Morgunblaðið - 22.10.2004, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ENGAR áætlanir eru uppi um stór-
fellda uppbyggingu í fiskeldi hér á
landi og því eru spár um útflutnings-
verðmæti fiskeldisafurða óraunhæf-
ar. Engu að síður er gert ráð fyrir
töluverðri aukningu í fiskeldi á allra
næstu árum. Þetta kemur fram í
skýrslu Fiskeldisnefndar ráðuneyta
sjávarútvegs og landbúnaðar um
stöðu og framtíðaráform í íslensku
fiskeldi eftir Valdimar Inga Gunn-
arsson. Skýrslan var kynnt í gær.
Inntak skýrslunnar er lýsing á
umfangi fiskeldis á íslandi eftir teg-
undum og framleiðsluaðferðum,
greinargerð um úthlutun starfs- og
rekstrarleyfa og umfjöllun um fram-
tíðaráform í fiskeldinu, einkum frá
sjónarhóli fiskeldisfyrirtækja.
Í skýrslunni kemur fram að gera
má ráð fyrir töluverðri aukingu í
fiskeldi á Íslandi á næstu árum og
leiða stóru sjávarútvegsfyrirtækin
þessa þróun.
Á kynningarfundinum í gær kom
fram að samanlagt verðmæti eldisaf-
urða nam um 2 milljörðum króna á
síðasta ári. Í spá stýrihóps um aukið
verðmæti sjávarfangs (AVS-hóps-
ins) er miðað við að verðmæti eld-
isafurða verði komið upp í 6 millj-
arða króna árið 2007 og 36 milljarða
árið 2012. Segir í skýrslunni að hugs-
anlega spái þetta fyrir árið 2007 en
spáin fyrir árið 2012 sé aftur á móti
óraunhæf, þar sem nú liggi ekki fyrir
áætlanir um stórfellda uppbyggingu
í fiskeldi hér á landi.
Aukning í laxi,
þorski og bleikju
Áætlað er að framleiðslan verði
um 15 þúsund tonn árið 2006, að því
er kemur fram í skýrslunni. Meiri
óvissa er um framleiðsluna árið 2009,
líklegast þykir að þá verði framleidd
um 20 þúsund tonn en að framleiðsl-
an geti farið upp í um 40 þúsund
tonn.
Gert er ráð fyrir að lax, bleikja og
þorskur muni standa undir mestri
framleiðsluaukningu fram til ársins
2009. Gert er ráð fyrir að helming-
urinn af framleiðslunni árið 2009
komi úr laxeldi en markaðsverð á
eldislaxi mun hafa mikil áhrif á þró-
unina. Áætlað er að framleiðsla í
þorskeldi geti verið komin upp í
4.500 tonn á árinu 2009 og mun fram-
leiðslan að stærstum hluta koma úr
áframeldi á villtum þorski. Þá hefur
markaðsverð á bleikju verið hátt að
undanförnu og hefur áhugi forsvars-
manna stærri fyrirtækja vaknað á
bleikjueldi. Áætlað er að framleidd
verði um 4.500 tonn af eldisbleikju
hérlendis árið 2009.
Í skýrslunni er m.a. lagt til að öll
gagnasöfnun frá fiskeldisfyrirtækj-
um verði færð á rafrænt form og
einni stofnun fengið það verkefni að
halda utan um lykiltölur í fiskeldi en
eins og staðan er í dag þarf fyrirtæki
sem er bæði með eldi á ferskvatns-
og sjávarfiskum að gefa upp fram-
leiðslutölur og aðrar upplýsingar úr
eldinu til tveggja stofnana.
Þá kemur fram í skýrslunni að
ferli leyfisveitinga til fiskeldis hér á
landi er flókið, þar sem þrjú ráðu-
neyti og fjórar stofnanir, auk heil-
brigðiseftirlits sveitarfélaganna,
koma við sögu. Segir að leyfisveit-
ingakerfið sé flókið og hægvirkt og
dæmi um að umsóknir hafi verið í
vinnslu í meira en ár. Er í skýrslunni
lagt til að eitt fagráðuneyti hafi yf-
irumsjón með útgáfu leyfa til fisk-
eldis til að tryggja markvissari
stjórnun, samhæfingu og yfirsýn.
