Morgunblaðið - 30.08.2004, Side 48

Morgunblaðið - 30.08.2004, Side 48
48 C MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þ að er stór stund í lífi allra, sem á annað borð ná því takmarki, að verða pabbi og mamma. Vissulega getur það tekið á taugarnar að sinna misjafn- lega sífrandi ungum, en þær stund- ir eru fljótar að gleymast þegar litlu ungarnir geisla af kæti og brosa slefandi framan í foreldra sína. En á hinum þreytandi stundum barnauppeldis koma efri árin örugglega aldrei upp í huga þeirra sem eru ung og ástfangin en stund- um æði pirruð. Þó eiga þau eftir að uppgötva þau sannindi að aðeins eitt er dásamlegra en að vera pabbi og mamma, það er að vera afi og amma. Jón og Gunna voru ekki svo lítil og húsið þeirra ekki heldur og þeim þótti bara talsvert vænt um hvort annað og ekki nóg með það; þau voru afi og amma svo einhvern tíma hafði þeim greinilega tekist að eignast lítil börn við litla tjörn. Stóru stundirnar voru þegar sól- argeislarnir komu í heimsókn og ekki spilltu nöfnin, þar voru þau komin aftur, þau Jón og Gunna. Auðvitað þvertóku þau fyrir að það skipti þau nokkru máli; innst inni vissu þau betur, en fóru leynt með það. Nú var runninn upp enn einn há- tíðisdagurinn; litli Jón og litla Gunna voru væntanleg því foreldr- arnir ætluðu að sjálfsögðu í golf á þessum stórkostlega sólríka degi. Eins og alltaf þegar þessa góðu gesti bar að garði var það þegjandi samkomulag Jóns og Gunnu að leggja naggið til hliðar, þetta nagg sem hafði aukist þó nokkuð eftir að bæði höfðu hætt að vinna og höfðu ótakmarkaðan tíma í félagsskap hvors annars. Ef frómt skal frá sagt þá kom reyndar naggið oftast frá kvenleggnum, ekki síst þegar Jón dottaði í sófanum með Morg- unblaðið fallandi yfir andlitið, þá fuku orðalepparnir „Þú þarna, herra Sófus, ert ekkert að ómaka þig við að slá blettinn eða fara út með ruslið, hvað þá að manna þig upp í að mála gluggana“. Heyrn herra Sófusar var farin að daprast en á því voru dagaskipti; heyrnin batnaði mikið þegar gesti bar að garði en var afleit þegar þau voru tvö ein heima. En nú var von á sólargeislunum og átakið að ýta nagginu til hliðar var hafið, átak sem yfirleitt gekk vel því nú skyldi vera hátíð í bæ. Friðslit á hátíðarstundu Svo komu þau rúllandi inn úr dyrunum, litli Jón og litla Gunna. Töskum með dóti þeirra kastað á tröppurnar því foreldrarnir voru að flýta sér. „Við verðum að flýta okk- ur, við megum ekki missa þennan dýrlega dag, við verðum að koma okkur á teiginn.“ Svo voru þau þotin, það var líka allt í lagi fannst Jóni og Gunnu, sólargeislarnir voru komnir. Auðvitað varð þetta dýrlegur dagur, mokað í sandkassa, bolti elt- ur um lóðina, svolítið rifist en gera það ekki öll systkin? En svo kom auðvitað að því að þörfin kallaði og Gunna litla heimtaði að amma kæmi með sér á klósettið, sem ekki var nema sjálfsagt. En þá gerðist það. Um leið og Gunna litla kom inn á baðið gretti hún sig og sagði með hreinskilni barnsins „Oj bara, það er fýla hérna“. Það var eins og sprenging hefði orðið. Þarfir barnsins gleymdust með öllu, amma Gunna reif upp baðgluggann og æpti út: „Viltu hundskast hing- að, Jón, á stundinni.“ Jón vissi af langri reynslu að þegar þessi staða væri komin upp var heillavænlegast að hlýða. Og drattaðist inn. Hér var nefnilega komið við auman blett, það var einmitt ólykt á baðinu sem hafði verið helsti ásteytingarsteinn naggsins að und- anförnu. Í fyrstu var óstyrkum höndum Jóns kennt um ólyktina svo hann reyndi af veikum mætti að verja sig: „Ég get svarið að ég sest alltaf eins og þú heimtaðir.