Sunnudagsblaðið - 26.02.1956, Side 16

Sunnudagsblaðið - 26.02.1956, Side 16
48 SUNNUDAGSB L A ÐIÐ EINS OG KONA. Concordes sagði: ,,Hver og ein af bókum mínum er eins og kona: maður getur blygðunarlaust sýnt hana, en aldrei lánað öðrum.“ 0O0 SNEMMA BEYGIST KRÓKUR . .. Litla dóttir sakamála- rithöfundarins, Stig Trenters, spurði eitt sinn gestkomandi konu hvort hún væri gift. „Ég var einu sinni gift,“ svaraði konan. „En hvers vegna ertu það ekki núna.“ „Maðurinn minn er dá- inn, væna mín.“ Eftir drykklanga stund, leit telpan bláum augum sínum á konuna og spurði: „Hver skaut hann ? 0O0 IIJÓNAEFNI. Rainiei’ prins af Mon- aco og kvikmyndaleik- konan Grace Kelly ætla að gifta sig um miðjan apríl næstkomandi, og eyða kveitibrauðsdögun- um um borð í lysti- snekkju prinsins á Mið- jarðarhafinu. Prinsinn hefur skýrt frá því að unnusta sín muni vfirgefa kvikmyndirnar. „Ég áleit það bezt að hún hætti að leika,“ sagði hann. „Það fer aldrei vel, ef ég verð að neyðast til þess að dvelja í Monaco og hún í Hollywood.“ 0O0 BÍLAFRAMLEIÐSLAN. Áætlað er að á þessu ári verði framleiddir um ein milljón bílar í Vestur — ÞýzkalandL — I Sovjet-ríkjunum er að hefjast l'ramleiðsla á nýrri bifreiðategund, er nefnast mun „Ekorn.“ Það er tveggja dyra bíll, tekur fimm manns, og mestur ganghraði verða 100 km. á klukkustund. 0O0 MÆLGI. Brezka blaðið Daiiy Min-or fékk eftirfarandi spurningu frá einum les- enda sínum : „Ég ferðað- ist í fullskipaðri járn- brautarlest frá London til Brighton. Ferðin tók fimm stundarfjórðunga, á öllum þeim tíma voru aðeins sögð 40 orð í klefa mínum. Er þetta ekki brezkt met í þögli ?“ — Blaðið svaraði: „40 orð á 5 stundarfjórðung- um. Eftir brezkum mæli- kvárða hafa samferðar- menn yðar bókstaflega verið málóðir!" oOo ATIIUGIÐ. — Hafið þið nokkurn tíma hugsað út í það, að vanaleg tveggja tíma kvikmynd er 3000 metr- ar að lengd ? Og að þið „sjáið“ 24 myndir á sekúndu. oOo DÝR TANNTAKA. Da!nsk|i tannlæknirinn John Hertz, sem nú er prófessor í Stokkhólmi, sagði eftir að hann kom heim úr ferðalagi frá Bandaríkjunum, að þar vestra kostaði 450—500 krónur að draga einn jaxl úr manni, og það væri hreint ekki óalgengt að amerískur tannlæknir væri búinn að þéna 5000 krónur áður en hann færi til hádegisverðar. O LÍTIÐ ÆVINTÝRI. Herramaður einn var á gangi í Hyde Park, og heyrði þann þá allt í einu að grátið var ofurlágt bak við einn trjá.runna. Þegar hann aðgætti þetta betur, sá hann sér til undrunar, að þetta var lítill froskur, sem sat þarna volandi. „Get ég nokkuð hjálp- að þér, litli froskur ?“ spurði maðurinn góðlát- lega. „Ég er ekki froskur,“ sagði þessi vera. „Ég er fögur stúlka í álögum, og það eina, sem getur leyst mig úr þeim, er að karlmaður taki mig heim með sér og leggi mig í rekkju sína.“ Þetta gæti ég svo sem vel látið eftir litla froskn- um, hugsaði maðurinn, og tók hann heim með sér, og lagði hann á kodd- ann í rúmi sínu. Þegar hann vaknaði morguninn eftir lá í rúminu við hlið hans undur fögur stúlka. En því miður hefur kona mannsins aldrei trúað ævintýrinu um litla grát- andi froskinn í Hvdc Park. SUNNUDAGSBLADID ÚITGE'FANDI: Sunnudagsblaðið h.f. IUTSTJÓRI: Ingóifur Kristjánsson, Stórholti 17. Sími 6151. Box 1127. AFGRETÐSLA: Hverfisgötu 8—-10. Sími 4905. Lausasöluverð kr. 5,00. Ársfjórðungsgjald lcr. 60. A1 þý ðu pr entsm i ð j a n.

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.