Jafnframt þyrfti að einfalda úthlut-
un leyfa til fiskeldis.
Engin áform um stórfellt
fiskeldi á næstu árum
Morgunblaðið/Sverrir
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra og Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra kynntu skýrslu um stöðu og framtíðaráform fiskeldis í gær.
ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra sagði mikinn feng að
skýrslunni, mikilvægt væri að vita
hvernig fiskeldi hefði þróast, bæði
hér á landi og erlendis. Jafnframt
væri mikilvægt að vita um áhrif
eldis á villtar tegundir, ekki aðeins
út frá líffræðilegu sjónarmiði held-
ur einnig markaðslegu. Vitnaði
Árni til verðhruns á villtum laxi í
Alaska í kjölfar aukins laxeldis.
Sagði hann þannig gott að velta því
fyrir sér hvaða áhrif aukið þorsk-
eldi, jafnvel eldi á fleiri hundruðum
þúsunda tonna, muni hafa á mark-
aðsstöðu villta íslenska þorsksins.
Sagði Árni þó vandasamt að spá
fyrir um þessi áhrif. Sagðist Árni
sjá fyrir sér að fiskeldi hér á landi
verði fjölbreytt í framtíðinni og
varaði við því að einblína á eina
tegund.
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra sagði engan vafa á
því í sínum huga að hægt yrði að
auka verðmæti fiskeldis hér á landi
í framtíðinni. Hann minnti hins veg-
ar á að hagsmunir fiskeldis og
þeirra sem nýta hina villtu laxa-
stofna hér við land fara ekki alltaf
saman. Til þeirra þyrfti að taka til-
lit, enda mikil verðmæti fólgin í lax-
og silungsveiði hér á landi og jafn-
vel meiri en áður var talið. Sagði
Guðni að þess vegna þyrfti að rann-
saka enn betur sjúkdóma og erfða-
blöndun sem fylgt geta fiskeldi.
Ekki ein-
blína á eina
tegund
ÚR VERINU
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
frestaði refsingu manns sem var
dæmdur fyrir líkamsárás gegn eig-
inkonu sinni, m.a. með þeim rökum
að hann hefði lagt hendur á hana í
mikilli reiði og að gögn bentu frekar
til þess að hún kynni að hafa valdið
bræðinni og árásinni með því að tjá
honum eða gefa í skyn að hún héldi
fram hjá honum með öðrum manni.
Í ljósi aðstæðna og atvika í málinu
þótti dómnum rétt að fresta refsingu
mannsins í þrjú ár.
Hrædd og grátandi
Maðurinn var ákærður fyrir að
hafa tekið konuna hálstaki og hrint
henni til og frá með þeim afleiðing-
um að hún hlaut tognun í hálsvöðv-
um og hné auk áverka í andliti og
hársverði.
Konan greindi frá því að maðurinn
hefði beitt hana ofbeldi allt frá því
skömmu eftir að þau giftust 1999.
Að morgni 1. október 2003 hefði
hún komið snemma heim og þá hefði
maðurinn ráðist að henni, slegið
hana í höfuðið og sakað hana um að
vera með öðrum mönnum. Það hefði
hún ekki verið þó að hann héldi því
fram. Maðurinn hefði síðan vakið
hana aftur til að ræða um sambandið
og síðan skyndilega orðið brjálaður,
tekið hana hálstaki og rifið utan af
henni fötin. Maðurinn hefði farið
fram en síðan aftur ráðist að henni
og gert tilraun til nauðgunar. Í
dómnum segir að frásögn konunnar
sé trúverðug og styðjist við fram-
burð vitna og áverkaskýrslu.
Lýsing mannsins var með allt öðr-
um hætti. Hann sagði að þau hefðu
átt í samförum en hætt þegar hún
hefði sagt frá því að hún hefði verið
með öðrum manni. Við þetta hefði
hann misst stjórn á skapi sínu og
lagt hendur á hana í bræði sinni.
