Morgunblaðið - 12.07.2004, Side 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BRETAR vinna að jafnaði 1.673
stundir á ári eða sem jafngildir 32
stundum og 10 mín. á viku. Hollend-
ingar vinna 1.354 stundir á ári að
meðaltali, Þjóðverjar 1.446 og Frakk-
ar 1.453 stundir á ári. Íslendingar
áttu á árinu 2002 til samanburðar að
baki 1.812 vinnustundir að meðaltali
og er þá reiknað með öllu starfandi
fólki, bæði í fullu starfi og hlutavinnu
á vinnumarkaðinum. Þessar upplýs-
ingar má finna í nýútkomnum sam-
anburðarútreikningum OECD um
atvinnuþátttöku og vinnutíma fólks í
öllum aðildarlöndum OECD.
Hafa ber mikinn fyrirvara á þess-
um samanburði OECD að mati Ara
Edwald, framkvæmdastjóra Sam-
taka atvinnulífsins, þar sem þær séu
illa samanburðarhæfar á milli landa.
„Almennt gefa önnur lönd upp virkan
vinnutíma og án neysluhléa og líta á
þau sem eigin tíma starfsmannsins.
Við gefum hins vegar upp brúttó-
vinnutíma. Þetta skýrir töluverðan
mun eða hátt í tíu prósent af mældum
heildarvinnutíma,“ segir Ari.
Tékkar og Pólverjar vinna
lengst allra innan OECD
Þau lönd sem eru fyrir ofan Ísland
í þessum samanburði á vinnutíma
fólks eru Tékkland (1.980 vinnu-
stundir á árinu 2002), Grikkland
(1.928 vinnustundir) Mexíkó (1.888
vinnustundir), Pólland (1.979 vinnu-
stundir) og Slóvakía (1.979 vinnu-
stundir).
Samkvæmt þessum mælingum er
vinnutími vinnandi fólks á Íslandi
svipaður vinnutíma Ástrala, Nýsjá-
lendinga og Bandaríkjamanna.
Ísland sker sig hins vegar með
áberandi hætti úr samanburði
OECD þegar sjónum er beint að at-
vinnuþátttöku fólks í löndunum en
atvinnuþátttaka fólks á Íslandi hefur
um langt árabil verið með því mesta
sem þekkist á Vesturlöndum og at-
vinnuleysi minna en í flestum Evr-
ópulöndum.
Að meðaltali er um 65% fólks á
vinnualdri í öllum aðildarlöndum
OECD annað hvort í fullu starfi eða
hlutastörfum á vinnumarkaði. Þann-
ig eru m.a. 73% fólks á vinnualdri í
Bretlandi virk á vinnumarkaði og
rúm 75% Dana en atvinnuþátttaka er
hins vegar 82% á Íslandi, og er
hvergi meiri í samanburðarlönd-
unum, samkvæmt samanburði
OECD.
Algengt hér að menn séu
í fleiri en einu starfi
„Það er ljóst að vinnudagur Íslend-
inga hefur verið langur í gegnum tíð-
ina og líka hversu algengt er að menn
hafi verið í fleiri en einu starfi,“ segir
Ari Edwald.
Hann bendir einnig á að í sam-
anburðinum verði að hafa í huga að
starfsfólk á Íslandi ver mun styttri
tíma í að komast í og úr vinnu en í
flestum öðrum löndum og sé þ.a.l.
tilbúið að verja lengri tíma á vinnu-
staðnum en ella væri.
Vinnutími tæplega 41 stund á
viku á öðrum ársfjórðungi 2004
Það hefur einkennt íslenskan
vinnumarkað um langt árabil hve at-
vinnuþátttaka er mikil hér á landi.
Vinnutími hefur einnig verið langur
auk þess sem eitt af mörgum sér-
kennum íslensks vinnumarkaðar hef-
ur verið hversu stór hluti vinnandi
fólks sinna fleiri en einu starfi. Hafa
vinnumarkaðskannanir Hagstofu Ís-
lands á umliðnum árum leitt í ljós að
ríflega einn sjötti hluti fólks á vinnu-
markaði segist vera í fleiri en einu
starfi.
Ekki liggja fyrir tölur á Hagstof-
unni yfir vinnutíma á Íslandi yfir allt
síðastliðið ár en skv. ársfjórð-
ungstölum sem Hagstofan birtir
reglulega var vinnutími karla og
kvenna á öðrum ársfjórðungi síðasta
árs 41,9 stundir á viku að meðaltali. Á
fyrsta ársfjórðungi ársins 2004 var
meðalvinnutími 40,9 stundir á viku.
