Morgunblaðið - 30.08.2004, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2004 C 31
mbl.is/fasteignir/fastis
EINBÝLI - PAR - RAÐHÚS
FLÓKAGATA
Vorum að fá í einkasölu nýlegt 272 fm par-
hús á þessum vinsæla stað sem er kj. og 2
hæðir ásamt 38 fm bílskúr. Eignin skiptist
m.a. í stofu. borðstofu. sólstofu. 4 svefn.,
herb., eldhús., baðherb., gestasnyrtingu.
Geymsla í kjallara sem mætti nýta sem litla
íbúð eða viðb. herb. Fallega gróinn garður
með verönd í suður. Teikningar og nánari
uppl. á skrifstofu
ER LÖGGILTUR FASTEIGNASALI
AÐ SJÁ UM ÞÍN MÁL?
HJÁ FASTEIGNASÖLU ÍSLANDS ER ÞAÐ LÖGGILTUR
FASTEIGNASALI SEM SKOÐAR ALLAR EIGNIR,
VERÐMETUR ÞÆR OG SÉR UM ALLA
KAUPSAMNINGA OG AFSÖL.
ÞETTA TELJUM VIÐ VERA GRUNDVALLARATRIÐI
Í FASTEIGNAVIÐSKIPTUM Í DAG.
VANTAR GÓÐAR EIGNIR Á SKRÁ.
4ra - 6 HERBERGJA
SKELJAGRANDI - BÍLSKÝLI
Vorum að fá í einkasölu fallega 4ra herb.
íb. á 1. hæð í litlu fjölbýli. Stofa með sér
suðurverönd, 3 svefnherb. Um 20 fm sér-
geymsla í kj. Stæði í bílskýli með nýju þaki.
Fallegur garður, nýtekinn í gegn. Verð 14,8
millj.
BLÁSALIR - ÚTSÝNI Vorum að fá í
sölu 125 fm 4ra herb. útsýnisíbúð í nýju
viðhaldsfríu fjölbýli með stæði í bíla-
geymslu. Vandaðar innréttingar. Gott
skápapláss. Fullfrágengin með parketi og
flísum. 2 lyftur. Ákv. sala.
HÆÐIR
BREKKULAND - MOSÓ Vorum að
fá í sölu efri sérhæð í tvíbýlishúsi í Mos-
fellsbæ. Skjólgóður gróinn garður um-
hverfis húsið með góðum sólpalli. Fjögur
svefnherbergi. Sérinng. Þakið er nýlega
endurnýjað, nýlegar hitalagnir í íbúðinni.
Opið
mán.-fim. kl. 9-18,
fös. kl. 9-17.
LANDSBYGGÐIN
SELFOSS - EINBÝLI Vorum að fá í
einkasölu fallegt einb. á 1. hæð ásamt
tvöföldum bílskúr m. hita, vatni og 3 fasa
rafmagni. Stofa, 5 svefnherbergi með
skápum, endurnýjað baðherbergi. Hús og
þak er nýlega yfirfarið og málað. Fallegur
gróinn garður. Húsið er vel staðsett í enda
á botnlangagötu og er stutt í skóla og
þjónustu. Góð eign. Laust mjög fljótlega.
2ja HERBERGJA
VESTURBÆRINN Vorum að fá í
sölu litla 2ja herb. íbúð á 1. hæð í fjölbýli.
Nýl. parket. Áhv. um 2,7 millj. húsbréf.
Góð fyrstu kaup. Verð 6,9 millj.
3JA HERBERGJA
SUÐURHÓLAR Vorum að fá í einka-
sölu fallega mikið endurn. 3ja herb. íb. á
2. h. Í litlu fjölbýli. Sérinng. Eldhús og bað
nýl. endurnýjað. Borðkrókur. Bað með
baðkari og glugga. l.f. þvottav. og þurk
ara. Góð stofa með suðursvölum, trúlega
mætti byggja sólskála. Húsið er nýlega
málað að utan svo og sameign að innan
og gaflar klæddir.
ÆSUFELL Vorum að fá í einkasölu
góða 3ja herb., 92 ferm. íb. í lyftuhúsi.
Parket og flísar. Góðar suðvestursvalir.
Áhv. um 6,5 millj. húsbr. ÁKV. SALA.
VESTURBERG Vorum að fá í einka-
sölu 3ja herb. útsýnisíbúð í lyftuhúsi. Stofa
með suðaustursvölum. Nýl. plastparket á
gólfum. Áhvíl. um 9,5 millj. Verð 10,4 millj.