Hann myndi ekki nákvæmlega hvað
hann hefði gert en sagðist hafa tekið
hana hálstaki og „tuskað hana til,“
eins og segir í dómnum. Einhverjar
stympingar hefðu átt sér stað og hún
hefði kastað í hann hlutum. Hann
neitaði að hafa veitt henni þá áverka
sem ákært var fyrir.
Í niðurstöðum dómsins segir að af
gögnum málsins þyki ljóst að upphaf
átakanna megi rekja til erfiðleika í
sambúð þeirra. Taldi dómurinn
sannað að áverkarnir á konunni
hefðu stafað af árás mannsins.
„Stormasamt“
Þá segir í dómnum að við refsimat
yrði að líta til þess að samkvæmt frá-
sögn konunnar hefði sambúð hennar
og ákærða verið stormasöm allt frá
því að þau giftust og iðulega komið
til átaka milli þeirra, án þess að séð
yrði að það hefði leitt til kærumála. Í
þessu tilviki hefði maðurinn lagt
hendur á hana í mikilli bræði og
hnígi gögn málsins frekar að því, að
konan „kunni að hafa valdið því“.
Þeim beri saman um að maðurinn
hafi haldið að hún héldi fram hjá
honum með öðrum manni og mað-
urinn hafi um morguninn viljað hafa
við hana samfarir, en horfið frá því í
miðjum klíðum til að hringja í yfir-
mann á vinnustað hennar. Þetta
styddi frásögn hans um að hún hefði
þarna tjáð honum eða gefið í skyn að
hún væri með öðrum manni.
Konan kærði manninn viku eftir
árásina. Dómarinn sagði konuna
hafa verið seina til að kæra og ekki
gert það fyrr en í framhaldi af því að
hún fékk ekki son þeirra tekinn frá
ákærða með lögregluvaldi.
Guðmundur L. Jóhannesson kvað
upp dóminn. Arnþrúður Þórarins-
dóttir, fulltrúi sýslumanns, sótti en
Brynjar Níelsson hrl. var til varnar.
Héraðsdómur frestar refsingu manns sem dæmdur var fyrir líkamsárás
Telur að konan
kunni að hafa
valdið árásinni
Morgunblaðið/Sverrir
SIF Konráðsdóttir hrl. segir að í
dómnum birtist forneskjuleg við-
horf og margt í honum veki upp
spurningar.
Dómarinn telji
t.d. að komið hafi
til átaka á milli
þeirra en í dómn-
um sé þó ekkert
sem bendi til
þess, annað en
framburður
mannsins. Hann
hafi t.a.m. ekki
haft áverka.
Maðurinn hafi játað að hafa tekið
konuna hálstaki og tuskað hana til
en samt sem áður neiti hann því að
hafa valdið umræddum áverkum.
Konan hafi á hinn bóginn alltaf sagt
að maðurinn hefði ráðist á sig, en
ekki að komið hafi til átaka þeirra á
milli. Þá segi í dómnum að „í þessu
tilviki leggi ákærði hendur á kær-
anda [þ.e. konuna] og hníga gögnin
frekar að því, að kærandi kunni að
hafa valdið því“.
Sif spyr hvað dómarinn eigi hér
við, hvort hann telji konuna hafa
valdið bræðinni eða árásinni. Dóm-
urinn sé m.a. óskýr að þessu leyti.
Það sé auk þess undarlegt að telja
langan tíma líða frá árás til kæru.
