Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 12
12 | 28.3.2004 með um átta hönnuði í vinnu, einn hönnuður heyrir beint undir mig, tveir undir hann og svo koll af kolli. Svo er einnig í mínum höndum að vinna með fjölmiðlum,“ segir hún og bætir við að þau hafi ekki lagt mikla áherslu á slíkt hér áður. „Þá hugsuðum við meira um að koma hverri línu í framleiðslu og á rétta staði innan ákveðinna tímamarka. Nú erum við hins vegar með mjög góða hönnuði í vinnu hjá okkur og því get ég tekið eitt skref aftur á bak og virt fyr- irtækið fyrir mér úr meiri fjarlægð,“ segir hún og útskýrir hversu dýrmætt henni þykir að geta séð fyrirtækið frá öðru sjónarhorni en hún var vön. „Þessi fjar- lægð gefur mér sýn viðskiptavinarins á fyrirtækið og veitir mér þannig ákveðna hlutdrægni sem er mjög mikilvæg fyrir okkur.“ Hefur alltaf verið mikið fyrir föt En hvers vegna ætli Karen Millen hafi valið sér tískuhönnun? „Það er erfitt að segja, ætli ég hafi ekki bara dottið inn í þennan bransa. Ég stefndi ekki meðvitað að þessu og mér þykir oft ótrúlegt að hugsa til þess að ég hafi verið viðloðandi tískuiðnaðinn í ein tuttugu ár. En ég hef alltaf verið mjög upptekin af fötum, allt frá blautu barnsbeini. Þegar ég var ung- lingur fékk ég ekki fatnað á mig,“ segir Karen Millen sem var lítil og nett og hafði því ekki úr öðru að velja en barna- fötum. „Sem hentaði mér mjög illa, svo ég neyddist til að hanna og sauma fötin mín sjálf. Það var svo kennari í skólanum sem taldi mig hafa hæfi- leika á þessu sviði og hvatti mig til að fara út í tískuhönnun. Hann fór með mig á tískusýningar og spurði mig af hverju ég færi ekki út í þetta. Þannig leiddi eitt af öðru. Ég var svo nítján ára árið 1981, þegar ég kynntist Kevin og við stofnuðum saman Karen Mil- len. Núna gæti ég ekki hugsað mér annað starf,“ segir hún sann- færandi. En hvað um aðra hönnuði, fylg- ist þú með þeim? „Já, mjög vel. Ég á mér reyndar ekki neinn einn uppáhaldshönnuð, en ég elska föt og ég elska að kaupa föt,“ segir hún með áherslu og hlær. „Ég held að nauðsynlegt sé að sjá og prófa fatnað annarra hönnuða. Það er hluti af vinnunni að sjá hvað er að gerast hjá öðrum.“ Þegar ég spyr hana nánar út í hvaða hönnuði hún haldi helst upp á svarar hún: „Ég er mjög hrifin af Nick Owens, þá sérstaklega hvernig hann notar þvegið leður. Ég er líka hrifin af kynþokkanum í fatnaði frá þeim Dolce&Gabbana. Ég kann að meta hönnun Tom Fords og merkið Gucci heillar mig mikið. En það er aldrei einn hönn- uður á hverjum árstíma sem ég versla einungis hjá, ætli ég taki ekki bara það besta úr hverri línu og setji þannig saman minn persónulega stíl.“ Kvenleg snið og gæðaleg efni Karen Millen er þekkt fyrir að hanna fallegan fatnað með kvenlegu sniði og nota einungis hágæða efni. Með því að samþætta allt ferlið undir eina fyrirtækjaheild, allt frá hugmyndinni um flíkina til sölu í verslunum, þá getur fyrirtækið búið til hágæða kvenfatalínu fyrir nútímakonur sem og skó og aðra fylgihluti án þess að þurfa að gefa eftir í gæðum eða smáatriðum. „Við er- um í raun og veru ekki miklir tískufylgjend- ur. Í grundvallaratriðum byggjum við fata- línu okkar á því hvað viðskiptavinur okkar vill og hvað við vitum að muni seljast. Við er- um með mjög góða grunnlínu sem byggist á þeim fatnaði sem selst best, svo koma inn í fatalínuna nýir