Morgunblaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 19
MINNSTAÐUR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 19
AKUREYRI
„FRAMTAKIÐ er gott og okkur
þykir virkilega vænt um þessa við-
urkenningu,“ sagði Hólmkell
Hreinsson, amtsbókavörður á
Amtsbókasafninu á Akureyri, en
framkvæmdastjórn bæjarins hefur
veitt safninu viðurkenningu fyrir
framúrskarandi þjónustu og
sveigjanleika. Þetta er í fyrsta
sinn sem þessi viðurkenning af
þessu tagi er veitt en ætlunin er
að veita hana árlega héðan í frá.
Hólmkell sagði að gestir safns-
ins væru margir ósparir á hlýleg
orð til starfsmanna „og við erum
auðvitað ánægð með að fá við-
urkenningu frá okkar gestum.
Þessi viðurkenning frá Akureyr-
arbæ er okkur líka mikils virði, því
þar er litið til innra starfs safns-
ins,“ sagði Hólmkell. „Akureyr-
arbær er þjónustufyrirtæki og
með þessari viðurkenningu er
hann að nýta sér ýmsa kosti sem
fyrirtæki á markaði nota og það
veit á gott.“
Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri nefndi þegar hann afhenti
viðurkenninguna að amtsbóka-
vörður kallaði bókasöfn „andans
orkuver“ og að óhætt væri að
segja að starfsfólk Amts-
bókasafnsins hefði náð miklum ár-
angi í „orkuframleiðslu“ safnsins
„og ófá megavöttin orðið til hjá
ánægðum gestum þess,“ eins og
hann orðaði það. Þá nefndi hann
að starfsandi væri góður, andinn
jákvæður.
Um 500 gestir sækja safnið
heim á degi hverjum að meðaltali
og sagði Hólmkell að lítill munur
væri nú orðið á gestakomum eftir
árstíðum. Safnið væri ekki síður
vel sótt á heitum sumardögum.
„Fólk les alls ekki minna yfir sum-
arið en veturinn, en við tökum eft-
ir að þá velur það sér yfirleitt létt-
ari bókmenntir,“ sagði hann. Hann
sagði notendahópinn breiðan, „við
stóðum lengi í þeirri meiningu að
stærsti hluti okkar gesta væru
miðaldra og eldri konur. En þegar
farið var að rýna í samsetningu
gestanna kom í ljós að svo var
ekki, hingað koma bæði karlar og
konur og fólkið er á öllum aldri,
börn og gamalmenni og allt þar á
milli.“ Notendurnir eru bæjarbúar
og nærsveitarmenn þeirra, þá
koma fjölmargir ferðamenn á safn-
ið yfir sumarið, útlendingar í
stórum stíl. Farþegar af skemmti-
ferðaskipum sem leggja leið sína
til Akureyrar sem og aðrir. „Þetta
fólk kemur aðallega til að fara á
Netið,“ sagði Hólmkell. Þá nefndi
hann að dæmi væru um gesti sem
kæmu daglega árið um kring, „það
eru þónokkrir sem koma hingað á
hverjum degi, fólk sem les blöðin
hjá okkur.“
Amtsbókasafnið hlýtur viðurkenningu fyrir framúrskarandi þjónustu
Okkur þykir vænt um þetta
„ÉG HEF heimsótt bókasafnið
reglulega í 52 ár, frá því ég
var 12 ára gömul og safnið var
í Hafnarstræti,“ sagði Helen
Þorkelsson sem var að leita sér
að lesefni á Amtsbókasafninu í
vikunni. Hún sagðist að jafnaði
koma tvisvar og allt upp í
þrisvar í mánuði á safnið og
taka þetta fimm sex bækur í
einu. „Ég hef alltaf verið dug-
leg að lesa og haft af því mikla
ánægju,“ sagði Helen. Hún
sagðist mikið lesa af ævisögum,
„og svo bara alls konar bækur
eftir góða höfunda,“ eins og
hún orðaði það. Móðir hennar
var dönsk og hefur Helen alla
tíð lesið danskar bækur, norsk-
ar líka og sænskar. „Mér finnst
úrvalið af slíkum bókum bara
frekar lítið,“sagði hún. Hólm-
kell amtsbókavörður var nokk-
uð hissa á þessum ummælum
hennar, sagði safnið vera í hópi
stærstu kaupenda bókmennta á
Norðurlandamálum. Hann ligg-
ur í metsölulistum og kaupir
inn allar söluhæstu bækurnar á
listanum, þ.e.a.s. þær sem
skrifaðar eru á Norðurlanda-
málunum.
