Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.2004, Page 5

Lesbók Morgunblaðsins - 16.10.2004, Page 5
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 16. október 2004 | 5 Íseptember árið 1993 heimsótti JacquesDerrida Háskóla Íslands ásamt eig-inkonu sinni Marguerite. Hann fluttifyrirlestur sem um 350 manns sóttu en sá fjöldi er nánast einsdæmi í sögu Háskóla Ís- lands. Um leið og ég bauð hann velkominn sagði ég meðal annars: „Derrida er feikilega afkastamikill og engin leið til að rekja fræði- mannsferil hans í stuttu máli. Ritsmíðar hans eru oft úrvinnsla úr textum annarra höfunda, skálda, rithöfunda og heimspekinga, og í bók- um hans kemur allt milli himins og jarðar til umræðu. Sjálfum finnst mér stíll hans oft minna á fagurt fljót í leysingum. Derrida skrif- ar það sem Halldór Halldórsson, prófessor í ís- lensku, kenndi mér að kalla breiðan stíl önd- vert við knappan stíl. Í samræmi við það flytur hann gjarnan langt mál og mun fyrirlesturinn sennilega taka um eina og hálfa klukkustund. Á eftir gefst tími fyrir stuttar umræður. Fyr- irlesturinn ber heitið „The Monolingualism of the Other“ eða á íslensku „Einnar tungu við- mælandi“.“ Á fremsta bekk sat Vigdís Finn- bogadóttir, forseti Íslands. Derrida hafði orð á því á eftir að þetta væri í fyrsta sinn sem þjóð- höfðingi tæki niður nótur á fyrirlestri hjá hon- um. Til að fá Derrida til Íslands lofaði ég honum ferð inn á hálendið. Og hann notaði það sem tilefni til að fá konu sína, Marguerite, með sér til landsins. Sögðu þau mér að þetta væri fyrsta ferðin sem þau færu saman utan Frakk- lands um árabil. Svo fórum við Torfi Tulinius með þeim ógleymanlega ferð inn í Land- mannalaugar þar sem við gistum í skála Ferðafélagsins. Allir túristar voru á bak og burt. Við höfðum Laugarnar út af fyrir okkur. Auðnin, víðernið og fjöllin geta haft alls kyns áhrif á fólk. Mér fannst að smám saman væru þau að skapa vaxandi spennu í huga heimspek- ingsins, jafnvel vott af tilvistarangist. Daginn eftir var Derrida á fótum fyrir allar aldir og sat við skriftir. Hann var að leiðrétta og breyta viðtali sem átti að birtast í frönsku tímariti. (Viðtal þetta birtist ári síðar í íslenskri þýð- ingu í Tímariti Máls og menningar.) Og hann var áhyggjufullur, sagðist óttast að tímaritið færi í prentun áður en hann kæmi breytingum sínum á framfæri. Ég bauðst til að lána honum síma svo hann gæti hringt til Frakklands og allavega tafið prentunina til morguns. En þá reyndist símanúmerið vera í farangri hans í Reykjavík. Og þangað vildi hann greinilega komast sem fyrst . Við héldum því skjótt af stað til byggða. Brá þá svo við að bifreiðin of- hitnaði og drap á sér. Vatnskassinn lak. Til allrar hamingju var stutt í læk og dagurinn leið í töluverðri spennu við að finna lækjar- sprænur og fá farþegana til að bæta vatni á bílinn uns komið var til byggða þar sem gert var við bílinn. Síðan var ekið á óleyfilegum hraða í átt til höfuðborgarinnar. Miles Davis lék þá fyrir okkur „Kind of Blue“, Derrida slakaði á og við hófum samræður um frum- speki þýska galdramannsins Martins Heid- eggers. Ég hélt því fram að hún gæti töfrað unga heimspekinema og villt þeim sýn, en Derrida taldi okkur ekki eiga annan kost betri en að veðja einmitt á slíka töfra. Og hann varð æ rórri og meira sannfærandi eftir því sem hraðinn jókst og höfuðborgin nálgaðist. Síðan hefur stundum hvarflað að mér að Íslendingar þurfi ekki á annarri frumspeki að halda en þeirri sem fjöllin og hálendið hafa fram að færa. En ég veit að þetta er ekki rétt. Hugs- uðir eins og Heidegger og Derrida bjóða upp á andlegar fjallabaksferðir þar sem allt getur gerst og veröldin sjálf kynnir sig í nýjum og framandi myndum. Derrida fór sannarlega ótroðnar slóðir í ritum sínum. Þar er okkur boðið að nema ný undralönd og ganga með opnum huga til móts við hið óvissa og órann- sakanlega í tilverunni. Ég þakka þeim hjónum einstök og eftirminnileg kynni og votta minn- ingu Jacques Derrida virðingu mína. Páll Skúlason rektor Háskóla Íslands Minningarorð um Jacques Derrida Derrida á Þingvöllum Myndin var tekin af Páli Skúlasyni í heimsókn Derrida til Íslands árið 1993. Lacan, Roland Barthes, Jean Hyppolite, Varnant, Goldman. 1967: Gefur út þrjár fyrstu bækurnar sínar (L’Ecriture et la différence, La voix et le phénomène, De la grammatologie). Erlendis er hann aufúsugestur í háskólum, í Frakklandi er honum úthýst og fær ekki stöðu við háskóla. Jean Derrida fæð- ist. 1968: Á tíða fundi með rithöfundinum Maurice Blanchot. Ferðast meir og meir. Byrjar að kenna í Bandaríkjunum við John Hopkins-háskólann (í Baltimore) og aftur 1971, og 1996 til 1999. 1970: Faðir Derrida, Aimé, deyr úr krabbameini, 74 ára gamall. 1971: Fyrsta heimsókn til Alsír síðan 1962. 1972: Ráðstefna um Nietzsche í Cerisy (með Gilles Deleuze, Pierre Klossowski, Kofman, Lacoue-Labarthe, Lyotard, Nancy, o.fl.). Tímaritið Lettres françaises og dagblaðið Le Monde helga honum sér-kálf/tölublað. Sambandið við Sollers og Tel Quel rofnar endanlega. 1974: Hleypir af stokkunum ritröðinni „La philosophie en effet“ með S. Kofman, Ph. Lacoue-Labarthe og L.-L. Nancy. 1975: Stofnar Greph (Samtök fræðimanna um kennslu í heimspeki) ásamt vinum, samstarfsfélögum og nemendum. Byrjar að kenna við Yale-háskóla (New Haven). Upphaf „Yale-skólans“ (H. Bloom, P. de Man, J. Derrida,  6                                       ! "     !        #     $  %                  !   "   #$ $    % & '   " (  #$$   )))* B E       )       A@ )   *  )       (-    %  )   &    $  )  ' '         )     .)  ,    )   &   

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.