Morgunblaðið - 24.07.2004, Blaðsíða 45
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2004 45
Íslandsmótið í höggleik
Keppnin í hámarki!
Um helgina lýkur Íslandsmótinu í
höggleik á golfvelli Leynismanna á
Akranesi. Komdu og fylgstu með bestu
kylfingum landsins berjast um titilinn.
Fjórða mótið í Toyota mótaröðinni stendur yfir á Garðavelli, Akranesi,
fram á sunnudag 25. júlí. Keppnin hefst kl. 8 báða dagana.
Garðavöllur, Akranesi
22.-25. júlí
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L‡
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
38
1
0
7/
20
04
TOYOTA MÓTARÖÐIN TOYOTA MÓTARÖÐINTOYOTA MÓTARÖÐINTOYOTA MÓTARÖÐIN TOYOTA MÓTARÖÐIN
TOYOTA MÓTARÖÐIN TOYOTA MÓTARÖÐINTOYOTA MÓTARÖÐINTOYOTA MÓTARÖÐIN TOYOTA MÓTARÖÐIN
NÝ ÍSLENSK kammerópera eftir
Þorkel Sigurbjörnsson sem nefnist
Grettir verður frumflutt í Bay-
reuth sunnudaginn 22. ágúst nk.
Óperuflutningurinn er hluti af
menningarhelgi sem fram fer í
Bayreuth dagana 20.–22. ágúst og
er skipulögð af dr. Guðmundi Em-
ilssyni að beiðni forsvarsmanna
Festival junger Künstler Bay-
reuth. Að sögn Guðmundar var
hátíð ungra tónlistarmanna í Bay-
reuth stofnuð fyrir rúmum fimm-
tíu árum af finnska tónskáldinu
Jean Sibelius og öðrum framá-
mönnum í evrópsku tónlistarlífi.
„En markmið hátíðarinnar var að
styrkja samband ungra tónlistar-
manna við tónlist Wagners og
þeirra listamanna sem starfa í
Bayreuth á vegum Wagner-
hátíðarinnar.“
Meðal þess sem boðið verður
upp á menningarhelgina eru fyr-
irlestrar um íslenskar fornsagnir
og tengsl þeirra við tónlist Wagn-
ers og síðari tíma tónskálda, sýn-
ing á eftirprentunum á forn-
handritum og ljósmyndasýning um
Drangey í Skagafirði þar sem
Grettir lét lífið. Menningarhelg-
inni lýkur með frumflutningi á
Gretti, kammeróperu Þorkels Sig-
urbjörnssonar við texta Böðvars
Guðmundssonar, í svonefndum
Evrópusal í Bayreuth. Leikstjóri
uppfærslunnar er Sveinn Ein-
arsson og hljómsveitarstjórn í
höndum Guðmundar Emilssonar.
Að sögn Guðmundar kemur um
fjörutíu manna hópur að hátíðinni,
þar af eru fimm ungir íslenskir
einsöngvarar og kammersveit
skipuð ungum íslenskum hljóð-
færaleikurum sem fram koma í
Gretti. Þess má geta að þegar er
orðið uppselt á frumsýninguna og
opna lokaæfingu. Flutningurinn
verður endurtekinn mánudaginn
23. ágúst í Rheinisches Landes-
museum í Bonn. Að sögn Guð-
mundar hefur fjöldi innlendra og
erlendra aðila styrkt þetta fram-
tak og kann hann þeim bestu
þakkir.
Ópera | Ný íslensk kammerópera eftir Þorkel Sigurbjörnsson frumflutt í Bayreuth
Grettir í háborg
Wagners
Guðmundur
Emilsson
Sveinn
Einarsson
Böðvar
Guðmundsson
Þorkell
Sigurbjörnsson
Æ GLEGGRA kemur í ljós, sem
betur fer, að fleira fær ginnt er-
lenda ferðamenn til höfuðborg-
arinnar en tilhugsunin um „dirty
weekend“ í Reykjavík. T.a.m. er
menningarferðamennska stöðugt
þyngri á metunum. Eitt lítið dæmi
sást í Iðnó á fimmtudagskvöld, þar
sem lokkandi klassískir tónar löð-
uðu að túrista einn af öðrum utan
úr sumarblíðunni við Tjörnina.
Þökk sé framtaki nýstofnaðs
kammerhóps fjögurra ungra klass-
ískt menntaðra hljómlistarkvenna
sem kennir sig við forystufugl
þjóðtrúar og hefur rambað á þá
efnilegu uppskrift að bjóða í bland
upp á sígilda tónlist á grunni ís-
lenzkra þjóðlaga.
Notalegt innhverfi Iðnós, með
hljómgóðum sal þar sem sitja mátti
bæði í stólaröðum og við kaffiborð,
féll vel að tiltölulega léttri en fjöl-
breyttri dagskrá hópsins. Eftir ein-
falda en skemmtilega útsetningu
hans á Krumma í klettagjá við
naprar norðanhviður úr flautu og
kunnuglegt ungverskt þjóðlag fékk
sellóið frí í dreymandi Aríu (Largh-
etto) eftir J. Ibert. Viðamikinn þátt
úr Dúói Kodálys f. fiðlu & selló Op.
7, Allegro serioso, vantaði að vísu
bravúru-herzlumuninn, enda líka
fullhægur, en skilaði samt safaríkri
lagvísi ungverska þjóðlagafröm-
uðarins. Allegro rustico f. flautu og
píanó sýndi síðan óvænt létta hlið á
Sofiu Gubaidulinu. E.t.v. æskuverk,
enda ekki laust við að minna á
kennara hennar Sjostakovitsj, en
bráðskemmtilegt eftir sem áður og
leikið af bæði þokka og manískum
krafti þegar það átti við.
Þrjú stutt lög „úr íslenzkum
handritum“ í afstrakt tímalausum
ljóðrænum útsetningum Snorra S.
Birgissonar fyrir selló og flautu (í
stað upphaflegrar söngraddar)
glitruðu tær sem dropar af grýlu-
kerti í heiðbjartri túlkun Melkorku
og Gyðu. Rímnadansasyrpa Jóns
Leifs undir rondóformi birtist síðan
í útsetningu Atla Heimis Sveins-
sonar fyrir blandaðan píanókvintett
(þ.e. hópinn ásamt Grími Helgasyni
á klarínett) í tápmiklum anda „sal-
on“-útfærslna Jóns fyrir Þýzka-
landsmarkað, að viðbættum fútúr-
ískum litum Atla er tengdu
rammfrónsku stemmurnar
skemmtilega við síðari helming 20.
aldar. Loks tóku Helga, Gyða og
Ástríður fyrir hið magnaða Píanó-
tríó Sjostakovitsjar nr. 2 Op. 67 –
nánar tiltekið tvo þætti af fjórum
(eins og hefði mátt koma fram) –
með innlifuðum tilþrifum, er lofuðu
fögru um framhald hópsins ef elja
og úthald endast í samræmi við
vænlega byrjun.
Krumma-
gull
TÓNLIST
Iðnó
Kammerhópurinn Krummi (Melkorka
Ólafsdóttir flauta, Helga Þóra Björgvins-
dóttir fiðla, Gyða Valtýsdóttir selló og
Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó).
Gestur: Grímur Helgason klarínett.
Fimmtudaginn 22. júlí kl. 20.
KAMMERTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson