Morgunblaðið - 12.07.2004, Blaðsíða 12
MINNSTAÐUR
12 MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
● FARÞEGUM sem flugu yfir Norður-
Atlantshafið til og frá Bretlandi
fjölgaði um 8,2% í júní samkvæmt
tölum frá
BAA, sem
rekur sjö af
stærstu flug-
völlum Bret-
lands. Þeirra
á meðal eru
Heathrow, Stansted og Gatwik.
Samkvæmt fréttatilkynningu BAA
ferðuðust 1,9 milljónir manna yfir
Norður-Atlantshafið til og frá Bret-
landi í júní.
BAA, sem er skráð í kauphöllinni
í London, segir að á fyrsta fjórðungi
fjárhagsársins, apríl til júní, hafi far-
þegum um flugvelli félagsins fjölgað
um 9,7% frá fyrra ári og þeir hafi
alls verið 36 milljónir.
Farþegum yfir Norður-
Atlantshafið fjölgar
HAGNAÐUR General Electric,
verðmætasta fyrirtækis heims, var
3,9 milljarðar dala, um 280 millj-
arðar króna, á öðrum fjórðungi
ársins. Þetta er 3% aukning frá
sama tímabili í fyrra, að því er seg-
ir í fréttatilkynningu frá félaginu.
Tekjur jukust um 11% og námu
rúmum 2.600 milljörðum króna. Af-
koman var heldur betri en áætlað
hafði verið og hlutabréf GE hækk-
uðu um rúmt eitt prósent í kjölfar
afkomutilkynningarinnar.
Í tilkynningunni er haft eftir Jeff
Immelt, framkvæmdastjóra og
stjórnarformanni GE, að útlitið sé
gott og efnahagslífið hafi ekki verið
betra árum saman. Immelt segir að
síðustu þrjú árin hafi fyrirtækið,
þrátt fyrir erfiðar efnahagsaðstæð-
ur og endurskipulagningu, aukið
tekjur, hagnað
og veltufé frá
rekstri á hverju
ári auk þess að
viðhalda AAA-
lánshæfismati.
The Wall
Street Journal
segir að oft sé
litið svo á að GE
gefi vísbending-
ar um efnahagslífið í Bandaríkjun-
um vegna þess á hve mörgum svið-
um fyrirtækið starfi. GE framleiðir
meðal annars ljósaperur, heimilis-
tæki, flugvélamótora, lækninga-
tæki og hverfla til raforkufram-
leiðslu. Þá rekur GE til dæmis
NBC-sjónvarpsstöðina og veitir
fyrirtækjum og einstaklingum fjár-
málaþjónustu.
Hagnaður eykst
hjá stærsta fyr-
irtæki heims
Jeffrey R. Immelt
● SAMKVÆMT þriggja mánaða
hlaupandi meðaltali jókst innflutn-
ingur bifreiða í júnímánuði um 20%
frá sama mánuði fyrra árs, að því er
fram kemur í hálffimm fréttum KB
banka. Þar segir að jafnframt hafi bif-
reiðainnflutningur aukist – á þriggja
mánaða hlaupandi meðaltali – um
21% fyrstu 6 mánuði ársins miðað
við sama tíma fyrra árs. Bifreiðainn-
flutningur sé því um þessar mundir
sá mesti sem sést hafi í nær tvö ár.
„Bílainnflutningur hefur oft verið
leiðandi vísbending um þróun einka-
neyslu og því er spurning hvort hér
sjáist merki um áframhaldandi aukn-
ingu einkaneyslu á næstunni, en
vöxturinn nam á fyrsta ársfjórðungi
um 8% á ársgrundvelli. Hins vegar
nær bifreiðainnflutningur yfirleitt há-
marki í júnímánuði og dregst iðulega
nokkuð saman á komandi mán-
uðum,“ segir í hálffimm fréttum.