Morgunblaðið/Kristján
Vinsælar bækur. Margrét Guðmundsdóttir, starfsmaður Amts-
bókasafnsins á Akureyri, sýnir Helen Þorkelsson vinsælar bækur en
hún hefur verið tíður gestur á safninu í rúma hálfa öld.
Fastagestur á safninu
í yfir hálfa öld
SÖNGLEIKURINN Hárið verður
sýndur í Íþróttahöllinni á Ak-
ureyri í lok september næstkom-
andi. Leikfélag Akureyrar hefur
gengið frá samkomulagi við að-
standendur Hársins í Reykjavík
og knattspyrnudeild Þórs um að
sýna söngleikinn nyrðra.
„Þetta er gestasýning og liður í
þeirri stefnu Leikfélags Akureyr-
ar að framleiða ekki endilega allt
efni hér fyrir norðan heldur gera
allt sem það getur til að laða að
sýningar annars staðar frá, t.d.
frá Reykjavík eða útlöndum þess
vegna,“ sagði Magnús Geir Þórð-
arson, leikhússtjóri Leikfélags
Akureyrar. Með því að fá Hárið
norður er ætlunin að ná til stórs
hóps áhorfenda með því að bjóða
upp á fjölbreytta leiklist í hæsta
gæðaflokki eins og segir í frétt
um sýninguna.
Aðeins verður um eina sýningu
að ræða, en Íþróttahöllin tekur
um 1.700 manns í sæti.
Vetrardagskrá LA verður
kynnt um miðjan ágúst, en félag-
ið mun setja upp fjórar sýningar
á næsta leikári auk þess að flytja
til bæjarins í það minnsta fjórar
sýningar, þrjár frá Reykjavík og
eina frá útlöndum. Miðasala á
Hárið hefst um leið og sala
áskriftarkorta, eða um svipað
leyti og vetrardagskráin verður
kynnt.
Hárið norður
Sumartónleikar | Þriðju tónleikar
í tónleikaröðinni Sumartónleikar í
Akureyrarkirkju verða á morgun,
sunnudaginn 18. júlí kl. 17. Flytj-
endur að þessu sinni verða þau Nic-
ole Vala Cariglia sellóleikari og Ey-
þór Ingi Jónsson orgelleikari og þau
leika verk eftir Johann Sebastian
Bach, Vincent Lübeck, Camille Saint-
Saëns og Sofia Gubaidulina. Aðgang-
ur að tónleikunum er ókeypis. Nicole
Vala og Eyþór Ingi munu einnig leika
í morgunmessu í Akureyrarkirkju kl.
11 árdegis.
Miðaldadagur | Miðaldadagur
verður við verslunarstaðinn á Gás-
um á sunnudag, 18. júlí, og gefst þá
færi á að skoða fornleifauppgröftinn
sem þar fer fram undir leiðsögn.
Messað verður við kirkjutóttina kl.
14. Handverksfólk verður að störf-
um í tjaldbúðum og verða veitingar
seldar á staðnum.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Í TILLÖGU að deiliskipulagi fyrir nýtt
hverfi í Halla, Hamrahlíðarlöndum og
suðurhlíðum Úlfarsfells í Reykjavík er
gert ráð fyrir íbúðabyggð með allt að 903
íbúðum. Af þeim eru um 270 í fjölbýlis-
húsum, 328 í smærri fjölbýlishúsum og
305 í sérbýlishúsum. Þar af eru 47 íbúðir
í einbýlishúsum og 258 í mismunandi
gerðum af sambyggðum sérbýlishúsum.
