Morgunblaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 18
ARKITEKT SEM
BYGGIR Á FORTÍÐINNI
Eftir Kristínu Gunnarsdóttur
Ítalski skólinn á Manhattan sem Anna Krist-
ín sá um endurbætur á og hannaði meðal
annars nýja hurð og umgjörð um hana.
Fjölskyldan í sumarfríi á ítalíu, Franco
og dæturnar Matilde og Chiara ásamt
foreldrum Önnu, þeim Elínu Eyfells
og Þór Jóhannssyni.
A nna Kristín Þórsdóttir kom fyrst til Bandaríkjanna sem námsmaður árið1970 og hóf nám í frjálsum listum við University of Massachusetts og laukþaðan BA-prófi. Hún hélt síðan til Kaliforníu til náms við UCLA og lauk
þaðan námi í arkitektúr árið 1977. Anna Kristín hefur alla tíð síðan verið að velta því
fyrir sér að flytja heim eða að minnsta kosti til Evrópu. Lengi vel fannst henni ekki
taka því að kaupa húsbúnað, diska og húsgögn, hún væri hvort sem er að fara.
Alltaf Íslendingur „Ég var lengi að átta mig á að hér yrði ég til frambúðar. Eftir öll
þessi ár hef ég ekki sótt um bandarískan ríkisborgararétt og er enn bara með græna
kortið enda ætla ég mér ekki að gerast bandarískur ríkisborgari,“ segir hún. „Ég er og
verð alltaf Íslendingur þótt ég sé stundum aðeins stirð í íslenskunni og er reyndar far-
in að halla mér ansi mikið að Ítalíu og ítölsku. Kannski er ég að mörgu leyti orðin
meiri Ítali en Bandaríkjamaður. Ég hef miklu sterkari taugar til Ítalíu þó að ég kunni
vel við mig í New York og við höfum oft talað um að flytja til Toscana á Ítalíu þegar
yngri dóttir mín lýkur sínu námi við ítalska menntaskólann hér í New York.“
Anna Kristín er dóttir Þórs Jóhannssonar og Elínar Eyfells. Hún er elst fimm syst-
kina, systurnar eru þrjár og allar búsettar erlendis en eini bróðirinn býr á Íslandi og sá
yngsti dó ungur.
Maður Önnu Kristínar er Franco Marinai, listamaður frá Ítalíu, og þau eiga tvær
dætur, Matilde, 19 ára, sem er á öðru ári í námi í viðskipta-
fræði í háskóla í Mílanó, og Chiara, 14 ára, menntaskóla-
nema við ítalska skólann í New York. Dæturnar hafa allt frá
leikskólaaldri verið í þeim skóla. „Á heimilinu er því töluð
ítalska og enska,“ segir Anna Kristín. „Ég gafst upp á að vera
með þrjú tungumál þegar Matilde hóf skólagöngu.“
Alltaf á hlaupum Að námi loknu vann Anna Kristín hjá
litlum arkitektafyrirtækjum og seinna hjá New York-borg en
stofnaði síðan eigin stofu. „Ég er arkitekt en mikið af mínum
verkefnum er innréttingar og endurnýjun á eldra húsnæði og
auk þess viðbætur við sumarhús og önnur svipuð verkefni,“
L
jó
sm
yn
di
r:
H
ul
da
S
te
fá
ns
dó
tt
ir
Sýningarsalur hjá ítölsku tískufyrir-
tæki við 55. stræti en Anna sá um
hönnun og endurbætur á sex hæðum.
Stiginn milli hæða í íbúð sem Anna er að
hanna og innrétta fyrir yfirmann Gucci.
Anna Kristín Þórsdóttir arkitekt hefur búið og starfað í New
York í rúm þrjátíu ár. Hún rekur eigin arkitektastofu og er m.a
að innrétta „loft“ fyrir einn yfirmanna Gucci í New York.