Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.2004, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.2004, Side 4
4 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 16. október 2004 heimspekingurinn Martin Heidegger. Ekki má gleyma arfleifð Jean-Pauls Sartres en hann hlýtur að teljast fyrirmynd Derridas og margra ofantalinna, a.m.k. að því leyti hvernig hann hugsaði frjótt gegn sjálfum sér (leyfði sér að skipta um skoðun) og hvað hann tók mikinn þátt í pólitík, menningu og samfélagi. Afstæði vs. afstaða Einn höfuðglæpur í augum sumra „alvöru“ heimspekinga er sá háttur Derrida að ein- skorða sig ekki við heimspekilegan texta held- ur skoðar hann skáldlegan texta af sömu virð- ingu. Hann viðurkennir s.s. gildi bókmennta og lítur ekki á heimspeki sem eins konar yfir- fræði sem ein sé þess umkomin að segja síð- asta orðið um hvaðeina; sumt verður bara tjáð í skáldskap. Þessi (póststrúktúralíska) afstaða kallaði vægast sagt á hörð viðbrögð og einkum hefðbundinna heimspekinga sem höfðu áhyggjur af Sannleikanum og Algildinu – „Af- stæðishyggja!“ „Tómhyggja!“ Derrida hefur verið sakaður um hreina hughyggju og að hann haldi því fram að allt sé texti/skáldskapur og engin föst merking til né raunveruleiki. Ekkert af þessu á við rök að styðjast. Derr- ida er „ábyrgur“ heimspekingur en ekki „af- stæður“ og hefur tekið vestræna frumspeki- lega heimspekihefð til róttækrar athugunar, af virðingu, og hefur haldið áfram að skoða og í raun vinna með pólitíska og siðræna arfleifð Upplýsingarinnar. Hér verður að láta fullyrð- inguna nægja en helsta hugðarefni Derrida síðari árin var að „hugsa“ hugtök eins og „rétt- lætið“, „gestrisnina“, „ábyrgðina“, „vinátt- una“. Miðlægt hugtak í síðustu bókum Derrida er „verðandi“ eða „komandi“ lýðræði (fr. démocratie à venir) sem jafnframt er ókomið og verður í raun alltaf að vera ókomið: Lýð- ræði er sem sagt óendanleg barátta. Afbygging Þegar Derrida skoðar texta gerir hann það með meiri nákvæmni en tíðkast; hann beitir eins konar „nærlestri“ og afhjúpar blinda bletti í textanum. Hann skoðar í raun einstök orð og „afbyggir“ þau, eða, réttara, bendir á að þau eru alltaf þegar afbyggð og merking þeirra aldrei „hrein“. Það sé mikilvægt að skoða hvað nákvæmlega liggi í orðunum, hvaða hugmyndafræði þau feli. Afbygging er því ekki virk í þeim skilningi að hún í sjálfu sér „liði textann í sundur“. Nær væri hægt að segja að hún afhjúpi það að textinn er alltaf þegar af- byggður. Tilgangurinn hjá Derrida er ekki að „kollvarpa“ frumspekinni: hann ætlar sér ekki þá dul því að í vissum skilningi er ekkert utan hennar. Það eina sem hægt er að gera er að færa mörkin til, afmiðja og jaðra o.s.frv. (Derr- ida er stundum kallaður „Faðir afbyggingar (fr. déconstruction)“ en það er ósvinna því að hann hefur alla tíð unnið gegn Feðraveldinu og tilheyrandi „reðurrökmiðhyggju (fr. phallogo- centrism) þess og tvenndarhyggju (ann- aðhvort/eða).) Eitt meginhugtak afbyggingar (sem ekki er hugtak, segir Derrida) er „skila- frestur“.2 Þetta nýyrði Derrida, „différance“, er borið fram nákvæmlega eins og différence eða munur og minnir á différer sem merkir