Morgunblaðið - 22.08.2004, Page 18
18 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Ómar
Ylströndin í Nauthólsvík er vinsæl á sólríkum sumardögum. Teiknistofan Landmótun á heiðurinn að hönnun umhverfisins.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn Laugardal. Landslag hannaði húsdýragarðinn, tjaldstæði, gangstíga, bílastæði og
ýmis minni svæði, en fjölskyldugarðurinn er verk Þórólfs Jónssonar garðyrkjustjóra.
Landslag af manna
Ljósmynd/Gísli Sigurðsson
Bláa lónið er dæmi um manngerðan ferðamannastað og náttúruundur sem menn hafa búið til. Grunnhugmyndin að umhverfi lónsins er verk Vinnustofu arkitekta
ehf., en fínútfærsla hugmyndanna var í höndum þeirra Hermanns Georgs Gunnlaugssonar og Ólafs Melsted hjá teiknistofunni Storð ehf.
Hörðuvellir í Hafnarfirði eru meðal þeirra verkefna sem tekin eru til umfjöllunar í Land
„VIÐ erum afskaplega ánægð
með þetta framtak Landskab,
en tímaritið er virt og vel þekkt
á öllum Norðurlöndunum, og fer
raunar víða um Evrópu líka,“
segir Ingibjörg Kristjánsdóttir,
landslagsarkitekt og formaður
FÍLA.
Landskab er nú á 85. útgáfu-
ári og er að sögn Ingibjargar,
sem einnig er einn eigenda
teiknistofunnar Landmótunar,
betur þekkt í Evrópu en önnur
norræn tímarit í þessum efn-
isflokki.
Upphaflega hugmyndin að ís-
lenskum vinkli þessa nýjasta
tölublaðs kemur frá Annemarie
Lund, sem gegnt hefur starfi rit-
stjóra blaðsins í rúm tuttugu ár.
„Hún kom hingað sl. sumar í
tengslum við norrænan stjórn-
arfund félaga landslagsarkitekta
á Norðurlöndunum og þá kvikn-
aði þessi hugmynd. Hún vildi
gefa út stórt blað um hérlendan
landslagsarktitektúr og fékk því
í lið með sér þá Einar E. Sæ-
mundsen, Þráin Hauksson og
Guðmund Rafn Sigurðsson,“
segir Ingibjörg. Hún bætir við að
í blaðinu sé bæði fjallað um ís-
lenska garðlistasögu, en unnið
hefur verið að ritun hennar und-
anfarin ár, og eins sé þar að
finna greinar um tiltölulega ný-
leg verk hérlendra landslags-
arkitekta.
„Við finnum að það er áhugi á
því sem við erum að gera hér
og fólki finnst verkefnin sem við
vinnum að oft á tíðum svolítið
sértæk,“ segir Ingibjörg og
bendir á snjóflóðavarnirnar á
Siglufirði sem dæmi. „Ég hugsa
líka að við sækjum efnivið til
náttúrunnar í meira mæli en
tíðkast til að mynda í upprækt-
uðum löndum á borð við Dan-
mörku. Þar sem tímaritið Land-
skab á svo lesendahóp víða um
lönd vona ég svo sannarlega að
þetta tölublað eigi eftir að vekja
enn frekari athygli á íslenskum
landslagsarkitektúr á erlendum
vettvangi.“
Ingibjörg Kristjánsdóttir
Ánægjulegt
framtak