Morgunblaðið - 24.07.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ALVARA UM ÁLVER
Iðnaðarráðherra segir aukinn
áhuga erlendra fyrirtækja vera á
byggingu álvers á Norðurlandi. Til
orkuöflunar yrði ráðist í margar
minni framkvæmdir á Norðurlandi.
Skilgreina hættur í sveitum
Tímabært er að hefja slysavarna-
átak um börn og landbúnað að mati
Herdísar Storgaard á Lýð-
heilsustöð. Ung telpa missti meðvit-
und í fyrrakvöld vegna met-
angaseitrunar.
Þjóðarmorð í Darfur
Bandaríkjaþing samþykkti álykt-
un þar sem grimmdarverkunum í
Darfur-héraði í Súdan er lýst sem
þjóðarmorði. Bandarísk stjórnvöld
eru hvött til þess að grípa í taumana
og þess krafist að viðskiptabann
verði sett á Súdan ef þarlend stjórn-
völd grípi ekki til aðgerða.
Sökudólgum verði refsað
Tyrkneskir fjölmiðlar hafa farið
hörðum orðum um lestarslysið þar í
landi á fimmtudag og krafist þess að
sökudólgum verði refsað. Sérfræð-
ingar vöruðu við því að gamlir teinar
þyldu ekki álagið en líklegt er að
lestin hafi verið á mun meiri hraða
en teinarnir þoldu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 29/37
Viðskipti 11 Hestar 48
Erlent 14 Kirkjustarf 28
Höfuðborgin 16 Úr Vesturheimi 23
Akureyri 16 Staksteinar 51
Suðurnes 17 Myndasögur 40
Árborg 17 Bréf 25
Landið 17 Dagbók 40/42
Listir 43/45 Leikhús 44
Ferðalög 20/22 Fólk 46/49
Heilsa 21 Bíó 46/49
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50
Viðhorf 28 Veður 51
* * *
Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablaðið Út í heim frá Icelandair.
Tímarit um mat og vín fylgir Morgun-
blaðinu í dag til áskrifenda.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
+
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær 25 ára konu frá Sierra
Leone í fimm ára fangelsi fyrir að
hafa sem burðardýr reynt að
smygla rúmlega 5.000 e-töflum til
landsins. Taldi dómurinn það hafið
yfir allan skynsamlegan vafa að hún
hefði vitað af fíkniefnunum í bak-
poka sínum þegar tollverðir stöðv-
uðu hana í Leifsstöð.
Konan, sem heitir Fanta Sillah,
væntir barns þann 7. október nk. og
er því komin tæplega sjö mánuði á
leið. Í gærkvöldi var hún flutt á
sjúkrahús vegna erfiðleika sem
fylgt hafa meðgöngunni. Verjandi
hennar, Guðmundur B. Ólafsson
hrl., segir að hún muni væntanlega
liggja á sjúkrahúsinu þar til að fæð-
ingin er afstaðin.
Konan á fyrir fimm ára son sem
er í Hollandi þar sem hún hefur
dvalarleyfi. Frá því hún var hand-
tekin hefur sonur hennar verið í
umsjón hollenskra barnaverndaryf-
irvalda en unnusti hennar og barns-
faðir er einnig búsettur þar í landi.
Hún á auk þess eldra barn í Sierra
Leone sem mun vera í umsjá ætt-
ingja.
Guðmundur býst við að Fanta
Sillah verði vistuð í kvennafangels-
inu í Kópavogi þar sem aðstaða sé
fyrir mæður með börn. Þá sé hugs-
anlegt að af mannúðarástæðum
verði óskað eftir því að hún afpláni
refsingu sína í Hollandi. Hann telur
dóminn strangan, en ekki hafi enn
verði tekin afstaða til þess hvort
honum verði áfrýjað til Hæstarétt-
ar.
Kolbrún Sævarsdóttir, sem sótti
málið fyrir hönd ríkissaksóknara,
kvaðst sátt við dóminn og sagði
hann styðjast við dómafordæmi.