frestun. Orðið er notað til þess að benda á að endanleg merking lætur á sér standa. Mikilvægt er að árétta að merking hefur að sjálfsögðu praktíska kjölfestu, t.d. í daglegum tjáskiptum manna. Ætlun Derrida er hreint ekki sú að bjóða upp á afsökun til að koma sér undan ábyrgð með að vísa stöðugt til skila- frestsins! Þvert á móti. „Hugtakinu“ er eink- um beint gegn „frumspekilegri nærveru“ sem setur hið talaða mál/hugsun ofar hinu ritaða sem einhvers konar óspilltari framsetningu. Derrida er hins vegar á því að hugtök, orð, tungumálið sé þegar „spillt“ (eða „steikt“ eins og hann orðar það) hvort sem það er talað eða skrifað. En hvað verður um heimspeki Derrida að honum látnum? Hvað verður um póststrúkt- úralisma? Fer nú fárinu að linna? Geta klass- ískir/hefðbundnir/rökgreiningarheimspek- ingar farið að anda léttar? Verður allt eins og áður? Það þarf varla að svara þessu. Nei, ekk- ert verður eins og áður. Afbygging og póst- strúktúralismi hafa breytt því hvernig við hugsum og meira að segja þeir sem hafa barist hvað hatrammast gegn Derrida hljóta að hafa orðið fyrir áhrifum. Það getur enginn látið eins og ekkert hafi gerst. Sjálfsagt mun þó áfram reynt að skilgreina Derrida og frönsk fræði út í horn og láta eins og lífið og skáldskapurinn komi heimspekinni ekkert við. Það er líka óhætt að spá því að á komandi ár- um renni upp fyrir fólki að texti Derrida er ekki jafn tyrfinn og óskiljanlegur og hann er nú sagður vera. Ódysseifur, meistaraverk James Joyce, var einu sinni nær ólesanlegur – hann er það ekki lengur. Miðað við alla útgáfuna er útlit fyrir að Der- rida verði enn meira lesinn héreftir en áður. Sama má segja um Michel Foucault ef marka má þá gríðarlegu athygli sem hann og verk hans fá nú í Frakklandi um þessar mundir í til- efni þess að 20 ár eru liðinn frá dauða hans. „Jacques Derrida“ og „Michel Foucault“ lifa. Heimspeki vináttunnar Það er augljóst á kveðjuorðum vina í Le Monde að Derrida var einstakur vinur og sér- stakt ljúfmenni. Það vekur líka athygli að þessi stórstjarna fræðanna sem þeyttist út um allan heim að kenna eða taka þátt í ráðstefnum til- einkuðum honum og verkum hans ku hafa ver- ið nánast jafn venjulegur maður og hann var óvenjulegur hugsuður. Hann var fjöl- skyldumaður í útjaðri Parísar, í hjónabandi með Marguerite Aucouturier frá 1957 og átti með henni tvo syni: Pierre, f. 1963, og Jean, f. 1967. Derrida barst ekki á, var gjörsamlega laus við hroka og yfirborðsmennsku. Hann sóttist síður en svo eftir athygli fjölmiðla og veitti í gegnum tíðina fá viðtöl, a.m.k. í sjón- varpi. Í tuttugu ár, frá útgáfu fyrstu bókar hans árið 1962, áttu fjölmiðlar enga ljósmynd af honum. Hann vildi ekki að andlit hans og persóna þvældist fyrir skrifunum. Það var ekki fyrr en 1970 að ljósmyndara dagblaðs tókst að ná af honum mynd sem síðan var birt. Því verður hins vegar ekki neitað að núorðið er persónan Jacques Derrida löngu orðin hluti af höfundarverkinu. Derrida hefur að vissu leyti öðlast „költ-status“, þótt hann hafi ekkert gert með það sjálfur. Hann hélt sínu striki. Í ný- legri heimildamynd, Derrida (2002)3, annarri af tveimur sem um hann voru gerðar, birtist