Morgunblaðið - 26.08.2004, Page 40
MENNING
40 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ROBIN Nolan tríóið var stofnað
sumarið 1992 og árið 1997 kom tríóið
fyrst til Íslands. Það var í boði
Dodda á Fógetanum, sem nú er
Doddi á Rosenberg, en á þeim ágæta
stað í Lækjargötu býður hann oft
upp á tónlist og þá oftar en ekki
djass. Robin hefur margsinnis komið
á Djangohátíðina á Akureyri og það-
an var hann að koma ásamt kan-
adíska fiðlaranum Daniel Lapp þeg-
ar þeir tróðu upp hjá Dodda vini
hans á Café Rosenberg. Það var
troðfullt út úr dyrum og ekki nóg
með það heldur hópur fólks á göt-
unni fyrir framan Rosenberg sem
naut tónlistarinnar í veðurblíðunni.
Þetta var líka djass við alþýðuhæfi,
melódísk sveifla sem ekki kafaði of
djúpt í hljóma né tóna. Robin átti
marga góða spretti fyrir hlé og
Djangoáhrifin víkja æ meir fyrir
persónulegri túlkun. Þarna mátti
heyra marga gamla kunningja ss.
Minor swing Djangos, Lady be good
Gershwins í tvígang, þá fögru
Georgiu Brown og meira að segja Á
Sprengisandi eftir Kaldalóns. Rytm-
inn var fínn og Simon tók stutta sól-
óa af og til, byggða á göngubassa.
David Lapp er kröftugur fiðlari með
sterkan tón og góða sveiflu; Cassidy
er rómantískari og líkari Grappelli.
Samleikur þeirra var skemmtilegur
sem og andstæðurnar í sólóum
þeirra. Stundum blés Lapp í kornett
og þótt tæknin væri ekki margbrotin
náði hann skemmtilegum hughrifum
með hálftakkatæki, urri og á stund-
um notaði hann höndina eins og
dempara. Hann lék eina tvo ópusa á
trompetinn en hefði átt að sleppa
því. Þetta kvöld hafði hann ekkert
vald yfir hljóðfærinu, hvernig sem
því er farið endranær.
Kristjana Stefánsdóttir söng með
þeim félögum: Lady be good, sem
var í fínu lagi, Tea for two, þar sem
hún fór á kostum og Bye bye black-
bird, sem var fyrst og fremst dúó
með Símoni bassaleikara og tókst
ekki sem skyldi. Aftur á móti var líf
og fjör í It dońt mean a thing eftir
Ellington þar sem dívan skattaði og
svo enduðu tónleikarnir á miklu sjói
þar sem þeir Nolanbræður og Lepp
þrímenntu á gítarinn í Svörtu aug-
unum.
Benjamin Koppel
Það var ekki eins margt um mann-
inn á Café Rosenberg á laugardags-
kvöldið þegar Benjamin Koppel hinn
danski lék með sænska bassaleik-
aranum Tommy Anderson, Agnari
Má og akureyrska trommaranum
Benedikt Brynleifssyni. Aftur á móti
var ekki síður heitt í kolunum en hjá
Nolan-genginu og tónlistin nokkuð
dýpri og þaulhugsaðri. Það var aftur
á móti ekkert torf sem Benjamin
bauð upp á. Blúsinn sveif yfir vötn-
unum og gospeltónar flutu með.
Verkin voru flest eftir hann, en hann
virðist hafa jafnlítið fyrir því að
semja og afi hans Herman og fað-
irinn Anders. Það er dásamlegt að
hlusta á mann með jafnvoldugan og
fallegan altótón leika án mögnunar,
en á slíku þarf ekki að halda á Ros-
enberg. Ekki spillti kraftmikill og
hugmyndaríkur orgelleikur Agnars
Más. Hann er í sífelldri framför sem
organisti og hefur tekist að móta
persónulegan stíl sem fellur í öðrum
farvegi en píanóleikur hans. Tommy
Anderson er teknískur, sterkur og
sveifluglaður bassaleikari og það var
gaman að kynnast Benedikt hinum
akureyrska, sem spilaði mikið með
burstum þetta kvöld, þótt hann eigi
ansi mikið ólært.
Fínir hljómleikar í ekta Koppel-
stíl. Það er líka diskurinn hans sem
út kom í sumar og nefnist The Ice-
landic Concert (Cowbell music) og fá
má í 12tónum. Hann var tekinn upp í
Listasafni Íslands á menningarnótt í
fyrra af Vigfúsi Ingvarssyni og
bassaleikari Tommy Anderson, en
Eyþór Gunnarsson á píanó. Þarna
eru átta ópusar, allir eftir Benjamín
fyrir utan einn polka eftir Tommy:
Ts Polska Þarna er blúsinn sterkur
eins og á tónleikunum á Rosenberg
og gospeltónar skjóta upp kollinum.
Eyþór á víða fína sólóa, ekki síst í
lokablúsnum, Bluesahil, þar sem
heyra má eyþórskan monkisma.
