Morgunblaðið - 24.07.2004, Page 14
ERLENT
14 LAUGARDAGUR 24. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
JOSE Maria Aznar, fyrrverandi for-
sætisráðherra Spánar, var í gær
sakaður um „mikilmennskubrjál-
æði“ en spænsk
útvarpsstöð hafði
á fimmtudag
greint frá því að
utanríkisráðu-
neytið spænska
hefði greitt
bandarískri lög-
fræðistofu tvær
milljónir dollara,
140 milljónir ísl.
kr., til að reyna
að tryggja Aznar gullpening Banda-
ríkjaþings, heiðursorðu sem aðeins
sérstökum erlendum fyrirmennum
er veitt. Aznar hefur neitað þessum
fullyrðingum og segir nú tilraun
gerða til að sverta mannorð hans.
Trinidad Jimenez, einn af for-
ystumönnum Sósíalistaflokksins,
sparaði hins vegar ekki stóru orðin í
gær. Hún sagði Aznar „hégóma-
fullan mann“ sem þjáðist af „mik-
ilmennskubrjálæði og sjálfhverfu“
og að hann hefði ekki verið verð-
ugur þess trausts sem Spánverjar
sýndu honum í átta ár.
Lettneska þingið
banni reykingar
RINALDS Mucins, heilbrigð-
isráðherra Lettlands, sagði í gær að
hann hygðist beita sér fyrir því að
þing landsins samþykkti lög þar sem
reykingar á veitingastöðum yrðu
bannaðar. Vill Mucins þar með
fylgja fordæmi Íra og Norðmanna
sem fyrr á þessu ári urðu fyrstir
allra þjóða til að banna reykingar á
krám og veitingastöðum.
Al-Sadr gagnrýnir
Iyad Allawi
SJÍTAKLERKURINN Moqtada al-
Sadr gagnrýndi í gær harðlega Iyad
Allawi, forsætisráðherra írösku
bráðabirgðastjórnarinnar, en al-
Sadr predikaði í gær í Kufa, um 150
km suður af Bag-
dad. Sagði hann
Allawi engan rétt
hafa á að heimila
útgáfu dagblaðs-
ins Hawza á ný úr
því að það var
ekki hann sem
bannaði útgáfu
þess á sínum
tíma. „Svei þér og
svei hernámsliðinu [bandaríska],“
sagði al-Sadr sem ekki hefur sést op-
inberlega í tvo mánuði.
Mikið uppnám varð í Írak þegar
Bandaríkjamenn lokuðu Hawza, sem
er málgagn stuðningsmanna al-
Sadrs, í mars en Paul Bremer land-
stjóri sakaði blaðið um að hvetja til
ofbeldis. Stuðningsmenn al-Sadrs
efndu þá til uppreisnar en í júní
tókst að semja um vopnahlé.
Aldrei fleiri sjálfs-
morð í Japan
ALLS voru 34.427 sjálfsmorð framin
í Japan á síðasta ári skv. opinberum
gögnum. Þetta er fjölgun um 2.284
sjálfsmorð, eða sem samsvarar 7,1%,
frá árinu áður, og hafa sjálfsmorð
aldrei verið jafn mörg. Um 70%
þeirra sem fyrirfóru sér í fyrra voru
karlar 20 ára og eldri, að sögn lög-
reglunnar. Flest sjálfsmorðanna,
15.416, tengjast heilsuleysi viðkom-
andi en 8.897 sjálfsmorð eru talin
tengjast bágum hag viðkomandi, at-
vinnuleysi og öðru þess háttar.
Sakaður um „mikil-
mennskubrjálæði“
Moqtada al-Sadr
Jose Maria Aznar
BANDARÍKJAÞING hefur sam-
þykkt ályktun þar sem grimmdar-
verkum sem framin hafa verið í
Darfur-héraði í Súdan er lýst sem
þjóðarmorði. Eru bandarísk stjórn-
völd hvött til þess í ályktun þingsins
að grípa í taumana með einum eða
öðrum hætti, jafnvel með einhliða
aðgerðum. Þá er þess krafist að sett
verði viðskiptabann á Súdan.
Ályktun Bandaríkjaþings var
samþykkt í fulltrúadeildinni með
422 atkvæðum gegn engu. Banda-
ríkjamenn hafa einnig lagt fram í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
drög að ályktun þar sem lagt er til
að SÞ samþykki viðskiptabann á
Súdan ef þarlend stjórnvöld grípa
ekki í taumana í Darfur.
Komist öryggisráð SÞ að þeirri
niðurstöðu að atburðunum í Darfur
sé rétt lýst sem þjóðarmorði þá ber
ráðinu lagaleg skylda til að beita sér
með einhverjum hætti.
Talið er að svonefndar Janja-
weed-sveitir, vopnaðar sveitir
araba, hafi drýgt ódæðin í Darfur
með vitund og vilja ráðamanna í
Khartoum. Eru liðsmenn Janjaweed
sakaðir um að hafa staðið að mörg
þúsund nauðgunum og drápum í
Darfur en alls er talið að meira en
10.000 manns hafi látist frá því átök
hófust í Darfur í febrúar 2003.
Þá hefur meira en ein milljón
manna lagt á flótta frá heimilum
sínum. Alþjóðleg hjálparsamtök ótt-
ast að þegar árlegar rigningar hefj-
ast í héraðinu á næstunni muni þús-
undir flóttafólksins bíða bana en
aðstæður í flóttamannabúðunum
eru afar erfiðar og illa gengur að
koma þangað vistum og hjálpar-
tækjum.
