Morgunblaðið - 19.10.2004, Blaðsíða 4
4 | 17.10.2004
María Ellingsen,
Margrét Sjöfn
Torp og Andri
Snær
Magnason.
Ragnar Santos, Benedikt
og Ólafur Jóhannessynir.
L
eikhúsin hafa sannarlega vaknað af sumardvalanum og hver frumsýningin
tekur nú við af annarri. Flugunni er auðvitað ekkert óviðkomandi í þeim
efnum og stimplaði sig vel inn í leikhúslífið þessa helgina. Borgarleikhúsið
reið á vaðið á föstudag og frumsýndi verk Coline Serreau, Héra Hérason. Í fyrstu
hélt listaspíran að um barnaleikrit væri að ræða enda gaf nafn verksins vart annað til
kynna – svo var hins vegar fjarri og hápólitískar vangaveltur einkenndu stykkið.
Flugan og frænka skemmtu sér þó hið besta og sötruðu sódavatn í hléi, enda frænk-
an full ung til að bragða nokkuð sterkara. Þórunn Erna Clausen leikkona og rithöf-
undarnir Hallgrímur Helgason og Þórarinn Eldjárn brugðu undir sig betri fætinum
þetta kvöldið og Geir H. Haarde fjármálaráðherra losaði um smá skotsilfur til að
væta kverkar í hléinu. Jón Sæmundur Auðarson búningahönnuður sýningarinnar
mátti stoltur una við sitt og Helmus und Dalli (Helgi Svavar Helgason og Davíð
Þór Jónsson) skáluðu við tækifærið áður en haldið var downtown í póstnúmer 101.
Líkt og þeir sem þekkja til Flugunnar ættu að hafa fengið nasasjón af, veit skjátan
fátt skemmtilegra en prýðisgott tjútt ... og henni brást að sjálfsögðu ekki bogalistin á
laugardagskvöld! Lokatónar spænskrar menningarhátíðar í Kópavogi laumuðu sér
á svið í Salnum þegar Gerardo Nuñez og flamenco-hópur hans héldu aukatónleika
vegna æðisgengins áhuga lopaklæddra afkomenda Ingólfs Arnarsonar á funheitum
flamenco. Flugan var þar á meðal og fullyrða má að upphitun sem þessi fyrir kom-
andi átök kvöldsins hafi vel verið túskildingsins virði. Carmen Cortés danshöfundur
og dansari hreif áhorfendur með sér í taktföstum dansi og þeg-
ar sýningin stóð sem hæst flugu míkrófónar og hárskraut út í
salinn vegna ótrúlegra tilburða listakonunnar – Flugan var þó
kvik á fæti og náði að forða sér frá hættunni sem af fljúgandi
hlutum stafaði. Hinn suðræni eigandi veitingastaðarins Mad-
onnu, Rafael Daníel Vias Martinez, lét sig ekki vanta í teitið og
Hildur Hafstein hönnuður ákvað greinilega að sýna manni sín-
um Sigurði Ólafssyni hvernig spænskir dansar skyldu fram-
reiddir.
Þegar dansinn dvínaði skundaði Flugan til samsætis á 101
Hótel og nærði þar líkama og sál með mat og skvaldri við vin-
konu. Þröngt máttu sáttir sitja og auðsýnt var að listaelíta höf-
uðbólsins hafði fengið fregnir af gómsætum kokteilum stað-
arins. Baltasar Kormákur leikstjóri og leikkonurnar Brynhildur
Guðjónsdóttir og Þórunn Erna Clausen voru augljóslega að gera upp
vinnudaginn í Þjóðleikhúsinu ... en vökult auga Flugunnar botnaði þó
hvorki upp né niður í því hvað áskriftarpar Séð&Heyrt, þau Ásdís Rán
fyrirsæta og Garðar Bergmann Gunnlaugsson herra Ísland, ættu sameig-
inlegt með Baltasar og félögum! Vel virtist þó fara á með þessum und-
arlega samskeytta hópi við klingjan glasa og hlátrasköll.
Á sunnudagskvöld var svo komið að enn annarri leikverksfrumsýningu.
Annað svið frumsýndi Úlfhams sögu undir leikstjórn Maríu Ellingsen í
nýju og margfalt betra húsnæði Hafnarfjarðarleikhússins Hermóðs og
Háðvarar að Strandgötu 50. Boðið var upp á ljúffengar
snittur og freyðivín í tilefni dagsins, sem Flugan sló að sjálf-
sögðu ekki hendi á móti og setið var í hverju einasta mjúka
og nýja sæti. Margir voru komnir til að fagna með fjöl-
skyldumeðlimum. Þorsteinn Joð Vilhjálmsson eiginmaður
leikstjórans var mættur, Sirrý á Skjá einum kom til að knúsa
leikarann og eiginmanninn Kristján Franklín Magnús, auk
þess sem Egill Ólafsson fagnaði með Esther Taliu Casey
tengdadóttur sinni. Menningaráhugafólkið Björgólfur
Guðmundsson, fjárfestir Íslands, og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir ráðherra heiðruðu Hafnarfjörðinn með
nærveru sinni – að ógleymdri ykkar einlægri auðvitað.
Hafnarfjörður hafði því heppnina sannarlega í farteskinu
þennan daginn, enda fer Flugan ekki úr höfuðstaðnum
nema að vel ígrunduðu máli og ærnu tilefni. | flugan@mbl.is
L
jó
sm
yn
di
r:
G
ol
li
Bubbi, Brynja og börnin, Gréta, Brynjar og Hörður.
Björgólfur Guðmundsson, Alfreð Þor-
steinsson og Guðný Kristjánsdóttir.
Sólveig Arnarsdóttir og
Sóley Elíasdóttir.
Lopaklæddi afkomandinn
skundaði um borg og bæ
FLUGAN
Þórdís Arnljótsdóttir, Sigríður Arnardóttir og Þóra
Ásgeirsdóttir.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t
Markús Örn Antonsson og Steinunn
Ármannsdóttir.
Dóri og
Danni úr
Bæjarins
bestu.
BLINDSKER Saga Bubba Morth-
ens var frumsýnd í Smárabíói.
ÓPERUTRYLLIRINN
Sweeney Todd var frum-
sýndur í Íslensku óperunni.
Ágústa Jóhannsdóttir og
Guðný Jónsdóttir.
Jón Þór-
arinsson og
Birna María
Antonsdóttir.
Mæðgurnar Lízella og Anna Kristine Magnúsdóttir ásamt
Margréti Pálmadóttur og Sigríði Soffíu Hafliðadóttur.
Þórunn María
Jónsdóttir og
Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir.
. . . auðsýnt var að listaelíta höfuðbólsins hafði fengið fregnir af gómsætum kokteilum staðarins
Sigurður Norðdal og Áslaug Dóra
Eyjólfsdóttir.
Ásta Hafþórs-
dóttir og Egill
Ólafsson.
ÚLFHAMS-
SAGA var
frumsýnd í
nýja Hafnar-
fjarðarleik-
húsinu.
Ólarnir. Óli leikstjóri
og Óli Palli einn
framleiðendanna.
L
jó
sm
yn
di
r:
E
gg
er
t