Aðeins hafi liðið ein vika sem sé
ekki mikið þegar um sé að ræða
hjón eða fólk sem þekkist vel. Álit
dómarans um að málið tengist for-
ræðismáli sé þar að auki ekki rök-
stutt. Sif segir að ákvörðun dóm-
arans um að fresta refsingunni sé
umhugsunarefni, langalgengast sé
að dæma skilorðsbundna refsingu í
málum þar sem um fyrsta ofbeld-
isbrot er að ræða. Sif telur eðlilegt
að dómnum verði áfrýjað til Hæsta-
réttar enda komi umdeilanlegar
forsendur að baki dómnum. Það sé
ekki heldur í takt við dómafordæmi
Hæstaréttar og sjónarmið í sam-
félaginu að menn sem séu dæmdir
fyrir heimilisofbeldi sleppi án refs-
ingar. Það geti varla verið góð
skilaboð frá réttarkerfinu að refs-
ingar vegna líkamsárása sem
framdar eru innan veggja heimilis-
ins séu ekki eins alvarlegar og aðr-
ar árásir.
Sif bendir auk þess á að refsingar
fyrir líkamsárásir skv. 217. gr., eins
og maðurinn var dæmdur fyrir,
verða aldrei mjög þungar en ref-
sihámark er eitt ár. Í 218. grein þar
sem fjallað er um meiri háttar lík-
amsárásir sé hámarksrefsingin á
hinn bóginn þrjú ár en hljótist af
bani er hámarksrefsing 16 ár.
Sif segir að mörkin milli ákvæð-
anna tveggja gefi tilefni til að end-
urskoða lögin. Í dag sé of mikið til-
lit tekið til eðli og tegundar áverka
en ekki hversu langvarandi og
harkalegt ofbeldi brotaþoli hefur
mátt þola og hverjar hinar andlegu
afleiðingar ofbeldisins eru.
Forneskjuleg viðhorf
birtast í dómnum
Sif Konráðsdóttir
TIL greina gæti komið að Bjarg-
ráðasjóður bætti að einhverju leyti
fjártjónið sem varð í stórbrunanum
á Knerri á mánudagskvöld. Það yrði
þó með þeim hætti að bætt yrði
óbeint tjón þ.e. vegna ófæddra
lamba þess fjár sem hefði átt að setja
á til undaneldis en brann inni. Bjarg-
ráðasjóður mun hins vegar ekki
bæta tjón vegna þess sláturfjár sem
brann inni. Samkvæmt 9. grein laga
um Bjargráðasjóð er það hlutverk
búnaðardeildar sjóðsins m.a. að
bæta tjón á búfé og afurðum búfjár.
Birgir Blöndal, aðalstarfsmaður
sjóðsins, segir þó þetta ákvæði með
þeim fyrirvara að sjóðurinn bæti
ekki tjón sem almennt er tryggt fyr-
ir innan búgreinar, nánar tiltekið
með sérstakri búfjártryggingu. Það
er val bænda hvort þeir kaupi slíka
tryggingu en allt að einu kemur
Bjargráðasjóður ekki inn á það svið,
nema um sé að ræða óbeint fjártjón
eins og að framan var getið.
Bjargráðasjóður
gæti bætt
óbeint fjártjón
FUNDUR sjómanna og útvegs-
manna hófst í Höfðaborg, húsa-
kynnum ríkissáttasemjara, klukkan
tíu í gær og stóð fram eftir degi.
Engar fregnir voru af fundinum
um miðjan dag í gær. „Það er ekk-
ert að frétta,“ sagði Sævar Gunn-
arsson, formaður Sjómanna-
sambands Íslands.
„Menn trúa því að við sitjum bara
og horfum í augun hver á öðrum,
en það er ekki það sem við erum að
gera,“ sagði hann og sagði að reynt
yrði áfram til þrautar að finna
lausn á deilunni.
Reynt til þrautar
ÁTJÁN ára piltur var stöðvaður á
164 km hraða á Laugarvatnsvegi í
gær og hefur lögreglan á Selfossi
ekki séð annan eins ofsaakstur í þó
nokkurn tíma. Pilturinn var einn í
bíl sínum þegar lögreglumenn
mættu honum og hlýddi hann strax
skipunum um að stöðva. Hann gaf
engar skýringar á aksturslaginu.
Fékk hann að halda ökuskírteini
sínu en verður kallaður fyrir lög-
reglu bráðlega.
Ók á 164 km hraða