Morgunblaðið - 22.08.2004, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 2004 51
Kimarnir í tónlist eru margirvestan hafs og skemmti-legastir þegar menn eru aðhræra saman tónlist úr
ólíkum áttum. Spunakennd tónlist er
oft kölluð improv þar í landi, en sá
merkimiði gangast ekki nema miðl-
ungi vel, enda nær hann yfir ótelj-
andi stefnur og strauma, ekki síst
þegar menn fara að blanda djass inn
í málið eða klassík. Ágætt dæmi um
þróun í spunatónlist eru þrjár hljóm-
sveitir sem leika mjög ólíka tónlist
en þó með sterkan samhljóm þegar
betur er að gáð, Kinski, Sub-
Arachnoid Space og Cul de Sac, en
allar gefa þær út á merkinu Strange
Attractors Audio House, sjá:
www.strange-attractors.com/, sem
varð til upp úr samnefndum útvarps-
þætti í Portland í Oregon.
Cul de Sac
Cul de Sac var stofnuð í árslok
1990 og sendi frá sér fyrstu plötuna
1991. Tónlistin var að mestu án
söngs og féll undir það sem menn
nefndu og nefna síðrokk. Innblást-
urinn var þó öllu fjölbreyttari en hjá
síðrokksveitum öðrum, enda Cul de
Sac-liðar mjög gefnir fyrir gamalt
sýrurokk, brimrokk, íhugunartónlist
frá Mið-Austurlöndum, þjóðlaga-
tónlist og þýskt framúrstefnurokk
áttunda áratugarins.
Höfuðpaurar sveitarinnar eru
þeir Glenn Jones, Robin Amos og
Chris Guttmacher; Jones á gítar,
Amos á rafeindatól og Guttmacher
slagverk, en síðan slóst í hópinn
bassaleikarinn og kvikmyndaskáldið
Chris Fujiwara. Guttmacher gekk
úr skaftinu eftir tvær plötur en í
hans stað kom Jon Proudman sem
lék inn á þriðju plötu Cul de Sack.
Vendipunktur í sögu Cul de Sack,
og fleiri sveita reyndar, var sú hug-
mynd framámanna hjá Geffen-
útgáfunni, sem græðst hafði mikið fé
á að selja Nirvana-plötur, að gefa út
plötu með þeim ágæta listamanni
John Fahey, sem var þá búinn að
vera óstarfhæfur í áratug vegna
taugasjúkdóms. Fahey var einna
þekktastur um miðjan sjöunda ára-
tuginn, merkilegur brautryðjandi í
tilraunatónlist sem steypti saman
löngum spunaköflum, ragtime og
blús. Upphaflega stóð til að liðs-
menn Sonic Youth, Beck og Cul de
Sac myndu spila með Fahey, en áður
en upptökur hófust var Geffen búið
að missa áhugann.
Cul de Sac-menn gáfust þó ekki
upp og á endanum tók sveitin upp
plötu með Fahey, The Epiphany of
Glenn Jones, sem tekin var upp í
nóvember 1996. Upptökurnar gengu
ekki þrautalaust, Fahey var við-
skotaillur að vanda og mjög reyndi á
samstarf innan Cul de Sac, svo mjög
reyndar að það brast og áður en
platan kom út var Proudman rekinn
úr sveitinni.
Samstarfið við Fahey hafði ekki
bara áhrif á mannaskipan í sveitinni,
en sú saga verður ekki frekar rakin
hér, heldur heyrist vel á plötunum
sem komu út eftir þetta að tónlistin
var orðin nokkuð breytt. Annað sem
haft hefur áhrif á sveitina er sam-
starf við Can söngvarann gamla
Damo Suzuki, en hann leitaði til Cul
de Sac um að spila inn á plötu með
sér og ferðast um Bandaríkin.
Kinski
Kinski er öllu þyngri en Cul de
Sac, meira af síðrokki og meira af
þýsku tilraunarokki, ekki bara Can
og Amon Duul II heldur líka Neu! og
breskar sveitir eins og Spacemen 3
og My Bloody Valentine.