Vinnutími verkafólks og sér-
fræðinga virðist hafa lengst
Heldur hefur dregið úr vinnutíma
starfandi fólks á Íslandi almennt séð
á seinustu árum, samkvæmt upplýs-
ingum Stefáns Úlfarssonar, hagfræð-
ings hjá Alþýðusambandi Íslands.
Mælingar á vinnutíma fólks er
annars vegar að finna í könnunum
Kjararannsóknanefndar og hins veg-
ar í vinnumarkaðskönnunum sem
Hagstofan gerir. Ef litið er á fyr-
irliggjandi tölur frá árinu 2000 hefur
nokkuð dregið úr vinnutíma fólks á
íslenskum vinnumarkaði að tveimur
starfsstéttum undanskildum þar sem
vinnutími virðist hafa lengst. Þar er
um að ræða vinnutíma verkafólks og
sérfræðinga. Hafa ber þó þann fyr-
irvara á mælingum á vinnutíma hér á
landi að færst hefur í vöxt að atvinnu-
rekendur geri svokallaða pakka-
samninga við starfsmenn þar sem
samið er um ákveðin laun fyrir
ákveðin unnin verk án tillits til vinnu-
stunda. Koma raunverulegar vinnu-
stundir þá ekki að öllu leyti fram þeg-
ar stuðst er við skráðar vinnustundir,
skv. upplýsingum Stefáns.
Þá ber að mati hans að líta til þess
þegar horft er á þróun vinnutíma Ís-
lendinga á tímabilinu frá árinu 2000
að á því ári var mikil uppsveifla í ís-
lenska hagkerfinu en árið 2002 var
hins vegar samdráttarár, sem gæti
að einhverju leyti skýrt að vinnutími
íslenskra starfsmanna hefur styst
nokkuð á allra seinustu árum.
Ari Edwald bendir á að háir jað-
arskattar í löndum geti haldið aftur
af vinnu fólks og orðið til þess að
menn leggi meiri áherslu á frídaga-
kröfur en kaupkröfur.
Vinnutími lengdist þrátt fyrir
samninga um styttingu
Að mati Ara hafa atvinnurekendur
og stéttarfélög minni áhrif á þann
tíma sem fólk ver til vinnu með gerð
kjarasamninga en margir vilji vera
láta. „Þegar menn hafa samið um t.d.
styttingu vinnutíma í kjarasamn-
ingum, þá kemur í ljós að það eru
engin bein tengsl á milli þess og þess
vinnutíma sem í ljós kemur við mæl-
ingar. Í framhaldi af samningunum
árið 2000 þegar við sömdum um
styttingu dagvinnutíma t.d. í samn-
ingum við verslunarmenn, þá lengd-
ist vinnutíminn í framhaldi af því,“
segir Ari.
Hefur verið í föstum skorðum
Að sögn Ara hafa sumir haldið því
fram að ef samið er um há yf-
irvinnuálög geti það dregið úr vilja
vinnuveitenda til að láta starfsmenn
sína vinna mikla yfirvinnu og orðið til
þess að draga úr löngum vinnutíma
starfsfólks. „Ég hef velt því fyrir mér
hvort það geti ekki verið að þetta sé á
hinn veginn og menn þurfi í sam-
settum vinnutíma að vinna svo og svo
mikla yfirvinnu til að mánaðarlaunin
verði þau sem þeir telja að þau eigi að
vera,“ segir Ari.
