Morgunblaðið - 22.10.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.10.2004, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VIÐRÆÐUSLIT Upp úr slitnaði í launadeilu grunn- skólakennara á samningafundi seinnipartinn í gær. Engar fyrirætl- anir eru um samningafund fyrr en eftir hálfan mánuð nema deiluaðilar ákveði annað. Samninganefnd kennara mun hitt- ast eftir helgi til að fara yfir stöðuna. Telst ekki til þjóðlendna Hæstiréttur staðfesti í dag þá nið- urstöðu Héraðsdóms Suðurlands, að land innan landamerkja jarða bænda í uppsveitum Árnessýslu teljist ekki til þjóðlendna. Aftur á móti staðfesti dómurinn úrskurð óbyggðanefndar um að Framafréttur, eins og hann er afmarkaður í niðurstöðu úrskurðar óbyggðanefndar, teljist til þjóðlendu. Flytja fyrir sjóherinn Systurfélag Atlantsskipa, Trans- atlantic Lines, hefur skrifað undir 1,3 milljarða króna samning við banda- ríska sjóherinn um flutninga hersins milli Singapúr og eyjunnar Diego Garcia í Indlandshafi. Dýrar kosningar Áætlað er, að kostnaður við kosn- ingarnar í Bandaríkjunum, forseta- kosningarnar og kosningar til þings, verði að minnsta kosti 270 milljarðar króna, sá mesti í sögunni. Er það 30% aukning frá síðustu kosningum. Virð- ist fylgi frambjóðendanna vera jafnt. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Viðhorf 32 Viðskipti 16 Umræðan 32/34 Erlent 20/21 Bréf 34 Heima 22 Minningar 35/41 Höfuðborgin 24 Dagbók 44/46 Landið 24 Menning 48/57 Austurland 25 Leikhús 48 Akureyri 26 Bíó 54/57 Suðurnes 27 Ljósvakamiðlar 58 Daglegt líf 28/29 Veður 59 Forystugrein 30 Staksteinar 59 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #          $         %&' ( )***                      Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn- ast í beinu flugi frá Íslandi. Budapest er nú orðinn einn aðal áfanga- staður Íslendinga, enda hefur hún að bjóða einstakt mannlíf, menn- ingu og skemmtun. Munið Mastercard ferðaávísunina Helgarferð 28. október til Budapest frá kr. 19.990 Verð kr. 19.990 Flugsæti til Budapest 28. okt. með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð. Netverð Topphótel í hjarta Budapest frá 2.900 kr. per nótt, per mann. Kynning – Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað frá Fræðslumiðstöð- inni í fíknivörnum. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ Reykjavík- ur mun bjóða upp á dagvist fyrir fötluð börn fyrir hádegi í frí- stundaheimilum borgarinnar frá og með deginum í dag – í umsjón stuðningsfulltrúa skólanna. For- eldrar fatlaðra barna höfðu áður lýst yfir mikilli óánægju með að börn þeirra nytu ekki þjónustunn- ar meðan á verkfalli gunnskóla- kennara stæði. Að sögn Arthurs Morthens, for- stöðumanns þjónustusviðs Fræðslumiðstöðvarinnar, nær þjónustan til um sjötíu fatlaðra barna og byggist ákvörðunin á lög- um um málefni fatlaðra sem heim- ila stuðning og þjónustu við þann hóp. Ákvörðunin er tekin með vitn- eskju og samþykki Kennarasam- bands Íslands og undanþágunefnd- ar, að hans sögn. Flestir fá þjónustuna frá og með mánudeginum Fyrstu nemendurnir fá þjón- ustuna frá og með deginum í dag en aðrir frá og með mánudeginum. Miðað er við að stuðningsfulltrúar og starfsfólk skóla komi að stuðn- ingi við þá nemendur sem þeir hafa sinnt í dagvistarþjónustu skólanna, og fer hún fram í frí- stundahúsnæði ÍTR milli 8 og 13. Ekki er um kennslu að ræða, að sögn Arthurs, og engin kennslu- gögn eru notuð. Búið er að senda út viðmiðunar- lista til skólastjórnenda með nöfn- um um sjötíu barna en að sögn Arthurs hafa þeir heimild til að bæta nöfnum á listann telji þeir að fleiri börn eigi þar heima, skv. lög- um um málefni fatlaðra. Að sögn Arthurs er það háð samkomulagi við fulltrúa ÍTR í hverju frístunda- heimili fyrir sig hvort barnið fái áframhaldandi þjónustu yfir dag- inn, enda ekki víst að alls staðar komist öll börn að á frístundaheim- ilunum eftir hádegi. