Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 1

Morgunblaðið - 22.10.2004, Side 1
Fá›u koss frá afmælisbarninu ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N /S IA .I S N A T 24 84 1 0 9/ 20 04 . Fagna fyrsta vetrardegi Skólavörðustígurinn mun lifna við á laugardag | Minnstaður Bakar fyrir Norðmenn Guðrún Rúnarsdóttir með kökubók í Noregi | Daglegt líf Kristín Rós fékk viðurkenningu í Lausanne  Arnar og Gecas til FH  Skallagrímur lagði Grindavík STOFNAÐ 1913 288 . TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is HUGSANLEGT er, að getn- aðarvarnapillan dragi úr líkum á, að konur fái hjartasjúkdóma og sumar tegundir krabba- meins. Er það niðurstaða um- fangsmikillar rannsóknar í Bandaríkjunum á meira en 160.000 konum. Niðurstaðan gengur þvert á niðurstöðu fyrri rannsókna, sem virtust sýna, að pillan yki ein- mitt hættuna á fyrrnefndum sjúkdómum. Nú er talið, að 10% minni líkur séu á, að konur, sem hafa tekið pilluna í eitt ár eða lengur, fái þá. Á það sérstaklega við um hjartaáföll, hjartakveisu og væga heilablæðingu og einnig krabbamein í legi og eggja- stokkum. Einn vísindamann- anna, dr. Rahi Victory, telur hugsanlegt, að hormónið estro- gen, sem er í mörgum getn- aðarvarnapillum, hafi þessi áhrif og dragi úr bólgum í æð- um. Sumir vísindamenn taka þess- ari niðurstöðu með fyrirvara og benda á að óhrakið sé að pillan geti aukið líkur á krabbameini í brjóstum og í leghálsi. Pillan sögð vera holl hjartanu Fíladelfíu. AP. LJÓST þykir, að kosningabaráttan í Bandaríkjunum verði sú dýrasta í sögunni, en áætlað er, að kostnaður- inn fari yfir 270 milljarða íslenskra króna. Kemur þetta fram í mati óháðrar stofnunar, Center for Responsive Politics, en hún telur, að slagurinn um forsetaembættið muni kosta 70 millj- arða kr. en baráttan um þingsætin, sem jafnframt er kosið um, 200 millj- arða kr. Larry Noble, forstöðumaður stofn- unarinnar, sagði, að um væri að ræða 30% aukningu frá kosningunum fyrir fjórum árum og taldi hann, að fjár- austurinn nú væri varlega áætlaður. Líklega yrði hann meiri en stofnunin teldi. Ein af ástæðunum fyrir auknum fjárframlögum er, að hópar, sem ekki tengjast flokkunum beint en styðja ákveðinn frambjóðanda, hafa aldrei látið meira til sín taka en nú. Er talið, að áróður þeirra muni kosta rúmlega 27 milljarða kr. Á Bandaríkjaþingi hefur verið lagt fram frumvarp um að takmarka afskipti þessara hópa af kosningum. Tvísýn barátta Fylgi forsetaframbjóðendanna, þeirra George W. Bush forseta og Johns Kerrys, virðist vera hnífjafnt. Í Reuters-könnun, sem birt var í gær, hafði Bush eitt prósentustig umfram Kerry á landsvísu en í könnun AP- fréttastofunnar, einnig frá í gær, var Kerry með þrjú prósentustig umfram Bush. Innan við helmingur eða 47% voru ánægð með frammistöðu Bush almennt en það hefur aldrei boðað gott fyrir forseta, sem sækist eftir endurkjöri, ef sú tala fer undir 50%. Dýrustu kosningar í sögunni Washington. AP, AFP. Skoðanakannanir sýna jafnt fylgi Keppinautarnir Bush og Kerry. „VIÐ erum mjög ánægð með þennan úrskurð Hæsta- réttar og hér ríkir gleði,“ sagði Björn Sigurðsson í Út- hlíð þar sem hann var að fagna niðurstöðu Hæsta- réttar í þjóðlendumálinu með sínu fólki á Hótel Sögu í gærkvöldi. Björn segist telja að úrslit málsins hafi hangið á bláþræði. „Það sem gerði þarna gæfumuninn var landamerkjabréf Brynjólfs biskups frá 1646 þar sem kveðið er á um landamerkin. Í því bréfi klykkir hann út með að svona hafi landamerkin verið að fornu hefðarhaldi. [–] Ég sendi Brynjólfi biskupi mínar bestu kveðjur,“ segir Björn. Hæstiréttur kvað í gær í tveimur dómum upp úr um að land innan landamerkja nokkurra jarða í upp- sveitum Árnessýslu skyldi ekki teljast þjóðlenda en komst á hinn bóginn að þeirri niðurstöðu að Fram- afréttur og afréttur norðan vatna skyldi teljast þjóð- lenda. Niðurstaða Hæstaréttar í málunum tveimur, sem er í öllum meginatriðum í samræmi við úrskurði óbyggðanefndar, telst vera fordæmisgefandi fyrir þau landsvæði sem óbyggðanefnd á eftir að fjalla um. Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir mikilvægt að niðurstaða Hæstaréttar um tiltekin grundvall- aratriði í þessu máli liggi nú fyrir. „Ég tel ekki að þetta sé neinn ósigur fyrir ríkið. Tilgangurinn var ekki síst að fá það á hreint í eitt skipti fyrir öll hvernig þessum málum væri háttað,“ segir Geir./6 „Sendi Brynjólfi biskupi mínar bestu kveðjur“ Morgunblaðið/Kristinn „Hér ríkir gleði.“ Björn Sigurðsson, bóndi í Úthlíð, og vandamenn fagna hæstaréttardómi í þjóðlendumálinu. SAMNINGANEFND kennara treysti sér ekki til að samþykkja tillögu sem fara átti bil beggja og rík- issáttasemjari lagði fram á samningafundi í gær. Segja þeir stranda á launaliðunum. Samninganefnd sveitarfélaga samþykkti tillögurnar fyrir sitt leyti og segir formaður nefndarinnar að nú séu sveit- arfélögin búin að teygja sig eins langt og mögulegt er. Upp úr slitnaði í viðræðum deilenda í gær og hefur ríkissáttasemjari ekki boðað til næsta fundar fyrr en eftir tvær vikur, eða 4. nóvember nk. Forsvarsmenn foreldrasamtakanna Heimilis og skóla segja viðræðuslitin mikil vonbrigði. „Þetta er hræðilegt,“ segir Elín Thorarensen hjá samtökun- um. Hún segir foreldra komna í þrot með úrræði. „Maður skilur ekki hvernig hægt er að bjóða börn- um landsins upp á þetta miðað við þær umræður sem verið hafa undanfarna daga. Og það á að bjóða þeim meira af þessu sama.“ Þórólfur Árnason borgarstjóri lýsti yfir þungum áhyggjum af stöðu deilunnar í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi. „Ég lagði fram tillögu í [gær]- morgun þar sem ég reyndi að fara bil beggja. Það skilaði ekki árangri og reyndust ekki forsendur fyr- ir áframhaldandi viðræðum á þeim grunni eða nein- um öðrum grunni því það voru engar aðrar tillögur uppi,“ sagði Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemj- ari við Morgunblaðið. Birgir Björn Sigurjónsson, formaður samninga- nefndar launanefndar sveitarfélaganna, segir að tillögur sáttasemjara hafi verið umdeildar meðal nefndarmanna sinna en engu að síður hafi niður- staðan verið sú að samþykkja þær. Hann segir samninganefnd sveitarfélaganna ekki hafa óskað eftir aðkomu ríkisstjórnarinnar að deilunni. Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, er á öðru máli og segir að ríkisstjórnin verði að taka ábyrgð og deilan leysist ekki nema með auknu fjármagni, sem koma verði frá ríkinu. Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögðum ráðherra í gær vegna málsins en enginn þeirra gaf færi á sér. Kennaradeila í hnút Næsti samningafundur eftir tvær vikur  „Þetta er hræðilegt,“ segir fulltrúi Heimilis og skóla  Borgarstjóri lýsir yfir þungum áhyggjum  Kennaradeilan/4 Sveitarfélögin eru nú búin að teygja sig eins langt og mögu- legt er í sáttaátt í kjaradeilu kennara, að sögn Birgis Björns Sig- urjónssonar, formanns samninga- nefndar sveitarfélaga. „Við erum algjörlega á brúninni. Við vorum langt teygð hér áður. En nú höf- um við gengið það langt að ég veit að mörgum sveitarstjórnarmann- inum finnst að við höfum sprengt alla ramma.“ Ábyrgðarleysi að ganga lengra Eiríkur Jónsson, formaður Kenn- arasambandsins, segir að eina lausnin sem nú blasi við sé að ríkisstjórnin komi að málum með auknu fjár- magni. „Hún þarf að koma að þessum málum með því að við- urkenna að skiptingin milli ríkis og sveitarfélaga er röng og hefur verið það lengi og það er tími til kominn að ráðherrarnir axli sína ábyrgð. Þeir hafa ríka ábyrgð í þessu máli og þeir geta leyst [deiluna] með því að koma af al- vöru inn í þetta mál með pen- inga.“ Ríkið komi með peninga Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.