Kinski er fimm ára gömul hljóm-
sveit, sendi frá sér fyrstu plötuna
sem tríó 1999, Chris Martin á gítar,
Lucy Atkinson á bassa og Dave
Weeks á trommur. Annar gítarleik-
ari, Matthew Reid-Schwartz, slóst í
hópinn árið 2000 og næsta plata kom
svo út 2001, heitir Be Gentle with
the Warm Turtle og er mikil snilld.
Í seinni tíð hefur Kinski unnið
mikið með Mokoto Kawabata og
hljómsveit hans, furðuverkinu
magnaða Acid Mother’s Temple, og
meðal annars fóru sveitirnar í tón-
leikaferðir saman um Bandaríkin og
Japan. Í einni slíkri ferð, um Japan
rétt fyrir jól 2001, tóku þær upp
saman klukkutíma spuna í heima-
húsi sem varð að tíu mínútna lagi í
hljóðveri og þrjú lög voru tekin upp
til viðbótar. Síðasta haust kom út
platan Kinski Acid Mothers Temple
með lögunum fjórum. Frábær plata.
SubArachnoid Space
SubArachnoid Space er einna
venjulegust þessara sveita, spilar
nokkuð hefðbundið spunakennt síð-
rokk, lögin sum löng og flókin, önnur
stutt og hnitmiðuð og laglínur jafnan
traustar, sem vill annars vera vanda-
mál hjá álíka hljómsveitum.
SubArachnoid Space var stofnuð
sem tríó 1996, en annar gítarleikari
bættist snemma við. Sveitina skipa í
dag Melynda Jackson og Chris Con-
es sem leika á rafgítara, Chris Van
Huffel á trommur og Diego Gonzal-
ez á bassa. Fyrsta smáskífan, Char-
Broiled Wonderland, kom út 1996 og
fyrsta breiðskífan, Delicate Membr-
ane, seinna það ár. Plöturnar eru
orðnar sjö, sú síðasta Also Rising
sem er besta verk sveitarinnar, þó
allar séu plöturnar vel þess virði að
hlustað sé á þær. Þeir sem falla fyrir
SubArachnoid Space ættu svo að
kíkja á Bardo Pond, til að mynda
með því að næla sé í plötuna Tigr-
is~Euphrates frá 2002 sem sveit-
irnar skiptu með sér.
Ný plata SubArachnoid Space,
The Red Veil, er á næsta leiti.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Skemmtilegur spuni
Tilraunakenndur spuni hljómar kannski ekki aðlað-
andi fyrir flesta tónlistaráhugamenn, en hann getur þó
verið býsna skemmtilegur eins og sannast á sveitunum
Kinski, Cul de Sac og SubArachnoid Space.
SubArachnoid Space
Kinski
Cul de Sac
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000 Nýr og betri
Yfir 40 þúsund
gestir
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 4 og 6. ísl tal.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Enskt tal.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
Myrkraöflin eru með okkur!
Mögnuð ævintýra-spennumynd!
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
T
o p
p
myndin
á íslandi
Uppáhalds köttur allrar
fjölskyldunnar er kominn í bíó!
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal
Uppáhalds köttur allrar
fjölskyldunnar er kominn í bíó!
Sýnd kl. 2 og 4. m/ísl.tali.
Mjáumst
í bíó!
www.laugarasbio.is
T
o p
p
myndin
á íslandi
Sjáið frábæra gamanmynd
um frægasta, latasta og
feitasta
kött í heimi!
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.
Umtalaðasta mynd ársins sem vann Gullpálmann í Cannes.
Myndin sem allir verða að sjá til að geta
verið með í umræðunni.
Ó.H.T Rás2 S.K., Skonrokk
„Drepfyndin“
Ó.Ö.H. DV
„Myndir á borð við
þessar segja meira en
þúsund orð.“
HJ. MBL
Í Stepford er eitthvað undarlegt á seyði
Frábær gamanmynd með toppleikurum
Kr. 500
„ ...mynd þar sem
áhorfendur skella
ærlega upp úr og
jafnvel hneggja af
hlátri.“
Kvikmyndir.com
S.K., Skonrokk
CHRISTOPHER
WALKEN
BETTE
MIDLER
FATHE
HILL
CLENN
CLOSE
NICOLE
KINDMAN
MATTHEW
BRODERICK
Þetta var ekki hennar heimur..
en dansinn sameinaði þau!
Sjóðheit og seiðandi skemmtun!