“ En hún var fyrir löngu búin að segja honum fullum fetum að það væri eitthvað annað og meira sem ólyktinni ylli og það yrði að fá ein- hvern pípulagningamann – „já, með vit í hausnum“ var hún vön að bæta við – til að finna orsökina. Afi og amma strunsuðu hvort í sína áttina, Jón að símanum til að reyna að finna pípulagningamann með vit í hausnum, en Gunna fór að skipta á nöfnu sinni sem stóð hágrátandi í eigin polli. Bjargráðið fannst Engum sögum fer af innbúi höf- uðs þess pípulagningamanns sem Jón náði í. Eftir að hann hafði lýst ólyktinni, sem öðru hvoru gaus upp á baðinu, var spurt á hinum enda línunnar: „Heyrirðu stundum svona glop, glop hljóð eftir að það hefur runnið úr handlauginni eða baðkerinu?“ Jú, það stóð heima, þetta hljóð var lóðið. Þá fékk Jón skýringu á því hvað orsakaði hljóð- ið. Eftir að vatnið er unnið úr handlauginni eða baðkerinu mynd- ast undirþrýstingur í frárennsl- isrörinu, vatnið er á leiðinni niður eins og stimpill, ekki meira vatn að hafa úr tækjunum og þá sogast vatnið úr lásnum og loft streymir inn, enginn undirþrýstingur leng- ur. En eftir stendur vatnslásinn tómur og fnykur úr skólplögninni á greiða leið upp í baðið Þá er best að slá botninn í söguna af Jóni og Gunnu og sólargeislunum þeirra. Pípulagningamaðurinn kom og snaraði litlu áhaldi úr plasti á frá- rennslið frá handlauginni, þetta áhald nefnist vakúmventill, á góðri íslensku undirþrýstingsventill. Hann er þeirrar náttúru að þegar undirþrýstingur verður í frárennsl- isrörum hleypir hann lofti inn í lögnina og þá tæmist enginn vatns- lás og nú finnur Gunna litla enga fýlu á baðinu hjá afa og ömmu. Og naggið verður að finna sér aðrar forsendur. Sólargeislinn sem varð friðarspillir Gráa áhaldið á myndinni er ventillinn sem bjargaði heimilisfriði hjá Jóni og Gunnu. Kannski er þörf á slíku áhaldi víðar? Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is Víkurbraut 46, Grindavík Sími 426 7711 Fax 426 7712 www.es.is EignamiðlunSuðurnesja Vantar allar gerðir eigna á skrá Verðmetum samdægurs Sigurður V. Ragnarsson, löggiltur fasteignasali Snjólaug Jakobsdóttir, sölumaður Dalbraut 3 - e.h. - Grindavík Góð 4ra herb. 93,2 ferm. íbúð á 2. hæð í tvíbýli. Sérinngangur. Nýjar flísar á eld- húsi, holi, þvottaherb. og baði. Gler og gluggar voru teknir í gegn fyrir 6 árum. Nýtt þak. Stærð íbúðarinnar kemur á óvart og er gólfflötur stærri en segir til í FMR. Verð kr. 9.300.000. Gerðavellir 9 - Grindavík Gott endaraðhús, sem skiptist í stofu, borðstofu, sjónvarpshol og 3 svefnherb. (möguleiki á 4 svefnherb.). Góðar inn- réttingar, allt nýlegt á baði, nýr þakkant- ur, loft viðarklædd. Verð kr. 14.700.000. Vesturbraut 6 - Grindavík Einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er 149 fm, ásamt 54 fm bílskúr. Hugguleg eign, sem var töluvert endurnýjuð á ár- unum 1998-2001, m.a. eldhús og bað- herb. Rúmgóð eign. Mikið útsýni. Verð: 16.200.000. Gerðavellir 48A - Grindavík Gott 88,6 ferm. parhús, sem skiptist í stofu, sjónvarpshol og tvö svefnherb. Geymsluris yfir húsinu. Bílskúrsréttur. Skipt hefur verið um neysluvatnslagnir. Möguleiki á skiptum fyrir stærri eign. Verð 9.000.000. Arnarhraun 15 Nýlegt fallegt parhús ásamt bílskúr. Fal- legar innréttingar. Hiti í gólfum á bað- herb., forstofu og