Morgunblaðið - 24.07.2004, Blaðsíða 21
VÆRI einhverjum boðið í hlaðborð
með litlum feitum lömbum, hana-
kömbum, sniglum, spörfuglatung-
um, eyrum, trúðshári, ormum og
úlfsaugum – er ekki líklegt að hann
þægi boðið – nema kannski ef hann
kynni ítölsku. Sá myndi líklega geta
sér til um hvað hér væri raunveru-
lega á ferðinni, þ.e. ítalskt hlaðborð
með úrvali pastarétta. Á frummál-
inu bera pastategundirnar nefnilega
heiti sem þættu eflaust bæði hljóm-
fögur og listaukandi: Agnolini,
creste di galli, lumache, lingue di
passeri, orecchiette, capello di pagl-
iaccio, vermicelli og occhi di lupo.
Hin rómaða matarhefð Ítala felur
í sér yfir 500 pastategundir, sem
þessir sælkerar í suðri hafa lagað af
mestu natni í gegnum tíðina. Hver
tegund er auðkennd með eigin nafni
eftir lit, stærð og lögun, og ósjaldan
eru tegundirnar kenndar við þá
hluti í náttúrunni sem form þeirra
líkjast mest. Hið kunna pastanafn
farfalle, merkir t.d. „fiðrildi“, og
fettuccine merkir „litlir borðar“,
fusilli eru „litlir spíralar“ og penne
er vitanlega „fjöðurstafur“. Þegar
menn leggja sér pastategundina ziti
til munns (litlar túpur) er hins vegar
ágætt að vita að þar er verið að
snæða „brúðguma“. Á Netinu er að
finna ýmsar vefsíður sem skýra nöfn
og innihald ólíkra pastategunda,
birta myndir af lögun þeirra og
leggja til hugmyndir um hentuga
matreiðslu. Á vefsíðunni profess-
ionalpasta.it er til dæmis að finna
lista og skýringar yfir mörghundruð
pastategundir.
PASTA
Má bjóða
yður hana-
kamb?
TENGLAR
..............................................
www.professionalpasta.it
www.ilovepasta.org
www.foodsubs.com/-
PastaShapes.html
ÚRVAL af íslensku salati fyllir mat-
vöruverslanir um þessar
mundir. Vert er að benda
á Íslandssalat en það
er afbrigði af Lollo
rosso, Klettasalat,
sem einnig er
þekkt sem Ruc-
ola, og er vinsælt
salat en er einnig
notað sem krydd með
einstökum fiskréttum.
Meðal nýjunga í boði frá
Sölufélagi garðyrkju-
manna má nefna sal-
atþrennu en það eru þrjár
tegundir sem sáð hefur verið í sama
pott og eru seldar saman. Þetta eru
Lollo bionda, Lollo rosso og Eik-
arlauf.
Hér fylgja með þrjár tillögur að
salati úr smiðju garðyrkjumanna.
Íslandssalat með
beikoni og eggjum
4 egg
125 g beikon í sneiðum
1 Íslandssalat
2-3 tómatar, þroskaðir
3 msk ólífuolía
1 msk rauðvíns- eða balsamedik
nýmalaður pipar
salt
Eggin eru harðsoðin og síðan
kæld, skurnflett og söxuð. Beikonið
er steikt á þurri pönnu þar til það er
stökkt og síðan skorið í fremur stóra
bita. Salatið er rifið niður og sett í
víða skál eða á fat. Tómatarnir
skornir í þunna báta og blandað sam-
an við. Söxuðu eggjunum dreift yfir
og síðan beikoninu. Olía, edik, pipar
og salt hrist saman og dreypt jafnt
yfir. Borið fram með brauði, gjarna
ristuðu.
Salatþrenna með osti
og steinseljupestói
1 knippi steinselja
2 hvítlauksgeirar
2 msk furuhnetur
2 msk nýrifinn parmesanostur
1 msk sítrónusafi
nýmalaður pipar
salt
100 ml ólífuolía
1 salatþrenna
1 Dala-brie (eða annar ostur)
nokkrar sneiðar af góðu brauði
Leggirnir eru skornir af
steinseljuknippinu og steinseljan síð-
an sett í matvinnsluvél eða blandara
ásamt hvítlauk, furuhnetum, osti, sí-
trónusafa, pipar og salti. Vélin látin
ganga þar til allt er orðið að fremur
grófgerðu mauki. Þá er olían þeytt
saman við smátt og smátt. Salatið rif-
ið mjög gróft og sett í víða skál eða á
fat. Osturinn er skorinn í bita og
blandað saman við og síðan er hluta
af pestóinu dreypt yfir. Borið fram
með brauði, ristuðu eða steiktu á
pönnu í svolítilli ólífuolíu, og afgang-
urinn af pestóinu borinn fram með.
Klettasalat með pasta
250 g pasta, t.d. farfalle
salt
10-12 sólþurrkaðir tómatar í olíu
4 msk ólífuolía (gott að nota olíu af
tómötunum)
1 msk sítrónusafi
nýmalaður pipar
salt
1 knippi klettasalat (rucola)
Pastað soðið í saltvatni samkvæmt
leiðbeiningum á umbúðum, eða þar
til það er rétt tæplega meyrt. Hellt í
sigti og látið renna vel af því en síðan
hvolft í skál. Tómatarnir saxaðir og
þeim hrært saman við. Olía, sítrónu-
safi, pipar og salt hrist saman, hellt
yfir og blandað og að lokum er kletta-
salatið rifið gróft og blandað saman
við á meðan pastað er enn heitt. Lát-
ið standa nokkra stund og síðan borið
fram, volgt eða kalt.
MATUR
Íslandssalat: Með beikoni og eggjum.
Salatþrenna: Með osti og steinselju.
