Morgunblaðið - 17.07.2004, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
S
laufugatnamót með um-
ferðarljósum á tveimur
stöðum verða við Hlíðar-
enda að loknum flutningi
Hringbrautar, en umferð
verður stýrt með umferðarljósum á
gatnamótum við Njarðargötu. Á milli
þessara tvennra gatnamóta verða sex
akbrautir, en að auki verður hægt að
aka frá vestri til austurs um gömlu
Hringbrautina, sem verður eftir
færslu brautarinnar aðalumferðar-
æðin að Landspítala – háskólasjúkra-
húsi.
Höfuðborgarsamtökin hafa gagn-
rýnt framtíðarlegu Hringbrautar og
skipulagið sem nú er unnið eftir. Sam-
tökin segja að gatnamótin taki of mik-
ið pláss og verið sé að vinna lausn á
umferðarvanda sem ekki sé til staðar,
þar sem umferð um Hringbraut sé
nokkuð greið í núverandi mynd.
Framkvæmdir hófust í vor og er gert
ráð fyrir að þeim ljúki næsta haust.
Reykjavíkurborg og Vegagerðin
standa að framkvæmdinni í samein-
ingu, þar sem Hringbrautin er þjóð-
vegur. Ríkið greiðir stærsta hluta
kostnaðarins, en Reykjavíkurborg
hefur gönguleiðir og frágang við
gömlu Hringbrautina á sinni könnu.
Kostnaður við framkvæmdina er um
1.240 milljónir króna.
Skoðuðu margar leiðir
Ólafur Bjarnason, forstöðumaður
verkfræðistofu umhverfis- og tækni-
sviðs Reykjavíkur, segir að margar
leiðir hafi verið skoðaðar áður en
ákveðið var að fara þá leið sem sést á
meðfylgjandi myndum. „Þessi lausn
varð ofan á af mörgum ástæðum.
Bæði umferðartæknilega og þetta
gekk afskaplega vel varðandi göngu-
leiðir, sem skiptir miklu máli í þessu
sambandi.“
Ólafur segir að einnig hafi verið
lögð áhersla á að aðgengi að Land-
spítalalóðinni yrði gott, spítalinn hafi
sóst eftir því í mörg ár að aðkoman
verði bætt þar sem aðkoman í dag, frá
Barónsstíg og Eiríksgötu, sé hrein
hörmung. Eftir flutninginn verði
mögulegt að koma sunnanmegin að
spítalanum, en það hefði ekki verið
mögulegt hefði lega Hringbrautar
verið óbreytt, þar sem umferðarþungi
þar sé of mikill.
Telur ekki að miklu
landi sé fórnað
Inntur eftir því hvort borgin sjái
ekki eftir öllu því miðborgarlandi sem
fari undir umferðarmannvirki vegna
framkvæmdarinnar segist Ólafur
ekki telja að miklu landi sé fórnað.
Hornið á mótum Snorrabrautar,
Hringbrautar og Bústaðavegar sé
hvort eð er eyða í dag. „Á þessum stað
þurfa að vera töluverð umferðar-
mannvirki.“
Ólafur segir að þær hringtorgs-
lausnir sem hann hafi séð hafi ekki
verið fullnægjandi. Slaufugatnamótin
henti vel af umferðartæknisjónarmið-
um og tekið sé tillit til allra vegfar-
enda, gangandi, hjólandi og akandi.
Við athugun á framtíðaruppbygg-
ingarmöguleikum Landspítalans var
uppbygging spítalans í Fossvogi einn-
ig skoðuð og mælti annað fyrirtækj-
anna sem skoðuðu möguleikana með
Fossvoginum, hitt tók ekki afstöðu.
Ólafur segir að spítalinn hefði verið
verr settur með aðgengi í Fossvog-
inum en á Hringbraut. „Þetta er í
þjóðbraut hér,“ segir hann.
Yrði lausn á borð við þessa leyfð í
miðborg Parísar eða London? Þetta
er dýrmætt svæði og stutt frá Vatns-
mýrinni sem á eftir að byggjast upp?
„Það er mikilvægt að svona land fái
góðar tengingar. Þá er hægt að
byggja þeim mun meira á því landi
sem er til hliðar við svona vegamann-
virki. Hvort þetta yrði byggt nálægt
miðborg annarra borga, það er allur
gangur á því,“ segir Ólafur.
Einnig hafi verið skoðað að leggja
Hringbrautina í stokk sunnan LSH.
„En það vantaði allt rými til að tengj-
ast við það gatnakerfi sem fyrir er.
Það er ekki hægt að leggja götuna al-
farið í stokk þarna fram hjá. Það eru
svo margar tengingar.“
Blaðamaður nefnir að framkvæmd-
in sé dýr og því verði hún að geta stað-
ið um ókomin ár. „Ég held að hún geti
alveg staðið í mörg, mörg ár og það sé
ekkert á móti því að hún standi. Það
er ekkert að því að nýta það land sem
til hliðar er betur,“ segir Ólafur. Hann
nefnir að búið sé að samþykkja deili-
skipulag fyrir Hlíðarendasvæðið. Þar
sé gert ráð fyrir skrifstofubyggingum
með fram íbúðabyggð. Þannig verði
atvinnuhúsnæði næst götunni, þar
sem hávaði verði mestur.