VANTAR 2-3JA
HERBERGJA ÍBÚÐIR.
MIKIL EFTIRSPURN.
NÁNARI UPPL.
Á SKRIFSTOFU.
Í SMÍÐUM
MIÐSALIR
Vorum að fá í einkasölu fallegt einb. á 2
hæðum m. innb. bílskúr, 260 fm. Mjög
stórar svalir. Afh. tilb. til innréttinga að
innan eða lengra komið, fullfrág. að utan.
Teikningar og nánari uppl á skrifstofu.
ATVINNUHÚSNÆÐI
EIRHÖFÐI Vorum að fá í sölu 1150 fm
atvinnuhúsnæði á 3 hæðum, mjög vel
staðsett á góðri lóð. Húsið býður upp á
marga möguleika; sali með innkeyrsludyr-
um, skrifstofur og óinnréttað rými. Glæsi-
legt útsýni. Nánari uppl. veitir Haukur Geir.
MIÐSVÆÐIS Til leigu um 200 fm skrif-
stofuhæð í góðu steinhúsi miðsvæðis í
Reykjavík. Laust strax. Nánari uppl. á
skrifstofu.
INGÓLFSTRÆTI Vorum að fá í sölu
eða til leigu í hjarta bæjarins um 325 hús-
næði sem er að mestu á jarðhæð. Þetta er
áhugaverð eign. Nánari uppl. veitir Haukur
Geir.
TIL LEIGU Um 275 fm skrifstofuhús-
næði á 3. hæð við Skúlatún LAUST
STRAX.
SKÚLATÚN - SALA Til sölu 3 skrif-
stofuhæðir í sama húsi, 151 fm, 275 fm og
275 fm eða samtals um 700 fm. Tvær
hæðanna eru í leigu. Nánari uppl. gefur
Haukur Geir.
SUMARBÚSTAÐIR
LÓÐ Í KJÓS Góð sumarhúsalóð við
Sandá í Kjós hjá Meðalfellsvatni. Allt tilbú-
ið fyrir sumarhúsið þitt. Innkeyrsla, 2200 L
rotþró, Ný girt. Slétt tún. Uppl. á skrifstofu.
VANTAR SUMARBÚSTAÐI
OG LÓÐIR Á SKRÁ.
NÚ ER RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ SKRÁ HJÁ OKKUR.
VANTAR ALLAR GERÐIR
AF EINBÝLUM. MIKIL
EFTIRSPURN. NÁNARI
UPPL. Á SKRIFSTOFU.
Þ
egar keypt er notað hús-
næði er það oft gert með
því hugarfari „að það sé
hægt að gera það upp í ró-
legheitunum“. Sú var raunin hjá eig-
endum eldhússins sem hér er sýnt.
Hjónin hafa verið að dunda við
breytingar og endurbætur á íbúðinni
um nokkurra ára skeið, svo sem að
skipta um gólfefni, smíða varanlegar
innréttingar og nú síðast var skipt
um eldhúsinnréttingu. Það er vægt
til orða tekið að segja að um byltingu
sé að ræða. Í stað gamallar en þó
snyrtilegrar innréttingar, sem var
barn síns tíma, er komin sprautu-
lökkuð nýtískuinnrétting, með öllum
nýjustu tækjum og ljósabúnaði.
„Það sem er kannski óvenjulegast
hér,“ segir hin ánægða húsmóðir og
eigandi eldhússins, „er það að gólf-
flísarnar eru látnar halda áfram upp
gluggavegginn og alla leið upp í loft,
en þær eru einnig lagðar inn í
gluggakistuna. Ég valdi aflangar
flísar frá Agli Árnasyni, bæði vegna
þess að mér finnst þær fallegri, en
ekki síður vegna þess að ég held að
þær láti eldhúsið virka breiðara.
Flísalögn tókst alveg sérstaklega vel
og er stolt heimilisins, en Freysteinn
Björgvinsson sá um hana fyrir okk-
ur,“ segir hún. Gamla innréttingin
var þessi dæmigerða u-innrétting,
en stærsta breytingin er líklega sú
að opna að gluggaveggnum. Þessi
leið var valin til að gera eldhúsið
bjartara og ramma gólfflötinn ekki
of mikið af, en fyrir vikið virkar rým-
ið bæði stærra og bjartara. Flísarn-
ar frá Álfaborg, sem eru á milli
skáps og bekkjar, eru í sandhvítum
lit og tóna skemmtilega við gólfflís-
arnar.
