Morgunblaðið - 22.10.2004, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
LANDIÐ
Hornafjörður | „Þegar þetta er búið tekur svo bara við meiri söngur og gleði,
kór og eitthvað fleira,“ segir Þórhildur Ásta Magnúsdóttir sem syngur í sýning-
unni Diskó sem verið hefur á fjölunum á Hótel Höfn á Hornafirði fyrir troðfullu
húsi undanfarnar helgar og stemmningin verið mikil. Gestir hafa dansað uppi í
stólum og veifað kertastjökum í einbeittri diskóstemningunni.
Í sýningunni flytja sjö söngvarar og hljómsveit alla heitustu diskósmellina sem
hljómuðu í Hollywood við Ármúla og fleiri stöðum á diskótímanum. „Þetta er bú-
ið að vera frábært, frábærar móttökur, fullt hús á hverri sýningu, sem eru orðn-
ar sex á Hornafirði og svo á Broadway í kvöld,“ segir Þórhildur. Hornfirska
skemmtifélagið verður með skemmtidagskrána á veitingahúsinu Broadway í
Reykjavík í kvöld. „Ég söng þar í fyrra með skemmtifélaginu og þarna er flott
aðstaða. Við eigum von á fólkinu okkar fyrir sunnan og fullt af öðru liði.“
Þórhildur hefur verið í kvennakór Hornafjarðar og segist hafa lent í þessu
fyrir tilviljun þegar hún flutti á Höfn fyrir nokkrum árum og datt inn í félags-
lífið. „Ég hef ekki lært söng, hef djúpa rödd eins og svörtu týpurnar í diskóinu
og get þanið mig hressilega ef svo ber undir. Raining man er eitt af þessum lög-
um sem mér þykir ofboðslega gaman að syngja. Það er hernaðarleyndarmál
hvað Skemmtifélag Hornafjarðar setur næst á svið, en menn eru byrjaðir að
sjóða saman,“ segir hún.
Í heild koma um 20 manns að sýningunni. Söngvarar eru Birgir Fannar Reyn-
isson, Edda Bjarnadóttir, Hulda Rós Sigurðardóttir, Kristjón Elvarsson, Marí-
anna Jóhannsdóttir, Sigríður Bára Steinþórsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir.
Leikstjóri er Kristín Gestsdóttir og tónlistarstjóri er Heiðar Sigurðsson.
Þórhildur diskópía Diskóið ræður ríkjum í Broadway í kvöld þegar Hornfirska
skemmtifélagið mætir með sýninguna Diskó. Þórhildur Ásta syngur Hot Stuff.
„Get þanið mig hressilega“
Ísafjörður | „Óvissu er létt af því
fólki sem býr í húsum á svæðinu
og hægt verður að hefja þar upp-
byggingu á ný,“ segir Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri á Ísa-
firði. Í fyrradag var vígður mikill
snjóflóðavarnargarður við Selja-
land í Skutulsfirði en honum er
ætlað að verja Seljalandshverfið
og Tunguskeið. Sigríður Anna
Þórðardóttir umhverfisráðherra
flutti ræðu við athöfn sem efnt var
til við garðinn af þessu tilefni.
Halldór rifjar upp að uppbygg-
ing Seljalandshverfis var hafin
þegar stóru snjóflóðin féllu á
Vestfjörðum. „Í kjölfar þeirra at-
burða breyttust öll viðmið,“ segir
Halldór. Við gerð hættumats kom
í ljós að húsin í Seljalandshverfi
og fyrirhugað byggingasvæði á
Tunguskeiði voru á hættusvæði
og segir Halldór að yfirvöld hafi
staðið frammi fyrir því að kaupa
húsin eða verja þau. Niðurstaðan
hafi orðið sú að byggja varn-
argarð.
Framkvæmdir við garðinn hóf-
ust þó ekki fyrr en á fyrrihluta
síðasta árs. Uppbyggingu garðs-
ins sjálfs er lokið en næstu þrjú ár
verður unnið að gróðursetningu
og fegrun umhverfisins. Kubbur
ehf. á Ísafirði sem sameinaðist
öðru fyrirtæki í KNH ehf. ann-
aðist framkvæmdina.
Meira byggt
Garðurinn er um 700 metra
langur og fer í átján metra hæð,
þar sem hann er hæstur. Í honum
eru um 370 þúsund rúmmetrar af
efni se samsvarar 25 til 30 þúsund
stórum bílförmum. Verksamn-
ingur hljóðaði upp á 270 milljónir
kr., fyrir utan gróðursetningu.
Halldór segir að verkið hafi
reynst umfangsmeira en áætlað
var og nú stefni í að heildarkostn-
aður, með gróðursetningu næstu
árin, fari langleiðina í 400 millj-
ónir. Ísafjarðarbær greiðir 10%
kostnaðar á móti Ofanflóðasjóði.
Við hönnun mannvirkisins var
lögð áhersla á gangstígagerð og
gerð útivistarsvæðis sem gæti lað-
að fólk að. Þannig er reynt að
vega upp á móti neikvæðum áhrif-
um framkvæmdarinnar.
Halldór telur að þegar búið
verður að koma gróðri af stað á
garðinum og nágrenni hans og
snyrta umhverfið muni uppbygg-
ing Seljalandshverfis hefjast á
nýjan leik. Þar eru tilbúnar götur
og lagnir fyrir nokkra byggð. Þá
bendir hann á að byrjað sé á
nokkrum íbúðarhúsum á Tungu-
skeiði. „Nú höfum við töluvert af
góðu byggingalandi í Skutuls-
firði,“ segir Halldór og bætir því
við að meiri eftirspurn sé eftir lóð-
um á Ísafirði en verið hafi, þótt
hún sé ekki jafn mikil og víða ann-
ars staðar. Telur hann að fréttir
af aukinni eftirspurn eftir hús-
næði og hækkandi fasteignaverð
bendi til þess að meira verði
byggt á Ísafirði en verið hafi um
skeið.
Snjóflóðavarnagarður við Seljaland á Ísafirði vígður
„Óvissu
létt af
íbúunum“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Garður vígður Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, flutti ávarp
við vígslu snjóflóðavarnagarðsins við bæinn Seljaland í Skutulsfirði.
Miðborg | Áformað er að opna tvo
fundar- og veitingasali á 3. og 4. hæð
í verslunarhúsinu Iðu í Lækjargötu,
oft nefnt „Top Shop-húsið“, í næsta
mánuði. Vinna við salina, sem eru
100 og 120 manna, er langt á veg
komin en samhliða eru framkvæmd-
ir að hefjast við eldhús í kjallara
hússins, sem mun leggja til veitingar
í salina og á veitingastað á annarri
hæð. Rekstraraðili veitingasalanna
og veitingastaðarins, Axel Óskars-
son, segir eftirspurn eftir veitinga-
og fundasölum í hjarta borgarinnar
og er bjartsýnn á reksturinn.
Marimekko opnað á næsta ári
Að sögn Arndísar Bjargar Sigur-
geirsdóttur, eins af sex leigutökum í
húsinu – sem er í eigu Fasteigna-
félagsins Stoða, mun sjöundi rekstr-
araðilinn bætast í hópinn í byrjun
næsta árs þegar sérvöruverslun með
Marimekko-vörur og fatnað opnar
þar. Þar með verður allt húsið komið
í fulla notkun en 3. og 4. hæðin hafa
verið ónýttar frá því húsið var byggt
og verslunarrekstur ekki gengið sem
skyldi, en skemmst er að minnast
þegar verslanirnar Top Shop og Jap-
is hættu rekstri í húsinu.
Að sögn Arndísar Bjargar virðist
fólk almennt ánægt með að búið sé
að vekja upp líf í húsinu að nýju og
ánægja er meðal verslunarrekenda
með viðstökurnar.
„Top Shop-húsið“
tekið í fulla notk-
un um áramót
Eftirspurn er sögð vera eftir veitinga-
og fundarsölum í hjarta borgarinnar
Morgunblaðið/Golli
Breytingar Iðnaðarmenn hafa í nógu að snúast við að breyta verslunar-
húsnæðinu við Lækjargötu í fundar- og veitingasali.
