanjarðar,
þar á meðal í tengslum viö leysi-
geisla og er gert ráð fyrir að nota
slíkt í stjörnustríði.
Þetta allt getur ekki annað en
vakið áhyggjur. Ef ráðamenn í
Bandaríkjunum halda áfram að
láta sem tillaga Sovétríkjanna um
að hætta kjarnorkusprengingum
sé ekki til, mun það leiða til þess
að skuldbindingar Sovétríkjanna
um einhliða frystingu verður ekki
lengur í gildi, eftir þau tímamörk
sem nú nálgast. Af augljósum
ástæðum geta Sovétríkin ekki
fórnað hagsmunum öryggis síns
og bandamanna sinna, þar sem
þessir aðilar standa frammi fyrir
hernaðarundirbúningi handan
hafsins.
Og hvað leggja Sovétríkin til.
Það er nauðsynlegt að gera allt til
þess að þau hagstæðu tækifæri
sem Sovétríkin hafa skapað til að
binda endi á kjarnorkuvopnatil-
raunir fari ekki til spillis.
Við endurtökum að tíminn er
að hlaupa frá okkur, en það er
samt nógu langur tími enn til að
taka rétta og ígrundaða ákvörð-
un.
Það verður að gera sér grein fyr-
ir því að ef fyrir hendi er fyrirætl-
un sú að binda endi á vígbúnaðar-
kapphlaupið, getur gagnkvæm
frysting ekki vakið neinar mótbár-
ur. Að hætta kjarnorkusprenging-
um er mál, sem bægt er að finna
lausn á núna og það verulega góða
lausn. Pólitískt mikilvægi slíkra
sameiginlegra aðgerða Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna væri
mikið: Það yrði merki í garð ann-
arra kjarnorkuvelda og mundi
skapa nýtt ástand, sem yrði miklu
hagstæðara fyrir jákvætt framhald
þeirrar þróunar, sem hófst á leið-
togafundi Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna í Genf og muni
hafa í för með sér raunhæfar ráð-
stafanir til að snúa vígbúnaðar-
kapphlaupinu við.
Ef teknar yrðu aftur upp þrí-
hliða viðræður inilli Sovétríkj-
anna, Bandaríkjanna og Bret-
lands uni bann við kjarn-
orkuvopnatilraunum, yrði það
vissulega raunverulegt skref í
þessa sömu átt. Sovéskir aðilar
eru reiðubúnir til að taka þetta
skref þegar í stað, í upphafi næsta
árs.
Þegar veriðerað fjalla um fryst-
ingu kjarnorkuvopna er ætíð ver-
ið að tala um erfiðleika fylgjandi
eftirliti á Vesturlöndum og þá
fyrst og fremst í Bandaríkjunum.
Það er samt vitað að bæði Sovét-
ríkin og Bandaríkin ráða yfir
bestu aðferðunum til að fylgjast
með framkvæmd frystingarinnar.
Ef kjarnorkusprengingum yrði
hafnað í hernaðarlegum eöa frið-
samlegum tilgangi, eins og
Sovétríkin hafa gert núna, yrði
það til að skapa tryggingu auka-
lega á áhrifaríku eftirliti. Sovéskir
aðilar hafa verið fylgjandi alþjóð-
legu eftirlitskerfi á þessu sviði.
Þarna mætti nýta tillögu ríkj-
anna sex um að setja upp sérstak-
ar eftirlitsstöðvar á landsvæðum
þeirra (Argentínu, Grikklands,
Mexíkó, Indlands, Svíþjóðar og
Tanzaníu) til að fylgjast sem best
með framkvæmd samkomulags-
ins.
Sovétríkin vilja gera samkomu-
lag við Bandaríkin um að koma nú
þegar á frystingu kjarnorku-
sprenginga, svo og um vissar að-
gerðir til að koma á eftirliti til að
bægja á brott efasemdum um
framkvæmd slíks eftirlits.
Jákvætt svar af hálfu banda-
rískra aðila við hinu mikilvæga
frumkvæði Sovétríkjanna, fengi
án nokkurs efa jákvæð viðbrögð
um heim allan, eins og almenning-
ur fagnaði t.d. núgildandi marg-
hliða samkomulagi sem gert var í
upphafi sjöunda áratugsins, þar
sem kveðið var á um bann kjarn-
orkutilrauna á þrem sviðum. Eða
t.d. samningurinn frá 1974 milli
Sovétríkjanna og Bandaríkjanna,
þar sem kveðið er á um takmörk-
un á styrk kjarnorkusprenginga
neðanjarðar niður í 150 kílótonn.
Þessi dæmi vitna um möguleikann
á að ná gagnkvæmu samkomulagi
um takmörkun vígbúnaðar. Og
þar af leiðandi er ekki óraunhæft
að ætla að ná megi samkomulagi
um frystingu á kjarnorkuspren-
gingar. „Pravda" segir að til þess
þurfi aðeins eitt - „pólitískan vilja
til að fara yfir á braut raunhæfra
ráðstafana sem snúa vígbúnaðar-
kapphlaupinu við og útrýma hern-
aðarógnunninni."
Evgeni Barbukho,
yfirmaður APN á íslandi
Reykjavík, 19.12 1985.
Reykjavík:
Skátabúðin, Snorrabraut 60
Fordhúsið, Skeifunni 17
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
Alaska, Breiðholti
Við Miklagarð
Við Vörumarkaðinn, Eiðistorgi
Á Lækjartorgi.
Garðabær:
Hjálparsveitarhúsið, v/Bæjarbraut.
Akureyri:
Stórmarkaður í Lundi, v/Viðjulund
Verslunarmiðstöð í Sunnuhlíð
Skúrv/Hagkaup
Skúr v/suðurenda á íþróttavelli.
ísafjörður:
Skátaheimilið.
Aðaldalur:
Hjálparsveit skáta, Aðaldal.
Kópavogur:
Toyota, Nýbýlavegi 4
Skátaheimilið, Borgarholtsbraut 7
Kaupgarður, v/Engihjalla.
Fljótsdalshérað:
Slátursala K.H.B.
Olís, Fellabæ.
Vestmannaeyjar:
Skátaheimilið, Faxastíg 38
og í Gömlu Völundarbúð.
Dalvík:
Flugeldamarkaður, Gunnarsbraut 4-6.
Hveragerði:
I Hjálparsveitarhúsinu.
Njarðvík:
V/Sparisjóðinn, v/Reykjanesbraut.
Ðlönduós:
Hús Hjálparsveitar skáta, v/Melabraut.
Flúðir:
Hjálparsveitin Snækollur.
Saurbæjarhreppur
í Eyjafirði:
Hjálparsveitin Dalbjörg.
Flugeldar - blys - gos - sólir - stjörnuljós
SKIPARAKETTUR - SKIPABLYS - TIVOLÍBOMBUR
OG INNIBOMBUR MEÐ LEIKFÖNGUM OG SPÁDÓMUM
FLUGELDAMARKAÐIR
HJÁLPARSVEITA SKÁTA
Evgeni Barbukho:
Sovétríkin eru fylgjandi
frystingu kjarnorkusprengna
- en Bandaríkin?