Bílainnflutningur 20%
meiri en í fyrra
● KB BANKI hefur ákveðið að hækka
vexti óverðtryggðra inn- og útlána frá
og með 11. júlí nk. um 0,25–0,50%.
Þannig hækka kjörvextir óverð-
tryggðra skuldabréfa úr 8,40 í 8,90
að því er segir í tilkynningu frá bank-
anum.
Bankinn segir vaxtabreytinguna
gerða í kjölfar tilkynninga Seðlabank-
ans um hækkun stýrivaxta nú um
mánaðamót.
Vextir óverðtryggðra innlána bank-
ans hækka um allt að 0,40%, mis-
munandi eftir innlánsformum.
Vextir verðtryggðra inn- og útlána
haldast óbreyttir.
KB banki
hækkar vexti
● SÆNSK-FINNSKA símafyrirtækið
TeliaSonera hefur keypt farsímafyr-
irtæki France Telecom í Danmörku,
Orange, fyrir 600 milljón evrur, eða 53
milljarða íslenskra
króna. TeliaSon-
era hefur verið í
fjórða sæti á far-
símamarkaðnum í
Danmörku, en
færist nú upp í
þriðja sætið, þar
sem Orange er nú. Stærstu fyrirtækin
á þessum markaði eru danska síma-
fyrirtækið TDC og Telenor frá Noregi.
The Wall Street Journal segir að
með kaupunum auki TeliaSonera hlut-
deild sína á danska markaðnum veru-
lega og sé að leitast við að uppfylla
þau markmið sín að verða stórt vaxt-
arfyrirtæki á fjarskiptamarkaðnum.
Skortur á vexti, sem sé stærsti vandi
TeliaSonera, leysist hins vegar ekki
með þessum kaupum, því að velta
Orange sé aðeins rúm 4% af veltu
TeliaSonera, sem velti nær 550 millj-
örðum íslenskra króna.
TeliaSonera er að sögn The Wall
Street Journal eina símafyrirtækið
sem orðið hefur til við samruna
tveggja landssímafyrirtækja í Evrópu.
Blaðið segir að tekjur TeliaSonera hafi
ekki aukist þrátt fyrir að markmiðið sé
að vaxa hratt, en samruninn hafi skil-
að hagræðingu og lækkun kostnaðar.
TeliaSonera kaupir
Orange í Danmörku
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● OG VODAFONE býður nú upp á
þráðlaust netsamband, svokallaða
heita reiti, í samstarfi við 30 veit-
inga- og almenningsstaði. Undanfar-
inn mánuð hafa
þrettán staðir
bætzt við. Á heitu
reitunum býðst al-
menningi aðgang-
ur að þráðlausri
nettengingu án
kostnaðar, en
samstarfsaðilar Og Vodafone greiða
fyrir tenginguna.
Nýju staðirnir sem þjónusta Og
Vodafone býðst á eru Laugardals-
höll, Hitt húsið, Hótel Keflavík, Súf-
istinn í Hafnarfirði, Kaffi Reykjavík,
Kaffi fíaskó, Litli ljóti andarunginn,
Gistihúsið Luna, Bleika dúfan –
bókakaffi, Sirkus, Ölstofa Kormáks
og Skjaldar og Kaffi Kiljan í Borg-
arnesi.
„Heitir reitir Og Vodafone og sam-
starfsaðila hafa mælst mjög vel fyrir
hjá fartölvunotendum og hefur um-
ferð um þá margfaldast frá fyrsta
mánuði. Nú er unnið er að því að
fjölga þeim enn frekar,“ segir í til-
kynningu frá fyrirtækinu.
Heitu reitunum fjölgar
Borgarnes | Pakkhúsið í Borgar-
nesi, sem stendur við Brákarbraut,
verður heimili nýs Landnámsseturs,
sem ætlunin er að opna vorið 2005.
Þar er nú sýning um verslunarsögu
Borgarness sem Páll Guðbjartsson
hefur tekið saman, og verður sýn-
ingin opin í allt sumar.