Á heildina litið hefur vinnutími hér
á landi verið töluvert fastur þegar
þegar til langs tíma er litið, sér-
staklega meðal einstakra starfsstétta
s.s. iðnaðarmanna. „Og þannig hefur
það verið í gegnum þensluár og líka
samdráttarár að menn vinna sinn tíu
tíma vinnudag. Þetta er í mjög föst-
um skorðum og menn líta á þetta sem
hefðbundinn vinnudag. Ég held ekki
að það breytist á mjög stuttum tíma,“
segir Ari
Gefa þarf aukinn kost á
sveigjanlegri vinnutíma
Sérfræðingar OECD leggja fram
ýmsar hugmyndir í greinargerð með
samanburðinum, um aðgerðir sem
stjórnvöld í aðildarlöndunum gætu
beitt sér fyrir til að auka atvinnuþátt-
töku í löndunum. Er meðal annars
mælt með auknum sveigjanleika í
vinnutíma fólks. Fjölga þyrfti val-
kostum vinnandi fólks á hlutavinnu
sem auðveldi t.a.m. foreldrum að
samræma vinnutíma og umsjá og
samvistir með börnum sínum. Bæta
þarf stjórnsýslu hins opinbera og
regluverk vinnumarkaðarins, m.a. til
að draga úr svartri atvinnustarfsemi
og samræma betur skattkerfi og al-
mannatryggingakerfi til að hvetja til
aukinnar og sveigjanlegri atvinnu-
þátttöku fólks. Þá er mælt sér-
staklega með auknu framboði endur-
menntunar og starfsþjálfunar.
Víða í Evrópulöndum þar sem at-
vinnuleysi hefur verið til muna meira
en hér á landi hafa verið uppi hug-
myndir um breytingar á vinnumark-
aði til að auka atvinnuþátttöku m.a.
með því að lengja vinnuvikuna. Eins
og greint var frá í Morgunblaðinu á
föstudag hefur vakið athygli að ein af
farsímaverksmiðjum Siemens fyr-
irtækisins hefur samið við stétt-
arfélag starfsmanna um að vinnuvik-
an verði lengd úr 35 stundum á viku í
40 stundir. Stefán bendir á að víða
um lönd fari vaxandi þrýstingur á
stéttarfélög og starfsmenn um að
semja um lengri vinnutíma.
Fréttaskýring | Atvinnuþátttaka í löndum OECD er hvergi meiri en hér á landi
Vinnutími hefur
styst lítillega
að undanförnu
Morgunblaðið/Þorkell
Vinnutími hér á landi er að jafnaði lengri en í meirihluta OECD-ríkja en
hann hefur þó styst lítillega meðal flestra starfsstétta á seinustu árum.
Ísland sker sig úr hópi OECD-ríkjanna
hvað varðar mikla atvinnuþátttöku fólks
hér á landi. Heldur hefur þó dregið úr
vinnutíma meðal margra starfsstétta á
Íslandi á seinustu árum.
!"
#$$$$%
!
((
6(%
76
!((
8%(6
4 9
%
*+ +0
)0
:)
3
%(!
2
3
,!
7
'# 4
4%
%&+6"
%(!
3#%
!
9
$; ,((
/*(
/*(
<
#
=->?=
=->@A
@-?BC
@-?=@
@-DDD
@-DDE
@-DEE
@-D@A
@-D@F
@-D=@
@-D=A
@-AE=
@-A>D
@-A=@
@-B?@
@-BDA
@-B@C
@-B=E
@-ED=
@-E=F
@-EBD
@-FBA
@-E>>
@-FBC
@-FFC
@-CBD
@-CD>
=->>>
=->=B
@-?EA
@-?=D
@-DBF
@-DFA
@-DCA
@-D@A
@-D@B
@-D>?
@-D>B
@-AF?
@-A@@
@-B?F
@-B?B
@-BD>
@-B>@
@-B>C
@-E?C
@-EFD
@-EF@
@-F?E
@-FAA
@-FE>
@-FC@
@-CBD
@-CB>
@-?D>
@-?A?
@-?ED
@-?=D
@-DDD
@-D@=
@-D=F
@-D@B
@-D@C
@-A?D
@-D>>
@-AC@
@-B?=
@-BDB
@-B?A
@-BBB
@-E??
@-ED@
@-EBA
@-EFA
@-E@>
@-FB=
@-FE?
@-FFC
@-F=B
@-CCD
@-CF=
@-?A=
@-D@F
@-?EB
@-?CD
@-DEA
G
@-D@F
@-D@C
@-D>>
@-D>@
@-A?=
@-A@D
@-BAC
@-BB?
@-BAB
@-B@C
@-E?@
@-EBF
@-EE>
@-EF=
G
@-FAE
@-FEC
@-FFB
@-F=?
@-CEF
@-CCA
<!$!5 9
HJÁLMAR Finnsson,
fyrrverandi forstjóri
Áburðarverksmiðj-
unnar, lést hinn 10.
júlí síðastliðinn á líkn-
ardeild Landspítala –
háskólasjúkrahúss, 89
ára að aldri. Hann
fæddist 15. janúar
1915 að Hvilft í Ön-
undarfirði, sonur
hjónanna Finns Finns-
sonar bónda og konu
hans, Guðlaugar Jak-
obínu Sveinsdóttur
húsfreyju.
