Morgunblaðið - 28.03.2004, Page 3
28.3.2004 | 3
4 Flugan
fór á listsýningar og tónleika Kammersveitar-
innar í Langholtskirkju.
6 Birna Anna
skrifar um hversu heppna sumir telja aðra vera.
6 Kona eins og ég
Sigríður Rut Júlíusdóttir lögmaður, sem hefur
vakið athygli fyrir skelegga framgöngu í stórum
málum, svarar nokkrum spurningum.
8 Dómaraparið Stefán og Gunnar
Þeir eru þekktasta dómaraparið á Íslandi í
handknattleik og ætla að dæma á Ólympíu-
leikunum í Aþenu í ágúst næstkomandi.
10 Karen Millen
Karen Millen er einn af þekktustu fatahönn-
uðum Breta og veltir samnefnt fyrirtæki tæpum
12 milljörðum íslenskra króna á ári. Karen er
þriggja barna móðir auk þess að vera hönn-
unarstjóri fyrirtækisins sem er að finna víða
um heim.
14 Góður rómur gerður að glæpum
Arnaldur Indriðason rithöfundur er í upp-
lestrarferð í Þýskalandi þar sem bækur hans
njóta mikilla vinsælda.
16 Þegar tíminn flýgur áfram
Fjórir ólíkir einstaklingar deila eftirminnilegu
tímabili í lífi sínu.
18 Arkitekt sem byggir á fortíðinni
Anna Kristín Þórsdóttir hefur búið og starfað
í New York í rúm 30 ár þar sem hún rekur
eigin arkitektastofu.
20 Geisladiskar
Rekkar undir geisladiska eru þarfaþing á
hverju heimili og hin mesta prýði.
22 Fljúgandi stólar og logandi hellur
Guðrún Lilja Gunnarsdóttir er hugmyndaríkur
hönnuður sem ætlar að prófi loknu að koma til
Íslands og stofna eigin hönnunarstofu undir
merkinu Bility.
24 Coco Chanel
Áhrifa Coco Chanel gætir mjög í tískunni
um þessar mundir.
26 Lífræn ræktun
Á síðustu árum hefur lífræn ræktun orðið
sífellt vinsælli.
28 Gist í fangaklefa
Í höfuðborg Slóveníu er hægt að gista í fanga-
klefa án þess að hafa nokkuð til saka unnið.
29 Stjörnuspáin fyrir apríl
Rýnt í stjörnurnar fyrir öll 12 stjörnumerkin.
30 Krossgátan
Skilafrestur á úrlausn krossgátunnar rennur
út föstudaginn 2. apríl.
31 Pistill
Auður Jónsdóttir skrifar um þá árekstra sem
verða þegar ólíkir menningarheimar núast
saman.
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík,
sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Margrét Sigurðardóttir margret@mbl.is,
Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is
Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
ISSN 1670-4428
Forsíðumyndina tók Steindór Gunnarsson af Karen Millen í
London laugardaginn 6. mars 2004.
14
26 2216
Svokallaðar fagurbókmenntir hafa verið það bókmennta-
form, sem mest er í hávegum haft og fengið hefur mesta um-
fjöllun, lof og prís. Einu gildir þótt bókaútgefendur hoppi
ekki hæð sína af kæti yfir sölunni og einstaka manneskja við-
urkenni í trúnaðarsamtölum að fagurlega innbundinn skáldskapurinn sé aðeins stofuprýði eða að hún
skilji ekki ýmsar tilvistarlegu pælingar sem höfundunum eru hugleiknar. Vitaskuld eru viðfangsefni fag-
urbókmenntanna einnig af öðrum toga, oft og einatt ýmis samfélagsmál, ástir og örlög, flókin samskipti
fólks og þar fram eftir götunum. Að glæpunum undanskildum eru viðfangsefnin í rauninni afar svipuð
og svokallaðra glæpa- og spennusagna, sem njóta mikilla vinsælda, þótt bókmenntagagnrýnendur hafi
löngum haft tilhneigingu til að afgreiða þær sem léttvæga afþreyingu, sem lítt eigi skylt við list. Sem er
skrýtið og vekur upp spurningar hvort list sé í huga fjöldans andstæða afþreyingarinnar og útskýringar
og sérfræðitúlkun þurfi til þess að fá hennar notið. Ef svo er komið þarf hún að stíga niður af stallinum,
enda kann list, þegar öllu er á botninn hvolft, að vera ekki síður fólgin í því að kveikja áhuga og
skemmta fólki. Sú list er á tiltölulega fárra færi. Arnaldur Indriðason, rithöfundur, er einn þeirra og er
orðinn metsöluhöfundur á Íslandi. Í viðtali í Tímaritinu í dag segist hann skrifa sögur um það samfélag
sem hann þekkir – en skáldi að vísu glæpina. Núna er hann í upplestrarferð í Þýskalandi, þar sem tvær
bóka hans hafa verið gefnar út. Sú nýrri, Grafarþögn, hefur verið meðal tíu efstu á metsölukiljulista í
fjórar vikur og báðar eru m.a. lofaðar fyrir skarpa samfélagsrýni. Einu ætti að gilda hvort verkin flokkist
sem glæpasögur eða fagurbókmenntir. Arnaldur hefur sýnt að leiðin að hjarta lesenda er skáldskapur í
bland við það samfélag sem þeir þekkja. vjon@mbl.is
28.03.04
Arnaldur Indriðason rithöfundur: „Ég er ekki að
skrifa um íslenska glæpi, heldur um það fólk sem
lendir í þeim hörmungum að verða fyrir ofbeldi.“