Að sögn Páls S. Brynjarssonar,
bæjarstjóra í Borgarnesi, er stefnt
að opnun Landnámssetursins næsta
sumar. Þar verður saga landnáms á
Íslandi rakin, með vísunum í Egils
sögu. „Hjónin Kjartan Ragnarsson
og Sigríður Margrét Guðmunds-
dóttir hafa í samvinnu við Borg-
arbyggð stofnað fyrirtæki sem sjá
mun um rekstur setursins, og hlaut
verkefnið styrk úr Menningarborg-
arsjóði á þessu ári, en undirbún-
ingur hefur staðið í um eitt ár,“
segir Páll.
Mikil uppbygging
í nágrenninu
Pakkhúsið var opnað eftir end-
urbætur hinn 11. júní síðastliðinn, á
tíu ára afmæli Borgarbyggðar. Þá
sameinuðust Borgarnesbær,
Hraunhreppur, Stafholtstungna-
hreppur og Norðurárdalshreppur.
Árið 1998 stækkaði sveitarfélagið
frekar þegar Álftaneshreppur,
Borgarhreppur og Þverárhlíð-
arhreppur sameinuðust Borg-
arbyggð.
„Húsið hafði verið í endurbygg-
ingu með hléum frá árinu 1994,“
segir Páll. „Húsið er byggt sem
pakkhús árið 1889, og byggt fyrir
Langes–verslun hér í Borgarnesi,
en þá var Thor Jensen athafnamað-
ur verslunarstjóri hennar.“
Fram undan Pakkhúsinu er fyrr-
um athafnasvæði Kaupfélags Borg-
firðinga, og þar hefur verið deili-
skipulögð ný íbúðabyggð. „Þarna er
gert ráð fyrir um 60 íbúða byggð,
sem nú er á leið í auglýsingu. Enn-
fremur verður þarna aðstaða fyrir
þjónustu og verslanir. Gamli mið-
bærinn í Borgarnesi fær með þessu
nýtt hlutverk, og við teljum að fólk
muni gjarnan vilja búa á þessu
svæði. Þarna er stutt í alla þjón-
ustu,“ segir Páll að lokum.
Pakkhúsið í Borgarnesi opið eftir gagngerar endurbætur
Landnámssetur
opnað næsta sumar
Morgunblaðið/RAX
Pakkhúsið við Brákarbraut í Borgarnesi var reist árið 1889 og er nú orðið hið reisulegasta að nýju.
Gréta Sigríður Einarsdóttir safnvörður stendur við gamlan peningakassa
sem stendur á skrifborði sem Þórður Jónsson á Mófellsstöðum smíðaði,
blindur maður. Kristján Guðmundsson á Indriðastöðum átti borðið og var
það gefið til safnsins af Guðrúnu Davíðsdóttur.
STYRKUR Menningarborgarsjóðs til Landnámsseturs
í Borgarbyggð hefur nýst til að setja upp vörður á
sögustöðum Egils sögu víða um sveitarfélagið. Meðal
varðanna sem upp eru komnar má nefna þá er stendur
við inngang Skalla-Grímsgarðs í Borgarnesi, en þar er
haugur Skalla-Gríms Kveld-Úlfssonar.
„Fyrirhugað er að setja allt að fimmtán vörður á
söguslóðum Egils sögu innan Borgarbyggðar. Fyrstu
vörðurnar voru reistar hér innanbæjar, en einnig er nú
verið að reisa vörður við Borg á Mýrum, í Álftanesi og
Ánabrekku, svo nokkrir staðir séu nefndir,“ segir Páll
S. Brynjarsson, bæjarstjóri í Borgarbyggð.
Vörður reistar á söguslóðum
Á vörðunni við stendur: „Skalla-Gríms haugur. Hér
voru heygðir Skalla-Grímur og Böðvar.“
Haugur Skalla-Gríms Kveld-Úlfssonar, sem stendur í
blómfögrum Skalla-Grímsgarði í Borgarnesi.
VESTURLAND