Miðborg | Skólavörðustígurinn mun lifna við á
morgun, laugardag, en í tilefni af vetrarkomu
ætla kaupmenn við götuna að bjóða upp á
ýmiskonar skemmtun og veitingar fyrir þá
sem leið eiga um.
Verslanir opna kl. 11, en segja má að dag-
skráin hefjist um kl. 13, og standi fram á kvöld,
segir Eggert Jóhannsson feldskeri, einn af
kaupmönnunum við Skólavörðustíginn. Frá kl.
16 verður gestum boðið upp á heita kjötsúpu
til að fá yl í kroppinn, og ætlar Siggi Hall að
elda kynstrin öll af súpu ofan í gesti og gang-
andi í boði Markaðsráðs kindakjöts.
„Þetta gengur allt út á að ekkert af þessu á
að vera of formlegt, heldur á að vera gaman
fyrir fólk að koma á stíginn,“ segir Eggert.
Hann segir að Skólavörðustígurinn njóti
ákveðinnar sérstöðu, þar séu smærri verslanir
en víða annarsstaðar, og mikið af handverks-
fólki sem sé að selja eigin vörur. „Við erum
líka einn af fáum verslunarkjörnum sem eftir
eru á landinu sem getur boðið upp á veður,
sem við teljum mikinn kost“ segir Eggert.
Dagskráin á morgun verður ekki formleg og
niðurnjörfuð, heldur standa þeir sem vilja fyr-
ir uppákomum á þeim tíma sem hentar. Þann-
ig verður verslunin 12 tónar með nokkur tón-
listaratriði, Birna Þórðardóttir stýrir fjölda-
göngum um Skólavörðustíginn, Ófeigur
gullsmiður býður upp á tangó, auk þess sem
boðið verður upp á tískusýningar hjá Eggert
feldskera, Sjöfn Har og Maríu Lovísu fata-
hönnuði, svo fátt eitt sé nefnt.
Miðilslaus skyggnulýsing
„Svo verður skyggnulýsing fyrir framan hjá
mér klukkan 19, en þá erum við ekki að tala
um miðilsfund,“ segir Eggert. „Við erum að
taka saman myndir sem Björn Blöndal hefur
ljósmyndari hefur tekið undanfarin ár, hann
hefur verið duglegur að fylgjast með því sem
ég er að gera. Hann ætlar að setja upp mynd-
varpa og varpa myndunum upp á Hvíta band-
ið, húsið sem er beint á móti Eggert feld-
skera.“
Eggert segir að þegar sé búið að ákveða að
halda hátíð á Skólavörðustígnum árlega á
fyrsta vetrardag í framtíðinni, en þetta er í
fyrsta skipti sem kaupmenn taka sig saman
um að halda svona upp á daginn. Eggert segir
að ef vel takist til komi vel til greina að halda
upp á sumardaginn fyrsta með svipuðum
hætti, þó að engin ákvörðun hafi verið tekin
um það.
Fagna fyrsta vetrardegi
Morgunblaðið/RAX
Vetrarhátíð Sérstök stemmning verður á Skólavörðustígnum á morgun, fyrsta vetrardag.
Skemmtun fyrir alla á Skólavörðustíg
Hafnarfjörður | Fræðsluráð Hafn-
arfjarðarbæjar hefur ákveðið að
skipa starfshóp með það hlutverk að
fara yfir stöðuna eftir verkfall
grunnskólakennara, og á hópurinn
að skoða með hvaða hætti megi lág-
marka áhrif verkfallsins á fram-
vindu náms og námsárangur nem-
enda.
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði, sem
og foreldrar og forráðamenn barna í
grunnskólum bæjarins hafa áhyggj-
ur af því hvaða áhrif verkfallið kem-
ur til með að hafa á framvindu nem-
enda í námi, segir í tilkynningu frá
Hafnarfjarðarbæ.
Á síðasta fundi fræðsluráðs var
því samþykkt að fela fræðslustjóra
að mynda hóp hagsmunaaðila strax
að loknu verkfalli. Í hópnum munu
verða verða aðilar frá fræðsluráði,
foreldrum, kennurum og skólastjór-
um, ásamt fræðslustjóra.
Meta stöðuna
eftir verkfall