Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 11

Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 11 FRÉTTIR Ný sending af Calla blómum og rósum Laugavegi 63 • sími 551 2040Silkitré og silkiblóm www.1928.is Rýmum fyrir nýjum sendingum Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • Opið kl. 11-18 Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • Opið kl. 11-18 50% afsláttur af völdum vörum ALVARLEG skemmdarverk voru unnin í kirkjugarði Keflavíkur við Aðalgötu um síðastliðna helgi eða seinna, að því er talið er. Svo virðist sem einhver eða einhverjir hafi gengið berserksgang í kirkjugarðin- um og velt við um 20 legsteinum og brotið tvo. Auk þess voru skemmdir unnar á skrautmunum við leiði, lukt- um og blómavösum. Krossar voru rifnir upp og steinplötur með áletr- uðum nöfnum hinna látnu voru brotnar. Lögreglan í Keflavík hefur tekið málið til rannsóknar en enginn hafði verið tekinn til yfirheyrslu vegna málsins í gær. Vísbendingar eru þó á vettvangi sem gætu leitt lögregluna á rétt spor. Skemmdar- verk hafa verið unnin áður í kirkju- garðinum en aldrei í eins miklum mæli og nú. Er málið litið alvarleg- um augum. Umsjónarmaður kirkjugarðsins, Elías Guðmundsson, sagði skemmd- arverkinhafa uppgötvast í gær og hefði aðkoman verið mjög ljót. Greinilegt væri að farið hefði verið um allan garð í þeirri ætlun að valda skemmdum. Ýmist hefðu legsteinar verið brotnir með bareflum eða með öðrum hætti. Þyrfti að kosta miklu til við lagfæringarnar. Alvarleg skemmd- arverk í kirkju- garði Keflavíkur Ljósmynd/Hilmar Bragi Sumir legsteinanna í kirkjugarðinum voru mjög illa farnir eins og sjá má. FLESTIR þeir þingmenn sem þátt tóku í umræðu utan dagskrár á Al- þingi í gær, um áfengisauglýsingar, voru á því að endurskoða þyrfti laga- ákvæði sem kveða á um bann við slíkum auglýsingum. Skoðanir voru þó skiptar um niðurstöðu slíkrar endurskoðunar. Varaþingmenn Sjálfstæðisflokksins, þau Ásta Möll- er og Böðvar Jónsson, voru t.d. á því að taka bæri mið af öðrum löndum í þeim efnum, þar sem auglýsingar á léttum vínum og bjór væru leyfðar við ákveðnar aðstæður, en bannað væri að beina þeim að börnum og ungmennum. Gunnar Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði ómögu- legt að banna áfengisauglýsingar á „nýrri fjarskiptaöld“ eins og hann orðaði það, en Magnús Þór Haf- steinsson, samflokksmaður hans, kvaðst efast um að ástæða væri til að breyta núgildandi ákvæðum um bann við áfengisauglýsingum. Þingmenn Vinstrihreyfingarinn- ar-græns framboðs sögðu mögulegt að fara þá leið að reyna að „stoppa upp í öll þau göt sem sem kynnu að opna leiðir fyrir áfengissala til að fara á bakvið landslög,“ eins og Ög- mundur Jónasson orðaði það. Þing- flokkurinn myndi fljótlega leggja fram þingmál í þá veru. Aðrir þingmenn voru ekki eins af- dráttarlausir um það hvað leiðir mætti fara en sögðu þó ljóst að lögin um bann við áfengisauglýsingum væru brotin nánast daglega. „Það hefur borið mikið á dulbúnum aug- lýsingum þar sem óáfengir drykkir eru auglýstir upp,“ sagði Siv Frið- leifsdóttir, þingmaður Framsóknar- flokksins. Í slíkum auglýsingum væri greinilega ætlunin að koma áfengum drykkjum á framfæri. Oft kært framkvæmdina Málshefjandi umræðunnar var Mörður Árnason, þingmaður Sam- fylkingarinnar. Hann sagði í upphafi ræðu sinnar að á Íslandi væru óá- reittar auglýsingar, um allar tegund- ir áfengis, í sjónvarpi, í dagblöðum, í tímaritun og á almannafæri utan- húss. Þá sagði hann athyglisvert að ýmsum auglýsingum, sérstaklega bjórauglýsingum, væri ætlað að höfða til ungs fólks. Spurði hann heilbrigðisráðherra, Jón Kristjáns- son, m.a. að því hvort hann teldi í lagi að áfengi væru auglýst á Íslandi eins og almenn neysluvara. Um það sagði Jón: „Heilbrigðisráðherra er ekki þeirrar skoðunar að áfengi eigi að auglýsa eins og hverja aðra vöru enda gengur það gegn lögum. Það er bannað á Íslandi að auglýsa áfengi. Heilbrigðisráðherra treystir því að þeim lögum sé framfylgt í samræmi við vilja Alþingis [...].