Íslenska sumarsalatið
Klettasalat: Með
pasta og ólífum.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2004 21
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
Seltjarnanesi s. 561 1680
20%
aukaafsláttur
af útsöluvörum
Útsala
Útsala
Ný formúla
með Non Stop
raka-gefandi efnahópi.
Inniheldur einnig steinefni, snefilefni og
hreint Thermal Plankton. Þú getur valið
um 3 krem sem hvert um sig henta mis-
munandi húðgerðum. Kremin gefa sann-
kallað rakabað og húðlitur verður fallegri
og líflegri. Í hverri krukku er ígildi 5000
lítra af SPA vatni*
strax rakagefandi áhrif: 93%**
rakagefandi allan daginn: 92%***
Útsölustaðir Biotherm: Reykjavík: Snyrtivöruverslunin Glæsibæ - Hygea Laugavegi -
Lyf og heilsa Kringlunni - Lyf og heilsa Austurveri - Lyf og heilsa Mjódd - Andorra Strandgötu, Hafnarfirði
- Bylgjan Hamraborg, Kópavogi - Hygea, Smáralind - Bjarg, Stillholti, Akranesi -Lyf og heilsa, Kjarnan-
um, Selfossi - GK snyrtistofa Kjarnanum Mosfellsbæ - Konur & Menn, Hafnarstræti, Ísafirði -
Þú getur valið **** þér eina af
þessum töskum þegar þú kaupir
2 Biotherm vörur þar af eitt
Aquasource NON STOP krem.
50 ára reynsla af töframætti heitra linda og
uppbyggjandi áhrifum þeirra á húðina
Slökktu
þorstann!
AQUASOURCE
NON STOP
Óstöðvandi raki í 24 klst.
* PETP seyði í 5000 lítrun af SPA vatni.
**3 vikna próf, % ánægðra þáttakenda með krem fyrir
blandaða húð. *** 3 vikna próf, % ánægðra þáttakenda með
krem fyrir þurra húð
**** meðan birgir endast
NÓNÍ nefnist ávöxtur sem margir
hafa komist upp á bragðið með,
en þykkni úr honum inniheldur
um 150 þekkt næringarefni sem
líkaminn þarf til vaxtar, viðhalds
og heilsu. Þá hafa rannsóknir
leitt í ljós að nóní er ríkari af
pro-xeroníni, en aðrir ávextir, en
efnið er nauðsynlegt frumum lík-
amans og styður við myndun
seratóníns í heila. Ýmis smyrsl og
drykkjarvörur eru framleidd úr
nóní-ávextinum víða um heim, og
er hreint ávaxtaþykkni þar vin-
sælast. Hér á landi fæst svokallað
Hawaian-Noni þykkni í apótekum
og sumum matvöruverslunum.
Svonefnt Tahitian Noni, sem hlot-
ið hefur viðurkenningu Hollustu-
og vísindanefndar Evrópuráðsins,
fæst hins vegar ein-
ungis í áskriftarsölu,
m.a. í gegnum vef-
síðuna www.tahiti-
annoni.com.
Nýtt sesamkex
frá Frón
Hafrakexið frá
Frón er komið í nýjar
umbúðir, en kexið þykir mörgum
gott með smá viðbiti og ef til vill
osti og sultu. Einnig er að koma á
markaðinn nýtt kex frá Frón: Ses-
amkex. Það er eins og heitið gef-
ur til kynna með sesamfræjum og
þykir gott með smjöri og osti.
Sykurlaus sleikipinni
Chupa Chups Cremosa heitir
nýr sleikipinni sem Danól hefur
hafið innflutning á. Hann er syk-
urlaus og mun jafnframt vera
ljúffengur, nokkuð sem löngum
hefur vafist fyrir framleiðendum
sykurlausra sætinda. Cremosa
brjóstsykurinn á ekki að skemma
tennur og er mjög hitaein-
ingasnauður. Hann hefur fyrir
vikið fengið að nota merki evr-
ópsku tannverndarsamtakanna,
Toothfriendly Sweets Int-
ernational, sem berjast fyrir auk-
inni neyslu sykulausrar og syk-
urskertrar matvöru.
Á RÖLTINU
Nóní-ávöxturinn: Vex á suðrænum
slóðum og þykir heilsusamlegur.
Nóní: Hollasti
ávöxtur í heimi?
ÖFUGT við flestar tegundir krydd-
jurta lifir skessujurtin íslenska vet-
urinn af. Bragðið minnir helst á sell-
erí en á þýska tungu nefnist hún
„Maggikraut“ sem vísar til bragðs-
ins af súpum frá Maggi fyrirtækinu.
Hún er nú mest ræktuð sem krydd-
jurt en var áður mikið notuð til
lækninga. Enn er hún þó víða í Evr-
ópu notuð gegn magakveisu, blöðru-
og nýrnakvillum og mígreni. Bragð
skessujurtar heldur sér vel gegnum
þurrkun en hún er sérlega góð í kjöt-
súpu. Einnig er hún töluvert notuð í
ýmsa pottrétti, sósur og súpur og
ungu blöðin eru góð í grænmet-
issalat. Skessujurt er góð í krydd-
smjör og með bökuðum kartöflum.
Þegar fræin eru fullþroskuð má
geyma þau og nota til dæmis til að
krydda fisk, strá í salat eða á brauð
áður en það er bakað. Tiltölulega
auðvelt er að rækta skessujurt. Ein-
falt er að kaupa fræ og sá fyrir
henni; eins má kaupa smáplöntu eða
fá afleggjara hjá kunningja.
KRYDDJURTIR
Morgunblaðið/ÞÖK
Skessujurt
Tröllatryggð
Levisticum
officinalis
SMS FRÉTTIR
mbl.is
mbl.is
STJÖRNUSPÁ