Fanta Sillah er fædd í Freetown í
Sierra Leone árið 1978. Kvaðst hún
hafa verið vændiskona frá 19 ára
aldri, fyrst í heimalandi sínu en síð-
ar í París. Í dómnum kemur fram
að hún hafi ekki greint lögreglu hér
á landi frá því að hún hafi sótt um
hæli í Þýskalandi árið 1998. „Lýsing
ákærðu á miklum hremmingum í
Sierra Leone frá 19 ára aldri og för
hennar þaðan til Hollands fær því
ekki staðist óbreytt. Sú staðreynd
að ákærða hefur ekki vílað fyrir sér
að gefa upp rangt nafn og fæðing-
ardag í samskiptum við stjórnvöld
þykir bera vott um manngerð henn-
ar,“ segir í dómnum.
Sýknukrafa konunnar byggðist á
því að hún hefði ekki vitað af fíkni-
efnunum í bakpoka sínum. Hún
sagðist hafa beðið vændismiðlara
sinn í París, konu að nafni Mariama
Kamara, um að lána sér tösku til Ís-
landsfararinnar. Mariama hefði far-
ið úr stofunni og inn í svefnher-
bergið, sett bakpokann á rúmið og
kallað á hana inn til sín og þar af-
hent henni pokann. Því næst hefði
verið hringt á leigubíl sem ók henni
út á flugvöll.
Í dómnum segir að ekki verði
með neinu móti séð hvernig Mar-
iama hefði getað vitað að hún myndi
biðja um bakpoka eða haft tækifæri
til að koma fíkniefnunum þar fyrir.
Ekki væri hægt að álykta á annan
veg en að hún hefði annaðhvort sjálf
sett fíkniefnin í bakpokann eða í
það minnsta vitað að einhver annar
hefði komið þeim fyrir.
Dómurinn miðaði refsinguna við
að hún hefði flutt fíkniefnin inn sem
burðardýr en ekki ætlað að taka
þátt í dreifingu þeirra hér á landi. Á
hinn bóginn yrði ekki litið fram hjá
eðli brotsins og að hún ætti sér eng-
ar málsbætur.
Héraðsdómararnir Jónas Jó-
hannsson, Finnbogi H. Alexand-
ersson og Þorgeir Ingi Njálsson
kváðu upp dóminn.
Fimm ára fangelsi fyrir smygl á 5.000 e-töflum
Hlaut að vita af efnunum
Morgunblaðið/Þorkell
Jónas Jóhannsson héraðsdómari afhendir Guðmundi B. Ólafssyni hrl., verj-
anda Fanta Sillah, málsgögn í dómsalnum í gær.
Kona frá Sierra
Leone á sjúkrahúsi
vegna erfiðleika
á meðgöngu
SKÚLI Halldórsson
tónskáld varð bráð-
kvaddur á heimili sínu í
Reykjavík að morgni
23. júlí, níræður að
aldri. Skúli fæddist á
Flateyri við Önundar-
fjörð 28. apríl 1914. For-
eldrar hans voru Unnur
Skúladóttir Thoroddsen
og Halldór Georg Stef-
ánsson héraðslæknir.
Skúli hóf ungur píanó-
nám hjá móður sinni, en
gerðist nemandi Leo-
poldínu Eiríks eftir að
fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur.
Skúli útskrifaðist frá Verzlunarskóla
Íslands 1932, og hóf skömmu síðar
píanónám hjá Árna Kristjánssyni pí-
anóleikara. Hann lagði einnig stund
á tónfræði, kontrapunkt og útsetn-
ingar hjá Páli Ísólfssyni, Franz Mixa
og Victor Urbancic. Hann lauk prófi í
tónsmíðum frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1947, og í píanóleik
frá sama skóla ári síðar. Kennari
hans þá var Rögnvald-
ur Sigurjónsson.
Skúli Halldórsson
var án efa eitt mikil-
virkasta tónskáld Ís-
lendinga, og eftir hann
liggja á annað hundrað
sönglög, fjölmörg pí-
anóverk, kammerverk
og hljómsveitarverk,
forleikir, svítur, kant-
ötur, fúgur og sinfóní-
an „Heimurinn okk-
ar“. Samhliða
afkastamiklu tónlistar-
starfi gegndi Skúli
fullu starfi í opinbera þágu, en hann
var skrifstofustjóri Strætisvagna
Reykjavíkur frá 1941 til 1984. Hann
sat í 37 ár í stjórn Tónskáldafélags
Íslands, 1950–1987. Á sama tíma sat
hann í stjórn STEFs og var formað-
ur þess í nær tvo áratugi, 1968–1987.
