Morgunblaðið - 28.03.2004, Qupperneq 13
leyti að útliti verslana, uppsetningu og jafnvel tónlistinni sem spiluð er. Ein slík
verslun er hér á landi í eigu Svövu Johansen og Ásgeirs Bolla Kristinssonar.
Þegar ég spyr Karen Millen nánar út í þessa útþrá og verslunina hér svarar hún:
„Við erum meira og minna þar sem við viljum vera í Bretlandi, en fyrirtækið hefur
verið að vaxa allt frá fyrsta degi og það þykir okkur afar mikilvægt. Við leggjum að-
aláherslu á verslanir utan Bretlands, því það hefur sýnt sig að fötin falla víða í góðan
jarðveg. Það er alltaf gaman að heyra um verslanir sem ganga vel á erlendri grundu
samanber Karen Millen-verslunina á Íslandi.
Ég hef ekki ennþá komið til Íslands, en það stóð til að ég yrði viðstödd opnun
nýrrar Karen Millen-verslunar í Kringlunni. Því miður kemst ég ekki í það skiptið,“
segir hún og útskýrir að hún hafi verið búin að gera önnur plön sem erfitt hefði verið
að breyta. Verslunin var opnuð í gamla húsnæði GK síðastliðinn föstudag og er
boðið upp á allan þann varning sem fyrirtækið framleiðir og flokkast því sem „top
store,“ sem er efsta þrepið í flokkunarkerfi fyrirtækisins. „Mér finnst mikið til þess
koma hve verslunin gengur vel á Íslandi og þess vegna hef ég áhuga á að fylgjast með
framgangi mála. Svava er búin að lofa að senda mér myndir þannig að ég bíð spennt
eftir þeim.“
Íslenskir hluthafar í Karen Millen
Árið 2001 keyptu íslenskir aðilar og félög á þeirra vegum 40% hlut í fyrirtækinu
Karen Millen. Stærsti íslenski eigandinn er KB banki sem á 12,6% hlut. Meðal ann-
arra fjárfesta voru þeir Sigurður Bollason og Magnús Ármann. Nú á einnig fjárfest-
ingarbankinn Straumur 3,65% hlut í fyrirtækinu. Bréfin eru óskráð því félagið hef-
ur ekki enn verið skráð á verðbréfamarkað.
Nokkrir íslenskir aðilar gegna lykilstöðum innan fyrirtækisins og má þar nefna
Sigurð Bollason sem er framkvæmdastjóri á útþenslusviði fyrirtækisins og Nönnu
Björk Ásgrímsdóttur sem er lögfræðingur að mennt og vinnur á því sviði innan fyr-
irtækisins.
Móðurhlutverkið og ferillinn
Karen Millen og Kevin Stanford hafa ekki einvörðungu verið viðskiptafélagar
síðastliðna áratugi heldur einnig fjölskylda því þau voru í sambúð í mörg ár og eiga
þau þrjú börn saman. „Við Kevin skildum fyrir þremur og hálfu ári. Þrátt fyrir það
er gott samkomulag okkar á milli og hefur skilnaðurinn hvorki spillt vinskap okkar
né haft áhrif á rekstur fyrirtækisins.“ Hún segist ekki vera í öðru sambandi og sé
ekki að leita eftir slíku. „Ef það myndi hins vegar gerast þá væri það náttúrlega bara
indælt,“ segir hún og brosir.
Karen og Kevin eiga tvo syni, þrettán og sex ára, og tólf ára dóttur. Hún kveðst
eiga góða að sem hjálpi sér mikið og einnig það að vinnustaðurinn sé nálægt heim-
ilinu. „Aðalskrifstofa fyrirtækisins er í Kent, þar sem ég er fædd og uppalin og bý
enn. Ég er ekki nema fimmtán mínútur að komast á milli vinnunnar og heimilisins.
