Morgunblaðið - 17.07.2004, Blaðsíða 25
Gott ráð er að nota ausuna í
staðinn fyrir pottinn þegar
hita þarf upp lítið magn af
vökva, t.d. smávegis mjólk
út í kaffið.
Gott ráð er að setja óhreina
þvottinn ásamt þvottaefni,
vatni og nokkrum steinum í
fötu með loki og láta hann
hristast í einn dag í bílnum.
– Þessi frumlega þvottavél
er þeim mun áhrifameiri
sem vegirnir eru verri!
Rjóma er gott að þeyta í
tómri gosflösku, helst 2ja
lítra. Tappinn er skrúfaður
á og flaskan hrist af öllum
lífs og sálar kröftum. Síðan
er flaskan skorin upp í miðj-
unni og rjóminn borinn á
borð.
Góð ráð
á fjöllum
grænmetinu út í og saltið og piprið
eftir smekk.
Ýsa með hundasúrum
800 g ýsa roð- og beinlaus
100 g smjör
2 laukar
5 dl hundasúrur, þvegnar og sax-
aðar
salt og pipar
Saxið lauk og steikið í smjörinu
þar til að hann verður glær, blandið
hundasúrunum saman við laukinn,
saltið og piprið og látið malla í u.þ.b.
5 mín. Smyrjið pönnuna og raðið
fiskbitum á hana, hellið að lokum
lauknum og hundasúrunum yfir fisk-
inn, lokið pönnunni og sjóðið í 5–10
mín.
Kúmenkartöflur
800 g nýjar kartöflur
olía
nýtínt kúmen (má vera grænt)
salt og pipar
Skerið kartöflurnar í báta. Steikið
kartöflurnar í olíunni og stráið kúm-
eninu yfir. Saltið og piprið eftir
smekk.
Fjallabomba
Fjallabombuna má útfæra á marga
vegu, allt eftir smekk hvers og eins
eða bara eftir því hvað er til í það
skiptið. Hér kemur uppskrift að
deigi í fjallabombu sem má setja í
botninn á eldföstu móti eða í álpapp-
ír og grilla.
1 poki makkarónukökur
eplarasp og/eða kex
safi úr 2 sítrónum/límónum/líkjör
4 ferskir ávextir
súkkulaði (sjá verklýsingu)
rjómi/ís
Myljið makkarónukökur, eplarasp
eða kex, t.d. hafrakex, niður í formið.
Mjög gott er að kreista sítrónur, lím-
ónur eða hella líkjör yfir áður en við
setjum ávextina út í. Síðan má bæta
við súkkulaðibitum, nóakroppi, rús-
ínum, ferskum, niðursoðnum eða
þurrkuðum ávöxtum og hnetum af
ýmsu tagi. Prófið ykkur áfram, þetta
getur ekki klikkað. Gott er að borða
fjallabombu með rjóma, ís eða sýrð-
um rjóma, allt eftir smekk. Þegar þið
notið ís er best að hann sé næstum
því þiðinn, þá er hann hrærður upp
og honum smurt yfir.
Appelsínuhunang
4 appelsínur í sneiðum
hunang
kanelsykur/kaneldropar/kúmen
Skerið appelsínurnar í sneiðar.
Hitið hunangið í potti og hellið yfir.
Mjög gott er að setja kanelsykur/
kaneldropa út í hunangið þegar verið
er að hita það, eða strá kúmeni yfir
eftir á.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Ragnheiður Ágústsdóttir og Ingibjörg Guðjónsdóttir.