afar hógvær, frekar feiminn maður (sem fer hjá sér þegar spurt er kurteislega um tilhuga- líf þeirra hjóna) en fullur af gáska og meðvit- aður um skondnar hliðar á sjálfum sér. Jacques Derrida var borinn til grafar sl. þriðjudag, hinn 12. október, í Ris Orangis, án viðhafnar, að ósk hans sjálfs. Að sögn voru um 70 manns viðstaddir, fjölskylda, nánir vinir og samstarfsfólk. Sonur Derrida, Pierre, las kveðju frá föður sínum þar sem hann þakkaði viðstöddum fyrir sig og bað fólk um að vera ekki sorgmætt heldur brosa og „vera fyrir lífið – og það að lifa áfram“ (être pour la vie – et la survie).  Heimildir: 1 Sjá í „Um sannleika og lygi í ósiðrænum skilningi“ í þýð. Magnúsar Diðriks Baldurssonar og Sigríðar Þorgeirsdóttur, Skírnir 167, 1993, bls. 20–21. 2 Sjá grein Páls Skúlasonar í TMM 1994. 3 Kirby Dick og Amy Ziering Kofman (Zeitgeist Video, 2002). Höfundur er bókmenntafræðingur í París. ’Derrida er „ábyrgur“heimspekingur en ekki „afstæður“ og hefur tekið vestræna frumspekilega heimspekihefð til rót- tækrar athugunar, af virðingu, og hefur hald- ið áfram að skoða og í raun vinna með póli- tíska og siðræna arfleifð Upplýsingarinnar.‘ Alsírstríði án þess að klæðast herbúningi. Kennir ungum Alsírbúum eða frönskum Alsírbúum frönsku og ensku. Þýðir greinar fyrir dagblöðin. Hittir Pierre Bourdieu reglulega í Alsír. 1959–1960: Tekur í fyrsta sinn þátt í ráðstefnu (í Cerisy). Fær fyrstu kennarastöðuna í menntaskólanum í Mans með vini sínum Genette. 1960–1964: Kennir við Sorbonne (almenna heimspeki og rökfræði). Aðstoðar S. Bachelard, G. Canguilhem, Poul Ricœur, J. Wahl. Alsír öðlast sjálfstæði. Fyrsti fyrirlestur í heimspekideild (um Foucault, að honum viðstöddum). Fyrsta birting í tímaritunum Critique og Tel Quel (hittir Phillip Sollers). 1963: Pierre Derrida fæðist. Hyppolite og Althuser bjóða honum stöðu við ENS (rue d’Ulm) og þar kennir hann sem maître-assistant eða aðstoðarprófessor fram til 1984. 1964: Hlýtur Jean Cavaillés-verðlaunin (verðlaun í nútíma þekkingarfræði fyrir þýðingu og kynningu á L’origine de la Géo- métrie eftir Husserl). 1966: Tekur þátt í stórri ráðstefnu í John Hopkins-háskóla í Baltimore sem vekur mikla athygli og verður upp frá því afar vinsæl. Ráðstefnan markar einnig upphaf að auknum heimsóknum vissra franskra fræðimanna til Bandaríkjanna. Þarna hittir Derrida Paul de Man, Jacques               !" #$     %      & '()                                                                !                        "               #             $   %    &     '    (  $   (    %  '  )*    +    '    *  %   '    (  ,    )     '     '   *               "     ' !      )       $   $   $      -   $  (   ., $  /01 *       !  2  3 4 (  ) *   .526  "/.5263 77/  &      $  /01       *     '  8      $  /01    )+     ( %  9/5 (   ,       ' (         '    6 !  *     '  *          (  /   '   $        *    !    : + - /       (  ( $   #     /!     ! )   !    * )    $   )   )            $;<$; /01  =    >0?4111   =    004@AB $;<$; /C1  =    ACD1111   =    C00@DB $;<$; /D1  =    0>A1111   =    @4>@4B                      

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.