Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 8

Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nú þarf nánast að skreðarasauma fyrir hvern og einn, vigta og mæla í bak og fyrir áður en rekanum er kastað, séra minn. Dýrara er í lang-flestum tilvikumað hringja frá Ís- landi til annarra Norður- landa en þaðan og hingað. Þá greiða Norðurlanda- þjóðirnar mun lægri sím- gjöld sín í milli en Íslend- ingar þurfa yfirleitt að greiða þegar þeir hringja til Norðurlandanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslu nor- rænna samkeppnisyfir- valda um norræna fjar- skiptamarkaðinn. Þar segir m.a. að verð millilandasím- tala á Norðurlöndum hafi almennt lækkað verulega frá því fjarskipta- markaðurinn opnaðist. Þrátt fyrir lækkunina sé enn umtalsverður munur á verði símtala innan land- anna og milli landa. Jafnvel séu símtöl um stuttan veg yfir landa- mæri miklu dýrari en sé hringt um mun lengri veg innan sama lands. Munurinn á verði innanlands- símtala og símtala milli Norður- landanna er talinn mjög augljóst merki þess að fjarskiptamarkaður Norðurlandanna sé ekki einn, held- ur skiptur. Þrátt fyrir að verð fast- línusímtala milli landa hafi lækkað umtalsvert, er smásöluverð símtala milli tveggja Norðurlanda allt frá tvöfalt og upp í áttfalt hærra en verð innanbæjarsímtala. Þessi mikli verðmunur, ekki síst þegar talað er um skamman veg milli nágranna- byggða – en yfir landamæri – er tal- inn þröskuldur í vegi aukinna sam- skipta milli íbúa Norðurlandanna. Eins virkar hann hamlandi á við- skipti yfir landamæri og eykur kostnað. Þá hefur þetta áhrif á sam- eiginlegan vinnumarkað, þegar fólk býr í einu landi og starfar í öðru. Há símgjöld eru þannig talin draga úr norrænni samþættingu. Í skýrslunni er m.a. borið saman verð í löndunum fimm á þriggja mínútna símtali í fastlínusíma á hæsta taxta í júní síðastliðnum. Hún sýnir að Íslendingar þurfa yfirleitt að borga meira fyrir það að tala við nágrannaþjóðirnar, en þær að tala við okkur. Undantekningin er að ódýrara er að hringja héðan til Dan- merkur en frá Danmörku og hing- að. Skýrsluhöfundar telja að verð- samanburður milli Norður- landanna fimm sýni að enn sé svig- rúm til lækkunar símgjalda. Íslendingar mega vel una við það sem þeir greiða fyrir innanlands- símtöl í fastlínusíma og farsíma, samanborið við það sem sumir ná- granna okkar þurfa að greiða. Þannig er t.d. gjald fyrir notkun fastlínusíma (fastagjald og notkun- argjald) um 40% hærra í Noregi en hér á landi. Norðurlöndin eru í fremstu röð á heimsvísu hvað varðar útbreiðslu fastlínusíma, farsíma og Netað- gangs, einkum með breiðbands- tækni. Mikil aukning á útbreiðslu farsíma og breiðbandsnotkunar eru þökkuð aukinni samkeppni á þessum sviðum. Óskað eftir athugasemdum Stefán Holm, sérfræðingur á samkeppnissviði Samkeppnis- stofnunar, er einn höfunda skýrsl- unnar. Hann segir að henni verði dreift til fjarskiptafyrirtækja hér á landi, líkt og annars staðar á Norð- urlöndum, og óskað eftir athuga- semdum þeirra. „Framtíðarsýn skýrslunnar er að skapa samnorrænan fjarskipta- markað þar sem fólk á ekki að taka sérstaklega eftir því í verðlagningu að það sé að hringja innan Norður- landanna. Við munum ræða það við fjarskiptafyrirtækin hvernig hægt verður að koma þessu á. Í skýrsl- unni er ekki dregin dul á að þetta sé háleitt markmið og líklega langt í að það náist.“ Stefán sagði að leitað yrði skýr- inga hjá norrænu símafélögunum á því hvers vegna millilandasímtöl séu svo dýr sem raun ber vitni. Hann sagði að vissulega væri Ís- land langt úti í hafi og með fáar og dýrar tengingar við útlönd. Það væri því spurning hvort mikið svig- rúm væri til að lækka verð símtala í fastlínusíma héðan til annarra landa til mikilla muna. Samkeppnisyfirvöldin gefa ýmis ráð um hvernig stuðla megi að samnorrænum virkum fjarskipta- markaði þar sem regluverk verður einfaldað og bætt í því skyni að stuðla að aukinni tækniþróun og verðlækkun. Fréttaskýring | Norræn samkeppnis- yfirvöld skoða símann Millilandasím- töl dýrust hér           +    !        !"# !$ ! %&  ! %"! ! !!& "!  #$ % $ $  !"#  ! $  !"# !