Polki Tommys er óborganlega
skemmtilegur og melódíuæð Benja-
míns nýtur sín oft eins og í Pilot
Guillemot sem flýtur einhvers staðar
milli söngdans og blús eins og Sunny
eða Stormy Weather gera, svo og
ljóðadjassi á borð við Lullaby for a
puffin. Diskur sem allir íslenskir
djassunnendur ættu að eignast.
Arne Forchhammer
Arne Forchhammer er nú sjötug-
ur en jafnungur í píanóleik sínum og
er hann sló fyrst í gegn um 1970. Það
var skemmtilegt að hann skyldi vera
hér á landi til þess að taka þátt í
minningartónleikum um Þóri Guð-
mundsson, sem fyrst og fremst
hreifst af hinum impressjóníska pí-
anódjassstíl sem Arne leikur í. Með
Arne voru Björn Thoroddsen og Jón
Rafnsson í fyrsta setti þar sem verk
eftir Arne réðu ríkjum, en í öðru
setti bættist Óskar Guðjónsson í
hópinn og voru þá klassísk djassverk
og söngdansar á dagskrá og blés
Óskar yndislega og minnti um sumt
á Joe Lovano á nýju söngdansaskíf-
unni sem Blue Note gaf út. Þeir fjór-
menningar náðu undravel saman,
enda höfðu þeir æft fyrir tónleikana
og stúderað tónlist hver annars.
Lokasettið var djammsessjón til
minningar um Þóri og byrjað á einu
af uppáhaldslögum hans: Stella by
starlight, þar sem Egill B. Hreins-
son lék á píanó, í næsta ópus, sem
var blús, var Þórir Baldursson kom-
inn á píanóið enda sterkasti blús-
djasspíanisti okkar, að því loknu var
röðin kominn að Eyþóri Gunn-
arssyni, sem fór á kostum að vanda.
Tómas R. Einarsson lék á bassa í
þessu djammi og Guðmundur Stein-
grímsson á trommur. Snorri Sigurð-
arson, Ólafur Jónsson og Rúnar
Georgsson bættust í hópinn og
óhætt er að segja að langt er síðan
maður hefur heyrt aðra eins spila-
gleði ríkja hjá íslenskum djassleik-
urum og þetta kvöld. Hótel Borg var
troðfull og mátti finna að bæði hljóð-
færaleikarar og áheyrendur minnt-
ust djassáhugamannsins Þóris Guð-
mundssonar af ósvikinni vináttu.
Frederic Norén
Sænski trommarinn Frederik
Norén hefur um langt árabil stjórn-
að harðboppsveit í anda Jazz Mess-
engers Art Blakeys. Hann kom fyrst
með hljómsveitina til Ísland 1984, en
er nú hér í fjórða skipti. Það er alltaf
gaman að hlusta á Fredrik og dreng-
ina hans, þótt boppið hans geti á
stundum orðið nokkuð hart undir
tönn. Ég held að Fredrik hafi aldrei
komið með eins góða sveit hingað og
í annarri heimsókn sinni þegar
strákar á borð við Frederik Ljung-
kvist og Daniel Karlson voru innan-
borðs. Núna var enginn sólisti sem
ég myndi veðja á sem framtíð-
armeistara Svía, en kannski var ekki
allt sem sýndist því þeir voru nýlega
komnir úr 18 tíma flugi frá mið-
ríkjum Bandaríkjanna. Píanistinn
Jonas Östholm átti þó marga fína
spretti – eitt besta lag á efnisskrá
kvintettsins var eftir hann. Falleg
ballaða sem bar nafn hákarlsins á
spænsku, Tiburón. Annars var ekki
margt frumlegt í tónverkunum sem
voru öll eftir þá félaga; klassískt
harðbopp, stundum með léttri lat-
ínsveiflu og blúsar inn á milli. Norén
minntist gamals vopnabróður fal-
lega: To mr. J. Sá er auðvitað Elvin
Jones sem lést fyrir nokkru. Tromp-
etleikarinn Nils Janson kom hingað
með Norén síðast þegar Jonas Kull-
hammer var aðalstjarnan í bandinu
og blés faglega að vanda. Fredman
og Ekman eiga langa leið fyrir hönd-
um – en aldurinn vefst ekki fyrir
þeim. En eitt er víst; harðbopp-
sveitir heyra fortíðinni til sem list-
rænn aldingarður séu sólistarnir
ekki því betri.
Sjóðandi ágústdjass
DJASS
Café Rosenberg
ROBIN NOLAN TRÍÓ ÁSAMT GESTUM
Robin Nolan og Kevin Nolan gítara, Sim-
on Planting bassa, Daniel Lapp, fiðlu,
kornett og trompet, David Cassidy fiðlu
og Kristjana Stefánsdóttir söngur. Mánu-
dagskvöldið 9.8. 2004.