þvottaherb. Halogen- lýsing. Verð: 15.500.000. Borgarhraun 8 - Grindavík Mjög hugguleg eign. Húsið er 119,4 ferm. ásamt 32,2 ferm. bílskúr. Húsið skiptist í stofu, hol, gang og 3 svefnherb. Nýtt parket á stofum. Eldhúsinnrétting nýleg og mjög falleg, nýjar flísar á gólfi, nýleg eldavél og vifta. Baðinnrétting ný- leg, veggir og gólf nýlega flísalagt. Hurð- ir spónlagðar. Búið er að endurnýja skolplagnir. Nýlegt járn á þaki. Góður staður. Verð: 15.000.000. Leynisbraut 6 - Grindavík Sérlega vandað og snyrtilegt einbýlis- hús, ásamt bílskúr. Geymsla í bílskúr. 4 svefnherb. Í eldhúsi er nýleg innrétting. Stór sólpallur á lóð, sem er girt og rækt- uð. Parket nýlega lakkað. Góður staður. Verð: 19.800.000. Ránargata 3 - Grindavík Mjög gott einbýlishús, sem skiptist í stofu, hol, sólstofu, 3 svefnherb. (mögu- leiki á 4). Húsið er 180,1 ferm. og bílskúr 36,8 ferm. Í eldhúsi er nýleg og góð inn- rétting, eldavél, ofn og háfur, parket á gólfi. Mjög góð og nýleg sólstofa inn af stofu, þaðan er útgeng á lóð og heitan pott, flísar á gólfi og hiti. Heitur pottur er í sérsólstofu. Glæsilegt og eigulegt hús. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Kári Fanndal Guðbrandsson, Sigrún Sigurpálsdóttir, lögg. fasteignasali. S. 562 1200 F. 562 1251 4ra herbergja og stærra Snæland - 4 svefnherb. Höfum í einkasölu 5 herbergja enda- íbúð á efstu hæð í þessu fallega húsi á frábærum stað í Fossvoginum. Íbúðin er góð stofa, 4 svefnherbergi, hol, eld- hús og baðherb. Stórar suðursvalir. Hús í mjög góðu lagi. Kjörið tækifæri fyrir þá sem þurfa 4 svefn- herb./vinnuherb. Verð: 16,5 millj. Raðhús - einbýlishús Hlíðarvegur Einstaklega vel staðsett hús við Hlíðar- veg. Húsið er hæð og ris, 152,1 fm og bílskúr sem er 44,8 fm. Bílskúrinn er innréttaður sem 3ja herb. íbúð. Eignin er öll í útleigu og eru leigutekjur góðar. Góður garður með stórum sólpöllum. Frábær staðsetning. Verð: 24,9 millj. Atvinnuhúsnæði Tangarhöfði Atvinnuhúsnæði, tvær hæðir, samt. 594,5 fm. Mjög góður staður. Húsnæði sem býður uppá ýmsa nýtingamögu- leika. Laust. Smiðjuvegur Atvinnuhúsnæði, götuhæð og önnur hæð, samt. ca 335 fm. Á götuhæðinni er upplagt lagerhús- næði og uppi skrifstofu/þjónusturými. Laust. Verð: 16 millj. Sumarhús Sumarbústaður Nýr 60 fm sumarbústaður á fallegum stað í Hvítársíðu, Borgarfirði. Húsið er ófrág. inni en fullb. utan. Mikið útsýni. Kjörið tækif. fyrir fjölsk. sem vill og getur klárað húsið að innan eftir sínu höfði. Verð: 5,0 millj. Tilboð óskast! Sumarhús Sumarhús í landi Hraunborga, Grímsnesi. Húsið er hæð og manngengt svefnloft. Húsið er á rólegum stað, falleg lóð. 2 herbergja 3ja herbergja Gullteigur 3ja herb. björt og góð risíbúð í þessu gullfallega húsi. Frábær staður. Ath. möguleiki að fá keyptan bílskúr með þessari íbúð. Laugavegur Höfum í einkasölu einbýlishús sem er kjallari/jarðhæð og hæð, 77,4 fm. Bíl- skúr. Húsið er mjög mikið endurnýjað, t.d. eldhús, baðherb., gólfefni, þak, raf- magns- og vatnslagnir. Hugguleg bak- lóð með góðri aðkomu. Þetta er draumaeign unga fólksins, sérstak- lega ef það á hund. Laust. Ath. Húsið stendur á eignarlóð og það má stækka það mikið eða byggja nýtt. Verð: 12,5 millj. Snorrabraut 2ja herbergja 54,6 fm íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi. Íbúðin er rúmgóð stofa, gott svefn- herb. (inn í bakgarð), eldhús, bað- herb. og gangur. Góð íbúð. Verð: 9,0 millj.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.