„Gamla Hringbraut“
áfram opin
Áfram verður hægt að aka eftir nú-
verandi Hringbraut. „Það er náttúr-
lega mikilvægt að þarna verði góð að-
koma að spítalanum og mesti hluti
þeirrar umferðar verður vegna spít-
alans.“ Ólafur segir að áfram muni
einhverjir sjálfsagt fara um gömlu
Hringbrautina. Gamla Hringbrautin
verði eingöngu tvær akreinar, ein í
hvora átt, og ætlunin sé að umferð-
arhraði verði þar ekki mikill.
Dregið verði úr hraðanum með
þrengingum, hraðahindrunum og því-
líku. Ólafur telur að flestir sem komi
frá Snorrabraut og eigi leið niður í bæ
muni, í stað þess að fara um gömlu
Hringbrautina, velja að beygja á ljós-
um í slaufu, fara undir brúna og þaðan
yfir á nýju Hringbrautina, þar sem
það muni taka styttri tíma. „Auðvitað
er einhver önnur umferð sem fer
þarna um, hjá því verður aldrei kom-
ist, en það verður aldrei stór straum-
ur.“
Telur að færslan eigi rétt á sér
Tilgangurinn með flutningi Hring-
brautar er m.a. að sameina lóð spít-
alans. Næst það takmark þegar landið
sunnan spítalans er nánast eins og
umferðareyja, með umferð bæði norð-
an og sunnan við? „Læknagarður
verður ekkert einsamall. Aðalupp-
bygging spítalans verður á þessu
svæði. [...] Ég kalla þetta ekki umferð-
areyju,“ segir Ólafur. Aðspurður seg-
ir hann að vel geti hugsast að göng
verði lögð undir gömlu Hringbrautina
til að sameina svæðið.
Deiliskipulag fyrir Landspítalalóð
liggur ekki fyrir, og heldur ekki fyrir
Flugvallarsvæðið. Hefði ekki verið
hentugra að skipuleggja þetta svæði í
heild? „Ég held að þessi færsla eigi
fullan rétt á sér, sama hvað skipulag
verður þarna í framtíðinni. Við höfum
staðið í þeirri trú að Landspítalinn
væri að fara í uppbyggingu [...] og
hann bíður ekki þar til 2016 til að
byggja sig upp. [Reykjavíkurflugvöll-
ur er á aðalskipulagi til ársins 2016]
Svo er uppbygging á háskólasvæðinu.
Það er nýbúið að samþykkja skipulag
fyrir atvinnubyggingar þar upp á
50.000 m². Íslensk erfðagreining er
þar og það hefur verið uppbygging á
þeim hluta Vatnsmýrarinnar. Allt
þarf þetta aðgengi og kallar á teng-
ingar. Ég held að þessi færða Hring-
braut sé mjög góð forsenda fyrir frek-
ara skipulagi og sé grunnþáttur í því,“
segir Ólafur.
Eitt af því sem gagnrýnendur
framkvæmdarinnar hafa nefnt er að
Flugvallarsvæðið verði einangrað, en
sex akbrautir verða á kaflanum fyrir
aftan Læknagarð. „Við höfum þarna
tvær göngubrýr á milli og síðan er svo
sem möguleiki í framtíðarskipulagi að
gera þarna einhverja frekari teng-
ingu. Sá möguleiki er alveg fyrir
hendi, en það hefur ekkert upp á sig
fyrr en flugvöllurinn er farinn. Þá er
hægt að hugsa til þess og skipuleggja
heildstætt. Við vitum ekki hvort flug-
völlurinn fer allur eða hluti af hon-
um,“ segir hann.
Vilja að fólk fari um Sæbraut
Ólafur segir að uppbygging Há-
skólans kalli einnig á betri gatnamót
við Njarðargötu, þar séu langar bið-
raðir um eftirmiðdaginn. Þar verða
ljósstýrð gatnamót með beygjuljós-
um sem verða, að sögn, mun afkasta-
meiri en þau gatnamót sem eru þarna
í dag.
Þeir sem koma úr austurátt eftir
Hringbraut og eiga leið í miðbæinn
munu beygja inn á Njarðargötu, eins
og í dag. Inntur eftir því hvort umferð
í miðbæinn verði greið eftir þessari
einu braut segir Ólafur að þetta ætti
að duga. „Auk þess er Suðurgatan
tenging inn í bæinn, vestar. Við höf-
um ekki reiknað með því að það þurfi
neitt meira og það er ekkert rými til
þess. Við getum ekki breikkað þessar
götur og það er engin ástæða til að
gera það.“
Hann segir að reiknað sé með vax-
andi umferð á Sæbraut, t.d. vegna nýs
tónlistar- og ráðstefnuhúss við Höfn-
ina. „Við viljum helst að fólk fari fyrr
niður á Sæbraut og komi þar inn í bæ-
inn.“ Það sé t.d. hægt eftir Kringlu-
mýrarbraut eða Snorrabraut.