$                   '   ! "      #$ % Ódýrt að hringja innan- lands og í farsíma á Íslandi  Norræn samkeppnisyfirvöld kynntu í vikubyrjun skýrslu um fjarskiptamarkaðinn í Dan- mörku, Finnlandi, Íslandi, Sví- þjóð og Noregi. Tilgangur grein- ingarinnar er að benda á hvernig stuðla megi að aukinni sam- keppni í norræna fjarskiptageir- anum og benda á helstu ann- marka hans frá norrænu sjónarhorni. Samkvæmt skýrsl- unni er enn langt í land að einn sameiginlegur norrænn fjar- skiptamarkaður myndist. gudni@mbl.is GSM-símagjöld eru lág á Íslandi. Norðurlöndin verði einn fjarskipta- markaður þar sem sama verð gildir VERIÐ er að skipuleggja mótmæli gegn Kárahnjúkavirkjun sem fara eiga fram í júlí næsta sumar í kjöl- far fundar helstu iðnríkja heims (G-8) í Skotlandi. Þar er búist við fjölda mótmælenda, svo sem verið hefur í kringum fundi G-8 á und- anförnum árum og mun hugmyndin vera sú að fá mótmælendur til að koma til Íslands til að andmæla virkjuninni. Á vefnum killingiceland.org, sem rekinn er af umverfisverndarfólki af ýmsu þjóðerni, kemur fram að mót- mælin eigi að fara fram við Kára- hnjúka og að efnt verði til ráðstefnu á Íslandi í tengslum við mótmælin. Á vefnum segir m.a. að það sé ekki aðeins Alcoa sem stefni nátt- úru Íslands í hættu, heldur bíði fleiri fyrirtæki, svo sem Rio Tinto Zinc (RTZ), í röðum eftir ódýrri raf- orku til iðnaðarframleiðslu frá öðr- um virkjunum sem fyrirhugaðar séu á hálendi Íslands. Segir að stuðn- ingur alþjóðlegra umhverfissinna og þátttaka þeirra í mótmælum og ráð- stefnu þeim tengdum næsta sumar, muni geta haft afgerandi áhrif í bar- áttunni gegn eyðileggingu hálendis Íslands. Það sé ekki of seint að koma í veg fyrir Kárahnjúkavirkj- un, þar sem hún sé þegar orðin á eftir áætlun og langmestu umhverf- isáhrifin verði með tilurð Hálslóns á seinni hluta framkvæmdatímans. Náttúruverndarsamtök Íslands koma hvergi nærri Ólafur Páll Sigurðsson, sem bú- settur er í London, hefur staðfest að hann sé einn af þeim sem eru að skipuleggja mótmælin næsta sum- ar, en vill ekki gefa neitt upp að svo stöddu um hverjir standa nákvæm- lega fyrir aðgerðinni. Ólafur, sem er framkvæmdastjóri Náttúruvaktar- innar, stóð meðal annarra að mót- mælum gegn Kárahnjúkavirkjun í Tate Modern safninu sl. vor. Árni Finnsson hjá Náttúruvernd- arsamtökum Íslands sagði samtökin hvergi koma að fyrirhuguðum mót- mælum og vildi ekki tjá sig um Kill- ing Iceland samtökin. Mótmælendum stefnt gegn Kárahnjúkavirkjun Ljósmynd/VIJV Kárahnjúkastífla í snjóham. Stefna á erlendum náttúruverndarsinnum til fjalla til að mótmæla virkjuninni næsta sumar. Kárahnjúkavirkjun. Morgunblaðið. „ÞAÐ SEM við viljum fyrst halda í heiðri eru skoðanir annarra,“ segir Sigurður Arnalds hjá Landsvirkjun um fyrirhuguð mótmæli næsta sumar við Kárahnjúka. „Það er al- veg ljóst og hefur verið lengi að það eru mjög margir Íslendingar sem eru andvígir þessari virkjun sem verið er að byggja og mjög margir af þeim taka þetta málefni með miklum tilfinningahita. Þannig er þetta. Það sem menn kannski gleyma í hita leiksins hér heima og ekki síður erlendis, er að við erum búin að ákveða að ráðast í þessa virkjun til framdráttar efnahag landsmanna og fyrir því var gríð- arlega mikill lýðræðislegur meiri- hluti. Mikill meirihluti þingmanna samþykkti frumvarp um virkjunina á sínum tíma eftir ferli um mat á umhverfisáhrifum, sem fór sína leið og er byggt á lögum þar um,“ segir hann. „Hvað útlendinga varðar hefur mér fundist í gegnum tíðina að þeir séu gjarnan með ranghugmyndir um meint náttúruspjöll af þessum framkvæmdum og mjög oft rekum við okkur á að útlendingar halda að náttúruspjöllin séu meiri en þau raunverulega eru, án þess þó að við séum neitt að draga úr hver þau eru. Það byggist fyrst og fremst á því að þær upplýsingar sem fást héðan að heiman á heimasíðum til dæmis, eru mjög einhliða og gjarn- an ýktar. Hvað þessi meintu mót- mæli varðar og það að fá þetta fólk til Íslands, hefur mér skilist að mót- mælin erlendis á þessum fundum helstu iðnríkja heims hafi verið mjög öfgafull. Þar hafi verið mjög öfgafullir mótmælendur og mikið gengið á. Ég spyr nú bara, ef við fáum marga af því sauðahúsinu hingað til Íslands, s.s. öfgafulla og jafnvel ofbeldishneigða mótmæl- endur, er það eitthvað sem er til framdráttar málstað náttúruvernd- arsinna á Íslandi? Ég leyfi mér að efast um það.“ Margir taka þetta mál með miklum tilfinningahita

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.