Morgunblaðið - 12.07.2004, Qupperneq 27
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2004 27
Þökkum hrósið!
ALLTAF er gaman þegar fólk sér
jákvæðu hlutina í lífinu. Fyrir hönd
sláttuhóps Gunnars J. Jónssonar vil
ég þakka manninum sem hrósaði
hópnum hér í Morgunblaðinu 8. júlí
sl. Þetta hvetur okkur til að halda
áfram á sömu braut. Metnaður okk-
ar í slættinum er mikill og er gaman
að fá svona hlý orð í eyra á þessum
tímum þar sem þras og tuð er því
miður ríkjandi.
Elvar Geir Magnússon,
230785-2799.
Of dýrir diskar
ÉG ER mikill tónlistarunnandi og
finnst mjög ágætt að kaupa mér
geisladiska af og til. Oftar en ekki
keypti ég mér tilboðsdiska á tveir
fyrir 2.000 kr. Slíkt var afar gott að
geta splæst þessu á sig fyrir aðeins
2.000 krónur.
En það er liðin tíð. Fyrir nokkru
ákváðu þeir sem stóðu fyrir þessu
tilboði að hækka verðið um 200
krónur þannig að nú er það tveir fyr-
ir 2.200 krónur. Þetta líkaði mér
ekki og hafa viðskipti mín minnkað
verulega vegna þessa. Óánægja mín
skín skýrt í gegnum mig í þau fáu
skipti er ég kaupi geisladiska nú til
dags og bitnar oft því miður á sak-
lausu afgreiðslufólkinu. Biðst ég hér
með afsökunar.
Vil ég minnast á eitt í viðbót í sam-
bandi við grein í Velvakanda mið-
vikudaginn 7. júlí um sláttuhópa. Ég
er Breiðhyltingur og bý í Fellahverfi
og hef tekið eftir ótrúlega dulegum
krökkum sem slá og raka hér í
hverfinu mér og öðrum til mikillar
ánægju. Kveðja til duglega sláttu-
hópsins á stóra hvíta bílnum.
Breiðhyltingur.
Lyklar týndust
LYKLAR merktir Kolbrún týndust
á leiðinni frá Heimahverfi yfir í
Laugardal. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 894 1311.
Jakkar teknir í misgripum
TVEIR jakkar voru teknir í mis-
gripum á Gauki á Stöng laugardags-
kvöldið 12. júní. Annar var ljós-
bleikur, úr riffluðu flaueli frá Vera
Moda, hinn var brúnn leðurjakki frá
Part Two. Þeir sem hafa jakkana
undir höndum eru vinsamlega beðn-
ir að koma þeim aftur á Gauk á
Ströng.
Barnasmekkur í óskilum
LÍTIL stúlka var að týna fallegan
barnasmekk sem móðir hennar hafði
gert og varð hann eftir í húsi í Ár-
túnsholti. Eigandi er beðinn að vitja
hans. Upplýsingar í síma 897 3709.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Áfimmtudag verður sett á Ísafirði ráð-stefnan Með höfuðið hátt, um framtíð-arsýn í menningar-, mennta og atvinnu-málum á Vestfjörðum. Athygli vekur
líflegt hugmyndaflug skipuleggjenda, en meðal
dagskrárliða er fyrsta kennslustundin í „Háskóla
Vestfjarða“, undir berum himni á Silfurtorgi – og
flöskuskeyti til ESB frá fjöruborðinu við Suð-
urtanga. Að ráðstefnunni stendur grasrótarhreyf-
ing ungs fólks á norðanverðum Vestfjörðum sem á
það sammerkt að hafa áhuga á þjóðfélagsmálum.
Formaður undirbúningsnefndar er Albertína
Friðbjörg Elíasdóttir.
Einn liður ráðstefnunnar nefnist Kostir og gall-
ar ESB fyrir Vestfirði. Upplifa Vestfirðingar sig í
alvöru sem sérstakt þjóðarbrot?
„Góð spurning. Kannski er svarið frekar að
hagsmunir okkar eru ólíkir, segjum, hagsmunum
höfuðborgarbúa, til dæmis þegar kemur að sjávar-
útvegi. Þess vegna höfum við einmitt fengið Úlfar
Hauksson, sem skrifað hefur mastersritgerð um
sjávarútvegsstefnu ESB, til þess að halda erindi.“
Þið hyggist senda flöskuskeyti til Evrópusam-
bandsins. Hvað mun standa í því?
„Ég geri ráð fyrir að það verði beiðni um að
bjóða okkur til aðildarviðræðna um að við höldum
fiskimiðunum! En það á eftir að koma í ljós.“
Hvert verður efni fyrstu kennslustundarinnar í
„Háskóla Vestfjarða“?
„Morrinn, sem er leikhús ungs fólks, verður í
hlutverki nemenda á torginu. Farið verður í gegn-
um skólasögu Vestfjarða og endað með táknræn-
um hætti á stofnun „Háskóla Vestfjarða“.“
Sem þið teljið raunhæft skref, í verunni?
„Ekki vafi. Það er í raun spurning mannréttindi
að geta menntað sig í heimabyggð. Við teljum okk-
ur hafa fullar forsendur til þess, auk þess sem há-
skóli myndi draga að fleira fólk og tækifæri eins og
til dæmis stofnun háskóla í smáu samfélagi eins og
Tromsö í Noregi hefur sýnt, svo dæmi sé tekið.“
Á laugardag mun á ráðstefnunni verða spurt um
„mörkin milli nýsköpunar og brjálæðis“. Er ljóst
hvar þau liggja?
„Nei, að því ætlum við einmitt að komast.