Svipað gatnamótunum
við Réttarholtsveg
Á slaufugatnamótunum verða um-
ferðarljós á tveimur stöðum, við Hlíð-
arfót og þar sem umferðarljósin eru í
dag. Ólafur segir að umferð milli vest-
urs og austurs verði mun greiðari en í
dag þar sem engin umferðarljós verði
á þeirri leið.
Þeir sem aka niður eftir Skógarhlíð
á leið í miðbæinn gætu lent á ljósi aft-
an við Sýslumannshúsið, til að hleypa
umferð að vestan yfir á Snorrabraut.
Þeir fara síðan í boga undir brúna á
einbreiðum vegi.
Í mati á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdarinnar segir að beygjan sé
kröpp, en reikningar hafi sýnt að
fléttun þar sé möguleg. Ólafur segir
að útreikningar sýni að þessi ein-
breiði vegur muni anna umferð.
„Þetta er ekki á neinum ljósum og fær
frítt flæði á Hringbrautina. Það af-
kastar miklu meira,“ segir hann.
Slaufugatnamótin eru ekki ólík
gatnamótunum við Réttarholtsveg.
Blaðamaður viðurkennir fyrir Ólafi
að enn í dag, nokkrum árum eftir að
gatnamótin við Réttarholtsveg voru
tekin í notkun, villist hann enn, og
spyr hvort gatnamót verði ekki að
vera þannig að fólk geti séð hvaða leið
það eigi að fara, þó það hafi aldrei far-
ið þar um áður.
Ólafur segir að fólk þurfi að læra að
fara um gatnamótin. „Við getum sjálf-
sagt lært að merkja þetta betur, en
við villumst líka í útlöndum. [...] Menn
kvarta yfir öllum gatnamótum fyrsta
kastið og lenda í því að villast, en svo
læra menn þetta þegar á líður.“
Sumar borgir í Bandaríkjunum eru
stundum kallaðar bílaborgir, þar sem
svo mikið er þar af umferðarmann-
virkjum. „Reykjavík er búin að vera
bílaborg í 40–50 ár, eða jafnvel leng-
ur,“ segir Ólafur. „Við viljum hafa
sem allra best aðgengi hér í borginni,
bæði fyrir strætó og bíla. Ég held að
það sé eitt af gæðum borgarinnar að
hér er góð umferð og að hún efli sam-
keppnishæfni starfsemi í borginni.
Við getum farið í vinnu á 10–15 mín-
útum en aðrar þjóðir þurfa að eyða
1–2 tímum á leið til vinnu. Ég tel að
þetta sé ekki gagnrýnivert í sjálfu
sér.“
Aukið öryggi
Ólafur nefnir að framkvæmdin
muni auka umferðaröryggi. „Ég held
að það gleymist í þessari umræðu
núna hvað borgin hefur náð mikilli
fækkun umferðarslysa. Partur af
þessu eru þessi nýju umferðarmann-
virki sem eru miklu hættuminni en
þau sem fyrir voru.“ Ólafur segir að í
dag sé aðallega rætt um umferðarslys
á þjóðvegunum. Slys séu nokkuð al-
geng á gatnamótum Hringbrautar/
Snorrabrautar og Bústaðarvegar, en
gatnamótin verði öruggari eftir
breytinguna.
Tvær göngubrýr verða byggðar yf-
ir Hringbraut, bak við Tanngarð og
við Njarðargötu. Þá verða tvenn und-
irgöng lögð undir umferðaræðar, á
horni gömlu Hringbrautar og Snorra-
brautar og undir slaufuna við Hlíð-
arfót. Ólafur segir að þannig verði
komið í veg fyrir að fótgangandi og
hjólandi fólk þurfi að fara yfir um-
ferðargötur.
Reykjavík
er bílaborg
Landslag borgarinnar mun breytast tals-
vert á næstu mánuðum vegna færslu Hring-
brautar. Aðalástæða fyrir framkvæmdinni
er krafa LSH um bætt aðgengi og tengingu
við lóð sunnan við spítalann. Nína Björk
Jónsdóttir kynnti sér þessa framkvæmd,
sem hefur verið gagnrýnd, en á móti er bent
á að Reykjavík sé nú þegar orðin bílaborg.
Göngubrú verður byggð yfir Hringbraut og Njarðargötu við Hljómskálagarðinn og verður umferð þar stýrt með
ljósum, m.a. beygjuljósum. Ólafur segir að gatnamótin muni anna umferð mun betur en nú sé mögulegt.
Slaufugatnamót þar sem Hringbraut, Snorrabraut og Bústaðarvegur mætast. Umferðarljós verða á tveimur stöð-
um, norðan og sunnan megin við brúna. Á myndinni sést hvernig þeir sem eru staddir á suðurenda Snorrabrautar
og ætla í miðbæinn standa frammi fyrir því vali að fara um gömlu Hringbrautina eða beygja til vinstri á ljósum,
fara í sveig undir brúna og þaðan yfir á nýju Hringbrautina.
nina@mbl.is