Létt yfirbragð
Innréttingin er að mestu leyti
hönnuð af Jóhanni Haukssyni smið,
en hann lagði út frá óskum eig-
endanna sem höfðu nokkuð mótaðar
hugmyndir um það hvernig innrétt-
ingin átti að líta út.
„Ég vildi fá mikið skápapláss og
bjart og gott eldhús sem þægilegt
væri að vinna í,“ segir húsmóðirin.
„Maður áttar sig kannski ekki á því í
upphafi, að þótt maður hafi einhverj-
ar mótaðar hugmyndir um útlit hef-
ur maður ekki þekkingu til að útfæra
þær á skynsamlegan hátt. Þess
vegna er svo mikils virði að hafa
reyndan fagmann sem getur ráðlagt
manni. Jóhann smiður reyndist okk-
ur afar vel í þessu sambandi og ég vil
meina að hann sé algjör snillingur,“
segir hún. „Ég vildi ekki hafa við í
innréttingunni vegna þess að mér
fannst vera kominn svo mikill viður
inn í íbúðina hjá okkur. Ég held líka
að eldhúsið hefði virkað þunglama-
legra ef sú leið hefði verið farin.
Sprautulakkaða innréttingin býður
einnig upp á þann möguleika að geta
skipt um lit ef maður verður leiður á
honum. Það þarf í raun ekki annað
en skrúfa höldurnar af og láta
sprauta hurðirnar upp á nýtt.“
Einn skápurinn er með sandblás-
inni glerhurð og það var gert til þess
að tengja eldhúsið betur við gang og
borðstofu, þar sem fyrir er sérsmíð-
aður skápur með sandblásnu gleri
sem Jóhann smíðaði einnig fyrir
nokkru.
Öllu er afar haganlega komið fyrir
í eldhúsinu. Allar hirslur fyrir neðan
vinnuborð eru útdraganlegar og
skúffur fyrir potta og pönnur eru
sérstaklega breiðar. Efri skápar ná
alla leið upp í loft. Stálísskápurinn
nýtur sín sérstaklega vel með bláa
litnum í innréttingunni, en hann er
einnig í stíl við tækin sem öll eru
með áferð burstaðs stáls. Til hliðar
við eldhúsið var gamall búrskápur
og það eina sem hann þurfti til að
komast í nýjustu tísku voru nýjar
hurðir í stíl við innréttinguna.
Punkturinn yfir i-ið
Ónefnd er lýsingin í eldhúsinu
sem eigendur segja að sé með ein-
dæmum vel lukkuð. „Helgi í Lúmex
aðstoðaði okkur við að útfæra alla
lýsinguna og útkoman er hreint út
sagt stórkostleg,“ segir húsmóðirin.
„Ég þoli illa flúrperulýsingu og því
ráðlagði Helgi okkur að velja litla
kubba með birtustilli sem vinnulýs-
ingu undir efri skápana. Þeir eru
ekki bara góðir til síns brúks, heldur
alveg einstakt augnayndi. Baldur
Björgvinsson rafvirki sá um raflagn-
irnar, sem voru miklar og fólu m.a. í
sér talsvert múrbrot.
Lokafrágangur eldhússins er ekki
alveg búinn. „Við eigum eftir að
skipta út eldhúsborðinu og ganga frá
nokkrum listum, en það eru smáat-
Eldhús fær
andlitslyftingu
Morgunblaðið/ÞÖK
Ótrúlegt en satt. Ný innrétting, skápar og bekkur undir eldhúsglugga eru horfin, ný tæki og lýsingin er í aðalhlutverki.
Morgunblaðið/Jim Smart
Gamla eldhúsinnréttingin var dæmigerð U-innrétting og dramatískasta breyt-
ingin er kannski sú að nú er bekkurinn undir glugganum horfinn og gluggavegg-
urinn er flísalagður.
riði miðað við það sem búið er. Það
eina sem hefur valdið mér heilabrot-
um núna upp á síðkastið er að velja
gardínur fyrir eldhúsgluggana, en
mér finnst að ég megi til með að hlífa
nágrönnunum við því að horfa alltaf
inn í fallega eldhúsið mitt,“ segir
húsmóðirin. „En ætli ég fái mér ekki
bara einhverjar fallegar einfaldar
felligardínur í ljósum náttúrulit úr
þunnu hörefni.“
gudlaug@mbl.is