litir eða fatnaður sem fylgir eða mótar tískustraumana hverju sinni. Það eru ekki mjög dramatískar breytingar á milli árstíða hjá okkur,“ segir Karen Millen þegar ég spyr hana út í vorlínuna. Þú ert þá greinilega ekki með „nostalgíu“ sem kemur þannig út að þú endurvekur gömul tímabil? „Nei, alls ekki. Við leggjum mestan metnað okkar í fallegan og klæðileg- an fatnað fyrir nútímakonur,“ segir hún og bætir við: ,,Það skemmtilega við tískuna er hins vegar að í henni er alltaf til staðar ákveð- inn grunnþáttur sem segja má að komi úr fortíðinni, en við förum aldrei beint aftur í tímann. Ég held að það myndi ekki virka fyr- ir okkur því lífsstíll fólks var svo gjörólíkur þeim sem við þekkjum í dag.“ Karen Millen-stúlkan meðvituð um tískuna En fyrir hvernig konur hannar þú föt? „Stúlkan sem verslar hjá Karen Millen er mjög meðvituð um tískuna. Hjá okkur fær hún fallegan klæðnað í vinnuna og einnig spariklæðnað fyrir öll tilefni og tækifæri. Skór og aðrir fylgihlutir eru frekar nýir af nálinni hjá okkur og við höfum verið tölu- verðan tíma að ná tökum á þeim þætti fram- leiðslunnar. Við erum loks orðin ánægð með þessa hluti og viljum gera meira á því sviði, jafnvel bjóða upp á meira úrval. Fylgi- hlutir gera mikið fyrir fötin og eru mjög mikilvægir til að ná fram loka- hnykknum.“ Hvað um herralínu frá Karen Mill- en, megum við eiga von á slíku? „Nei, ekki endilega,“ svarar Karen Millen. En hvað um konuna sem er meira heimavið, finnur hún eitthvað á sig hjá Karen Millen? „Mér finnst mikið til þess koma og mikilvægt að klæða sig fallega upp á jafnvel þó maður ætli sér bara að vera heima. Við framleiðum þó ekki eins mikið af hversdagsfatnaði og vinnu- og sparifatnaði, ef til vill vegna þess að við erum betri í því síð- arnefnda. Auk þess held ég að fólk sé ekki tilbúið að borga þann pening fyr- ir hversdagsfatnað sem það er tilbúið að borga fyrir betri föt. Þar sem við leggjum mikla áherslu á gæði getum við ekki boðið ódýrari fatnað og höf- um því ákveðið að leggja mestu áhersl- una á það sem við gerum best og við teljum mesta eftirspurn eftir.“ Áhersla á verslanir utan Bretlands Verslanir Karen Millen eru nú á 150 stöðum í 20 þjóðlöndum, allt frá Mið- Austurlöndum til Bandaríkjanna, Evrópu og Skandinavíu. Fatnaður Karen Millen fæst einnig á 13 stöðum í London, þar á meðal í Harrods og í Selfridges. Einnig má þar finna Karen Millen-verslanir á þekktum verslunargötum eins og Regent Street og South Molton Street svo fátt eitt sé nefnt. Af þeim verslunum sem eru starfræktar undir merkjum Karen Millen eru 24 svo- kallaðar leyfisverslanir. Slíkar verslanir eru í eigu aðila sem fá leyfi til að setja upp verslun einungis með fatnaði frá Karen Millen. Til að fá slíkt leyfi þarf að fylgja ákveðnum reglum, sem settar eru í höfuðstöðvum fyrirtækisins og lúta að mestu „VIÐ BÆTTUM HVORT ANNAÐ UPP, HANN HAFÐI ÓTRÚLEGT VIÐSKIPTAVIT OG ÉG GÓÐA TILFINNINGU FYRIR HÖNNUNINNI.“ L jó sm yn di r: K ri st in n In gv ar ss on Verslunin Karen Millen var opnuð með pomp og prakt í Kringlunni á föstudaginn. Viðskiptafélagarnir Karen Millen og Kevin Stanford uppábúin á leið í brúðkaup sameiginlegs vinar á Claridge-hótelinu í London. Kjólinn hannaði og saumaði Karen fyrir tilefnið. L jó sm yn d: S te in þó r G un na rs so n

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.