Stór almenningsgarður
með afþreyingarkostum
Skipulags- og byggingarsvið Reykja-
víkurborgar auglýsti tillögur að deili-
skipulaginu í Morgunblaðinu á miðviku-
dag í samræmi við skipulags- og
byggingarlög. Frestur til að gera at-
hugasemdir við það rennur út 25. ágúst
nk.
Auk íbúða í þessu nýja hverfi er gert
ráð fyrir möguleika á atvinnuhúsnæði
fyrir skrifstofur og þjónustu á jarð-
hæðum fjölbýlishúsa við breiðstræti. Lóð-
ir fyrir skóla, leikskóla og aðra fé-
lagsstarfsemi eru við götu í dalbotninum
þar sem lítill hraði verður á allri umferð.
Í beinu framhaldi til suðurs og austurs
eru víðáttumikil útvivistarsvæði. Er m.a.
gert ráð fyrir stórum almenningsgarði
með útivistar- og afþreyingarkostum fyrir
alla aldurshópa. Flestar íbúðir í hverfinu
verða í innan við 200 metra fjarlægð frá
einu eða fleirum þessara útivistarsvæða.
Tillögurnar liggja frammi í upplýs-
ingaskála skipulags- og byggingarsviðs
Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3 alla
virka daga til 25. ágúst nk. og á heima-
síðu sviðsins á skipbygg.is. Þeir sem telja
sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til
að kynna sér tillögurnar. Þeir sem gera
ekki athugasemdir innan tilskilins frest
teljast samþykkja tillögurnar.
Tillaga að deiliskipulagi svæðis við Úlfarsfell auglýst
Nýtt hverfi með 903 íbúðum
Morgunblaðið/RAX
Horft yfir Úlfarsfell. Byggðin verður í suður- og vesturbrekku með möguleika á miklu útsýni. Fyrsti áfangi verður ofan Vesturlandsvegar.
FLOSI Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, í
Kópavogi segir áætlanir Framsóknarflokks og Sjálf-
stæðisflokks um íbúafjölgun um rúmlega 1.200 íbúa í
bæjarfélaginu vart geta staðist þar eð bráðabirgða-
tölur sýni að íbúum hafi einungis fjölgað um 241
fyrstu fimm mánuði ársins. Á síðasta ári hafi verið
gert ráð fyrir 1.000 íbúa fjölgun en hún hafi orðið
341.
Að sögn Gunnars I. Birgissonar, formanns bæj-
arráðs og oddvita sjálfstæðismanna í bæjarstjórn,
má gera ráð fyrir að fjöldi íbúa í Kópavogi muni
aukast til muna síðari hluta árs.
„Það sem við erum með undir núna; í Hvörfum í
Vatnsenda og Kórum í Vatnsenda og á Lundasvæð-
inu eru um 7 þúsund íbúar sem munu flytja til Kópa-
vogs á næstu 4-5 árum,“ segir Gunnar, sem segir
eðlilegt að íbúafjölgun sveiflist á milli tímabila.
Íbúafjölgun í Kópavogi
langt undir áætlunum
Morgunblaðið/Þorkell
Reykjavík | Herbergjanýting hótela í Reykjavík
batnaði úr 78,21% í 83,51% í seinasta mánuði skv. nið-
urstöðum tekjukönnunar Samtaka ferðaþjónustunnar
(SAF). Þá hefur meðalverð hækkað úr 10.469 krónum
í 11.221 krónur fyrir nóttina.
Fram kemur í fréttabréfi SAF að þar sem meg-
ináherslan í auknu sætaframboði til landsins hafi ver-
ið á ódýrari flugsæti hafi mátt búast við því að aukn-
ingin yrði meiri hjá þriggja stjörnu hótelunum en sú
hafi ekki orðið raunin. Að vísu komi fram hjá þeim
gistiheimilum sem SAF hafi haft samband við, að
aukning milli ára sé allt að 10% hjá þeim og láti þau
vel af vorinu.
Herbergjanýting hótela batnar