“ Ráðherra sagði undir lok umræðunnar að hlut- verk heilbrigðisráðuneytisins í þess- um málum væri að sjá um forvarnir. Ræddu bann við áfengisauglýsingum Vilja endur- skoða lögin MENNIRNIR þrír sem höfðu uppi hótanir á ritstjórnarskrifstofum DV í fyrradag komu til skýrslutöku hjá lögreglunni í Reykjavík á til- settum tíma í gær. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins segja mennirnir að er- indi þeirra hafi ekki tengst umfjöll- un blaðsins um handrukkun heldur hafi þeir viljað ræða um myndbirt- ingar blaðsins af einum þeirra. Reynir Traustason blaðamaður kærði atvikið í gærmorgun og stefnir lögreglan að því að ljúka rannsókn málsins í dag. Sögðust vilja ræða um myndir HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karl- mann í tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir að kýla annan mann og sparka í höfuð hans liggj- andi með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði og sprungur komu í þrjár tennur. Hæstiréttur taldi sannað að ákærði hefði orðið þess valdandi að hinn maðurinn féll í götuna en hins vegar þótti ekki óyggjandi að það högg sem ákærði játaði að hafa veitt hinum hefði valdið fallinu, eða högg með krepptum hnefa í andlit. Málið dæmdu hæstaréttardóm- ararnir Garðar Gíslason, Árni Kol- beinsson og Ingibjörg Benedikts- dóttir. Verjandi ákærða var Páll Arnór Pálsson hrl. og sækjandi Bragi Steinarsson vararíkissak- sóknari. Fangelsi fyrir líkamsárás DÓMPALLUR á félagssvæði hesta- mannafélagsins Harðar á Varmár- bökkum í Mosfellsbæ brann til kaldra kola í fyrrakvöld. Eldsins varð vart um tíuleytið og var húsið alelda þegar slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á staðinn. Tilkynning um eldinn barst slökkviliði rétt upp úr tíu. Vindur og vatnsskortur tafði nokk- uð slökkvistarfið en einn og hálfan tíma tók að ráða niðurlögum eldsins. Guðmundur Björgvinsson formaður Harðar sagði dómpallinn gersamlega ónýtan og sömuleiðis ýmislegt dót í eigu félagsins sem var í steyptum kjallara en trégólf var í dómpallinum. Sagði Guðmundur að byggingin hefði verið tryggð en þó væri ljóst að tjónið yrði ekki bætt að fullu. Eldsupptök eru ókunn en formaðurinn taldi mjög líklegt að um íkveikju væri að ræða því ekki hefði verið rafmagn á bygg- ingunni og ekki geymd þar eldfim efni. Morgunblaðið/Vakri Guðmundur Björgvinsson, formaður hestamannafélagsins, t.v., og Haukur Níelsson, starfsmaður Mosfellsbæjar, könnuðu skemmdirnar í gær. Eldsvoði í Mosfellsbæ Dómpallur brann til kaldra kola ÞÓRÓLFUR Árnason borgarstjóri sagði það skipta Reykjavík máli hvernig öðrum sveitarfélögum vegn- aði á fundi borgarstjórnar á þriðju- dag. „Við erum að borga 1,6 milljarða til annarra sveitarfélaga. Á sama tíma þurfum við að búa við yfirlýs- ingu meðal annars frá félagsmála- ráðherra að það séu nú sum sveit- arfélög sem nýti sér ekki einu sinni skattstofninn. Ef Reykjavíkurborg myndi nýta sér hámarksútsvar yrðu árlegar viðbótartekjur á bilinu 6 til 700 milljónir – ef við færum 12,70% í 13,03%,“ sagði Þórólfur. Brýndi borgarfulltrúa „Það er ekki helmingur af því sem við erum að borga núna í jöfnunar- sjóðinn. Og svo er sagt að það sé okkar mál að hækka útsvarið þegar við erum að gjalda þess núna hve af- koma annarra sveitarfélaga er slök,“ sagði borgarstjóri. Hann sagði einn- ig að efla yrði sveitarstjórnarstigið á landinu. Þórólfur sagði ekki rétt gefið á milli sveitarstjórnarstigsins og rík- isins og ánægjulegt væri að heyra oddvita Sjálfstæðisflokksins stað- festa það. Brýndi hann borgarfulltrúa til að beita sér fyrir leiðréttingu á tekjum sveitarfélaga í sínum pólitísku flokk- um á Alþingi. Borgarstjóri gagnrýnir þingmenn Borgin geldur fyrir slaka afkomu sveitarfélaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.