Morgunblaðið - 26.08.2004, Blaðsíða 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 26. ÁGÚST 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
GÆSAVEIÐITÍMINN hófst á föstudaginn var
og lýkur ekki fyrr en 15. mars á næsta ári. Á
meðan er langöruggast fyrir gæsir að halda
sig í þéttbýli enda fáar hættur sem bíða þeirra
þar, nema ef vera skyldi ógætilegur akstur
ökumanna.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Hólpin Reykjavíkurgæs
MJÖG góður ufsaafli hefur fengist á Hala-
miðum, norðvestur af Vestfjörðum, síðustu
vikurnar. Eru dæmi um að aflinn hafi farið
upp í eitt tonn á mínútu og segir Guðmund-
ur Freyr Guðmundsson, skipstjóri á frysti-
togaranum Akureyrinni EA, að skipin hafi
stundum fengið of stór höl. Hann segir
nokkuð hafa dregið úr aflabrögðunum síð-
ustu daga en síðustu vikur hafi verið nánast
samfelld mokveiði. „Fyrstu dagana var hér
ævintýralegt fiskirí, við fengum mjög stór
höl og stundum hreinlega of stór. Þá þurfti
bara að dýfa trollinu smástund í sjó og þá
fylltist allt, aflinn fór allt upp í tonn á mín-
útuna.“
Guðmundur Freyr segir verð á ufsanum
frekar í lægri kantinum en afkoman verði
viðunandi þegar aflabrögðin eru góð.
„Þetta sleppur fyrir horn þegar hægt er að
búa til verðmæti með magninu. Það er líka
gaman þegar vel fiskast og ekki skemmir
veðrið fyrir, hér hefur verið logn, sól og hiti
allan mánuðinn,“ segir Guðmundur Freyr.
Mokveiða ufsa á Halanum
Tonn á
mínútu
Ævintýralegt/D1
STÖÐUG ofveiði í langan tíma leiðir til erfða-
breytinga í fiskistofni sem torveldar uppbygg-
ingu hans til muna. Þetta er mat kanadíska
líffræðiprófessorsins Jeff Hutchings, sem er
einn fremsti fræðimaður Kanadamanna á sviði
þorskrannsókna og hefur hann m.a. rannsak-
að þátt veiða í hruni þorskstofnanna við Kan-
ada.
Hutchings segir að of miklar veiðar á þorsk-
stofnum við Kanada hafi valdið erfðafræðileg-
um breytingum á lífsmynstri þorsksins. Með
gegndarlausri ofveiði áratugum saman hafi
þorskurinn brugðist við með því að verða kyn-
þroska fyrr á lífsleiðinni og hann verði þar af
leiðandi ekki nærri eins stór. Smærri fiskar
skili ekki af sér eins mörgum og lífvænlegum
afkvæmum og eldri og stærri fiskar.
Svokallaður norðurstofn þorsks við Kanada
var á sínum tíma einn stærsti þorskstofn í
heimi, í lok 7. áratugarins voru veiðar úr þess-
um stofni um 2% af öllum heimsaflanum, árs-
aflinn varð mestur um 810 þúsund tonn. Núna
er stofninn hins vegar ekki nema svipur hjá
sjón, enda hefur hann minnkað um 99,9% frá
því að hann var sem stærstur að sögn Hutch-
ings.
Hann segir að nú sé til fordæmi um það
hvað getur í versta falli komið fyrir fiskstofn
og þá megi jafnvel koma í veg fyrir að sagan
endurtaki sig í öðrum þorskstofnum. Hann
bendir á að kanadíski þorskurinn sé náskyldur
þeim íslenska, beri svipuð einkenni varðandi
aldur, stærð og kynþroska. „Íslendingar þurfa
hins vegar ekki að gera annað en að líta til
Kanada til að sjá hvernig á ekki að gera hlut-
ina,“ segir Jeffrey Hutchings.
Ofveiði veldur erfðabreytingu
Þorskstofninn/D2–D3
Þorskur við Kanada
verður smávaxnari
INNAN nokkurra missera
verður allt grunnnám í viðskipt-
um við Háskólann í Reykjavík á
ensku, segir Þorlákur Karlsson,
nýráðinn forseti viðskiptadeild-
ar skólans, í viðtali við Við-
skiptablað Morgunblaðsins í
dag.
Þorlákur segir að tekin hafi
verið upp nokkur fleiri nám-
skeið á ensku í BS-náminu og nú
sé hátt í þriðjungur námskeiða
þar á ensku. Nú þegar fer allt
MBA-nám í HR fram á ensku.
Viðskipta-
nám HR
á ensku
Allir ættu/C8
„ÞETTA var metdagur sumarsins, það
veiddist 101 lax í dag,“ sagði Einar Lúð-
víksson, framkvæmdastjóri veiðifélags
Eystri-Rangár, í gærkvöldi. Þar með var
áin fyrst til að rjúfa 2.000 laxa múrinn og
reyndar gott betur en það en alls hafa 2.053
laxar veiðst í ánni það sem af er sumri.
Metið á einu sumri er tæplega 3.000. Ein-
ar segir að laxinn hafi skilað sér fremur
seint í sumar og með sama áframhaldi verði
metið örugglega slegið.
Hann er ekki viss um hvaða ástæður liggi
að baki þessari miklu veiði en bendir á að í
fyrra hafi fleiri seiðum verið sleppt við ána
en áður. Hann hefur á hinn bóginn enga
skýringu á því hvers vegna laxinn hafi ver-
ið seinna á ferðinni en áður. „Þessi fiskur er
mjög vænn og fallegur. Hann hefur kannski
bara verið úti í sjó að éta,“ segir hann.
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Eystri-Rangá
fyrst yfir 2.000
laxa múrinn
TÖKUR hófust á kvikmynd leik-
stjórans Baltasars Kormáks og
framleiðandans Sigurjóns Sig-
hvatssonar, A Little Trip to Heav-
en, í Laugardalnum á þriðjudag.
Þá hefur þekktur bandarískur
leikari, Peter Coyote, tekið að sér
stórt hlutverk í myndinni, en
hann hefur m.a. leikið stór hlut-
verk í stórmyndum á borð við
E.T., Erin Brockovich og Bitter
Moon eftir Roman Polanski. Því
er búið að ráða alla leikara mynd-
arinnar, sem er eitt stærsta verk-
efni íslensks leikstjóra til þessa,
með kostnaðaráætlun upp á 900
milljónir íslenskra króna. Coyote
kemur til landsins í september.
A Little Trip to Heaven fjallar
um látinn mann með milljón dala
líftryggingu, en systir hans (Julia
Stiles) og eiginmaður hennar
(Jeremy Renner) blandast í málið
ásamt tryggingarannsóknarmanni
(Forest Whitaker) og yfirmanni
hans (Peter Coyote)./45
Tökur hafnar í
Laugardalnum
Morgunblaðið/Árni Torfason
Bandaríski leikarinn Peter Coyote til liðs við A Little Trip to Heaven
Baltasar Kormákur ræðir við Forest Whitaker, aðalleikara myndarinnar,
og Sigurjón Sighvatsson, framleiðanda A Little Trip to Heaven.