Skúli kvæntist árið 1937 Steinunni
Guðnýju Magnúsdóttur, en hún lést
hinn 13. október 1997. Þau eignuðust
tvö börn, Magnús og Unni.
Andlát
SKÚLI HALLDÓRSSON
SAMKVÆMT lögum um fangelsi
og fangavist ákveður Fangels-
ismálastofnun í hvaða fangelsi af-
plánun fer fram. Eignist kona
barn við upphaf afplánunar eða
meðan á henni stendur má heimila
henni að hafa það hjá sér. Þá má
vista fanga um stundarsakir eða
allan refsitímann á sjúkrahúsi ef
þörf er á. Jafnframt má leyfa
fanganum að ljúka afplánun utan
fangelsis „enda stundi hann vinnu
eða nám sem fangelsismálastofnun
hefur samþykkt, búi á sérstakri
stofnun eða heimili þar sem hann
er undir eftirliti og vinnan eða
námið er liður í aðlögun hans að
samfélaginu á ný“, segir í lög-
unum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Fangelsismálastofnun er allur
gangur á því hvort lögregluvakt
sé höfð við sjúkrastofu fanga.
Hvert tilvik sé metið fyrir sig og
m.a. farið eftir því hvort viðkom-
andi sé treyst til að strjúka ekki
úr vistinni, hversu hættulegur við-
komandi er o.s.frv.
Getur byrjað
afplánun á sjúkrahúsi
„ÞAÐ er raunalegra en tárum
taki að Bobby Fischer skuli vera í
japönskum fangabúðum fyrir inn-
flytjendur og hugsanlega á leið í
fangelsi í Bandaríkjunum síðustu
æviár sín,“ segir Hrafn Jökulsson,
varaforseti Skáksambands Ís-
lands.
Hann fór ásamt Guðfríði Lilju
Grétarsdóttur, forseta Skák-
sambandsins, í bandaríska sendi-
ráðið við Laufásveg í gær til að
koma á framfæri þeim skila-
boðum til bandarískra stjórnvalda
að þau felli niður ákærur á hend-
ur Fischer svo hann geti um
frjálst höfuð strokið. Fulltrúar
Skáksambandsins áttu stuttan og
kurteislegan fund með Danielle
Harms ræðismanni í sendiráðinu
og var því lofað að erindi skák-
fulltrúanna yrði komið áleiðis.
„Bobby Fischer situr í fangelsi
fyrir að hafa háð skákeinvígi fyr-
ir tólf árum í landi sem ekki er
lengur til og í stríði sem tilheyrir
liðinni öld. Við teljum því að
Bandaríkjamenn eigi að hætta að
amast við sinni gömlu hetju. Mál
Fischers kennir okkur kannski að
við verðum að hafa umburð-
arlyndi fyrir þeim meðbræðrum
okkar og -systrum sem hegða sér
og tala öðruvísi en flestir. Við
eigum að sýna þeim, sem fært
hafa milljónum manna ómælda
gleði í áratugi, að við kunnum að
meta það,“ sagði Hrafn.
„Eiga að hætta að amast
við sinni gömlu hetju“
Morgunblaðið/Þorkell
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Hrafn Jökulsson, fulltrúar Skáksam-
bandsins, mótmæla aðgerðum Bandaríkjamanna í máli Bobbys Fischers.
ÞAÐ skiptust á skin og skúrir á
Garðavelli í gær er annar keppnis-
dagur á Íslandsmótinu í höggleik fór
fram á Akranesi. Um miðjan dag
byrjaði að rigna, líkt og hellt væri úr
fötu. Á þeim tíma keppninnar voru
allir keppendur í kvennaflokki úti á
velli og hluti af karlaflokknum.
Fljótlega myndaðist aðkomuvatn
á brautum og flötum vallarins og
ákvað mótstjórn að kalla keppendur
af vellinum og fresta leik um sinn.
Síðar var sú ákvörðun tekin að fella
niður 2. keppnisdag í kvennaflokki.
Úrhelli á Akranesi
Íþróttir