Appelsínuhunang: Einfaldur eftir-
réttur í guðsgrænni náttúrunni.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2004 25
Verð á 3ja herbergja íbúðum er frá 15,9 miljónum (með bílskýli)
Verð á 4ra herbergja íbúðum er frá 15,4 miljónum (án bílskýlis)
Verð á 4ra herbergja íbúðum er frá 17,3 miljónum (með bílskýli)
Erum með í sölu íbúðir í 12 hæða lyftuhúsi við Rjúpnasali í Kópavogi
sem JB byggingarfélag er að reisa. Allar íbúðirnar afhendast fullbúnar
án gólfefna með sérlega glæsilegum innréttingum frá HTH og AEG
raftækjum. Val er um innréttingar, hurðir og flísar. Tvær lyftur eru í
húsinu, stæði í bílageymslu fylgja flestum íbúðum, hjóla og
vagnageymsla, ásamt geymslum íbúðanna er að finna á jarðhæð og
með hverri íbúð fylgja rúmgóðar flísalagðar svalir. Húsið skilast fullbúið
að utan og lóð frágengin að fullu með leiktækjum fyrir börnin. Ráðgjöf
hjá innanhússarkitekt fylgir hverri íbúð og sér Hallgrímur Friðgeirsson
innanhússarkitekt um þá ráðgjöf
Salvía var upphaflega lækn-ingajurt eins og svo margaraðrar kryddjurtir nútímans og
er sögð duga við einum 60 kvillum!
Til dæmis er hún sögð minnka syk-
urmagn í blóði sykursjúkra og sær-
indi í munni og hálsi ef hún er tuggin.
Hún inniheldur nokkuð af B1-
vítamíni og fólasíni. Af salvíunni eru
það blöðin sem eru notuð og hafa
nokkuð afgerandi, ofurlítið beiskt
bragð. Salvíu má nota margvíslega;
t.d. í pottrétti, með kálfa- og svína-
kjöti, fuglakjöti og steiktum fiski og í
salöt. Langútbreiddasta notkunin á
salvíu er þó í fyllingar alifugla á borð
við kalkún.
Kalkúnafylling frá Nóatúni
1 laukur, saxaður smátt
3–4 sellerístönglar, saxaðir smátt
1 bréf beikon
200 g svínahakk
salvía (sage)
Oscar-kalkúnakraftur
1 peli rjómi
2–3 egg
3–5 ristaðar brauðsneiðar, skornar í
teninga
Kraumið lauk, sellerí og beikon í
smjöri. Bætið hakki í og kælið örlítið.
Bætið þá eggjum saman við ásamt
2–3 msk af smjöri.
Salvían er best fersk en heldur þó
vel bragði við þurrkun. Hægt er að
forrækta hana með því að sá fyrir um
páskaleytið en einnig selja matvöru-
verslanir litlar plöntur með rótum
sem þá má hafa aðeins inni og planta
svo í júníbyrjun. Um að gera að
klippa hana reglulega svo hún greini
sig betur. Salvían er auðræktanleg og
vex vel þegar hún er komin út, svo ein
planta ætti að duga hverju heimili.
Salvía
Kryddsalvía, lyfjablóm,
Salvia officinalis
KRYDDJURTIR
Til að koma í veg fyrir slys ogbrunahættu af völdum gas-tækja er áríðandi að al-
menningur kynni sér vel leiðbein-
ingar framleiðenda og sinni
eðlilegu viðhaldi. Mikilvægt er að
hafa í huga að gasgrill séu CE-
merkt til staðfestingar því að tækið
uppfylli lámarkskröfur Evrópska
efnahagssvæðisins um öryggi.
Þetta kemur fram í reglum um
notkun á gasgrilli og öðrum gas-
búnaði á heimasíðu vinnueftirlits-
ins, www.vinnueftirlit.is.
Þegar gastæki hafa verið sett
saman skal gera lekapróf með
sápuupplausn á öllum tengingum.
Sömu prófun skal framkvæma þeg-
ar skipt er um gaskút.
Áríðandi er að kynna sér reglur
um frágang gashylkja og tengingar
gastækja s.s. gasísskápa, sem ætl-
aðir eru til notkunar í sumar-
bústöðum.
Bent er á að á undanförnum ár-
um hafi töluvert verið um innflutn-
ing á húsbílum, húsvögnum, felli-
hýsum og tjaldvögnum, sem
innihalda búnað sem uppfyllir ekki
ákvæði um tæki sem brenna gasi.
Tekið er fram að um sé að ræða
búnað sem ekki er CE-merktur og
er athygli vakin á að einungis má
setja gasbúnað á markað ef hann
ógnar ekki öryggi manna.
GAS|Lágmarks-
kröfur um öryggi
Gasgrillin
CE-merkt