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur býður þjónustu stuðningsfulltrúa í verkfalli Um 70 fötluð börn fá dagvist fyrir hádegi RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært 32 ára gamlan mann fyrir að koma ekki til hjálpar ungri konu sem hafði tekið of stóran skammt af kókaíni og e-töflum. Stúlkan lést af þessum völdum. Maðurinn var ásamt konunni staddur í íbúð á Lindargötu í Reykjavík þegar hún veiktist lífs- hættulega síðdegis mánudaginn 25. ágúst 2003. Hún lést seinna af völd- um banvænnar kókaín- og e-töflu- eitrunar. Fíkniefnaneytendur munu hafa vanið komur sínar í umrædda íbúð. Ákært er fyrir brot gegn 221. grein almennra hegningarlaga en þar segir að „láti maður farast fyrir að koma manni til hjálpar, sem staddur er í lífsháska, þótt hann gæti gert það án þess að stofna lífi eða heilbrigði sjálfs sín eða annarra í háska, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum, eða sektum, ef máls- bætur eru.“ Sakborningar í líkfund- armálinu eru m.a. ákærðir fyrir brot gegn sömu lagagrein. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem ákært er fyrir slíkt brot í tengslum við ofneyslu fíkniefna hér á landi. Maðurinn mætti ekki fyrir dóm þegar málið var þingfest fyrir Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær en hann hefur við yfirheyrslur hjá lögreglu neitað sök. Lést eftir ofneyslu kókaíns og e-taflna Ákærður fyrir að hjálpa ekki SANDFOKIÐ í vikunni var mjög öflugt og gekk langt á haf út, líklega marga tugi kílómetra, að sögn Björns Sævars Einarssonar veðurfræðings. Á meðfylgjandi gervitunglamynd, sem tekin var í mun minna roki 5. október sl., má sjá hvernig sandfokið nær lengst út á haf í norðanátt sem þá var ríkjandi, líkt og nú í vik- unni. „Þarna sjáum við landið fjúka burt,“ segir Björn um myndina. Að hans sögn spila margir þættir saman sem verða þess valdandi að sandfokið nær sér á strik líkt og gerst hefur undanfarna daga. Enginn snjór liggur yfir landinu á þessum stað, en ef svo hefði verið hefði hann heft jarðveginn. Þá var mjög þurrt á svæð- inu, en að sögn Björns hefur blautur jarðvegur þó lítið þol í roki líku því sem verið hefur. Hann er fljótur að þorna í hávaðaroki og fjúka burt, lengst út í hafsauga. Fínn sandur lá yfir Vestmannaeyjabæ eftir sand- fokið undanfarna daga. Meðan á rokinu stóð var skyggni lélegt í Eyjum og mistur lá yfir bænum á eft- ir. Að sögn lögreglumanns sem Morgunblaðið ræddi við voru mikil óhreinindi víða eftir rokið, illa sást út um glugga og bílar voru þaktir fínu ryki. Við sand- fokið bættist selta af sjónum sem gerir það að verkum að sandurinn loðir betur við hús og bíla. „Datt helst í hug eldgos“ „Það hefur verið mikið líf og fjör á þvottaplaninu hjá okkur og barist um slöngurnar,“ segir Svanhildur Guðlaugsdóttir, stöðvarstjóri hjá Esso í Vest- mannaeyjum. Hún segir biðröð hafa myndast á tíma- bili á þvottaplaninu. Það var að hennar sögn ekki fyrr en í gær sem rykið settist almennilega þegar fór að rigna en þétt mistur lá yfir bænum eftir sandrokið. „Manni datt helst í hug eldgos, það var svo drunga- legt í bænum,“ segir Svanhildur. Hún segir íbúa hafa verið að spúla hús sín, allt frá þaki og niður, und- anfarna daga, enda hafi rykið sest á allt sem á vegi varð. „Sjáum land- ið fjúka burt“ VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir að sveit- arfélögin ættu að bjóða foreldrum upp á dagvistun fyrir grunn- skólabörn meðan á verkfalli kenn- ara stendur en ítrekar að stíga þurfi varlega til jarðar í þeim efn- um, enda séu öll skref í þá átt afar viðkvæm í kjaradeilunni. Fram kom í gær að dæmi væru um að sex og sjö ára börn væru ein heima og eftirlitslaus allan daginn. „Þetta er í raun óþolandi staða og ég tel að sveitarfélögin eigi að gera allt sem í þeirra valdi stendur og þau hafa vilja til að gera, til að skapa slík úrræði, en við verðum náttúrlega líka að átta okkur á því að við erum í kjaradeilu og á meðan kjaradeilan stendur yfir eru öll skref, meðal annars í þessa áttina, afar viðkvæm.“ Sveitarfélögin bjóði dagvistun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.