Hjálmar lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum á
Akureyri 1938 og viðskiptafræði-
prófi frá Háskóla Íslands árið 1941.
Hann stundaði framhaldsnám í fyr-
irtækjastjórnun við Suður-Kali-
forníu-háskóla í Los Angeles 1941–
42.
Að námi loknu stofnaði Hjálmar
eigið viðskiptafyrirtæki í New
York 1942, var umboðsmaður ís-
lenskra verslunar- og iðnfyrirtækja
við innkaupastarfsemi í Bandaríkj-
unum 1942–48, var
framkvæmdastjóri út-
flutningsfyrirtækis í
New York 1945–48.
Hjálmar var fram-
kvæmdastjóri Loft-
leiða hf. í Reykjavík
1949–52 og fram-
kvæmdastjóri Áburð-
arverksmiðjunnar í
Gufunesi 1952–85.
Hjálmar sat í Flug-
ráði Íslands 1952–55, í
stjórn Lífeyrissjóðs
starfsmanna Áburðar-
verksmiðjunnar 1961–
85, í stjórn Lífeyris-
sjóðs verkstjóra 1965–75. Hann var
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu.
Hjálmar kvæntist árið 1943 Dor-
is Finnsson, fædd Walker, 7.11.
1920, d. 8.12. 1992, húsfreyju og
hjúkrunarfræðingi. Þau eignuðust
3 börn, Finn, fæddan 1944, sem lést
1967, Edward fæddan 1947 og
Katherine, sem fæddist 1950. Alls
eru barnabörnin orðin 6 og lang-
afabörn Hjálmars eru þrettán.
Andlát
HJÁLMAR
FINNSSON
UNG vinstri græn, ungliðahreyf-
ing Vinstri grænna, stofnuðu nýja
deild í Mosfellsbæ á laugardag-
inn. Samtökin eru jafnframt með
deildir á Suðurlandi, Sauðár-
króki, í Kópavogi og á Akureyri.
Ungliðarnir eru allir undir þrí-
tugu og í hreyfingunni eru í
kringum 400 manns, sem er um
fjórðungur af flokksmönnum. Það
er meira en í nokkrum öðrum
stjórnmálaflokki.
Ung vinstri græn
með nýja deild í
Mosfellsbæ
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
fengi minnst fylgi allra flokka ef
gengið yrði til kosninga nú, sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun Frétta-
blaðsins.
Af þeim sem tóku afstöðu í könn-
uninni sögðust 7,5% ætla að kjósa
Framsóknarflokkinn ef kosið yrði
nú, en 8,3% sögðust myndu kjósa
Frjálslynda flokkinn, sem er tæpu
prósenti meira fylgi en flokkurinn
fékk í kosningunum í fyrra.
Vinstri grænir bæta fylgi sitt
verulega, fá 20,5% í könnuninni sam-
anborið við 8,8% í kosningunum.
Flestir myndu kjósa
Sjálfstæðisflokkinn
FLESTIR sögðust ætla að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn, eða 32,3% en
31,3% Samfylkinguna.
Könnunin fór fram föstudaginn 9.
júlí sl. og var spurt: „Hvaða lista
myndir þú kjósa ef gengið yrði til
þingkosninga nú?“
Úrtakið í könnuninni var 800
manns og skiptist jafnt eftir búsetu
og kyni en 60,4% af þeim sem hringt
var í tóku afstöðu.
Framsóknar-
flokkurinn með
minnst fylgi
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins var kallað út á níunda tím-
anum í gærkvöldi eftir að tilkynnt
var um reyk í gömlu býli við Kjós-
arskarðsveg í Kjósinni.
Húsið var mannlaust þegar reyk-
urinn kom upp og samkvæmt upp-
lýsingum slökkviliðsins í Reykjavík
gengu slökkvistörf vel en býlið er
notað sem sumarhús og ekki búið
þar að staðaldri. Að sögn varð-
stjóra hófust slökkvistörf nógu tím-
anlega til að hægt væri að ráða nið-
urlögum elds og urðu því aðallega
reykskemmdir í húsinu. Elds-
upptök voru ókunn.
Eldsvoði í Kjósinni