Vinnutími minn er sveigjanlegur, sem ég þakka því frábæra starfsfólki sem starfar
hjá okkur,“ segir hún og bætir við að þetta hafi ekki alltaf verið svona einfalt. „Ég er
mjög stíf á að nota frítíma minn með börnunum og helgarnar eru til dæmis heilagur
tími okkar saman. Ég nýt þess meira en nokkurn tímann áður að vera með þeim því
nú er ég ekki eins bundin fyrirtækinu og áður.“
Karen Millen finnst forréttindi að geta sótt börnin sín í skólann. „Þegar við kom-
um heim á daginn setjumst við oft niður og drekkum te að breskum sið og spjöllum
saman um daginn og veginn. Ég er mjög hrifin af börnunum mínum, þau halda mér
vel á jörðinni, þó ég sé frekar jarðbundin að eðlisfari. En það er góð tilbreyting að
hafa um eitthvað meira og annað að hugsa en vinnuna og það er ákveðinn agi sem
felst í því að eiga börn.“
Leyndarmál velgengninnar
Þegar ég spyr hana hverju hún þakki velgengni sína svaraði hún án umhugsunar:
„Ég er dálítið örlagatrúar og tel það hafa verið mín örlög að kynnast Kevin og stofna
með honum fyrirtækið. Við bættum hvort annað upp, hann hafði ótrúlegt við-
skiptavit og ég góða tilfinningu fyrir hönnuninni. Kevin hefur mikinn áhuga á tísku
og gæðum og líka mikla tilfinningu fyrir hönnun. Í dag myndi ég segja að hann væri
ekki síður skapandi en ég. Við höfum unnið vel saman í gegnum árin og alltaf unnið
mikið, sem hefur án efa átt sinn þátt í að koma okkur þangað sem við erum.“
Karen Millen segir ekki síður mikilvægt að þau gerðu allt sjálf. „Við mótuðum
hugmyndirnar, keyptum inn efnin, hönnuðum, ég saumaði og svo fylgdum við vör-
unni úr húsi með því að standa sjálf í versluninni og selja. Þetta var án efa ómetanleg
reynsla og mikill lærdómur.
Velgengni fyrirtækisins á mikið undir því að við framleiðum fatnað sem fyllir í
ákveðið tómarúm á markaðnum. Við erum mitt á milli hátískunnar og hvers-
dagstískunnar og leggjum mikinn metnað í það sem við gerum, bæði hvað varðar
verslanirnar sjálfar og fötin. Það er ótrúleg vinna á bak við allt það sem við höfum
gert til þessa, en þetta hefur verið mjög gefandi og skemmtilegur tími,“ segir Karen
Millen. elinros@simnet.is
TÍSKUVELDIÐ KAREN MILLEN
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur • Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is • Heimasiða: www.kuoni.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Lj
ós
m
yn
d
K
U
O
N
I
*Verðdæmi miðast við gengisskr.
12. febrúar 2004. Öll verðdæmi eru verð
á mann í tvíbýli og miðast við upp gefnar
brottfarir.
Hilton Hua Hin Resort & Spa er stórglæsilegt 5 stjörnu lúxushótel
á besta stað við ströndina í sólarbænum Hua Hin. Hér býðst farþegum
Kuoni að dvelja við besta aðbúnað á ótrúlegu verði.
Við bjóðum þó ekki eingöngu lúxusgistingu heldur einnig þægilega
gististaði í góðum milliflokki á enn lægra verði. Verðlag á mat og
drykk, vörum og þjónustu gerir síðan útslagið um ótrúlega hagstæðan
ferðamöguleika. Og auðvitað er íslenskur fararstjóri í hópi
skandinavískra starfsbræðra til reiðu.
Brottfarir alla miðvikudaga í allt sumar
(uppselt er í örfáar brottfarir).
Við segjum alla söguna með eftirfarandi verðdæmum fyrir
2 vikur í tvíbýli*:
2+ stjörnur 5 stjörnur
12. maí 89.990 kr. 132.200 kr.
9. júní 107.525 kr. 141.400 kr.
7. júlí Uppselt 153.100 kr.
4. ágúst 108.700 kr. 142.600 kr.
1. september 104.100 kr. 137.950 kr.
6. október 121.550 155.450 kr.
Velkomin á ævintýrahótel
í Tælandi
5 stjörnu lúxus
á ótrúlegu verði!
132.200 kr.
í tvíbýli*
Gististaðirnir okkar:
City Beach Resort,+ stjörnur
Hua Hin Blue Wave Beach Resort, stjörnur
Majestic Beach Resort, stjörnur
Hua Hin Marriott Resort & Spa,+ stjörnur
Hilton Hua Hin Resort & Spa, stjörnur
Huatt Regency Hua Hin,+ stjörnur
Sofitel Central Hua Hin Resort, störnur
Anantara Resort & Spa, stjörnur
Nánari upplýsingar eru í stóra danska bæklingnum
okkar og á heimasíðunni, www.kuoni.is.
2 vikur frá