Súdönsk stjórnvöld neita aðild
Átökin í Darfur hófust þannig að
blökkumennirnir sem byggja hér-
aðið risu upp gegn yfirráðum stjórn-
valda í Khartoum, sem er í norður-
hluta Súdan en þar búa einkum
arabar, og sökuðu þau um að hunsa
slæmar aðstæður borgara í Darfur.
Vopnaðar sveitir araba, sem hlið-
hollar eru stjórnvöldum í Khartoum,
gengu þá berserksgang í héraðinu
og hafa síðan staðið fyrir því sem
hjálparsamtök og alþjóðastofnanir
kalla skipulagðar ofsóknir og þjóð-
ernishreinsanir.
Stjórnvöld í Súdan neita að hafa
stutt hinar vopnuðu sveitir araba í
Darfur og hafa varað erlenda aðila
við því að hafa afskipti af málinu.
Grimmdarverkum í Darfur lýst sem þjóðarmorði í ályktun Bandaríkjaþings
Farið fram á að bandarísk
stjórnvöld grípi í taumana
Washington. AFP.
TONY Blair, for-
sætisráðherra
Bretlands, út-
nefndi í gær Pet-
er Mandelson
sem fulltrúa
Bretlands í
næstu fram-
kvæmdastjórn
Evrópusam-
bandsins. Man-
delson leysir þá
Chris Patten og Neil Kinnock af
hólmi, sem þar hafa gegnt fram-
kvæmdastjóraembættum fyrir Bret-
lands hönd, en vegna stækkunar ESB
í vor fær Bretland nú aðeins einn full-
trúa í framkvæmdastjórninni.
Skipan Mandelsons þykir sæta tíð-
indum því hann hefur tvívegis gegnt
ráðherraembætti í ríkisstjórn Blairs
en í bæði skiptin orðið að segja af sér.
Mandelson hefur hins vegar í gegnum
tíðina verið náinn samverkamaður
breska forsætisráðherrans og skipan
hans í gær staðfestir að hann nýtur
mikils trausts hjá Blair. Hafa íhalds-
menn í Bretlandi þegar gagnrýnt út-
nefningu Mandelsons á þeirri for-
sendu að hún sýni að Blair hugsi fyrst
og síðast um að tryggja einkavinum
sínum góð embætti.
Gert er ráð fyrir því að Mandelson
taki við embættinu 1. nóvember nk.
Hann lék stórt hlutverk í skipulagn-
ingu kosningabaráttu Verkamanna-
flokksins 1997 þegar flokkurinn
komst til valda í Bretlandi eftir átján
ára stjórnarandstöðu. Í fyrstu var
hann sérlegur ráðgjafi Blairs en síðan
skipaði Blair hann viðskiptaráðherra.
Mandelson neyddist hins vegar til að
segja af sér síðla árs 1998 eftir aðeins
fimm mánaða ráðherradóm þegar
upp komst að hann hafði ekki sinnt
þeirri skyldu sinni að veita upplýsing-
ar um lán sem hann hafði þegið frá
stuðningsmanni Verkamannaflokks-
ins.
Blair tók Mandelson aftur inn í rík-
isstjórn 1999 þegar hann skipaði hann
ráðherra Norður-Írlandsmála en
Mandelson neyddist aftur til að segja
af sér tveimur árum síðar eftir ásak-
anir um að hann hefði beitt áhrifum
sínum til að tryggja milljónamær-
ingnum Srichand Hinduja breskan
ríkisborgararétt en sá hafði látið stór-
ar fjárhæðir af hendi rakna í fjár-
hirslur Verkamannaflokksins.
Peter
Mandelson
Mandelson í framkvæmdastjórn ESB
London. AP.
ÁTTA hæða íbúðarbygging hrundi
til jarðar í Manila, höfuðborg Fil-
ippseyja, í gær. Engin meiðsl urðu á
fólki því íbúar í húsinu höfðu fyrir
nokkru síðan flúið húsið eftir að tók
að braka hátt í öllum veggjum og
vatnslagnir höfðu rofnað. Þá höfðu
yfirvöld fyrirskipað fólki í nær-
liggjandi byggingum að rýma hús-
in. Lito Atienza borgarstjóri hefur
fyrirskipað rannsókn á atvikinu en
mikið hefur verið um framkvæmdir
og húsabyggingar í þessum borg-
arhluta og er það talið hafa getað
haft áhrif á undirstöður hússins.
Reuters
Átta hæða hús hrundi í Manila
TONY Blair, sem á unglingsár-
um sínum lék með áhugamanna-
rokkbandi, afþakkaði gjöf frá
Bono, söngvaranum í írsku
rokkhljómsveitinni U2, en Bono
hugðist gefa breska forsætis-
ráðherranum dýran rafmagns-
gítar að því er fram kom í The
Daily Telegraph í gær.
Bono gaf Blair gítarinn í maí
2003 eftir að hafa átt fund með
honum um hvernig vekja mætti
umheiminn til vitundar um al-
næmisvandann í Afríku. Blair
skýrði síðan frá þessari gjöf í
samræmi við reglur sem gilda
um ráðherra í bresku stjórninni,
en þeim er skylt að gefa upp all-
ar gjafir að verðmæti meira en
140 pund, rúmlega átján þúsund
íslenskar krónur. Reglurnar
kveða á um að ráðherrar megi
því aðeins taka við gjöfum sem
verðmætari eru en þetta ef þeir
borga sjálfir mismuninn eða
ánafna gjöfinni til góðs málefnis.
Blair hafnaði sem sagt góðri
gjöf Bonos, þ.e. hann hyggst
ekki halda gítarnum og borga
mismuninn. Er gítarinn nú
geymdur á vísum stað af forsæt-
isráðuneytinu en ekki kemur
fram hvað um hann á að verða.
Blair vildi
ekki
gítarinn
hans Bono
London. AFP.