Stundum virðast nýsköpunarumræðan sjálf hálf-
gert brjálæði og svo er líka hin spurningin, hve-
nær er nýsköpun bara gömul hugmynd endur-
unnin? Byggðastofnun hamrar mjög á hugtakinu
og flestir styrkir ríkisstjórnarinnar hingað vestur
eru veittir til nýsköpunar. Þess vegna er nauðsyn-
legt að spyrja sig: Hver ákveður hvað nýsköpun
er?“
Hverjir munu mæta á ráðstefnuna?
„Vonandi allir sem vilja hafa einhver áhrif á
framtíðina og þeir sem vilja aðstoð til þess að
mynda sér skoðun. Ungt fólk er sérstaklega boðið
velkomið en dagskráin er í raun fyrir alla aldurs-
hópa – og alla landsmenn.“
Þetta verður þannig ekki enn eitt þreytta mál-
þingið um erfiðleika og vaxtarmöguleika?
„Alls ekki. Pælingin er einmitt að horfa á það já-
kvæða og sýna frumkvæði. Við ætlum ekki að bíða
eftir því að einhverjir „kallar úr Reykjavík“ komi
og „bjargi okkur“, heldur leggjum við upp með
djarfar hugmyndir og spyrjum í staðinn: Viljiði
vera með?“
Framtíðarsýn | Frumleg og fagleg ráðstefna um Vestfirðinga
Flöskuskeyti sent til ESB
Albertína Friðbjörg
Elíasdóttir er fædd 17.
febrúar 1980 og uppal-
in á Ísafirði. Hún er að
ljúka námi í félags- og
fjölmiðlafræði og starf-
ar hjá Skóla- og fjöl-
skylduskrifstofu Ísa-
fjarðarbæjar. Albertína
er einhleyp og barnlaus.
Atvinnuhúsnæði til leigu
(skrifstofur)
Til leigu 200 fermetra skrifstofuhúsnæði á 2. hæð
á Brekkustíg 39, á besta stað í Reykjanesbæ.
Sérlega snyrtilegt. Næg bílastæði. Laust strax.
Uppl. í símum 896 4266 og 421 2220, Sverrir.
ATVINNUHÚSNÆÐI
RAÐAUGLÝSINGAR
TÓNLISTARMÓT fyrir börn og
unglinga frá Norðurlöndum fer
fram í Mosfellsbæ í sumar þar sem
áhersla verður lögð á þjóðlög.
Leiðbeinendur koma frá Noregi,
Svíþjóð Danmörku og Íslandi. Mót-
ið er opið fyrir öll ungmenni á
aldrinum 10–18 ára sem spila á
hljóðfæri hvort sem þau eru enn í
tónlistarskóla eða ekki. Leiðbein-
endurnir eru Heiðdís Erlends-
dóttir þjóðlagaspilari, meðlimir í
dönsku þjóðlagasveitinni ZAR en
hana skipa Rasmus, Christopher
og Steffan. Þeir hafa spilað saman
í nokkur ár og hlotið mikið lof
auk hinna dönsku tónlist-
arverðlauna í tvígang. Frá Noregi
kemur hinn hálf íslenski þjóðlaga-
spilari Viðar Skrede en hann er
meðlimur í þjóðlagasveitinni Geit-
ungen. Margaretha Mattsson tón-
listarkennari kennir sænska þjóð-
lagatónlist.
Skráning á netfanginu liljaog-
elli@heimsnet.is. Nánari upplýs-
ingar má sjá á veffanginu http://
www.geocities.com/lillyrokk/
norraenthjodlog.
Tónlistarmót fyrir börn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. Bb5+ Bd7 4.
Bxd7+ Rxd7 5. O–O Rgf6 6. De2 g6 7.
c3 Bg7 8. d4 cxd4 9. cxd4
O–O 10. e5 dxe5 11. dxe5
Rg4 12. e6 Rde5 13. exf7+
Hxf7 14. Rg5 Dc7 15. h3
Staðan kom upp í síðustu
umferð Meistaramóts
Skákskóla Íslands. Atli
Freyr Kristjánsson (1.625)
hafði svart gegn Halldóri
B. Halldórssyni (2.200). 15.
... Hxf2! 16. Hxf2 Dxc1+
17. Hf1 Dxg5 18. Rd2 sókn
svarts hefði verið illviðráð-
anleg eftir 18. hxg4 Rxg4.
18. ... Rf6 19. Had1 Hd8??
Færir andstæðingnum
vinninginn í skákinni og
sigurinn á mótinu á silf-
urfati. Flestir aðrir leikir
hefðu haldið taflinu unnu á
svart. 20. Re4! Hvítur vinn-
ur við þetta hrók og þarf þá
ekki að spyrja að leikslokum. 20. ...
Dh4 21. Hxd8+ Kf7 22. Rxf6 Bxf6 23.
Dxe5 Kg7 24. Hxf6 exf6 25. De7+ Kh6
26. Df8+ Kh5 27. Hd5+ g5 28. Df7+ og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
ÞAÐ voru ófáir marhnútarnir sem voru dregnir
á land á Suðureyri um helgina en þar fór fram
hin árlega hátíð bæjarbúa, Sæluhelgi á Suður-
eyri. Gekk hátíðin vel og var Mansakeppnin, eins
og marhnútakeppnin er kölluð, haldin í 17. sinn
við bryggjuna. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú
efstu sætin, furðulegustu veiðina, minnsta og
stærsta marhnútinn o.fl.
Furðulegasta veiðin að þessu sinni var mink-
ur, sem skottið hafði verið skorið af, en honum
hafði verið hent í höfnina eftir að hafa verið
gómaður af starfsmönnum Íslandssögu.
Margir veiddu marhnút