Café Rosenberg
KVARTETT BENJAMIN KOPPEL
Benjamin Koppel altósaxófón, Agnar Már
Magnússon hammondorgel, Tommy And-
erson bassa og Benedikt Brynleifsson
trommur.
Laugardagskvöldið 14.8. 2004.
Hótel Borg
ARNE FORCHHAMMER OG FÉLAGAR
Arne Forchhammer, Egill B. Hreinsson,
Eyþór Gunnarsson og Þórir Baldursson
píanó, Björn Thoroddsen gítar, Jón Rafns-
son og Tómas R. Einarsson bassa, Guð-
mundur Steingrímsson trommur, Snorri
Sigurðarson flygilhorn, Óskar Guð-
jónsson, Ólafur Jónsson og Rúnar
Georgsson tenórsaxófóna.
Hótel Borg
FREDRIK NORÉN KVINTETTINN
Nils Janson trompet, Peter Fredman altó-
og sópransaxófón, Jonas Östholm píanó,
Lars Ekman bassa og Fredrik Norén,
trommur. Hótel Borg föstudagskvöldið
13.8. 2004.
Vernharður Linnet
Morgunblaðið/Þorkell
Blúsinn sveif yfir vötnum hjá Benjamin Koppel og félögum.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning
Lau 11/9 kl. 18
Lau 11/9 kl. 21
SVIK e. Harold Pinter
frumsýning 23/9 kl. 20
2. sýning 24/9 kl. 20
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni gestasýning
fös 24/9 kl. 20 - sala hafin!
„ekkert slor“
LEIKLISTARNÁMSKEIÐ
skráning stendur yfir
BRIM
Endurnýjun áskriftarkorta
er hafin
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Í kvöld kl 20,
Fö 27/8 kl 20, - UPPSELT,
Lau 28/8 kl 20, Su 29/8 kl 20, - UPPSELT,
Mi 1/9 kl 20, Fi 2/9 kl 20,
Fö 3/9 kl 20 - UPPSELT,
Lau 4/9 kl 20, Su 5/9 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
Sími miðasölu: 568 8000
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00
Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Munið miðasöluna á netinu: www.borgarleikhus.is
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 5/9 kl 14, Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14
Su 26/9 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Foss
Grímuverðlaunin: Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20,
Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20
"ÁN TITILS" e. Ástrósu Gunnarsdóttur
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur
& Ismo-Pekka Heikenheimo
Fö 3/9 kl 20
LÍT ÉG ÚT FYRIR AÐ VERA PALLÍETTUDULA
e. Sveinbjörgu Þórhallsdóttur og
Margréti Söru Guðjónsdóttur
SO e. Cameron Corbett
GRÆNA VERKIÐ e. Jóhann Björgvinsson
Lau 4/9 kl 16
Su 5/9 kl 20
THINGS THAT HAPPEN AT HOME
e. Birgit Egerbladh
Gestadanssýning frá Teater Pero, Svíþjóð
Lau 4/9 kl 20
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9
"ÁN TITILS" e. Ástrósu Gunnarsdóttur
MYNDBAND e. Helenu Jónsdóttur
THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine
WHERE DO WE GO FROM THIS
e. Peter Anderson
Su 5/9 kl 16
MYNDBAND e. Helenu Jónsdóttur
THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine
WHERE DO WE GO FROM THIS
e. Peter Anderson
Fi 9/9 kl 20
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur
& Ismo-Pekka Heikenheimo
Fö 10/9 kl 20
Lau 11/9 kl 20
MIÐASALA 552 3000
Miðasalan er opin frá kl. 10-18
SELJAVEGI 2 • 101 REYKJAVÍK
BEINT FRÁ SVÖRTU NEW YORK
SÖNGSKEMMTUNIN
HARLEM SOPHISTICATE
Aukasýning
Í kvöld fim. 26. ágúst kl. 20.00
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
„Há r i ð e r s í ður en svo fa r i ð að
g rána . I lmand i og fe rsk sýn ing . “
- F reyr Ey j ó l fsson , útva rpsmaður .
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Fös . 27 .08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Lau . 28.08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Lau . 04.09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Sun . 05.09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 11 .09 20 .00 LAUS SÆTI
Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
Fös. 3. sept. kl. 19.30
Lau. 4. sept. kl. 18.00
Sun. 5. sept. kl. 19.30
SÍÐUSTU SÝNINGAR:Í I :
Hefðbundin starfsemi Vetrargarðs Smáralindar fer nú brátt að hefjast
og því kveður SUMARSMELLURINN FAME í September.
Síðustu sýningar á söngleikinn “sem hefur skemmt þúsundum
Íslendinga konunglega í allt sumar” Eru eftirfarandi:
Fim. 9. sept. kl. 19.30
Fös. 10. sept. kl. 19:30
Lau. 11. sept. kl. 19.30
6. sýning: fim. 26. ágúst kl. 20.00
Allra síðasta sýn. lau. 28. ágúst kl. 20.00
Athugið! Aðeins þessar sýningar
Örfá sæti laus